Morgunblaðið - 20.12.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 20.12.2004, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN „SAMKVÆMISLEIKIR EFTIR BRAGA ÓLAFSSON ER MÖGNUÐ SKÁLDSAGA. ÞRÆLMÖGNUÐ. ...EFTIR LESTUR BÓKARINNAR SITUR MAÐUR GJÖRSAMLEGA BERGNUMINN. HVAÐ GERÐIST EIGINLEGA?“ – Hlynur Páll Pálsson, Fréttablaðið „ALVEG FRÁBÆR BÓK, SPENNANDI OG FYNDIN“ – Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljós UM 60 SJÍTAR FALLNIR Minnst 62 menn biðu bana í gær í tveimur bílsprengjuárásum í helg- ustu borgum sjíta í Írak, Najaf og Karbala. Leiðtogar sjíta sögðu að uppreisnarmenn úr röðum súnníta hefðu verið að verki og markmið þeirra væri að hindra þingkosningar í janúar og koma af stað borgara- styrjöld. Konur greiða meira fyrir lyf Greiðslur kvenna fyrir lyf sem þær nota eru hlutfallslega hærri en greiðslur karla. Formaður Lækna- félags Íslands segir að konur vegi meira í þeim lyfjaflokkum þar sem teknar hafa verið ákvarðanir um takmarkaðri niðurgreiðslur frá Tryggingastofnun. Flest algengustu geðlyf eru aðeins skrifuð út fyrir 30 daga í senn en konur eru líklegri en karlar til að taka slík lyf. Boðið verði dregið til baka Utanríkisráðuneytinu hefur borist orðsending frá bandarískum stjórn- völdum þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til þess að draga til baka boðið til Bobby Fischers um dval- arleyfi á Íslandi. Skv. heimildum Morgunblaðsins hefur bandaríski sendiherrann á Íslandi áréttað að ákveðið ferli sé í gangi í Bandaríkj- unum gagnvart Fischer, þ.e. að hann hafi verið ákærður og sé þar eftir- lýstur og að ekki standi til að falla frá því. Vinnslufyrirtæki Yukos selt Áður óþekkt fjárfestingarfélag í Rússlandi hreppti stærsta vinnslu- fyrirtæki olíurisans Yukos á uppboði í Moskvu í gær. Talið er líklegast að fjárfestingarfélagið tengist Gazpr- om, gaseinkasölu ríkisins. Arfgerð tengist átthögum Samkvæmt niðurstöðum rann- sókna Íslenskrar erfðagreiningar á ættfræði og arfgerðum eru tengsl á milli átthaga og erfðabreytileika Ís- lendinga. Þetta á í ríkum mæli við þéttbýlustu landbúnaðarsvæðin á Norðurlandi og Suðurlandsundir- lendi. Niðurstöðurnar voru birtar á heimasíðu tímaritsins Nature gene- tics í gær og munu síðan verða prentaðar í janúarhefti tímaritsins. Gaza-áætlunin sögð í höfn Talsmaður Verkamannaflokksins í Ísrael sagði í gær að áætlunin um brotthvarf Ísraela frá Gaza-svæðinu væri í höfn eftir að flokkurinn samdi við Likud-flokkinn um myndun sam- steypustjórnar. Gert er ráð fyrir því að leiðtogar flokkanna undirriti stjórnarsáttmála í dag. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Myndasögur 30 Fréttaskýring 8 Víkverji 30 Minn staður 12 Dagbók 30/32 Erlent 13 Staður og stund 32 Daglegt líf 16 Menning 33/37 Listir 17 Leikhús 33 Umræðan 18/19 Bíó 34/37 Bréf 19 Ljósvakar 38 Forystugrein 20 Staksteinar 39 Minningar 22/26 Veður 39 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HÆGT yrði að auka réttindi launa- fólks til eftirlauna um 21–24% ef rík- issjóður axlaði ábyrgð á greiðslu ör- orkulífeyris vegna örorku á al- mennum vinnumarkaði. Þetta kemur meðal annars fram í greinargerð um jöfnun lífeyrisrétt- inda og vanda lífeyriskerfisins, sem Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda- stjóri Alþýðusambands Íslands, tók saman í tengslum við gerð kjara- samninganna snemma í vor, en stór þáttur samningaviðræðnanna laut að lífeyrismálum. Var meðal annars samþykkt að auka greiðslur til líf- eyrissjóða úr 10% af heildarlaunum í 12% á samningstímanum fram til 2008, auk þess sem nefnd var sett á laggirnar til þess að ræða um vanda almenna lífeyriskerfisins. Felst hluti af nefndarstarfinu í viðræðum við stjórnvöld um aðkomu þeirra að ein- staka þáttum, meðal annars breytta verkaskiptingu milli lífeyrissjóða og almannatrygginga hvað varði áfalla- lífeyri annars vegar og ellilífeyri og eftirlaun hins vegar, eins og segir í bókun samningsaðila í tengslum við kjarasamninganna vegna þessa. Ríkisstjórnin reiðubúin til viðræðna Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna samninganna lýsir hún sig reiðubúna að taka upp viðræður við nefndina um hugsanlega aðkomu stjórnvalda að tilteknum þáttum sem nefndin muni taka til meðferðar, „m.a. að því er varðar verkaskipt- ingu milli lífeyrissjóða og almanna- trygginga,“ eins og segir orðrétt í yf- irlýsingunni. Fram kemur í greinargerðinni að hægt yrði að auka ávinnslurétt launafólks úr 1,4% á ári í 1,65–1,70% eða um helming af mismun algeng- ustu réttinda gagnvart opinberum starfsmönnum yrði það niðurstaðan að ríkið axlaði ábyrgð á kostnaði við ábyrgð á örorkubyrði lífeyrissjóð- anna. Fullyrða megi að ríkið beri nú þegar þessa byrði gagnvart sjóð- félögum í Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, auk þess sem ekki sé óeðli- legt að áfallatryggingar eins og vegna örorku séu fjármagnaðar með samtímatekjum en ekki sjóðssöfnun. Jafnframt er kostnaður ríkissjóðs af þessum breytingum áætlaður 3,2 milljarðar króna brúttó miðað við kostnað lífeyrissjóðanna vegna ör- orku árið 2002, en á móti kæmu auknar skatttekjur ríkis og sveitar- félaga, auk skerðingar á greiðslum tekjutryggingar frá Tryggingastofn- un ríkisins vegna hærri eftirlauna. Gylfi Arnbjörnsson sagði í samtali við Morgunblaðið að viðræður við ríkisvaldið vegna þessa væru enn ekki hafnar, en aðilar vinnumarkað- arins hafi gert stjórnvöldum grein fyrir mikilvægi málsins og hann eigi ekki von á öðru en að vel verði tekið í það að setjast að viðræðum í þessum efnum. Viðræður um verkaskiptingu vegna örorkulífeyris Eftirlaun gætu hækkað um 21–24% 129.000 tonn, í samtals 835 veiðiferðum en skipið hefur flest árin verið aflahæsti ísfisktogarinn á Norðurlandi. Mesti afli í einni veiðiferð var 372 tonn af grálúðu eftir fimm daga árið 1981 en þá var Þorsteinn Vilhelmsson skipstjóri. Birgir vélstjóri sagði að Kaldbakur væri úrvals- skip, sem hefði reynst vel og farið vel með mann- skapinn enda verið vel við haldið. Undir það tók Sverrir bróðir hans, sem kom með skipið til Akur- KALDBAKUR EA-1, ísfisktogari Brims, áður Út- gerðarfélags Akureyringa, kom til heimahafnar í gær, með um 60 tonna afla eftir þriggja daga veiðiferð á miðunum fyrir norðan og norðaustan land. Sæmundur Friðriksson útgerðarstjóri Brims var mættur á bryggjuna í hátíðarskapi en í gær voru nákvæmlega 30 ár liðin frá því Kaldbak- ur EA kom nýr til Akureyrar. Togarinn var smíð- aður á Spáni árið 1974. Þeir Sveinn Hjálmarsson skipstjóri og Birgir Valdemarsson vélstjóri hafa verið skipverjar á Kaldbaki frá upphafi og af því tilefni voru þeim færðar gjafir frá útgerðinni við komuna til hafn- ar. Fyrsti skipstjóri Kaldbaks var Sverrir Valde- marsson, bróðir Birgis vélstjóra, en síðan tók Þor- steinn Vilhelmsson við skipinu. Sveinn Hjálmarsson byrjaði sem 2. stýrimaður á Kald- baki árið 1974 en hann hefur verið skipstjóri í 21 ár. Afli Kaldbaks á þessum 30 árum er rúmlega eyrar fyrir 30 árum í stórhríð og 10 vindstigum. Sveinn sagði að árin um borð hafi verið ágæt og áfallalaus að mestu. Hann sagði að í heildina hefði verið lítið um mannabreytingar um borð, fyrir ut- an þann tíma sem frystitogararnir voru að ryðja sér til rúms. Aðspurður um framtíðina og hvort hann eigi eftir að vera um borð mörg ár enn, sagði Sveinn að ómögulegt væri að spá í slíka hluti nú á dögum. Morgunblaðið/Kristján Sæmundur Friðriksson, útgerðarstjóri Brims, Birgir Valdemarsson vélstjóri, bróðir hans Sverrir Valdemarsson, sem var fyrsti skipstjóri Kaldbaks, og Sveinn Hjálmarsson skipstjóri í brú skipsins. Skipstjórinn og vélstjórinn verið um borð frá upphafi Þrjátíu ár liðin frá því Kaldbakur EA kom til Akureyrar í fyrsta sinn EKKI kemur til greina að svo stöddu að selja Kröfluvirkjun eða Bjarnarflagsvirkjun. Landsvirkjun á í miklum framkvæmdum og ekki er verið að skoða að skipta fyrirtækinu upp. Þetta segir Val- gerður Sverris- dóttir iðnaðarráð- herra vegna óska landeigenda í Reykjahlíð um að ráðherra beiti sér fyrir því að teknar verði upp viðræður við Landsvirkjun um kaup landeig- enda á virkjununum tveimur í Mý- vatnssveit. Valgerður segist vita- skuld virða viðleitni landeigenda til þess að skapa fleiri störf heima í hér- aði en sala á virkjunum komi ekki til greina. Ótímabundinn samningur gerður fyrir 30 árum Ráðherra segir ríkið hafa gert ótímabundinn samning við landeig- endur fyrir um 30 árum um virkj- anaréttindi og greiðsla fyrir þau hafi verið innt af hendi í formi hitaveitu á svæði landeigenda. Ríkið eigi allan virkjanarétt á svæðinu samkvæmt samningnum. Deila megi um eftir á hversu skynsamlegur samningurinn hafi verið en það sé annar handlegg- ur. Valgerður segir að ríkið hafi síð- an selt Landsvirkjun Kröflu um miðjan níunda áratuginn en í þeim samningi hafi framleiðsla á raforku verið bundin við 70 megavött en nú sé verið að semja um aukin réttindi við Landsvirkjun umfram þessi 70 megavött. Ráðherra bendir á í þessu sam- bandi að árið 2002 hafi Alþingi sam- þykkt lög sem heimiluðu að Kröflu- virkjun yrði stækkuð í 200 megavött. Í framhaldi af því hafi Landsvirkjun síðan fengið rannsóknarleyfi á svæð- inu til 2009. Slíkt rannsóknarleyfi sé ekki háð samningum við landeigend- ur. Þá segir Valgerður það vera mis- skilning að ríkið og Landsvirkjun séu á einhvern hátt að fara á bak við landeigendur, heimild liggi fyrir frá Alþingi um aukningu framleiðslunn- ar í 200 MW. Krafla ekki til sölu Valgerður Sverrisdóttir SAMÞYKKT var í útvarpsráði sl. föstudag að tillögu Sjónvarpsins að hafa ekki forkeppni fyrir Evrópu- söngvakeppnina á næsta ári. Í staðinn verður einum aðila falin þátttaka í söngvakeppninni fyrir hönd RÚV. Bjarni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Sjónvarpsins, segir ástæður fyrir því að þessi leið var valin vera bæði fjárhagsstaða Sjón- varpsins og þau stóru verkefni sem framundan eru hjá stofnuninni á næsta ári. „Þar má nefna m.a. tvær leiknar innlendar þáttaraðir, ann- ars vegar Kallakaffi og hins vegar þáttaröð sem nefnist Allir litir hafs- ins. Þar sem við stöndum frammi fyr- ir því, líkt og allir aðrir, að þurfa að forgangsraða verkefnum, og for- keppni hér heima er bæði viðamik- ið og kostnaðarsamt verkefni, varð þetta niðurstaðan,“ segir Bjarni. Ekki forkeppni fyrir Evróvisjón ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.