Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 1

Morgunblaðið - 18.12.2004, Side 1
2004  LAUGARDAGUR 18. DESEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A BJARNI GUÐJÓNSSON SAMDI VIÐ PLYMOUTH ARGYLE / C3 ÞRÍR efnilegir knattspyrnumenn fara til Eng- lands í dag og verða við æfingar hjá enska 1. deildarfélaginu Reading fram að jólum, en þeir eru væntanlegir aftur heim á aðfangadag. Þetta eru Brynjar Orri Bjarnason og Skúli Friðgeirsson, 16 ára gamlir KR-ingar, og Gylfi Sigurðsson, 15 ára leikmaður úr Breiðabliki. Brynjar Orri og Skúli léku báðir með drengja- landsliðinu í ár. Brynjar Orri er sóknarmaður en hann er bróðir Theodórs Elmars, sem er á leið til Celtic í Skotlandi. Skúli er miðjumaður. Gylfi er í úrtakshópi fyrir drengjalandslið árs- ins 2005. Atli Jónasson, jafnaldri og félagi Brynjars og Skúla úr KR, og markvörður drengjalandsliðs- ins í ár, er hjá Hearts í Skotlandi og hefur æft þar með unglingaliðinu og aðalliðinu í þessari viku en hann kemur aftur heim á morgun. Þrír efnilegir æfa í Reading Viggó sagðist alls ekkert hafa verið aðvelta fyrir sér mótherjum Íslands á HM, þar sem það sé ekki hægt að kort- leggja þá að einhverri alvöru fyrr en þeir hafa valið leikmannahóp sinn sem tekur þátt í HM. „Við sáum til dæmis og lékum gegn Slóveníu á heimsbikarmótinu í Svíþjóð á dögunum, þar sem við lögðum Slóvena að velli, 39:34. Það er ekkert að marka þann leik, því að það er ekki hægt að spá í styrk- leika landsliðs Slóveníu fyrr en maður er búinn að sjá þann leikmannahóp sem þeir tefla fram á heimsmeistaramótinu í Túnis. Þar sem við mætum Tékkum í fyrsta leikn- um, er afar gott að fá sem bestar upplýs- ingar um leiki þeirra á lokasprettinum, sem við munum og gera. Við fylgjumst með öðr- um mótherjum okkar þegar á hólminn er komið. Fáum nægan tíma til þess,“ sagði Viggó við Morgunblaðið í gær. Tékkar taka þátt í fjögurra þjóða móti í Malmö og Kaupmannahöfn ásamt Svíum, Dönum og Brasilíumönnum, sem verða einnig með í Túnis. Tékkar leika fyrst gegn Svíum í Malmö, síðan gegn Dönum í Kaupmannahöfn og síðast gegn Brasilíumönnum í Malmö. Á sama tíma tekur íslenska landsliðið þátt í móti á Spáni ásamt Spánverjum, Egyptum og Frökkum. Tékkar halda frá Svíþjóð til Þýskalands og mæta Þjóðverjum í Berlín í lokaleik sín- um fyrir HM, hinn 20. janúar. Ísland leikur í B-riðli á heimsmeistara- mótinu í Túnis með Tékklandi, Rússlandi, Slóveníu, Kúveit og Alsír. Þrjár efstu þjóð- irnar í riðlinum fara í milliriðil ásamt þrem- ur efstu þjóðunum í A-riðli – en þar leika Danmörk, Frakkland, Grikkland, Túnis, Angóla og Kanada. Landslið Tékklands hitar upp fyrir leik gegn Íslandi á HM í Túnis í Malmö, Kaupmannahöfn og Berlín „Við erum með Tékka undir smásjánni“ TÉKKNESKA landsliðið í handknatt- leik, sem mætir Íslandi í fyrsta leiknum á heimsmeistaramótinu í Túnis 23. janúar, hitar upp fyrir við- ureignina á móti í Malmö og Kaup- mannahöfn 14. til 16. janúar og í Berlín 20. janúar. „Þessi verk- efni Tékka eru á afar heppilegum tíma fyrir okkur. Við verðum með Tékka undir smásjánni og við mun- um hafa samband við Svía, Dani og Þjóðverja til að fá myndbands- upptökur á leikjum þeirra við Tékka og þá getur farið svo að ég verð með mann á staðnum til að fyrlgjast með Tékkum,“ sagði Viggó Sigurðs- son, landsliðsþjálfari í handknatt- leik. Morgunblaðið/Golli Ólafur Stefánsson og samherjar hans í íslenska landsliðinu mæta Tékkum í fyrsta leik á HM í Túnis. KEFLVÍKINGAR eru í efsta sæti úrvals- deildarinnar í körfu- knattleik karla, Int- ersportdeildinni, þegar keppnin er hálfnuð. Þeir eru með 16 stig líkt og Njarð- vík og Snæfell en eru efstir þar sem þeir unnu Njarðvík og Snæfellingar fengu dóm á sig vegna brots á launaþakinu á dög- unum og samkvæmt reglugerð skal það lið vera neðst meðal jafn- ingja séu tvö eða fleiri lið jöfn að stigum. Nýliðar Fjölnis eru í fjórða sæti með 14 stig eins og nýliðar Skallagríms, en Fjöln- ismenn höfðu betur, 87:72, í leik liðanna í Grafarvogi 16. nóv- ember. ÍR og Grindavík eru með 12 stig og eru ÍR-ingar taldir ofar, bæði vegna þess að þeir sigruðu í leik lið- anna, 103:66, 10. des- ember, og eins vegna sektarinnar sem Grindavík fékk vegna launaþaksins á dög- unum. Hamar/Selfoss er í áttunda sæti með 10 stig, Haukar í níunda með 8 eins og KR sem er í tíunda sæti, Tindastóll er með 6 stig í næst neðsta sæt- inu og KFÍ rekur lest- ina. Launa- þakið hefur áhrif

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.