Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 18

Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 18
18 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Saga bílsins á Íslandi 1904-2004 Ótrúlega fjölbreytt saga af ævintýrinu um bílinn, sem breytti íslensku þjóðlífi meira en nokkurt annað tæki. Spennandi lestur fyrir alla sem hafa gaman af þjóðlegum fróðleik, ferðasögum, frá- sögnum af mannraunum og því hvernig fólkið í landinu þróaði nýtt samfélag, samfélag sem byggist á sam- göngum – stundum í bar- áttu við stjórnvöldin. mikið úrval af nýjum fatnaði LYNGHÁLSI 3 SÍMI: 540 1125 vinsælu Tattini 4 í 1 úlpurnar komnar aftur - 3 litir opið Lau: 9-21 Sun:10-18 mán-mið: 8-21 Þorl.8-22 AIREX DÝNUR FYRIR JÓGA OG LEIKFIMI polafsson.is Trönuhrauni 6 // 220 Hafnarfjörður // Sími: 565 1533 NIÐURLAG þessarar greinar vantaði þegar hún birtist sl. laugardag og því er hún birt hér í heild. Beðist er velvirð- ingar á þessum mistök- um sem urðu við vinnslu blaðsins: Að gefnu tilefni tel ég sjálfsagt og rétt að les- endur Morgunblaðsins geti á þessu stigi fjár- söfnunarinnar kynnt sér orðrétt Yfirlýsinguna ,,Innrásin í Írak – ekki í okkar nafni“, sem birt verður með heilsíðuaug- lýsingu í bandaríska stórblaðinu New York Times í janúar. Í auglýsingunni í New York Times verður nefndur fjöldi þeirra Íslend- inga sem kostuðu birtinguna. Hér fer því frumtexti Yfirlýsing- arinnar, sem birt verður í New York Times: – YFIRLÝSING – Innrásin í Írak – ekki í okkar nafni ,,Við, Íslendingar, mótmælum ein- dregið yfirlýsingu íslenskra stjórn- valda um stuðning við innrás Banda- ríkjanna og ,,viljugra“ bandamanna þeirra í Írak í mars 2003. Með þeirri yfirlýsingu voru brotin íslensk lög, al- þjóðalög – og íslensk lýðræðishefð. Ákvörðun um stuðning við innrás- ina tóku forsætisráðherra og utanrík- isráðherra Íslands einir án þess að málið fengi fyrst umfjöll- un í utanríkismálanefnd Alþingis Íslendinga. Er það þó skylt samkvæmt íslenskum lögum, sem segja að þar skuli fjalla um öll meiriháttar utan- ríkismál. Ákvörðun þessi hefur hvorki verið afgreidd formlega frá Alþingi né ríkisstjórn Ís- lands. Kofi Annan, fram- kvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, hefur lýst innrás Bandaríkjanna og bandamanna þeirra brot á Stofn- sáttmála Sameinuðu þjóðanna og þar með brot á alþjóðalögum. Alþingi Íslendinga neitaði að lýsa yfir stríði á hendur Þýskalandi og Jap- an árið 1945, sem var þá skilyrði fyrir stofnaðild að Sameinuðu þjóðunum. Með stofnaðild að NATO árið 1949 tóku Íslendingar sérstaklega fram að þeir myndu ekki lýsa yfir stríði á hend- ur annarri þjóð, enda hefur Ísland aldrei haft eigin her. Ákvörðun íslensku ráðherranna um að styðja innrásina í Írak er til van- sæmdar íslenskri stjórnmálasögu og hnekkir fyrir lýðræðið. Gengið er í berhögg við hefðir Alþingis Íslend- inga, elsta löggjafarþings heims. Allar skoðanakannanir hafa sýnt að yf- irgnæfandi meirihluti íslensku þjóð- arinnar er mótfallinn stuðningi ís- lensku ráðherranna við innrásina í Írak. Við biðjum írösku þjóðina afsökunar á stuðningi íslenskra stjórnvalda við innrásina í Írak. Við krefjumst þess að nafn Íslands verði umsvifalaust tekið út af lista hinna ,,viljugu“ innrásarþjóða. Ísland hefur átt vinsamleg sam- skipti við Bandaríkin um langa hríð. Þau samskipti hafa byggst á gagn- kvæmu trausti og hreinskilni. Því teljum við skyldu okkar að koma þessum skoðunum á framfæri – bæði við Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir.“ Þjóðarhreyfingin – með lýðræði www.thjodarhreyfingin.is __________________________ Heyrst hafa raddir sem segja að með auglýsingu í New York Times á raunverulegri andúð íslensku þjóð- arinnar við ákvörðun íslensku ráð- herranna – sé Þjóðarhreyfingin að vekja athygli arabískra illvirkja á eyj- unni okkar friðsælu. Því er til að svara að nú þegar mega íbúar Mið- Austurlanda halda að allir Íslendingar standi að baki stuðningsyfirlýsingu ráðherranna við innrásina með því að setja nafn Íslands á lista hinna ,,vilj- ugu og staðföstu“. Sá sem hefur sérstaklega séð um að auglýsa nafn Íslands um heim allan sem bandalagsþjóð Bush og félaga er núverandi utanríkisráðherra Íslands, Davíð Oddsson. Honum hefur með dugnaði sínum tekist að koma þeim skilaboðum á framfæri, þ.m.t. við Arabaheiminn. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu 6. júlí sl. sagði Davíð orðrétt: „Davíð Oddsson forsætisráðherra: Já, aðeins – um þetta, þá verð ég að segja að ég er sammála forsetanum um Írak. Framtíð Íraks er – framtíð heimsins er mun betri vegna skuld- bindinga Bandaríkjanna, Bretlands og bandamanna þeirra þar. Og án þeirra aðgerða mundi ástandið í þeim heims- hluta vera mikið mun hættulegra en það er nú. Nú er von. Áður var engin von. Bush forseti: þakka þér, herra for- sætisráðherra.“ Ummæli Davíðs flugu um heims- byggðina, m.a. á sjónvarpsstöðinni CNN. ,,Innrásin í Írak – ekki í mínu nafni!“ Ég vil að Arabar og aðrir íbúar þessarar jarðar fái ekki eingöngu yf- irlýsingar frá tveim ráðherrum, Davíð og Halldóri, um afstöðu Íslendinga í Íraksstríðinu. Þess vegna mótmæli ég á alþjóðavettvangi. Og skilaboðin eru ma. þau að yfirgnæfandi meirihluti Ís- lendinga styður EKKI ákvörðun ráð- herranna. Og einmitt þess vegna borga Íslendingar birtinguna í New York Times. Tökum því höndum saman um að birta yfirlýsinguna í The New York Times. Hringið í síma 90-20000 og leggið þannig fram 1.000 kr. (eitt þús- und krónur) til að kosta birtingu yfir- lýsingarinnar. Einnig má leggja frjáls framlög á bankareikning nr. 833 í SPRON (Þjóðarhreyfingin: kt. 640604-2390). Verði afgangur af söfnuninni renn- ur hann til Rauða kross Íslands til hjálpar stríðshrjáðum í Írak. Yfirlýsingin í New York Times „Innrásin í Írak – ekki í okkar nafni“ Hans Kristján Árnason fjallar um væntanlega yfirlýsingu Þjóðarhreyfingarinnar í New York Times ’Ég vil að Arabar ogaðrir íbúar þessarar jarðar fái ekki eingöngu yfirlýsingar frá tveim ráðherrum, Davíð og Halldóri, um afstöðu Ís- lendinga í Íraksstríðinu. Þess vegna mótmæli ég á alþjóðavettvangi.‘ Hans Kristján Árnason Höfundur er viðskiptafræðingur og einn af ábyrgðarmönnum fjársöfnunar Þjóðarhreyfingarinnar – með lýðræði. ÉG fagna því að hafa nú loksins fengið gott tækifæri til að sýna andstöðu mína í verki gegn innrásinni í Írak sem við Íslendingar erum ófúsir þátttakendur í. Með því að greiða 1.000 kr. fyrir auglýs- ingu í New York Tim- es þar sem afstaða mín kemur skýrt fram fæ ég tækifæri til þess að mótmæla því að vera þátttak- andi í hörmulegu og ónauðsynlegu stríði. Þessi kröftuga leið að birta auglýsingu sem ég veit að mun vekja eftirtekt um allan heim sýnir að við Íslendingar erum ekki allir staðfastir og viljugir þátttak- endur í stríðinu sem tveir ónefndir ráðamenn drógu okkur inn í. Þrátt fyrir að allur heimurinn viti í dag að blekkingum var beitt til þess að narra Ís- lendinga og fleiri þjóðir til þess að styðja og taka þátt í stríðinu gegn írösku þjóðinni vilja þessir tveir ráðamenn hvorki ræða, draga til baka stuðning sinn né ein- faldlega biðjast afsök- unar á þátttöku Ís- lendinga í ólöglegu stríði. Þátttöku í stríði sem yfir 80% íslensku þjóðarinnar eru á móti! „Ég, Hildur Rúna, sem mann- eskja og Íslendingur, hefði aldrei trúað því að óreyndu að ekki væri farið að lögum og tveir ráðherrar gætu ákveðið upp á sitt eindæmi að fara í stríð í mínu nafni og þjóðarinnar.“ Núna er tækifæri fyrir okkur öll sem erum á móti stríðinu í Írak – sem geisar enn þrátt fyrir yfirlýs- ingar ráðherranna tveggja um að því sé löngu lokið – að taka hönd- um saman og sýna í verki að við, 80% af þjóðinni, höfum ákveðið að greiða atkvæði okkar í söfn- unarsíma 902 0000 til að birta aug- lýsingu í New York Times þar sem ég veit að atkvæðisréttur okkar er virtur að fullu. Mótmæli við innrásinni í Írak – í mínu nafni Hildur Rúna Hauksdóttir fjallar um auglýsingu Þjóðar- hreyfingarinnar ’Núna er tækifæri fyrirokkur öll sem erum á móti stríðinu í Írak …‘ Hildur Rúna Hauksdóttir Höfundur býr í 101 Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.