Morgunblaðið - 20.12.2004, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.12.2004, Qupperneq 12
12 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Munið að slökkva á kertunum ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Eldtefjandi efni sem sprautað er á kertaskreytingar koma aldrei í veg fyrir bruna. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ HUGMYNDIN kviknaði í spjalli þeirra Snjólaugar og Ásu Harðardóttur forstöðumanns Safnahússins. Þær voru sammála um að hún væri tilraunarinnar virði og ákváðu að slá til. Húsnæðið var til staðar og þarna var kominn staður þar sem einnig væri hægt að bjóða upp á ýmsar uppá- komur á aðventunni. Snjólaug hefur sett upp listmuni sína og handverk í kaffihúsinu og hefur til sölu, en að öllu jöfnu er galleríið hennar staðsett heima hjá henni á Brúarlandi á Mýrum. „Okkur datt í hug að setja upp kaffihús og reyna að koma smá lífi í gamla bæinn í Borgarnesi,“ sagði Snjólaug. „Ég vona að það hafi tekist því hér hafa verið fjölbreyttar uppákomur sem byrjuðu með því að Þórarinn Eldjárn las úr bók sinni Baróninn og afhenti Héraðsskjalasafni Borg- arfjarðar vinnuskjölin sem hann notaði á meðan á ritun bókarinnar stóð. Einnig las Finnur Torfi Hjörleifsson eigin ljóð. Seinna lásu þau Guðmundur Sesar, Stefán Máni, Einar Guð- mundsson, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Þorvaldur Þor- steinsson og Kristín Thorlacius úr bókum sínum og Hall- veig Thorlacius kom með brúðuleikhús sitt Sögusvuntuna og flutti leikgerð sína Egla í nýjum spegli. Þá kom Ernst Olsen sagnaþulur og sagði frá lífinu í Færeyjum, menn- ingu og sögu, og á föstudaginn komu Zsuzsanna Budai píanóleikari, Steinunn Pálsdóttir gítarleikari og systurnar Eygló og Jenný Lind Egilsdætur, sem sögðu frá jólunum þegar þær voru að alast upp í Borgarnesi á gamansaman hátt.“ Flutti sig til markaðarins Snjólaug segir að allar uppákomurnar hafi verið vel sóttar. „Svo hefur verið reytingur af fólki á daginn sem komið hefur til að fá sér kaffi og með því og kíkt á muni sem hafa verið hér í boði,“ segir hún. „Ég hef selt svolítið, örugglega meira en ef ég hefði verið heima, enda gerir fólk sér ekki ferð upp í sveit svona rétt fyrir jólin. Með þessu móti gat ég sótt til markaðarins í staðinn. Þetta hefur ver- ið virkilega skemmtilegt og mér hefur fundist að þetta hafi mælst vel fyrir.“ Settur var upp vefstóll frá Hússtjórnarskólanum á Varmalandi og tóku margir þátt í að vefa jólavefinn. Hann var síðan settur upp á föstudaginn og sagði Ása Harð- ardóttir af því tilefni að vonandi væri þetta aðeins byrj- unin; rithöfundar, fulltrúar menningarmálanefndar Borg- arbyggðar, gestir og gangandi hefðu tekið þátt í að vefa fyrsta jólavefinn af mörgum, vonandi. Að sögn Ásu verður nú sest niður og rætt um fram- haldið. Þær Snjólaug voru sammála um að margt kæmi til greina. Til dæmis að fá fleiri listamenn til að flytja vinnu- stofur sínar í Kaffihúsið og að hver yrði einn mánuð í senn. Margskonar möguleikar á sýningarhaldi „Hér eru einnig margskonar möguleikar á sýningar- haldi,“ segir Snjólaug. „Ég hef til dæmis notað muni frá Hússtjórnarskólanum á Varmalandi og hér væri hægt að setja upp sérstaka sýningu með þeim. Ég er viss um að margir hefðu gaman af því, sérstaklega gamlir nemendur skólans. Þá væri hægt að setja hér upp netkaffihús og tengja það bókasafninu. Það finnst mér spennandi mögu- leiki. Hér hefur vantað kaffihús, stað þar sem fólk getur hist og verið saman. Ég hef trú á að líka væri hægt að mynda hér skapandi orku og umræðu með því að gefa lista- og handverksfólki tækifæri til að hafa opna vinnu- stofu þar sem hægt væri að spjalla, skiptast á skoðunum og hugmyndum.“ Snjólaug ætlar að hafa opið til jóla að minnsta kosti, jafnvel út mánuðinn og svo verður séð til með framhaldið. Kaffi- og listmunahús í Safnahúsi Borgarfjarðar á aðventunni Hér gæti verið vett- vangur skapandi orku Kaffihúsamenning hefur ekki náð að skapast í Borgarnesi og kaffi- hús hafa aðeins verið rekin þar á sumrin undanfarin ár. Úr þessu rættist þó í byrjun desember og fór Ásdís Haraldsdóttir í heim- sókn á jarðhæðina í Safnahúsi Borgarfjarðar þar sem Snjólaug Guðmundsdóttir vefnaðarkennari hefur flutt vinnustofu sína og gallerí og þar er einnig lítið kaffi- og listmunahús. Morgunblaðið/Guðrún Vala Snjólaug Guðmundsdóttir vefnaðarkennari flutti vinnustofu sína og gallerí í Safnahúsið og opnaði lítið kaffi- og listmunahús. VESTURLAND Ása Harðardóttir, forstöðumaður Safnahúss Borg- arfjarðar, með jólavefinn. asdish@mbl.is Ólafsfjörður | Slökkvilið Ólafsfjarðar afhenti fyrir skömmu hjónunum Ásgrími Pálmasyni og Kristínu Káradóttur eldvarnarbúnað í húsið sem þau hafa endur- reist síðustu þrjá mánuði. Íbúðarhús þeirra við Hlíðar- veg í Ólafsfirði brann 21. ágúst síðastliðinn og var nánast ónýtt. Þau hjónin voru fjarverandi með börnin sín þegar eld- urinn braust út. Í þessum eldvarnarbúnaði eru meðal annars eldvarn- arteppi, slökkvitæki og reykskynjarar. Slökkviliðsmenn- irnir gáfu eldvarnarbúnaðinn, en Slökkvilið Ólafsfjarðar fer á hverju ári í sérhvert hús í bænum til að selja raf- hlöður í reykskynjarana og bjóðast þeir enn fremur til að yfirfara slík tæki ef fólk vill. Þeim telst til að í Ólafsfirði séu um það bil 1.300 reyk- skynjarar í 350 húsum. Ekki er vitað til að önnur slökkvi- lið á landinu geri slíkt hið sama. Gefa eldvarnarbúnað í endurreist hús Morgunblaðið/Helgi Jónsson Gjöf Slökkviliðsmenn Ólafsfjarðar ásamt eigendum hússins: Halldór Guðmundsson, Gunnlaugur J. Magn- ússon, Anton Konráðsson, Kristín Káradóttir, Ásgrímur Pálmason, Eggert Friðriksson og Jóhann Jóhannsson. LANDIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.