Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 21

Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 21 rslu- meðal að með n hljóð- ær lækk- trum í kkað úr við 5 það að 4 hæða mætti já- r hefur etið föst í tlan sinni utina í ð gegnum prifjunar upphafi mikil mis- arinnar. inn upp kki nægi- engja æðu ,25 m á ðar þeg- órar eiga á komast ökkvi- Eins og ssum m síðir trarmýri. ft hug- tti sín kkun að hljóð- með lækk- in líka nisskerð- st braut- ð að búa í veggja. ætur við veldara m úr- pplýsti verf- stnaður 0 m.kr. og er hins þessi kr. og fær la er anlega vel ðin ætlar rf- a fram- ram á að r. Stofn- onefndum vel inni á lóðum einstakra húsa og með breyt- ingum á einstökum húsum. Eða jafnvel keypt húsin, allt án þess að samkomulag hafi náðst við eigendur áður en framkvæmdaleyfi er fengið. Með þessu þverskallast stofnunin, í umboði samgönguráðherra, við að horfast í augu við breyttar aðstæður og þau tímamót sem úrskurðurinn markar. Vegagerðin virðist jafn staðráðin í að fara sínu fram og íbú- arnir eru í að gæta hagsmuna sinna. Hugsanlega fer hún sínu fram nú og verður síðar nauðbeygð til að lækka veginn eftir undangengin málaferli þar sem íbúar standa á lögform- legum rétti sínum. Ef það gerist ekki fyrr en eftir að hún hefur verið tvöfölduð má ætla að sóun almanna- fjár verði 2.400 milljónir, en ef það gerist ekki fyrr en eftir þreföldun verður sóunin 3.600 milljónir, svo miðað sé við áróðurstölu Vegagerð- arinnar. Engar framkvæmdir má heimila eða hefja fyrr en ljóst er af gögnum að unnt sé að uppfylla þau skilyrði sem Skipulagsstofnun og umhverf- isráðuneyti hafa sett. Bæjaryfirvöld í Garðabæ hafa hér úrslitaáhrif, því þó brotavilji Vegagerðarinnar sé einbeittur, er framkvæmdaleyfi al- farið á vegum bæjarins. Er því þýð- ingarmikið að það sé ljóst að íbúar í hverfum nálægt fyrirhugaðri Reykjanesbraut hafa miklar áhyggjur af auknum hávaða og ann- arri mengun sem af auknum um- ferðarþunga og hraða mun leiða. Einnig þeim miklu áhrifum sem út- færslan getur haft á verðmæti eigna í Garðabæ. Samstaða íbúa er mikil og getur komið fram í óánægju sem beinist að bæjaryfirvöldum ef út af er brugðið. Ljóst er að framkvæmdir við brautina og mislæg gatnamót munu standa árum saman. Sú tvöföldun sem nú er óskað leyfis fyrir er bara byrjunin. Strax að henni lokinni er áformað að hefjast handa við mis- læg gatnamót, bæði við Vífils- staðaveg og einnig við Arn- arnesveg. Þar á að brydda upp á nýjung, nýju verkfræðiundri, eins konar „fljúgandi diski“. Þetta er rándýrt hringtorg á lofti, skrípi svíf- andi á súlum rétt við hesthús Kópa- vogsbúa, með miklum að- og frá- reinum eða römpum. Er augljóst að hljóðvist við þetta mannvirki verður torvelt úrlausnarefni, ekki síst ef Vegagerðin þverskallast við að lækka veginn. Jafn augljóst er að mannvirkið mundi fara betur með lækkun brautarinnar, því hring- torgið væri þá á jafnsléttu en Reykjanesbrautin lægi undir. Þá verða gatnamótin við Vífilsstaði erf- itt hljóðvistarverkefni án lækkunar brautarinnar því þeim er nú ætlað að standa 2,5 metrum ofar en holtið sem brautin fer þarna í gegnum. Garðbæingar mæna nú von- araugum til forystumanna bæj- arins. Munu þeir standa vel í ístöð- unum eða guggna og láta undan? Á fundi fyrr á árinu örlaði því miður á slíku en þá var sagt að fram- kvæmdaleyfið yrði að gefa, því „annars færu peningarnir bara ann- að“. Ja hérna! Og hvert ættu þeir nú svo sem að fara? Ekki er sýnt að neitt af þessum peningum fari til Garðbæinga. Þeir virðast nú ætla að verða þolendur þessara peninga en ekki njótendur. Hafnfirðingar hafa verið að vand- ræðast með sín Reykjanesbraut- armál lengi. Þó framkvæmdir standi nú yfir er samt engin raun- veruleg lausn fengin. Þetta er sama þungaflutninga- og hraðbrautin og sú sem þegar hefur verið lögð úr Elliðaárvogi að Smáranum. Á bein- um köflum er hraðinn þar nú þegar að jafnaði um 90 km/klst. og á það jafnt við um stóra bíla og smáa. Út- reikningar Vegagerðarinnar á há- vaða miðast hins vegar við „skilt- aðan“ hámarkshraða sem áætlaður er 80 km/klst. Mun sem fyrr reyn- ast skammgóður vermir að pissa í skó sinn því það eru rauntölurnar sem gilda á seinni stigum málsins. Þegar hugsað er til þess að umferð- in á aðeins eftir að aukast og mun verða 50–70 þús. bílar á sólarhring innan örfárra ára, þá hlýtur að verða spurt um leiðir til að komast hjá því að fara með brautina gegn- um íbúðahverfin í Garðabæ og Hafnarfirði til frambúðar. Nú er sögð óvissa um svonefndan „of- anbyggðaveg“. Það er víst ódýrara að gera eina afkastamikla hrað- braut gegnum íbúðahverfin. Þó má finna ágætt vegstæði sem leysir bæði mál Garðbæinga og Hafnfirð- inga. Leggja má brautina t.d. í jarð- göngum undir Hnoðraholt til suð- austurs, koma upp nálægt spennistöðinni sem er við enda golf- vallarins, halda þaðan ofanjarðar milli Vífilsstaða og Vífilsstaðavatns áleiðis til Hafnarfjarðar. Fara á ný um stutt jarðgöng undir Ásholtið í Hafnarfirði og koma undan því í stefnu á álverið. Kostnaður á hvern bíl á sólarhring yrði aðeins brota- brot af því sem er af öðrum jarð- göngum sem Vegagerðin er nú með í bígerð. Afar hagkvæm leið og vist- væn. Samgönguráðherra fengi bæði að sprengja síðasta haftið og klippa á borðann. Athugun hagsmunasamtakanna hefur leitt í ljós að skilyrði úrskurð- ar umhverfisráðherra og Skipulags- stofnunar um hljóðvist eru ekki uppfyllt, hvorki varðandi einstök hús né útivistarsvæði. Ekki er held- ur uppfyllt skilyrði um aðlögun út- reikninga að hljóðmælingum. Hagsmunasamtökin álíta að sveit- arfélagið yrði skaðabótaskylt ef framkvæmdaleyfi væri veitt nú og slíkt leiddi til tjóns. Þetta gerir mál- ið að sameiginlegu vandamáli allra Garðbæinga. Vonandi verja menn fjármunum íbúanna með skyn- samlegri hætti. Ég lýk þessum orðum með því að beina því til bæjaryfirvalda í Garða- bæ að sýna nú djörfung og dug í þessu máli. Synja strax beiðni um framkvæmdaleyfi og krefjast hlut- lausrar úttektar á raunverulegum kostnaði við að lækka veginn. Einn- ig á því hvaða aðrir vistvænir kostir eru í stöðunni. Þetta er langmesta hagsmunamál Garðbæinga í dag. Reynist forystumenn bæjarfélags- ins duglitlir í málinu má búast við að margir íbúar muni reynast lang- minnugir, næst þegar kemur að því að leggja mat á störf þeirra. Höfundur er sjálfstæðismaður í Garðabæ. ál Garðbæinga ’Hlutur samgönguráðherra í þessu máli er um-hugsunarefni. Hann er æðsti yfirmaður Vega- gerðarinnar. Það er hann sem ekki veitir for- svarsmönnum stofnunarinnar umboð til að láta skynsemina ráða. Á sama tíma er honum dillað í fjölmiðlum vegna gæluverkefna sinna.‘ og mannréttindi r 2004, 998 gert utanrík- þáver- ð ráðu- skrif- yrk. inn vera an a.m.k. argrét rein g var ngmaður ð færa þann ja stjórn- órn- mönnum er best að lifa en um kjarna málsins bregst þingmanninum boga- listin, þegar hann segir, að ég hafi ekki rökstutt þá fullyrð- ingu mína, að Lúðvík hafi farið með rangt mál, þegar hann sagði, að fyrir nokkr- um árum (1998) hefði Halldór Ásgrímsson ritað minnisblað til ríkisstjórnarinnar, þar sem hann hefði talið, að til þess að tryggja sjálfstæði Mannréttindaskrif- stofu Íslands yrðu framlög til hennar að koma beint frá Alþingi. Þetta er rangt hjá Lúðvík af þeirri einföldu ástæðu, að Halldór Ásgrímsson lagði ekkert slíkt minnisblað fyrir ríkisstjórnina, hvorki 1998 né síðar. Telur Lúð- vík, að Margrét Heinreksdóttir segi líka rangt frá? Hún staðfestir í grein sinni, að minnisblað um þetta efni fór aldrei fyrir ríkis- stjórn og það hafi verið misskiln- ingur hennar, að fangamark Hall- dórs Ásgrímssonar hafi staðið á blaði, sem gekk á milli hennar og embættismanna í utanríkisráðu- neytinu. Ástæðan fyrir því að hætta að eyrnamerkja Mannréttindaskrif- stofu framlög á fjárlögum til mannréttindamála er skýr og ótví- ræð. Málið komst einfaldlega á byrjunarreit, þegar Mannréttinda- skrifstofa rifti einhliða samningi við Mannréttindastofnun og stjórnvöld stóðu frammi fyrir því, að tveir sjálfstæðir aðilar myndu sækjast eftir opinberu fé til að sinna mannréttindamálum. Undir lok greinar sinnar líkir Margrét Heinreksdóttir umræðum um þetta mál við Íraksstríðið, hvorki meira né minna, og í um- ræðum um það stríð eigi frekar að líta til framtíðar en fortíðar. Ég er innilega sammála henni í því efni, eins og fram kom í grein eftir mig í Morgunblaðinu við hlið greinar Margrétar sl. laugardag. Margrét segir óskandi, að ríkis- stjórnin gæti grafið stríðsöxina og hafið viðræður við stjórnir Mann- réttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands um það, hvernig efla megi starf þeirra hvorrar fyrir sig og samvinnu þeirra í þágu þess málstaðar, sem aðstand- endur þeirra hafa ávallt borið fyrir brjósti; það er að efla mannréttindi á þeim grundvelli sem lagt var upp með við stofn- un MRSÍ í Almannagjá hinn 17. júní 1994. Að líkja því, sem hér hefur verið lýst, við, að ríkisstjórnin hafi lyft stríðsöxi er ósanngjarnt, svo að vægt sé til orða tekið. Eðli málsins samkvæmt er það ekki hlutverk ríkisstjórnar að leggja á ráðin um störf sjálf- stæðra aðila eins og Mannrétt- indaskrifstofu og Mannréttinda- stofnunar. Stjórnir þeirra ákveða þar stefnu og starfshætti og einnig, hvort þær óska eftir við- ræðum um samstarf við ráðherra eða ráðuneyti. Ég lýk þessari grein á sömu orðum og grein minni 11. desem- ber: Ég vil að lokum lýsa þeirri von minni, að sú fjárveiting til mann- réttindamála, sem alþingi hefur með fjárlögum falið dóms- og kirkjumálaráðuneytinu að út- hluta, nýtist vel til að efla mann- réttindi og skilning á gildi þeirra. Höfundur er dóms- og kirkju- málaráðherra. Björn Bjarnason ’Eðli málsins sam-kvæmt er það ekki hlutverk ríkisstjórnar að leggja á ráðin um störf sjálfstæðra að- ila eins og Mannrétt- indaskrifstofu og Mannréttindastofn- unar.‘ Norðfirðingar minnastþess í dag að þrjátíuár eru liðin frá því aðtvö mannskæð snjóflóð féllu á byggðina með þeim afleið- ingum að tólf manns létust. Mörg snjóflóð féllu í kringum 20. des- ember 1974. Engin þeirra náðu niður í byggðina utan tvö sem féllu með stundarfjórðungs- millibili skömmu eftir hádegi hinn 20. desember á aðalat- vinnusvæði bæjarins innarlega í firðinum. Fyrra flóðið kom úr svokölluðum Bræðslugjám og féll á atvinnusvæði Síldarvinnslunnar. Það stórskemmdi frystihúsið og sópaði fiskimjölsverksmiðjunni ásamt lýsistönkum og svartolíu- geymi út í sjó. Þá fór rafmagns- lína þannig að rafmagnslaust var í bænum um skeið. Í því flóði lét- ust fimm manns. Síðara flóðið féll um 500 metr- um utar. Það kom úr Miðstrand- arskarði og hreif m.a. með sér steypustöð, bifreiðaverkstæði, bíl og íbúðarhús. Í því flóði létust sjö manns. Óvenjufáir við störf Heimamenn hófu strax björg- unaraðgerðir og síðar barst að- stoð frá fjörðunum í kring og af nærliggjandi skipum. Á fyrstu tólf tímunum fundust níu menn látnir. Fimm var bjargað lifandi og átta björguðust af eigin ramm- leik. Mesta mildi þykir að ekki hafi fleiri farist í flóðunum en óvenjufáir voru við störf á svæð- inu þann dag sem snjóflóðin féllu. Margir voru við jólainnkaup í kaupfélaginu þegar ósköpin dundu yfir. Menn komu þar æð- andi að til að taka allar skóflur sem til voru. Bíll með gjall- arhorni ók um bæinn og hvatti alla sem vettlingi gátu valdið að koma til hjálpar. Fólk á leið í jólainnkaup stökk af stað til að hjálpa við björgunarstörf og mik- ið skelfingarástand varði á með- an menn vissu lítið um hvort þeirra nánustu höfðu lent í flóð- inu eða voru að sinna hjálpar- störfum. Ekki bætti úr ömurleika jólanna sem í garð gengu fjórum dögum síðar að brjáluð stórhríð geisaði. Hélt að orðið hefði sprenging Hrólfur Hraundal sem þá var starfsmaður Dráttarbrautarinnar hf. og meðlimur björgunarsveit- arinnar var staddur í frystihúsinu þegar fyrra flóðið féll. Hann seg- ir svo frá: „Ljósið fór skyndilega þar sem ég var staddur á lofti frystihússins. Skömmu síðar fékk ég hurðina í fangið, svona eins og það hefði orðið sprenging. Þegar ég áttaði mig þar sem ég lá á gólfinu hugsaði ég með mér að eitthvað hefði bilað niðri í véla- sal. Líklegast hefði orðið spreng- ing og ég hafði áhyggjur af amm- oníaksmengun. Snjóflóð hvarflaði ekki að mér. Ég ákvað að fara inn í frystiklefann til að hlífa mér við ammoníakinu en sá þá að veggurinn að sunnan var farinn út og ákvað þá að koma mér út úr húsinu. Þegar út kom sá ég að bræðslan var eiginlega horfin. Næsta skref var einfaldlega að taka fram skóflu og byrja moka en það var erfitt að athafna sig í olíublautum snjónum. Við mok- uðum eitthvað á annan sólarhring og ég man lítið eftir því sem gerðist eftir það.“ Árni Þorsteinsson var líka að vinna í frystihúsinu þegar fyrra flóðið féll: „Ég man að mér var ofboðslega kalt. Ég missti meðvit- und, var líklegast meðvitund- arlaus fyrstu tvo tímana og fyrst eftir að ég rankaði við mér vissi ég ekki hvað hafði gerst. En svo fór ég að heyra í björgunarmönn- um og það hélt í mér voninni og kannski lífinu líka. Inni á milli hvarflaði að mér að mér yrði ekki bjargað því ég hafði ekki hugmynd um hvar ég var. En ég kveið ekki dauðanum, ég var ekki hræddur. Óttinn kom síðar og þá nóg af honum,“ segir Árni sem hefur búið í Neskaupstað frá því flóðin féllu og lifað með óttanum við fjöllin. „En það er að lagast núna þegar menn vöknuðu loks- ins til meðvitundar og fóru að huga að vörnum. Það voru ræt- urnar sem héldu mér hér. Ég ætl- aði mér að takast á við þetta. Auðvitað man maður alltaf 20. desember 1974. Þetta er daglega í huga mínum.“ Árni segir jafnframt að það sé „mikilvægt að koma saman og minnast þeirra sem fórust í flóð- unum en einnig til að minna fólk á að náttúran er mjög varasöm.“ Í kvöld verða athafnir, bæði í Neskaupstað og Reykjavík, þar sem þeirra sem fórust í flóðunum verður minnst. Í Neskaupstað er fyrirhugað að hittast kl. 19.30 í lystigarðinum við minnismerki um þá er létust í snjóflóðunum og klukkan 20 hefst athöfn í kirkj- unni. Í Reykjavík hefst stutt bænastund í Fella- og Hólakirkju klukkan 18. Morgunblaðið/Ágúst Árni Þorsteinsson sem var bjargað úr snjóflóðinu eftir tuttugu tíma stendur hér við ketilinn úr fiskimjölsverksmiðjunni sem fór í flóðinu. Í baksýn er frystihúsið sem fyrra flóðið féll á, en þar var Árni staddur. „Auðvitað man maður alltaf 20. desember 1974“ 30 ár frá því mannskæð snjóflóð féllu í Neskaupstað Neskaupstað. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.