Morgunblaðið - 20.12.2004, Page 29

Morgunblaðið - 20.12.2004, Page 29
alans aldrei haft milligöngu um slíkt. Vel geti verið að eggjagjöfum hafi með einhverjum hætti verið umbun- að af þakklátum foreldrum, deildin hafi ekki verið upplýst um það. Guðmundur segir það ljóst að erf- iðara sé en áður að finna eggjagjafa. Á því geti verið ýmsar skýringar, m.a. tímaskortur fólks og annríki í vinnu og á heimili og ótti kvenna við að svona meðferð geti haft ein- hverjar aukaverkanir í för með sér. Sá ótti sé ástæðulítill. „Höfum ekkert að fela“ Varðandi gagnrýni Sigurðar Guð- mundssonar landlæknis um að tæknifrjóvgunarstofan sé á gráu svæði vísa Þórður og Guðmundur því alfarið á bug. Fyrirtækið sé alls ekki á gráu svæði og ekkert sé í lögum sem banni konum að taka við greiðslu fyrir egg úr sér. ART Medica hafi ekki ætlað sér að fá ein- hverja umbun fyrir sína milligöngu, enda sé það bannað, og þetta eigi landlæknir að vita. Bæði embætti landlæknis og heilbrigðisráðuneyt- inu sé velkomið að kynna sér starf- semina nánar og hafa eftirlit með henni. „Við tökum það ekki nærri okkur, enda höfum við ekkert að fela. Það er nauðsynlegt að hafa faglegt eftirlit með svona læknisþjónustu sem og tíðkast með annarri sérfræðiþjón- ustu,“ segir Guðmundur. Þeir segjast vera sáttir í nýju um- hverfi, í einkarekstri utan Landspít- alans. Góð reynsla sé af fyrstu tveim- ur mánuðum starfseminnar, viðskiptavinir séu ánægðir og tali oft um hve aðstaðan í Bæjarlindinni sé mun þægilegri og betri en á spít- alanum. „Hér þurfa okkar sjúklingar ekki að hafa áhyggjur af bílastæðum og að keppast um að ná sæti á bið- stofunni.“ Morgunblaðið/Sverrir Þórður Óskarsson og Guðmundur Arason, læknar og eigendur ART Medica í Kópavogi, segja gagnrýni á „eggjagreiðslurnar“ hafa byggst á misskilningi. Greiðslan dekki vinnutap og kostnað vegna meðferðarinnar. bjb@mbl.is FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 29 ÚTSÖLUMARKAÐUR Faxafeni 12 Opið 10 - 18 virka daga og 10 - 16 laugardaga. www.66north.is af öllum flíspeysum til jóla. 20%afsláttur Lýstu upp jólin með ljósum frá Ljósbæ Faxafeni 14 s. 568 0850 Pílutjöld ehf Faxafeni 12 108 Reykjavík s. 553 0095 www.pilu.is • Gardínustangir • Felligardínur • Bambusgardínur • Sólskyggni Smíðum og saumum eftir máli. Allt fyrir gluggann Stuttur afgreiðslutími FÁI barn, sem verður til með tæknifrjóvgun, vitneskju um það síðar meir frá foreldrum sínum, og vill vita hver hafi verið eggja- eða sæðisgjafinn, þá segir Guðmundur Arason að það geti haft samband við ART Medica eftir 18 ára aldur og kannað hvort gjafinn hafi verið undir nafnleynd eða ekki. Sé nafn- leynd ekki til staðar þá er barnið upplýst og eggjagjafinn látinn vita af þeirri upplýsingagjöf. Þetta get- ur fyrst orðið mögulegt eftir 15 ár en á undanförnum þremur árum hafa um 40 börn orðið til með tæknifrjóvgun hér á landi. 40 börn með tæknifrjóvgun UNDANFARNA mánuði hefur framboð á nautkálfum til nauta- stöðvar Bændasamtaka Íslands á Hvanneyri verið með minna móti en undanfarin ár. Slík staða er mjög bagaleg fyrir kynbótastarfið og í raun afar mikilvægt fyrir kúa- bændur landsins að ávallt sé um of- framboð á nautkálfum að ræða, enda er það eina leiðin til að tryggja að besta erfðaefnið skili sér áfram til næstu kynslóðar, segir á heimasíðu Landssambands kúa- bænda (naut.is). Þeir kúabændur sem ná að selja sína kálfa til Nautastöðvarinnar fá að jafnaði um 45 þúsund krónur fyrir nautið. Jafnframt fær viðkom- andi kúabóndi greitt sem nemur 5 lítrum mjólkur fyrir hvern þann dag sem kálfurinn er alinn heima, en að jafnaði eru það um 45 dagar. Ef viðkomandi naut nær því að fara í dreifingu og verða valið sem nautsfaðir fær viðkomandi kúa- bóndi svo 10.000 króna verðlaun fyrir nautið og 40.000 krónur til viðbótar ef nautið verður valið „besta naut árgangsins“, segir enn- fremur á heimasíðunni. Vantar nautkálfa Morgunblaðið/Atli Vigfússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.