Morgunblaðið - 20.12.2004, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 19
UMRÆÐAN
www.krabb.is
Uppl‡singar um vinningsnúmer í símum
540 1918 (símsvari) og 540 1900 og á
heimasí›u Krabbameinsfélagsins
www.krabb.is/happ
Audi A3 Sportback.
Ver›mæti 2.490.000 kr.
Bifreið eða greiðsla upp í
íbúð.
Ver›mæti 1.000.000 kr.
Úttektir hjá ferðaskrifstofu
eða verslun.
Hver a› ver›mæti 100.000 kr.
168
Krabbameinsfélagsins
skattfrjálsir vinningar
að verðmæti
170
20.290.000 kr.
Vertu með og styrktu gott málefni
vinningar:
Eftirfarandi greinar eru á
mbl.is:
Guðrún Lilja Hólmfríðar-
dóttir: „Ég vil hér með
votta okkur mína dýpstu
samúð vegna þeirrar stöðu
sem komin er upp í íslensku
þjóðfélagi með skipan Jóns
Steinars Gunnlaugssonar í
stöðu hæstaréttardómara.
Ég segi okkur af því að ég
er þolandinn í „Prófessors-
málinu“.“
Sveinn Aðalsteinsson:
„Nýjasta útspil Landsvirkj-
unar og Alcoa, er að lýsa því
yfir að Kárahnjúkavirkjun,
álbræðslan í Reyðarfirði og
línulagnir þar á milli flokkist
undir að verða „sjálfbær-
ar“!“
Hafsteinn Hjaltason:
„Landakröfumenn hafa eng-
ar heimildir fyrir því, að
Kjölur sé þeirra eignarland,
eða eignarland Biskups-
tungna- og Svínavatns-
hreppa.“
María Th. Jónsdóttir: „Á
landinu okkar eru starfandi
mjög góðar hjúkrunardeildir
fyrir heilabilaða en þær eru
bara allt of fáar og fjölgar
hægt.“
Guðmundur Hafsteinsson:
„Því eru gráður LHÍ að inn-
taki engu fremur háskóla-
gráður en þær sem TR út-
skrifaði nemendur með,
nema síður sé.“
Á mbl.is
Aðsendar greinar
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
FÁTT ER skemmtilegra en að
setjast niður með góða bók þegar
húmar að á köldu vetrarkvöldi.
Ég hef notið góðra kvölda und-
anfarið við að lesa bókina Lífsins
melódí eftir Árna Johnsen „lífs-
kúnstner“.
Það er of langt mál að titla
Árna á annan hátt, þar sem hann
kemur og hefur komið svo víða við
á lífsgöngunni. Bókin er sann-
kallað lestrarkonfekt og ætti eng-
inn sem hefur gaman af litríkum
persónum og skemmtilegum uppá-
komum að láta þessa bók ólesna.
Bókin skiptist í sex kafla:
Toppar í landslagi mannlífsins:
Viðtöl og skemmtilegar sögur af
litríkum karakterum.
Á ferð og flugi: Atburðir af vett-
vangi fréttamennskunnar. Þarna
gefur Árni lesandanum tækifæri á
að skyggnast inn á baksvið frétta-
mennskunnar.
Fyrstir með fréttirnar: „Mogg-
inn“ hefur verið ein af vinjum
eyðimerkurinnar í lífi Árna og
með RAX sér við hlið hefur mörg
hildin verið háð. Þennan kafla les
maður allan í einu, það er ekki
hægt að leggja bókina frá sér fyrr
en kaflinn er búinn.
Með gítar að vopni: Frábær
lýsing á trúbadornum Árna John-
sen.
Árni gefur ekkert eftir í sjálfs-
gagnrýni. Litríkar sögur af enn
litríkari uppákomum.
Á þingi: Vinsælasta „tívolí“ Ís-
lands á sinn kafla í bókinni og eins
og gefur að skilja er bara
skemmtilegt að lesa um uppá-
komurnar.
Héðan og þaðan: Árni hefur
komið víðar við og gert fleira en
flestir gætu hugsað sér að gera á
þremur æviskeiðum.
Þessi kafli lætur engan ósnort-
inn sem ekki hefur steinhjarta og
stáltaugar.
Það má gagnrýna bækur á ýmsa
vegu. Ég gef mig ekki út sem
gagnrýnanda á bókmenntir en fyr-
ir mínar sjónir kom þessi bók eins
og ég hef hér ritað, skemmtileg,
litrík, full af jákvæðni á persónur
og leikendur í leikriti lífsins.
Það er guðs þakkarvert að Ís-
land skuli eiga jafn litríka ein-
staklinga og höfund þessarar bók-
ar.
Að grámóskulegu neikvæðn-
ismógularnir sem yfirleitt eru
sjálfskipuð leiðréttingarforrit
meðalmennskunnar skuli ekki allt-
af hafa yfirhöndina.
Árni, ég óska þér til hamingju
með þessa frábæru bók. Hún er
bæði sölt og sykruð eins og góðar
bækur eiga að vera.
SIGURMUNDUR G.
EINARSSON,
Suðurgerði 4,
Vestmannaeyjum.
Lífsins melódí sann-
kallað ljós í myrkrinu
Frá Sigurmundi G. Einarssyni
ferðamálafrömuði
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn