Morgunblaðið - 20.12.2004, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 13
ERLENT
VIKTOR Jústsjenko, forsetaefni stjórnarandstöð-
unnar í Úkraínu, var byrlað hreint TCDD, eitt af
eitruðustu efnum sem til eru í heiminum, að sögn
vísindamanna sem hafa rannsakað blóðsýni úr hon-
um.
Þrjár rannsóknarstofur í Hollandi og Þýskalandi
hafa staðfest að í blóði Jústsjenkos voru 100.000 ein-
ingar af eitrinu, sem er næstmesta magn sem
nokkru sinni hefur mælst í blóði manns.
Eiturefnafræðingurinn Abraham Brouwer, sem
stjórnaði rannsókninni, sagði að TCDD væri hættu-
legast allra díoxína.
TCDD var notað í illgresiseyði sem bandarískir
hermenn úðuðu á þéttan gróður í Víetnamstríðinu til
að koma í veg fyrir að óvinahermenn gætu falið sig
þar. Hætt var að nota illgresiseyðinn eftir að í ljós
kom að hann olli fjölda kvilla meðal hermanna og
óbreyttra borgara í Víetnam.
Brouwer sagði að aðeins tilraunastofur sem kaupa
eða selja eitrið til eiturefnarannsókna, herir sem
réðu yfir efnavopnum eða „snjall efnafræðingur“
gætu útvegað hreint TCDD. Lögreglan í Úkraínu
gæti því einbeitt sér að þessum þremur möguleikum
við rannsóknina á því hvaðan eitrið kom.
AP
Viktor Jústsjenko á kosningafundi í Kíev í Úkraínu í gær með manni sem klæddur er sem heilagur Nikulás.
Var byrlað skæðasta díoxínið
London. AP.
AÐ minnsta kosti 62 menn biðu
bana og hátt í 200 særðust í tveim-
ur bílsprengjutilræðum í helgum
borgum sjíta í Írak í gær. Óttast er
að tilræðin séu upphaf að hrinu
árása á sjíta fyrir þingkosningarn-
ar í Írak 30. janúar.
Um 48 manns lágu í valnum eftir
að bílsprengja sprakk nálægt
helgistað sjíta í Najaf. Tveimur
klukkustundum áður létu fjórtán
manns lífið þegar bílsprengjuárás
var gerð á strætisvagnastöð í
grennd við helgistað sjíta í Karb-
ala.
Árásin í Najaf var gerð á torgi í
miðborginni, nálægt grafhýsi
ímamsins Alís. Mikill mannfjöldi
var á torginu til að fylgjast með
líkgöngu þegar bílsprengjan
sprakk.
Héraðsstjóri og lögreglustjóri
Najaf voru um hundrað metra frá
bílnum sem sprakk. Lögreglu-
stjórinn sagði að markmiðið með
árásinni hefði verið að ráða þá af
dögum.
Sjónarvottar sögðu að árásar-
mennirnir í Karbala hefðu fyrst
reynt að aka að skrifstofu, þar sem
nýliðar eru skráðir í lögregluna.
Gatan var hins vegar lokuð og þeir
óku þess í stað inn á lögreglustöð-
ina og sprengdu bílinn þar í loft
upp. Fimm bílar og tíu smárútur
eyðilögðust í sprengingunni.
Fjórum dögum áður létu tíu
manns lífið og fjörutíu særðust í
sprengingu við grafhýsi ímamsins
Husseins í Karbala.
Óttast er að markmiðið með
árásunum á sjíta sé að hindra
kosningarnar í janúar. Sjítar eru
um 60% íbúa landsins og búist er
við að þeir verði langáhrifamestir í
næstu ríkisstjórn. Súnnítar voru
við völd í landinu meginhluta ald-
arinnar sem leið.
Starfsmönnum bandarísks
fyrirtækis rænt
Um 30 vopnaðir menn sátu í gær
fyrir bíl starfsmanna íraskrar
stofnunar, sem skipuleggur fyrir-
hugaðar þingkosningar, og skutu
þrjá þeirra til bana. Tveir aðrir
voru í bílnum en þeir særðust ekki.
Yfirmaður írösku stofnunarinn-
ar sagði að kosningarnar yrðu
haldnar 30. janúar sama hversu
margir starfsmenn hennar féllu í
árásum „hryðjuverkamanna“.
Þá réðust íraskir uppreisnar-
menn inn í skrifstofur bandaríska
fyrirtækisins Sandi Group í Írak í
gær og tóku tíu íraska starfsmenn
þess í gíslingu. Uppreisnarmenn-
irnir sendu frá sér myndband þar
sem þeir hótuðu að taka fólkið af
lífi og ráðast á fleiri starfsmenn
fyrirtækisins hætti það ekki starf-
semi í Írak. Fyrirtækið, sem er
með höfuðstöðvar í Washington,
býður upp á öryggis- og túlkaþjón-
ustu í Írak auk þess sem það sér
um flutninga.
Minnst 62 bíða bana í
tilræðum í borgum sjíta
Najaf, Karbala, Bagdad. AP, AFP.
AP
Írakar á torgi í miðborg Najaf eftir bílsprengjuárás sem kostaði 48
manns lífið í gær. Nær hundrað manns særðust í sprengjutilræðinu.
DULARFULLT rússneskt fjár-
festingarfélag, Baikalfinansgroup,
hreppti stærsta vinnslufyrirtæki
rússneska olíurisans Yukos, Yug-
anskneftegaz, á uppboði í Moskvu í
gær. Kaupverðið er 260,75 millj-
arðar rúblna, jafnvirði tæpra 580
milljarða króna.
Fjárfestingarfélagið var óþekkt
áður en það tók þátt í uppboðinu
en rússneskir kaupsýslusérfræð-
ingar sögðu líklegast að það tengd-
ist gaseinkasölu ríkisins, Gazprom.
Búist hafði verið við að Gazprom
keypti dótturfyrirtæki Yukos en
gasfyrirtækið tilkynnti á síðustu
stundu að það hygðist ekki bjóða í
það.
Yuganskneftegaz framleiðir um
milljón tonna af olíu á dag, eða
jafnmikið og framleitt er í Texas í
Bandaríkjunum. Fyrirtækið var
boðið upp til að hægt yrði að greiða
meintar skattskuldir sem Yukos
hefur véfengt. Stjórnendur Yukos
sögðust ætla að höfða mál gegn
nýjum eigendum Yuganskneftegaz
þar sem uppboðið væri ólöglegt.
Rússneska olíufyrirtækið Surg-
utneftegaz, sem búist var við að
myndi taka þátt í uppboðinu, sagð-
ist ekki standa á bak við fjárfest-
ingarfélagið dularfulla.
Baikalfinansgroup er skráð í hér-
aðinu Tver í Mið-Rússlandi. Rúss-
neskir sérfræðingar sögðu að
Gazprom hefði líklega stofnað fé-
lagið upp á eigin spýtur eða með
öðrum fyrirtækjum sem tengdust
ríkinu.
Dularfullt félag
keypti vinnslu-
fyrirtæki Yukos
Talið tengjast Gazprom
Moskvu. AFP.
STJÓRN Ísraels samþykkti í gær að 170
Palestínumönnum yrði sleppt úr ísr-
aelskum fangelsum síðar í vikunni.
Embættismenn í Jerúsalem sögðu að
fangarnir yrðu látnir lausir til að styrkja
stöðu Mahmuds Abbas fyrir forsetakosn-
ingar Palestínumanna 9. janúar og til að
sýna þeim að Ísraelar vildu sættir.
Palestínskir embættismenn tóku þó
ákvörðun Ísraelsstjórnar fálega og kröfð-
ust þess að hún leysti alla palestínska
fanga í Ísrael úr haldi. Þeir eru nú um
7.000.
Í tilkynningu frá ráðuneyti Ariels Shar-
ons, forsætisráðherra Ísraels, sagði að
ákvörðunin hefði verið tekin í þakklæt-
isskyni við Hosni Mubarak Egyptalands-
forseta vegna þeirrar ákvörðunar hans að
sleppa Ísraela sem haldið var í fangelsi í
Egyptalandi fyrir njósnir í þágu Ísraels.
Hernaði á Gaza hætt
Ísraelskar hersveitir fóru frá Khan
Yunis-flóttamannabúðunum á Gaza-svæð-
inu á laugardag eftir tveggja daga hernað
sem kostaði ellefu Palestínumenn lífið.
Nær 40 íbúðarhús voru eyðilögð í árásum
Ísraela.
Ísraelsher sagði að hernaðurinn hefði
beinst að húsum sem Palestínumenn
hefðu notað til að gera 50 sprengju- og
flugskeytaárásir á byggðir gyðinga á
Gaza-svæðinu.
Palestínskir
fangar leyst-
ir úr haldi
Jerúsalem. AP.
HEIMILISLAUSUM manni, sem
sofnaði í ruslagámi í Bandaríkjun-
um, var sturtað í öskubíl á föstudag
og hann lenti þar í sorpþjöppu – en
slapp lítt meiddur.
„Það var svo sannarlega krafta-
verk að maðurinn skyldi komast út
úr bílnum án alvarlegra meiðsla,“
sagði framkvæmdastjóri sorp-
hreinsunar bæjarins Ann Arbor í
Michigan. Hann bætti við að í bíln-
um væri stór járnspaði sem ýtti
sorpinu að vegg til að þjappa því
saman og nýta rýmið sem best.
Eftir að öskukarlarnir urðu
mannsins varir fóru slökkviliðs-
menn upp á þak bílsins og þeim
tókst að ná honum út. Hann hafði
lagst til svefns í ruslagámi á bak við
krá og veitingahús.
Slapp úr sorpþjöppu
Ann Arbor. AP.