Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 30

Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 30
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes VISSIRÐU AÐ MEIRI HLUTI JARÐAR ER ÞAKINN VATNI? HVERJUM ER EKKI SAMA? EN HVERSU STÓR HLUTI AF JÖRÐINNI ER ÞAKINN MEÐ LASAGNA?! ÞAÐ ÞARF EKKI MIKIÐ TIL AÐ GLEÐJA HANN... ÉG LEYÐI HONUM AÐ LITA HIMININN BLÁAN Í LITABÓKINNI MINNI PABBI ER AÐ KALLA Á ÞIG VAR HANN EKKI AÐ ÞVÍ? SKRÍTIÐ! HOBBES TÓK STÓLINN ÞINN, ÞANNIG AÐ ... ÉG LÆT ALLTAF HITA STÓLINN FYRST ÞÚ SKULDAR MÉR GREIÐA Svínið mitt SKÓLI © DARGAUD KOMIÐ NÆR GOTT FÓLK OG SJÁIÐ RÚNAR ... ... KOMIÐ EN SNERTIÐ EKKI! HANN ER HYPER ... SUPER RAFMAGNAÐUR ... MJÖG HÆTTU- LEGUR PUFF BULL! ÞETTA ER 100.000 VOLTA SVÍN!! EINSTAKUR VIÐBURÐ- UR SEM ÞIÐ MEGIÐ EKKI MISSA AF! ÚT Í HÖTT NEI, EF ÞÚ SNERTIR HANN DEYR ÞÚ ÚR RAFLOSTI! 50 KALL GÓÐIR GESTIR ... ÞIÐ FÁIÐ AÐ SJÁ KRAFTAVERK, VIÐ TÖKUM VIÐ KREDITKORTUM, TYGGJÓ, KARMELLUM ... ... EN EKKI PIPARMYNTU ... VILTU SÚKKULAÐI GLER- KÚLUR HÉRNA, SETJIÐ ALLT Í HATINN TRÚLEYSINGJAR ... ÉG ER MEÐ DRAKÚLATENNUR PASSIÐ YKKUR ÞIÐ FÁIÐ AÐ SJÁ KRAFTA VERK DADDARADA!! OOO! VÁÁ!! VINDASAMT HA! VIÐ ERUM RÍK MAGNAÐ HVAÐ HÆGT ER AÐ NOTA GAMLA VIFTU Í SEM GENGUR FYRIR BATTERÍUM GROIN KVAK HVAÐ MEÐ FROSKA KVAK Dagbók Í dag er mánudagur 20. desember, 355. dagur ársins 2004 Hvellurinn mikli áÚtvarpi Sögu fékk mjög á Víkverja dagsins og fjölskyldu hans. Hún hafði tekið ástfóstri við þessa stöð og starfsmenn hennar, skemmtilega blöndu af útvarpsmönnum með ólík viðhorf og áhugamál. Fjöl- skyldan hefur ekki enn náð sér að fullu eftir að stöðin hennar splundraðist en vonar að þau sem reyna nú að tjasla leifunum saman vegni vel. Fjölskylda Víkverja er á einu máli um að Sigurður G. Tómasson er langbesti útvarpsmaður þjóðarinnar og það er mikill sjónarsviptir að hon- um. Henni þykir miður að geta ekki hlýtt á þennan fjölfróða mann, sem býr yfir svo mikilli þekkingu á fjöl- mörgum sviðum að undrum sætir. Fjölskylda Víkverja stendur í mikilli þakkarskuld við Sigurð fyrir allan fróðleikinn, ekki síst um litlu pödd- urnar, lífríkið í Elliðaárdalnum og nýjustu tíðindi frá Vladívostok svo eitthvað sé nefnt. Hæst ber þó mannbætandi viðtal sem Sigurður átti við bókakaup- mann nokkurn hér í bæ. Þá fléttuðu þeir saman kímni og fróðleik af svo mikilli list að unun var að hlusta. Fjölskylda Vík- verja var djúpt snortin af frásagnar- og sam- ræðulist kaupmanns- ins og ekki síst samúð hans með þeim sem minna mega sín eða binda ekki bagga sína sömu hnútum og sam- ferðamennirnir. x x x Fjölskylda Víkverjahefur ekki enn myndað sér skoðun á nýju starfsliði stöðvarinnar. Henni býður í grun að nýju útvarpsmenn- irnir hneigist til að líta á útvarpið sem áróðurstæki í einhverri heilagri herferð í nafni þjóðarhreyfingar fjórmenninga. Þetta kann þó að vera ástæðulaus ótti og vonandi auðnast stöðinni að halda áfram fjölbreyttri og líflegri umræðu um þjóðmál og önnur at- hyglisverð málefni. Ekki er vanþörf á slíkri stöð hér á Íslandi því einkareknu útvarps- stöðvarnar hafa nánast komið óorði á einkaframtakið með metnaðar- leysi, lágkúru og flatneskju. En það er önnur saga. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is              Hafnarfjarðarkirkja | Jólasöngvar verða haldnir í Hafnarfjarðarkirkju í dag og á morgun kl. 20. Hér er um að ræða ókeypis kirkjutónleika fyrir búðar- rápandi Hafnfirðinga og aðra sem erindi eiga í Fjörðinn svo þeir geti fengið smáró og næði í kirkju og hlustað á jólatónlist. Það eru þau Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenórsöngvari, Alda Ingi- bergsdóttir sópransöngkona og Antonía Hevesi, organisti Hafnarfjarðar- kirkju, sem halda uppi óformlegri skemmtidagskrá, rúmlega hálftíma langri, en ólík dagskrá er bæði kvöldin svo fólk getur komið aftur á morgun og upp- lifað allt aðra tónleika. Morgunblaðið/Kristinn Jólasöngvar í Hafnarfirði MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. En án trúar er ógerlegt að þóknast honum, því að sá, sem gengur fram fyrir Guð, verður að trúa því, að hann sé til og að hann umbuni þeim, er hans leita. (Hebr. 11, 6.)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.