Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 23

Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 23 MINNINGAR Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ERLENDUR STEFÁNSSON múrari, verður jarðsunginn frá Seljakirkju þriðjudaginn 21. desember kl. 11:00. Kristín Jóhannsdóttir, Jóhann Sævar Erlendsson, Þuríður E. Baldursdóttir, Anna Rósa Erlendsdóttir, Guðni Ágústsson og barnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, PÁLÍNA KR. ÞÓRARINSDÓTTIR, Álfaskeiði 64-b6, áður Mjósundi 3, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landakots þriðjudaginn 14. desember. Jarðarförin fer fram frá Kapellunni í Hafnarfirði mánudaginn 20. desember kl. 13.00. Ómar Valgeirsson, Elín Birna Árnadóttir, Valgeir Árni Ómarsson, Aníta Ómarsdóttir, Örnólfur Elfar, Bjarki Dagur Anítuson, Ómar Örn Elfar. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR GUÐMUNDSSON fv. lögregluþjónn, elliheimilinu Grund, áður til heimilis á Bergþórugötu 57, Reykjavík, sem lést föstudaginn 10. desember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. desember kl. 13. Bjarni Ólafsson, Guðrún Árnadóttir, Guðmundur Ólafsson, María Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN M. EINARSON (Dysta), verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag klukkan 16.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Magnús Finnsson, Helga Finnsdóttir. Kæru ættingjar, vinir og venslamenn MARGRÉTAR SIGURÐARDÓTTUR, Grandavegi 47, Reykjavík. Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýju ykkar við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla. Jóhanna Jóhannsdóttir, Einar Örn Lárusson, Kristín Jóhannsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir, Sigurður Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, STEINAR S. WAAGE, Kríunesi 6, Garðabæ, lést á Landspítalanum í Fossvogi að kvöldi föstudagsins 17. desember. Útför verður auglýst síðar. Clara Grimmer Waage, Vera Waage, Elsa Waage, Emilio De Rossi, Snorri Waage, Kristín Skúladóttir og barnabörn. ✝ Lárus ÓskarÞorvaldsson fæddist í Reykjavík 15. júní 1926. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Eir í Reykjavík 9. desem- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Þorvaldur Óskar Jónsson, f. 10. sept- ember 1892, d. 25. apríl 1970 og Sigríð- ur Guðrún Eyjólfs- dóttir, f. 15. ágúst 1895, d. 13. desem- ber 1993. Systur Lárusar eru Sigríður Eyja, f. 1923, Margrét Ágústa, f. 1929 og Ólöf, f. 1934. Hinn 22. október 1949 kvæntist Lárus Sveinbjörgu Eiríksdóttur frá Eskifirði, f. 8. september 1929. 1988, og Andri Þór, f. 1995. Lárus lauk prófi frá Iðnskólan- um í Reykjavík 1945, rennismíða- námi í Vélsmiðjunni Héðni hf. 1947, vélstjóraprófi í Vélskólanum í Reykjavík 1949 og rafmagnsdeild 1950. Hann var vélstjóri hjá Skipa- deild SÍS 1949-66, vann hjá Sveini Jónssyni í Reykjavík við uppsetn- ingu og viðhald á kæli-og frysti- vélum 1966-82, en stofnaði þá Kælismiðjuna Frost hf. ásamt fimm öðrum starfsmönnum Sveins og var í stjórn fyrirtækisins frá upphafi. Hann vann í Kælismiðj- unni til 1996 er hann varð að hætta vegna veikinda. Lárus var formað- ur Skólafélags Vélskólans 1948– 50, sat í varastjórn Vélstjórafélags Íslands um skeið, einnig í trúnaða- mannaráði félagsins. Hann starf- aði í nefnd sem undirbjó tillögur um starfsmat á kaupskipum, var í stjórn Þróunarfélags Kópavogs 1988-92 og í stjórn Alþýðuflokks- félags Reykjavíkur í 2 ár. Útför Lárusar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Foreldrar hennar voru Eiríkur Krist- jánsson, f. 5. ágúst 1903, d. 15. júní 1964 og Ingunn Þorleifs- dóttir, f. 30. maí 1906, d. 21. febrúar 1984. Börn Sveinbjargar og Láusar eru: a) Ingunn, f. 1949, d. 2004, maki Logi Guðjónsson, f. 1949, börn þeirra eru Gylfi Már, f. 1972, Oddný Þóra, f. 1973 og Óskar, f. 1980, d. 1998. b) Sigríður Ósk, f. 1957, maki Þor- steinn Alexandersson, f. 1957, börn þeirra eru Björg, f. 1981 og Sveinbjörn, f. 1986. c) Lárus Ágúst, f. 1961, d. 1997, maki Val- gerður Ragnarsdóttir, börn þeirra eru Eiríkur Ingi, f. 1980, Jakob, f. Elsku afi, þó það sé sárt að kveðja þá huggum við okkur við þá tilhugs- un að þú sért laus við veikindin. Stundin líður, tíminn tekur, toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. Þú varst ljós á villuvegi, viti á minni leið, þú varst skin á dökkum degi, dagleið þín var greið. þú barst tryggð í traustri hendi, tárin straukst af kinn. Þér ég mínar þakkir sendi, þú varst afi minn. (Hákon Aðalsteinsson.) Við biðjum Guð að styrkja ömmu Sveinu í hennar miklu sorg og sökn- uði. Guð geymi þig, afi. Björg og Sveinbjörn Í dag er til moldar borinn tengda- faðir minn, Lárus Óskar Þorvalds- son vélfræðingur. Lárusi kynntist ég fyrst fyrir aldarfjórðungi þegar ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir Sigríði Ósk, yngri dóttur hans. Strax við fyrstu kynni tókst með okkur góð vinátta sem aldrei bar skugga á. Lárus var jafnaðarmaður fram í fingurgóma og ég held að hann hafi ekki alltaf verið ánægður með tengdasoninn sem honum fannst oft vera heldur íhaldssamur. En Lárus virti skoðanir annarra og hlustaði með athygli á hvað þeir höfðu fram að færa þó svo að sannfæringu hans yrði ekki haggað. Lárus var góð- menni og var hjálpsemi hans við brugðið. Verklaginn var hann og oft- ar en ekki var leitað til hans ef gera þurfti við eitthvað, hvort sem um var að ræða pípulagnir eða rafmagns- tengla. Oftar en ekki þurfti ekki að óska eftir slíkri aðstoð heldur var hann yfirleitt mættur ef hann sá að eitthvað þurfti lagfæringar við. Lárus var vel lesinn og fylgdist vel með þjóðmálum. Hann var sérstak- lega áhugasamur um pólitík og fylgdist með henni af miklum áhuga og var á tímabili virkur félagi í Al- þýðuflokknum. Lárus eignaðist góð- an lífsförunaut í eiginkonu sinni Sveinbjörgu sem bjó honum gott og fallegt heimili þar sem hún hlúði vel að honum og börnum þeirra þremur. Börnin fengu gott uppeldi og höfðu gott veganesti þegar út í lífsbarátt- una var komið. Allra síðustu ár voru Lárusi nokk- uð mótdræg. Hann missti son sinn Lárus með sviplegum hætti árið 1997 og eldri dóttir hans lést af af- leiðingum bílslyss á þessu ári. Lárus greindist með Parkinsonsjúkdóm fyrir nokkrum árum og fluttist hann af þeim sökum á hjúkrunarheimilið Eir þar sem vel var hlúð að honum. Lárus tök örlögum sínum af æðru- leysi og aldrei heyrði ég hann kvarta þó lífið hafi ekki farið um hann mild- um höndum hin síðari ár. Í veikind- um hans komu mannkostir eigin- konu hans vel í ljós, hún var vakin og sofin yfir velferð hans og annaðist hann eftir mætti. Með Lárusi er genginn mikill mannkostamaður og bið ég Guð að blessa minningu hans. Þorsteinn Alexandersson. Mamma, segir Andri, mikið er Lárus afi heppinn að vera dáinn, því nú hittir hann Lalla pabba. Já,“ svara ég, og hann tekur líka vel á móti honum, því það var mjög kært á milli þeirra feðga. Við erum að tala um tengdaföður minn, sem lést eftir löng og erfið veikindi. Ég kynntist Lárusi og Sveinu fyrir 25 árum þegar ég kom inn á heimili þeirra með Lalla syni þeirra. Það fyrsta sem ég sagði við Lalla var; mikið er hann pabbi þinn myndarlegur. Og að sjálfsögðu lét hann pabba sinn vita af því! Þetta var sannarlega rétt hjá mér. Hann var myndarlegur, hjartgóður, traustur maður sem lét fjölskyldu sína ganga fyrir. Ég varð mjög fljótt var við það, því ég var strax tekin sem ein af fjölskyldunni og gott bet- ur en það. Gott er fyrir þig Lár us minn að fá hvíldina, þetta var löng sjúkralega hjá þér og þú misstir svo mikið þegar Lalli dó. Þá varð allt miklu erfiðra fyrir þig. Nú eruð þið feðgar búnir að hittast og þér farið að líða vel aftur. Elsku Lárus, þú skilur eftir svo margar góðar minningar hjá mér og strákunum. Hvíl í friði. Valgerður. Svili minn, Lárus Óskar Þorvalds- son, var góður maður og vandaður. Við hjónin minnumst hans með sökn- uði og erum þakklát fyrir að hafa átt hann að vini. Við Lárus áttum sam- leið í meira en hálfa öld, giftumst systrum á sama degi fyrir réttum 55 árum, án þess að það væru saman- tekin ráð og hálfur mánuður var á milli fyrstu barna okkar og var það einnig hrein tilviljun. Leiðir skildu svo þegar ég fór í framhaldsnám er- lendis. Þá var það Lárus sem hélt uppi sambandinu á milli fjölskyldn- anna nýorðinn vélstjóri á Sam- bandsskipunum. Við fylgdumst spennt með Jökulfellinu þegar von var á því til Danmerkur og Svíþjóð- ar, því alltaf kom Lárus færandi hendi. Ég minnist þess að við sátum fyrir honum í Kaupmannahöfn. Hann heimsótti okkur í Álaborg og við gerðum okkur ferð alla leið til Kalmar þar sem Jökulfellið hafði leitað hafnar undan ísum nokkru fyr- ir jól. Það urðu miklir fagnaðarfund- ir og Lárus leysti okkur út með lambalæri og forláta Havana-vindl- um, en hann var þá nýkominn frá Kúbu. Lárus sigldi á sínum yngri ár- um um öll heimsins höf og gat ég fræðst af honum um ferðir hans, því hann var eftirtektarsamur, fróð- leiksfús og sagði vel frá, en ég var þá enn lítt sigldur og naut góðs af því seinna meir þegar ég lagði land und- ir fót. Lárus var jafnaðarmaður af hugsjón, sem hann drakk í sig með móðurmjólkinni. Foreldrar hans voru mikið sómafólk og afi hans Eyj- ólfur frá Dröngum var annálaður baráttumaður og ævisaga hans merkileg þjóðlífslýsing, með þeim betri sem ég hefi lesið. Lárus var myndarlegur maður og vel á sig kominn, prúður og kurteis og hafði góða nærveru. Hann var mikill fjöl- skyldumaður og náði það til stórfjöl- skyldunnar allrar, smiður góður og listrænn og bjó til fallega gripi. Það varð því skarð fyrir skildi þeg- ar Lárus missti heilsuna fyrir aldur fram. Hann bar þó illvígan sjúkdóm með karlmennsku á meðan stætt var, en þjáðist mikið síðustu árin og dauðinn kom eins og líknandi engill. Við söknum hans öll og vottum Sveinbjörgu mágkonu minni og fjöl- skyldu innilega samúð okkar. Jón Þorsteinsson. LÁRUS ÓSKAR ÞORVALDSSON Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HREFNA EINARSDÓTTIR, Reykjanesvegi 16, Ytri-Njarðvík, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 22. desember kl. 14. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á FAAS í símum 533 1088 og 898 5819. Guttormur Arnar Jónsson, Sigurbjörg Arndís Guttormsdóttir, Haraldur Auðunsson, Harpa Guttormsdóttir, Orri Brandsson, Soffía Guttormsdóttir, Sighvatur Halldórsson, Alma Björk Guttormsdóttir, Björgvin V. Björgvinsson, Elfa Hrund Guttormsdóttir, Einar Ásbjörn Ólafsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.