Morgunblaðið - 20.12.2004, Qupperneq 31
MEZZÓSÓPRANSÖNGKONAN
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og
spænski gítarleikarinn Franc-
isco Javier Jáuregui halda tón-
leika í Iðnó við Tjörnina í kvöld
kl. 20. Á efnisskrá eru íslensk,
ensk og ítölsk lög, ný og gömul,
ásamt spænskum jólasöngvum.
„Þetta verður innileg stemn-
ing, við verðum bara með söng
og gítar,“ segir Guðrún. „Við
flytjum þarna nokkur ný lög
eftir John Speight, sem ekki
hafa áður verið flutt af at-
vinnutónlistarmönnum, en
hann samdi þau í fyrra. Svo
munum við flytja umritanir fyr-
ir gítar á ýmsum lögum, ís-
lenskum, enskum og ítölskum,
m.a. eftir Jón Ásgeirsson og
Donizetti. Einnig munum við
frumflytja lag eftir okkur sjálf,
við ljóð eftir Kristján Þór
Hrafnsson.“
Guðrún hefur undanfarin
misseri búið í London og Madr-
íd. „Ég hef þó aðallega verið á
flakki, þó að ég sé enn með lög-
heimi mitt á Íslandi,“ segir
Guðrún. „Það er alltaf yndislegt
að koma heim um jólin og hitta
fjölskyldu og vini. Það er svo
mikil jólastemning á Íslandi, að
sjá jólasnjóinn og jólaljósin.“
Innileg jólastemning í Iðnó
Veitingahúsið Tjarnarbakkinn er opið fyrir og eftir tónleikana. Aðgangseyrir
er 1.500 kr. og 1.200 fyrir námsmenn og ellilífeyrisþega.
Morgunblaðið/Kristinn
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 31
DAGBÓK
!" #$ %&'
!
(& !" #$ %&'
"#
$
%& &
!
!
! " #
$ ! % ! !
!
! &#
'
($) & * + , & , & -
! ! !
.
* ! /
0
*1 ! 2 3
" ! * 1 *
#/
4 !
RAFMAGNSVERKFÆRI
HÖGGBOR / BROTVÉLAR
BORVÉLAR
HANDFRÆSARAR
HJÓLSAGIR
HÖGGBORVÉLAR
SVERÐSAGIR
PÚSSARAR
RAFHLÖÐUBORVÉLAR
STINGSAGIR
KEÐJUSAGIR
Gleðileg jól
1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. Bf4 d5 4. e3
c6 5. Bd3 Rd6 6. Rd2 Rd7 7. Rgf3 g6
8. c4 dxc4 9. Rxc4 Rxc4 10. Bxc4
Da5+ 11. Kf1 Rb6 12. Bb3 Bg7 13.
Be5 O-O 14. Bxg7 Kxg7 15. Re5 c5
16. Hc1 cxd4 17. Dxd4 f6 18. Rd3 Bf5
19. e4 Had8 20. Dc5 Dxc5 21. Rxc5
Bc8 22. Ke2 Hd6 23. a4 a5 24. Hhd1
Hfd8 25. Hxd6 Hxd6 26. Rd3 Kf8 27.
Ke3 Be6 28. Bxe6 Hxe6 29. Hc5 f5 30.
e5 Rxa4 31. Hxa5 Rb6 32. Kd4 Rd7
33. Ha8+ Kg7 34. Hd8 Rf8 35. Rc5
Hc6 36. Kd5
Staðan kom upp í frönsku at-
skákmóti sem lauk fyrir skömmu.
Andrei Istratescu (2611) hafði svart
gegn Antoanetu Stefanovu (2523) en
heimsmeistari kvenna lék hræðilega
af sér í síðasta leik. 36... Hxc5+! og
hvítur gafst upp enda verður hann
riddara undir eftir 37. Kxc5 Re6+.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Óskastund 3
UPPRIFJUN gamalla minn-
ingamynda vekur okkur vermandi til-
finningu og eins er með tónanna
töfrandi mál. Þakkarvert hið bezta er
þegar þau eru færð okkur enn á ný í
sínum upphaflega búningi og hug-
hrifin á stundum ærið sterk. Þá heilsa
okkur gömlu, góðu lögin sem við
hlýddum á forðum og heilluðumst af,
sungum gjarnan með eða stigum við
dans, dunandi hraðan eða seiðandi
hægan eftir eðli laganna.
Það er undur ljúft að eiga enn á ný
með þeim ánægjufund á diskinum
Óskastund 3, sem hún Gerður G.
Bjarklind hefur valið þangað af
næmri smekkvísi rétt eins og hún hafi
lesið í innstu hugsanir þeirra sem
fyrst og síðast njóta þessara laga,
margra um of gleymdra.
Annars veit ég marga mun yngri
en af minni kynslóð sem eiga við þessi
lög ljúfan vinafund sem auðvitað op-
inbera enn á ný þau sannindi, að þau
eru mörg lögin sem eiga engan sér-
stakan tíma, eru alltaf og ævinlega í
fullu gildi. Það er að vonum að Gerður
finni þennan sanna tón fyrir svo
marga í ljósi þess ágæta starfs að
Óskastund útvarpsins sem hefur
glatt og gleður hjörtu svo ótalmargra
á föstudagsmorgnum.
Auðvitað grípa þessi lög gömul
sem ung hjörtu misjafnlega mikið,
engan eflaust eins heldur, en ljúf og
sönn er heildin og hrífur mann á fund
fjarlægra stunda en alltaf jafnkærra.
Og svo aðeins sé brugðið á leik með
heiti laganna þá hvíslar lítill fugl að
þér um litlu sætu ljúfuna góðu með
augun bláu sem á ekki að horfa svona
alltaf á þig og alls ekki að segja nei,
heldur kannski, það segja fjórir kátir
þrestir að minnsta kosti og þetta áttu
að geyma í hjarta þér á meðan þú ert
á sjó. Og lífskúnst glókollsins verður
máske að taka lífinu létt, þessu ljúfa
lífi og leika frjáls eins og Adam og
Eva með sín leyndarmál og hann
hvíslar að Önnu Maju að ef hún komi í
kvöld til hans og syngi honum kvöld-
ljóð frá Moskvu og vonandi heyrir
hún bæn hans, þá færir hann henni
rósir og ævintýrin munu enn gerast.
Þessir leikandi hljómar gleðja okk-
ur í skammdeginu, fylgja okkur inn í
nóttina, vekja af værum blundi eða
mæta eyrum okkar í önn dagsins.
Þakkarvert framlag á föstunni sem
færir okkur gengnar gleðistundir á
ný.
Það er svona í ætt við það að maður
hafi hitt á óskastund.
Helgi Seljan.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14 leik-
fimi og vinnustofa kl. 9, boccia kl. 10,
frjáls spilamennska alla daga, bókabíll-
inn kl. 13.30 til 14 alla mánudaga.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, samverustund.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 11.15–12.15
matur, kl. 13–16.45 brids, kl. 13–16 sam-
verustund, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist verður spiluð í Gullsmára 13, kl.
20.30. Síðasta spilakvöld fyrir jól.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik-
félagið Snúður og Snælda, æfing kl.
15.30 í dag.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Garðabergi verður lokað 17. desember
og opnað aftur miðvikudaginn 5. janúar.
Ath. breyttur opnunartími, frá kl. 12.30
til 16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a. almenn handa-
vinna, kl. 10.30 sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug, skötuveisla í hádeginu.
Frá hádegi spilasalur opinn. Allar upp-
lýsingar á staðnum, s. 575 7720 og
www.gerduberg.is.
Gam-Anon samtökin | Fundir eru alla
mánudaga í Skúlatúni 6, 3. hæð kl. 20.
Allir velkomnir. Gam-Anon samtökin
eru sjálfshjálparsamtök fyrir aðstand-
endur spilafíkla.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
keramik – perlusaumur – kortagerð, kl.
10 fótaaðgerð, bænastund, kl. 12 há-
degismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15
kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16, frjáls spilamennska kl. 13–16
böðun virka daga fyrir hádegi, fótaað-
gerðir.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 fótaaðgerð kl. 9
smíði kl. 10 ganga kl. 13–16.30 opin
vinnustofa.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna,
kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl.
11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16
kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Grafarvogskirkja | Morgunstundir alla
virka daga aðventunnar kl. 7. Hver
stund samanstendur af ritningarlestri,
hugleiðingu og bæn og tekur um 10–15
mín. Hún gefur fólki tækifæri til að eiga
friðar- og kyrrðarstund í erli aðvent-
unnar. Morgunverður í safnaðarsal að
helgihaldi loknu.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
SKAMMDEGINU verður skákað í dag og
fram á morgundaginn, þegar Emiliano
Monaco, kvikmyndargerðarmaður og
ljósmyndari, sýnir myndverkið Summer
Solstice á Hverfisgötu, við Alþjóða-
húsið.
Í verkinu sést lítill hluti sjávarins frá
einu sjónarhorni. Það var tekið samfellt
í 24 tíma úr Gróttuvita um sumarsól-
stöður nú í sumar sem leið og verður
sýnt nú um vetrarsólstöður. Þannig lýs-
ir lengsti dagur ársins upp lengstu
nóttina.
Myndverkið verður sýnt frá kl. 12 á
hádegi í dag til kl. 12 á hádegi á morgun
á Hverfisgötu hjá Alþjóðahúsinu.
Lengsti dagurinn lýsir
upp lengstu nóttina