Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 32

Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 32
32 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Mundu að sýna öðrum þolinmæði, þú átt auðvelt með að missa stjórn á skapi þínu. Reiði gegnir engu öðru hlutverki en að gera fólki lífið leitt, þótt þú haldir annað. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að festast ekki kirfilega í sama farinu. Þér hættir til þess, þar sem þú vilt sjá niðurstöðuna fyrir. Óvæntar uppákomur eru þér alls ekki að skapi. En þær gera ekki boð á undan sér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er auðvelt að finna til óyndis þegar maður leggur í vana sinn að flögra frá blómi til blóms og vaða úr einu verk- efni í annað. Grasið verður alltaf grænna hinum megin, þannig er það bara. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þér hættir til þess að hanga allt of lengi í slæmu sambandi. Það er vegna þess að þú átt erfitt með að sleppa hendinni af hlutunum. Það gildir líka um rusl! Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Stoltið kemur oft í veg fyrir að þú náir markmiðum þínum. Einnig leiðir stolt- ið stundum til þess að þú þurfir að gera eitthvað sem þú kærir þig ekki um. Þetta virkar ekki alveg, er það nokkuð? Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú ert með ófullkomleikann á heilanum í stanslausri leit þinni eftir fullkomnun. Þér hættir til þess að horfa á hlutina og reyna að finna gallana. Slakaðu aðeins á. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú getur ekki gert öllum til hæfis alla daga, af hverju að reyna? Ef þú gerir sjálfri þér til hæfis eins og hægt er, kæra vog, gleðjast þeir sem eru í kringum þig. Prófaðu það. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þér hættir til þess að sjá hlutina í svart-hvítu. Annaðhvort líkar þér eitt- hvað eða ekki, það gildir líka um fólk. Lífið er hins vegar mestmegnis í gráu. Er þetta ekki dálítið ýkt hjá þér? Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bjartsýni er til margra hluta nyt- samleg og eiginlega dásamlegt fyr- irbæri. Raunsæið er hins vegar líka dýrmætt og það er góð regla að lofa ekki meiru en maður getur staðið við. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Óttinn við höfnun og hræðslan við það að mistakast heldur oft aftur af þér. Þú ert þinn mesti óvinur að þessu leyti. Reyndu að sýna meiri dirfsku og kýla á það sem þig langar að gera. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Nautið hefur orð á sér fyrir þrjósku en sannleikurinn er sá að vatnsberinn er þrjóskastur allra. Þú ert bara góður í að halda því leyndu, vatnsberi. Þú ert líka rosalega klár. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ekki falla í þá gildru að halda að þú sért leiksoppur örlaganna. Þér hættir til að telja að þú lendir „alltaf“ í vand- ræðum og fáir „aldrei“ það sem þú vilt. Það er della. Stjörnuspá Frances Drake Bogmaður Afmælisbarn dagsins: Hugur þinn er forvitinn og rannsakandi. Þú ert snjöll, skörp og hvatvís manneskja og hugmyndir þínar leiða jafnan til at- hafnasemi af einhverju tagi. Þú elskar að hella þér í nýtt nám eða verkefni og skoð- ar hugann með höfuðið hátt uppi í skýj- um og báða fætur á jörðinni. Þú stendur frammi fyrir mikilvægum valkosti á árinu. Gaumgæfðu vandlega. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 æla, 4 óhrein- skilin, 7 haldast, 8 nef, 9 skordýr, 11 líffæri, 13 rétt, 14 drukkið, 15 köld, 17 mynnum, 20 kyn, 22 anar, 23 huldumenn, 24 stúlkan, 25 gabba Lóðrétt | 1 varkár, 2 trjá- stofn, 3 einkenni, 4 sægur, 5 ganga, 6 frelsarann, 10 yfirbragð, 12 kraftur, 13 eldstæði, 15 dælum, 16 kvendýr, 18 legubekkir, 19 glitra, 20 heiðurinn, 21 undur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 fannhvítt, 8 spurð, 9 rofna, 10 rúm, 11 kuðla, 13 innar, 15 krafts, 18 stund, 21 kóp, 22 forða, 23 orðan, 24 skrattinn. Lóðrétt | 2 afurð, 3 niðra, 4 varmi, 5 tófan, 6 ósek, 7 maur, 12 lof, 14 net, 15 kufl, 16 afrek, 17 skata, 18 spott, 19 urðin, 20 dóni. Kór Áskirkju hefur sent frá sér hljóm-plötuna „Það er óskaland íslenskt,“ enhún er gefin út vegna 100 ára afmælisheimastjórnar á Íslandi og inniheldur 24 af ástsælustu ættjarðarlögum þjóðarinnar. Með plötunni fylgir vandaður og greinargóður bæklingur upp á 64 síður þar sem tónskáldum og ljóðskáldum eru gerð skil, einnig á ensku þýsku og frönsku, ásamt ljóðaþýðingum á sömu málum. Hljómplatan hefur fengið tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki sígildrar og sam- tímatónlistar. Kári Þormar, organisti og stjórnandi kórs Ás- kirkju, segir öll kvæði og lög á diskinum eiga það sameiginlegt að í vitund þjóðarinnar séu þau orðin ein órjúfanleg heild sem ekki verður slitin í sund- ur. „Þegar fólk kemur saman eru þessi verk sung- in í fjöldasöng eða hlustað á þau í kórsöng,“ segir Kári. „Heyrist lagið spilað er kvæðið sungið með, heyrist kvæðið lesið syngur það í huganum. Öll þessi verk hafa öðlast þann sess að vera „sígræn“ og hluti af þjóðarsál Íslendinga.“ Kór Áskirkju undir stjórn Kára Þormar nálgast þessar perlur þjóðarinnar af næmi og nærfærni og færir okkur á nýrri öld endurnýjun á birtu og framtíðarsýn „aldamótamannanna“ með ungum röddum og hreinum tóni. Hver eru einkenni góðra ættjarðarlaga? „Það sem á endanum sker úr um hvort ættjarð- arlög séu góð eða síður góð er á endanum tíminn sjálfur. Flest okkar ættjarðarlög verða til á tímum sjálfstæðisbaráttu og á tímum nýrra strauma og stefna og þar af leiðandi eru þau barn síns tíma. Íslensk söngvasöfn eins og Ljóð og lög , sem var gefið út í fjölmörgum bindum, Íslenskt söngva- safn (fjárlögin) og fleiri söngvasöfn, sýna okkur hve mikinn fjöldi er til af lögum um fósturjörðina. Hvaða þýðingu hafa þessi lög fyrir Íslendinga? „Land, þjóð og tunga, þrenning ein og sönn, segir Snorri Hjartarson einhvers staðar og svarar þess- ari spurningu hvað best. Lýðveldið íslendinga er 60 ára um þessar mundir og 100 ár liðin frá því að Íslendingar fengu heimastjórn og enn eru spurn- ingar um framtíð Íslands í heimi samþjöppunar og alls konar bandalaga og hvernig framtíð þessa óskalands íslensks verði. Þetta hefur verið mér og okkur í Kór Áskirkju hugleikið og hefur haft mikla þýðingu. Við höfum þó viljað nálgast þessar perlur íslenskrar þjóðarsálar með öðrum hætti, svona eins og horft úr fjarlægð til þessa tímabils, með nærfærni og ljóðrænni nálgun en kannski án of mikillar tilfinningasemi.“ Tónlist | Hljómplata með ættjarðarlögum tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna Sígrænn hluti af þjóðarsál  Kári Þormar er fædd- ur árið 1968 í Hafn- arfirði. Hann lauk burt- farar- og píanó- kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og burtfar- arprófi í orgelleik frá Tónskóla þjóðkirkj- unnar 1993. Þá lauk hann framhaldsnámi í kirkjutónlist við Robert Schuman Hochschule í Düsseldorf, Þýska- landi, undir handleiðslu Hans Dieters Möllers í orgelleik og Volkers Hempfling í kórstjórn. Kári hefur starfað frá árinu 2001 sem org- anisti og kórstjóri við Áskirkju í Reykjavík. Kona hans er Sveinbjörg Halldórsdóttir nær- ingarfræðingur og eiga þau einn son. Tónlist Iðnó | Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzó- sópran og Javier Jáuregui gítarleikari flytja íslensk, ensk og ítölsk lög ásamt spænskum jólasöngvum kl. 20. Kópavogskirkja | Camerarctica leikur tón- list eftir Mozart í Kópavogskirkju kl. 21. Nemendur og eldri borgarar fá afslátt og ókeypis er fyrir börn. Kópavogskirkja | Mozart við kertaljós kl. 21. Aðventutónleikar Camerarctica. Myndlist Alliance Francaise | Marie-Sandrine Bej- anninn – málverk. Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig- urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Gallerí Tukt | Innrás úr Breiðholtinu í Gall- erí Tukt. Gerðuberg | Guðríður B. Helgadóttir – Efn- ið og andinn. Gerðuberg | Ari Sigvaldason – mannlífs- myndir af götunni. Þetta vilja börnin sjá! – Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem gefnar hafa verið út á árinu. Sýndar eru myndir úr nær fjörutíu bókum eftir tuttugu og sjö mynd- skreyta. Hafnarborg | Jólagjafir hönnunarnema í Iðnskólanum í Hafnarfirði til þjóðþekktra Íslendinga. Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu- málverk. Hrafnista Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist- insson myndlistarmaður sýnir málverk og tússmyndir í menningarsal. Listasafn Reykjanesbæjar | Sýning á olíu- verkum úr safneigninni þar sem náttúra Ís- lands er viðfangsefnið. Má þar m.a. sjá verk eftir gömlu meistarana Kjarval, Jón Stef- ánsson og Þórarin B. Þorláksson. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Graf- ísk hönnun á Íslandi. Erró – Víðáttur. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Textíllist 2004 – alþjóðleg textílsýning. Myndir úr Kjarvalssafni. Listmunahúsið Síðumúla 34 | Verk Valtýs Péturssonar. Lóuhreiður | Sigrún Sigurðardóttir – Gróð- ur og grjót. SÍM-salurinn | Sigurborg Jóhannsdóttir sýnir myndir unnar í ull. Skólavörðustígur 20 | Gunnella sýnir ný málverk. Suzuki-bílar | Björn E. Westergren sýnir myndir málaðar í akrýl og raf. Listasýning Handverk og hönnun | Jólasýningin „Allir fá þá eitthvað fallegt …“ Leiklist Iðnó | Jólasöngleikurinn Jólin syngja er sýndur í Iðnó fram að jólum. Í aðal- hlutverkum eru Rut Reginalds og Rósa Guðmundsdóttir. Hægt er að panta miða í 562-9700. Söfn www.skjaladagur.is | Þjóðskjalasafn Ís- lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðsskjalasöfn um land allt hafa samein- ast um vefinn www.skjaladagur.is þar sem að finna fróðleik og sýningu um árið 1974 í skjölum. Þjóðminjasafn Íslands | Bjúgnakrækir kemur í heimsókn kl. 13. Þá eru íslensku jólasveinarnir komnir á jólasveinadagatal sem fæst í safninu. Jólasveinakvæði Jó- hannesar úr Kötlum er einnig í dagatalinu. Veitingastofa safnsins býður fjölþjóðlegar jólakræsingar. Kynntir eru japanskir og pólskir jóla- og nýárssiðir auk íslenskra. Fréttir Bókatíðindi 2004 | Númer mánudagsins 20. desember er 87767. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Jólaút- hlutun verður dagana 20. og 21. des. kl. 14– 17 á Sólvallagötu 48. Svarað er í síma 551- 4349 sömu daga kl. 11–16 og tekið á móti varningi og gjöfum. Netfang: mnefnd@mi- .is. Námskeið ITC-samtökin á Íslandi | Námskeið á veg- um ITC 12. jan.–2. mars á Digranesvegi 12, Kóp. Fjallað verður um ímynd, raddþjálfun og líkamsbeitingu. Nánari uppl. gefur Ingi- björg s. 822-1022 og Hildur s. 663-2799. http://www.simnet.is/itc Útbr.nefnd ITC. Útivist Ferðafélagið Útivist | Útivistarræktin fer frá gömlu Toppstöðinni í Elliðaárdalnum kl. 18. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Sláandi fegurð. Norður ♠9876 ♥ÁD743 N/NS ♦D7 ♣83 Suður ♠ÁDG1053 ♥62 ♦ÁKG10 ♣7 Vestur Norður Austur Suður – Pass 2 hjörtu 3 spaðar 5 lauf 5 spaðar Allir pass Þegar andstæðingur vekur á hindr- unarsögn fylgja flestir spilarar þeirri reglu að stökk í lit sé sterkt, enda sé ástæðulaust að „hindra hindrun“. Stökk suðurs í þrjá spaða sýnir því góð spil yfir opnun austurs á veikum tveimur í hjarta. En svo kemur vest- ur með þriðja stökkið – í fimm lauf. Hann er vafalítið í fórnarhugleið- ingum og norður velur að berjast í fimm spaða. Og þá erum við loks komin að efn- inu, sem er að taka ellefu slagi í fimm spöðum. Vestur spilar út laufás og austur setur drottninguna undir (til að sýna gosann, væntanlega). Vestur spilar aftur laufi, gosinn úr austri og suður trompar. Hvernig er nú best að spila? Margt er vitað um skiptinguna. Austur á sexlit í hjarta (og þar með kónginn), og því virðist nauðsynlegt að komast hjá því að gefa á tromp- kónginn. Með hliðsjón af því sýnist svíning í trompi sjálfgefin. En bíðum við: Norður ♠9876 ♥ÁD743 ♦D7 ♣83 Vestur Austur ♠K4 ♠2 ♥– ♥KG10985 ♦8543 ♦962 ♣ÁK109652 ♣DG4 Suður ♠ÁDG1053 ♥62 ♦ÁKG10 ♣7 Spilið er öruggt ef trompið er 2–1. Suður tekur á spaðaásinn og spilar svo tíglunum fjórum. Í þessu tilfelli trompar enginn, en þá er trompi spil- að. Vestur lendir inni og verður að spila laufi í tvöfalda eyðu og þá hverf- ur tapslagurinn á hjarta. Ef austur hefði átt spaðakónginn yrði hann að gera slíkt hið sama, eða spila hjarta upp í ÁD. Einfalt og fagurt. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.