Morgunblaðið - 18.12.2004, Blaðsíða 4
MARIBEL Dominguez,
sóknarmaður mexíkóska
kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur skrifað undir
samning við karlaliðið
Celaya sem leikur í 2. deild
í heimalandi hennar. Nú
bíða forráðamenn Celaya
eftir staðfestingu frá knatt-
spyrnusambandinu í
Mexíkó um hvort hún megi
spila með liðinu. Talsmaður
sambandsins kveðst munu
ráðgast við FIFA, Alþjóða
knattspyrnusambandið.
Slík beiðni hefur einu sinni
áður borist til FIFA, frá
Perugia á Ítalíu, en FIFA
vísaði ákvörðun í málinu til
ítalska knattspyrnu-
sambandsins. Ekki reyndi á
það því tvær sænskar lands-
liðskonur, sem Perugia
vildi fá í sínar raðir, þekkt-
ust ekki boð félagsins.
Dominguez er 27 ára
gömul og hefur spilað í
Bandaríkjunum undanfarin
ár þar sem engin kvenna-
deild er starfrækt í Mexíkó.
Kona
semur við
karlalið
FÓLK
CHRIS Turner var í gær ráðinn
knattspyrnustjóri Stockport,
neðsta liðsins í ensku 2. deildinni.
Guðjón Þórðarson var inni í mynd-
inni þar og hafnaði tilboði félagsins,
eins og fram hefur komið. Turner
hefur verið atvinnulaus í tvö ár en
stýrði síðast liði Sheffield Wedn-
esday.
MUZZY Izzet, miðjumaður Birm-
ingham, leikur ekki með liðinu
næstu fjórar vikurnar í ensku úr-
valsdeildinni. Hann gekkst undir
speglun á hné í vikunni. Izzet kom
til Birmingham frá Leicester en
hefur aðeins verið fimm sinnum í
byrjunarliðinu og hefur stöðugt átt í
meiðslum síðan hann kom til félags-
ins.
MÓÐUR hins unga brasilíska
knattspyrnumanns Robinhos var
sleppt úr haldi mannræningja í gær,
eftir hafa verið í haldi þeirra í 40
daga. Henni var rænt í grillveislu
fyrir við heimili sitt í bænum Praia
Grande sem er í 75 km fjarlægð frá
Sao Paulo. Hún var úrskurðuð við
þolanlega heilsu af lækni en greini-
legt var að hún var nokkrum kílóum
léttari en áður.
ROBINHO, sem leikur með Sant-
os, hefur verið líkt við brasilíska
snillinginn Pelé, m.a. af honum
sjálfum. Robinho er undir smásjá
margra sterkustu félagsliða Evr-
ópu, m.a. Chelsea og Real Madrid.
GORDON Strachan hefur af-
þakkað boð um að taka við knatt-
spyrnustjórn hjá enska úrvalsdeild-
arliðinu Portsmouth.
AUSTURRÍKISMENN unnu þre-
faldan sigur í risasvigi karla í
heimsbikarkeppninni á skíðum en
keppt var í Val Gardena á Ítalíu í
gær. Michael Walchhofer kom
fyrstur í mark á 1.31,17 mínútum og
var 12/100 úr sekúndum á undan
Hermann Maier. Benjamin Raich
hreppti þriðja sætið.
FORYSTUSAUÐURINN í heims-
bikarkeppninni, Bandaríkjamaður-
inn Bode Miller, varð fjórði og held-
ur því áfram öruggri forystu í
heildarstigakeppni heimsbikarsins.
Þetta var í þriðja sinn á ferlinum
sem Walchhofer vinnur keppni í
heimsbikarnum.
TALSMENN Evrópumótaraðar
kvenna í golfi, LET, tilkynntu í
vikunni að næsta keppnistímabil
yrði það viðamesta í 25 ára sögu
LET en keppt verður á 20 mótum
og heildarverðlaunfé mótarað-
arinnar nemur rúmum 760 millj.
kr. Það er um 16% hærri upphæð
en var á síðasta keppnistímabili.
Einnig verður keppnistöðunum
fjölgað en keppt verður í 17 lönd-
um í fjórum heimsálfum. Íslands-
meistari kvenna í höggleik, Ólöf
María Jónsdóttir, tryggði sér rétt
til þess að leika á LET-mótaröð-
inni í haust er hún komst í gegn-
um úrtökumótið fyrir Evr-
ópumótaröð kvenna.
Á næsta ári verða mót í Suður-
Afríku, Singapúr, Taílandi og
Finnlandi en þessi lönd hafa ekki
verið gestgjafar á LET-
mótaröðinni áður. Einnig verður
keppt í Noregi, Danmörku og í
Austurríki en þar var ekki keppt
á síðustu leiktíð.
Að auki verður keppt á sér-
stakri mótaröð sem fram fer í N-
Evrópu og heita þau mót Volvo
Cross Country-mótin en bifreiða-
framleiðandinn gerði nýverið
þriggja ára samning við LET
þess efnis. Sá kylfingur sem nær
að vinna öll mótin á Volvo Cross
Country-mótaröðinni fær um 63
millj. kr. í verðlaunafé en sú upp-
hæð er fyrir utan það verð-
launafé sem er í boði á hverju
móti.
Aukið verðlaunafé og fleiri mót
á Evrópumótaröð kvenna
Fyrri leikurinn verður á CampNou miðvikudaginn 23. febrúar
en hinn síðari á Stamford Bridge
þriðjudaginn 8. mars. „Menn sem
eru í fremstu röð knattspyrnumanna
í heiminum eiga aldrei að hræðast
andstæðing sinn. Okkar markmið er
að leika gegn bestu liðum heims, að-
eins þannig geta menn sótt fram og
bætt sig,“ sagði Mourinho ennfrem-
ur og lætur engan bilbug á sér finna.
Mourinho er öllum hnútum kunn-
ugur í keppninni eftir að hafa stýrt
Porto til óvænts sigur í keppninni í
vor. „Þetta er frábær niðurstaða þar
sem ég tel Chelsea og Barcelona
vera tvö bestu lið heims um þessar
mundir,“ sagði Joan Laporta, forseti
Barcelona, sem viðstaddur var þegar
dregið var í höfuðstöðvum UEFA.
Giovanni van Bronckhorst, varn-
armaður Barcelona og fyrrverandi
leikmaður Arsenal, sagði þegar
drátturinn lá fyrir í gær að Chelsea
hefði ekki verið óskamótherji. „Eins
og Chelsea leikur um þessar mundir
þá er ljóst að það getur unnið þessa
keppni. Mourinho hefur byggt upp
frábæra liðsheild sem er til alls lík-
leg. Hvar sem litið er á þetta lið þá er
það frábært, ekki síst í sókninni þar
sem það hefur úr að spila mönnum
eins og Arjen Robben, Didier
Drogba, Damien Duff og Eiði Guð-
johnsen. Það vanar ekki sóknar-
kraftinn,“ sagði van Bronckhorst.
Síðast þegar liðin áttust við í
Meistaradeildinni, vorið 2000, þá
hafði Barcelona betur, sló Chelsea úr
leik. „Nú er komin röðin að okkur að
leita hefnda,“ sagði David Barnard,
einn framkvæmdastjóra Chelsea.
„Við berum virðingu fyrir Barcelona
en við óttumst þá alls ekki,“ sagði
hann ennfremur.
Reuters
Leikmenn Chelsea eiga eftir að glíma við eina hættulegustu sóknarframlínu heims, er þeir leika
við Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Hér fagna þeir Ronaldinho og Iniesta, en
hinn snjalli Samuel Eto’o kippir sér ekkert upp við það að eitt mark hafi verið sett.
Mourinho varð
að ósk sinni
JOSE Mourinho, knattspyrnustjóra Chelsea, varð að ósk sinni þeg-
ar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í
gær því lið hans mætir Barcelona. Þar hóf hann feril sinn sem þjálf-
ari undir handarjaðri hins síunga Bobby Robsons. „Af tilfinninga-
legum ástæðum og einnig sökum þess að Barcelona leikur best
allra liða í Evrópu um þessar mundir þá vildi ég gjarnan mæta
Barcelona,“ sagði Mourinho áður en dregið var. „Ég er mjög
ánægður,“ sagði hann þegar búið var að draga.
Chelsea mætir Barcelona í Meistaradeild Evrópu
NORSKI landsliðsframherjinn
John Carew hefur verið orðaður
við spænska liðið Barcelona og
Frank Rijk-
aard, þjálf-
ari liðsins,
hefur sagt
norskum
fjölmiðlum
að leikmað-
urinn sé
einn af
mörgum sem
hann hafi
áhuga á að
fá til liðsins.
Eftir að
Henrik Lars-
son meiddist
í leik gegn
Real Madrid
á dögunum
hafa for-
svarsmenn
Barcelona
velt fyrir sér
hvaða leik-
maður henti liðinu best á þessum
tímapunkti. Carew var seldur í
sumar frá Valencia til tyrkneska
liðsins Besiktas fyrir um 290
milljónir króna en dagblöð í
Tyrklandi greina frá því að fé-
lagið sé tilbúið að láta leikmann-
inn fara fyrir um 420 milljónir
króna.
Carew var keyptur frá Óslóar-
liðinu Vålerenga árið 1999 fyrir
um 230 milljónir króna og voru
það norsku meistararnir Rosen-
borg frá Þrándheimi sem keyptu
Carew. Ári síðar var hann seld-
ur til Valencia fyrir metfé í
norskri knattspyrnu, tæplega
780 milljónir króna.
Fari svo að Barcelona kaupi
Carew fyrir 420 milljónir hefur
leikmaðurinn gengið kaupum og
sölum fyrir rúmlega 1,7 millj-
arða króna.
Rijkaard
hefur áhuga
á Carew
Norski lands-
liðsmaðurinn
John Carew.
DAVID Murray, eigandi skoska
úrvalsdeildarliðsins Glasgow
Rangers, segir að hann sé sann-
færður um að félagið verði búið
að greiða niður skuldir þess eft-
ir rúmt ár, en hópur fjárfesta
með hann í fararbroddi hefur
safnað saman rúmlega 6,3 millj-
örðum króna. Heildarskuldir fé-
lagsins eru taldar vera um 8,7
milljarðar. Murray segir að Alex
McLeish, knattspyrnustjóri liðs-
ins, fái ekki mikið fé til þess að
kaupa leikmenn í janúar enda sé
markmiðið að ná skuldum fé-
lagsins niður á næstu misserum.
Celtic er þessa stundina í efsta
sæti skosku deildarinnar og vilja
stuðningsmenn Rangers að fé-
lagið fái liðsstyrk til þess að
keppa við erkifjendurna um
skoska meistaratitilinn. „Það
verða ekki keyptir leikmenn til
félagsins nema aðrir verði seldir
í staðinn. Ef það gerist þá mun
McLeish fá þá peninga til þess
að kaupa leikmenn,“ segir
Murray en hann á um 92% hlut í
félaginu.
Rangers
grynnkar á
skuldum