Morgunblaðið - 20.12.2004, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 33
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Mi 29/12 kl 20, - UPPSELT
Su 2/1 kl 20Fö 7/1 kl 20,
Fö 14/1 kl 20, Su 16/1 kl 20
HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna
Jónssonar eftir vesturfarasögum
Böðvars Guðmundssonar
Aðalæfing fi 6/1 kl 20 - UPPSELT
Frumsýning fö 7/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 8/1 kl 20 - GUL KORT- UPPSELT
Su 9/1 kl 20 - AUKASÝNING - UPPSELT
Lau 15/1 kl 20 - RAUÐ KORT
Su 16/1 kl 20 - GRÆN KORT
Fö 21/1 kl 20 - BLÁ KORT
Lau 22/1 kl 20, Lau 29/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ - GILDIR ENDALAUST
Gjafakort fyrir einn kr. 2.700 - gjafkort fyrir tvo kr. 5.400. Gjafakort á Línu Langsokk fyrir einn kr. 2.000, fyrir tvo kr. 4.000
VIÐ SENDUM GJAFAKORTIN HEIM ÞÉR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
- pantið í síma 568 8000 eða á midasala@borgarleikhus.is
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 2/1 kl 14, Su 9/1 kl 14,Su 16/1 kl 14
Su 23/1 kl 14, Su 30/1 kl 14
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20
SVIK eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA.
Mi 29/12 kl 20, Fö 14/1kl 20, Fi 20/1 kl 20 AUSA eftir Lee Hall og STÓLARNIR
eftir Ionesco - Í samstarfi við LA
Frumsýning fi 30/12 - UPPSELT
Lau 8/1 kl 20, Su 9/1 kl 20
GJAFAKORTIN OKKAR
GILDA ENDALAUST
☎ 552 3000
AUKASÝNING Í JANÚAR
VEGNA MIKILLAR AÐSÓKNAR
• Sunnudag 26/12 kl 20 NOKKUR SÆTI
• Laugardag 15/1 kl 20 LAUS SÆTI
eftir LEE HALL
Loftkastalinn ✦ Seljavegi 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ www.loftkastalinn.is
ELVIS Í JÓLAPAKKANN!
Gjafakort í leikhúsið - skemmtileg og öðruvísi jólagjöf
í samstarfi við LEIKFÉLAG AKUREYRAR
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
ÓLIVER!
Frumsýnt
28. des
Óliver! Eftir Lionel Bart
Þri 28/12 kl 20 UPPSELT Frums.
Mið 29/12 kl 20 UPPSELT
Fim 30/12 kl 16 UPPSELT
Fim 30/12 kl 21 UPPSELT
Sun 2/1 kl 14 UPPSELT
Sun 2/1 kl 20 örfá sæti
Fim 6/1 kl 20 örfá sæti
Lau 8/1 kl 20 UPPSELT
Sun 9/1 kl 20 nokkur sæti
Fim 13/1 kl 20 nokkur sæti
Lau 15/1 kl 20 örfá sæti
Sun 16/1 kl 20 nokkur sæti
Sýnt í Reykjavík: Eldað með Elvis, Svik og Ausa og stólarnir
AUKASÝNING mið . 29 .12 k l . 20 .00
LAUS SÆTI
LOKASÝNING f im. 30 .12 k l . 20 .00
UPPSELT
Miðasa lan e r op in f rá k l . 14 -18
Lokað á sunnudögum
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR
BANDARÍSKI myndlistarmað-
urinn Walter Gaudnek, sem fædd-
ur er í Þýskalandi, stillir sér hér
upp fyrir framan eina af teikn-
ingum sínum af Adolf Hitler, þar
sem nasistaforinginn er orðinn að
teiknimyndafígúru í popp-
listarstíl.
Teikningarnar, sem getur að
líta á sýningu í Altomuenster,
nærri útrýmingarbúðum nasista í
Dachau, hafa reitt gyðinga og
sveitarstjórnarmenn á svæðinu til
reiði.
Sjálfur segir Gaudnek að til-
gangurinn með hinum litríku
verkum sé að sýna Hitler sem
manneskju en ekki skrímsli.
Reuters
Hitler teiknaður sem manneskja
ÉG VERÐ að viðurkenna að ég
varð alveg hissa þegar ég heyrði
geisladisk Kórs Áskirkju sem ber
heitið Það er óskaland íslenskt.
Lögin á diskinum hafa vissulega
verið sungin ótal sinnum; Í Hlíð-
arendakoti, Ó! Fögur er vor fóst-
urjörð, Abba labba lá, Hver á sér
fegra föðurland og fleira í þeim
dúr, en samt var eins og ég væri að
heyra þau öll í fyrsta sinn. Hvernig
stendur á því? Jú, kórinn flytur þau
svo fallega, túlkunin er svo innileg
og söngurinn svo tær, hljómmikill
og fágaður að það er hreint ótrú-
legt. Greinilegt er að Kári Þormar,
stjórnandi kórsins, er smekkmaður,
blæbrigðin sem
hann galdrar
fram með hjálp
kórsins eru
sjaldheyrð á
geisladiskum af
svipuðum toga.
Upptaka
Sveins Kjart-
anssonar er
óvanalega góð;
hvert einasta orð heyrist vel og
hljómurinn er gæddur dásamlegri
dýpt án þess að efstu tónarnir glati
skærleika sínum.
Geisladiskurinn hefur verið til-
nefndur til Íslensku tónlistarverð-
launanna og er ekki að undra; hann
á svo sannarlega skilið að sigra.
Vissulega er tónlistin ekki ný af
nálinni en túlkunin er svo fersk að
maður sér hana í alveg nýju ljósi.
Sjaldheyrður galdur
TÓNLIST
Íslenskar plötur
Kór Áskirkju flytur íslensk ættjarðarlög.
Stjórnandi: Kári Þormar.
Það er óskaland íslenskt
Jónas Sen
Kári Þormar
ÆTLI kveðskapur sé
að komast í tísku aftur?
Fyrst varð Steindór
Andersen að stjörnu
með gullrödd sína og
rímnakvæði, nú er eins
og annar hver maður sé
farinn að yrkja í hefð-
bundnum stíl. Sigfús
Bjartmars slær í gegn
með heimsósóma sínum
og nú stígur hver fram
eftir annan með kveð-
skap sinn, Lárus Jón
Guðmundsson með
Fröken Kúlu könguló,
Davíð Þór Jónsson er
með bækur í bundnu máli og áreið-
anlega eru fleiri á ferð sem ég ekki
hef séð. Kannski mál að Gerður
Kristný fari að líta aftur á gömlu ljóð-
in sín? Davíð Þór Jónsson hefur ekki
svo ég viti gefið út bækur áður en
kemur með tvær barnabækur fyrir
þessi jól. Önnur er reyndar unglinga-
bók, a.m.k. sögðu sjö ára Sólveig og
bráðum tíu ára Dísa að Vísur fyrir
vonda krakka væri leiðinleg og þær
skildu hana ekki. Jólasnótirnar þrett-
án hins vegar var „fyndin og
skemmtileg“ og greinilega meira fyr-
ir þeirra aldurshóp. Davíð Þór liggur
mikið á hjarta í bók sinni Vísum fyrir
vonda krakka og ég var ekki sam-
mála litlu vinkonunum um hana. Yrk-
isefni Davíðs Þórs eru helstu lestir
samfélagsins og mannkynsins alls,
sem hvorugt er upp á marga fiska
miðað við kveðskapinn. Vísurnar eru
misjafnar, sumar afbragð eins og t.d.
Binnabálkur en aðrar síður eftir-
minnilegar og kannski örlítið þving-
aðar en yfirhöfuð hefur höfundur gott
vald á forminu. Kaldhæðnin er hér
alls ráðandi og margar vísurnar líka
afar kaldranalegar. Þetta er án efa
ástæða þess að þær sjö og tíu ára
skildu ekki bókina, þær eru ekki
komnar á kaldhæðnistigið. Tove
Jansson hefur skrifað skemmtilega
um kaldhæðni, en í múmínsögu henn-
ar „Ósýnilega barnið“ verður lítil
stúlka ósýnileg því frænka hennar
sýnir henni stöðugt kaldhæðni. Lík-
lega hefur verið rannsakað sér-
staklega hvenær börn fara að skilja
kaldhæðni en ég gæti
trúað að bók Davíðs
Þórs væri upplögð fyrir
unglinginn sem er í
þann mund að gera sér
grein fyrir tvöfeldni og
hræsni samfélagsins og
er kannski dálítið upp-
tekinn af því, bókin er
líka ádeila sem þörf er á.
Myndskreytingar Lilju
Gunnarsdóttur eru
skemmtilega grafískar
og grófar eins og vís-
urnar, mikil vinna liggur
í þeim og þær eru mátu-
lega hræðilegar og
hlægilegar um leið.
Jólasnótirnar þrettán
Davíð Þór er bæði frumlegur og
einkar fyndinn í vísum sínum um
systur jólasveinanna og grikki þeirra.
Hér eru þær mættar Sokkaskaði,
Lykla-krækja, Rógtunga og Klára-
mjólk, Staurblanka, Rauðsokka og
fleiri sem gera okkur stöðugt grikk í
hversdagsamstrinu. Þessi er tilvalin í
skóinn eins og segir í auglýsingunni,
og þá handa nokkuð stálpuðum börn-
um, vísurnar eru fyndnar og umfjöll-
unarefni þeirra öllum kunn. Hér er
ekki kaldhæðni eða kaldranaleiki á
ferð, sem gerir þessa bók aðgengi-
legri þeim sem yngri eru. Myndir
Jean Antoine Posocco eru hlýlegar og
fallegar og kerlingarnar krúttlegar í
ljótleika sínum, teikningarnar vega
salt milli fallegra mynda og skrípa-
legra, rétt eins og vísurnar. Þetta eru
áhugaverðar og fyndnar bækur sem
eru góð viðbót í hvaða bókaskáp sem
er. Og fyrir þá sem ekki finna rím við
Jesú er bara að kíkja í Vísur fyrir
vonda …
Hvað rímar við Jesú?
Davíð Þór Jónsson
Ragna Sigurðardóttir
BÆKUR
Barnaljóð
Vísur fyrir vonda krakka
Eftir Davíð Þór Jónsson, Lilja Gunnars-
dóttir myndskreytti.
21 12 kúltúr kompaní 2004.
Jólasnótirnar þrettán
Eftir Davíð Þór Jónsson, Jean Antoine
Posocco myndskreytti.
21 12 kúltúr kompaní 2004.
BJÖRGVIN Guðmundsson (1891–
1961) tilheyrði frumherjahópnum
sem kom íslenzkri listtónsköpun á
rekspöl úr engu við frumstæðar að-
stæður einangrunar, mennt-
unarskorts og skilningsleysis. Voru
flestir skáldbræður hans hér sjálf-
numdir, og tveggja ára tónhá-
skólanám hans í London á 3. áratug
því afar fágætt fyrir sinn tíma. Þess-
ar aðstæður skýra einnig að hluta
hvernig óratóríustíll Händels gat
lifnað aftur við í stærstu kórverkum
Björgvins, löngu eftir að barokk-
skeiðinu lauk sunnar í álfu. En
kannski var það ekki svo skrýtið fyr-
ir þjóð sem kvaddi kirkjutóntegundir
miðalda þrem öldum á
eftir nágrannalönd-
unum í Evrópu. Það
kemur kannski stóru
verkunum helzt í koll
hvað fyrirmynd þeirra
er bæði forn og al-
þekkt, og hefur þar sízt
bætt úr skák frum-
leikadýrkun seinni ára
á Jóni Leifs.
Hins vegar standa
hin smærri verk Björg-
vins furðuvel fyrir sínu
innan um síðbúnar
snemmrómantískar af-
urðir annarra íslenzkra
samtímatónskálda. Það
má glöggt sjá á þessum nýútkomna
hljómdiski, er sýnir fleiri hliðar á
tónskáldinu og fjölbreyttari en
vænta mætti af risaverkunum. Raun-
ar rakst ég í fljótu bragði aðeins á
eitt líklegt dæmi um Händel-áhrif,
þ.e. í Forspilinu fyrir píanó (ávæning
af For he shall feed his flock úr
Messíasi) og gæti þó rithátturinn
eins verið frá D. Scarlatti ef ekki
fleirum. Erfiðara var að skafa úr sér
ættarsvip Ástarglettna við Vila vid
denna källa eftir Bellman!
Að því gamni slepptu er margt
heillandi við þennan disk, og jafnvel
nýstárlegt. Sérstaklega að heyra ís-
lenzk gullaldarsönglög útsett í eins
konar nútíma vísnapoppstíl (ef það er
þá rétta orðið), og e.t.v.
einsdæmi. Gildir það
um lögin Í rökkurró,
Draumi þrælsins og
Lifnar hagur lengir
dag, öll bráðvel sungin
af Bergþóri Pálssyni þó
að dægurlægur brjóst-
tónn hans sé ekki alls
staðar sannfærandi, og
Vögguvísu og Sofðu
unga ástin mín sem eru
fagurlega seimkraunuð
af Eivøru Pálsdóttur.
En einnig hefð-
bundnu lögin njóta sín
vel úr óhróflandi hönd-
um jafnágætra lista-
manna og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur,
Önnu G. Guðmundsdóttur, Snorra S.
Birgissonar og Eyjólfs Eyjólfssonar
(nema helzt þegar hann hneigist til
að eftirreigja að hætti ungra söngv-
ara). Karlakórinn Fóstbræður fer
auðvitað sigri hrósandi með kórlögin
undir vandvirkri stjórn Árna Harð-
arsonar, og „djasskombóið“ smekk-
lega með vandasamt upppopp-
unarhlutverk sitt undir umsjón
Péturs Grétarssonar slagverks-
manns í prýðisgóðri upptöku. Loks
hefur diskurinn sér til ágætis að
hvert einasta lag er samvizkulega ár-
sett í diskbæklingi.
Óratóríusmiðurinn frá Vopnafirði
TÓNLIST
Íslenskar plötur
24 lög eftir Björgvin Guðmundsson.
Snorri Sigfús Birgisson, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir & Kjartan Valdemarsson
píanó, Karlakórinn Fóstbræður u. stj.
Árna Harðarsonar, Eyjólfur Eyjólfsson
tenór, Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran, Sig-
rún Eðvaldsdóttir fiðla, Bergþór Pálsson
barýton, Pétur Grétarsson slagverk,
Valdemar Kolbeinn Sigurjónsson & Birgir
Bragason kontrabassi, Sigurður Ingi
Snorrason klarínett, Eivör Pálsdóttir
söngur og Edvard Lárusson gítar. Bæk-
lingsgrein eftir Bjarka Sveinbjörnsson.
Upptökustjóri og listrænn stjórnandi:
Pétur Grétarsson. Útgefandi: Smekk-
leysa © 2004 SMK 40.
Björgvin Guðmundsson – Hljómblik
Ríkarður Ö. Pálsson
Björgvin Guðmundsson
Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í er-
lendum tungu-
málum hefur gefið
út fyrstu bókina í rit-
röð fjölmála texta á
Íslandi. Um er að
ræða tvímála útgáfu
á hinu sígilda leikriti
Yermu eftir Fed-
erico Garcia Lorca í þýðingu Mar-
grétar Jónsdóttur og Karls J. Guð-
mundssonar. Frumtexti og þýðing
birtast hlið við hlið, línu fyrir línu, auk
neðanmálsgreina þar sem skýrð eru
ýmis málleg og menningarleg atriði
textans. Einnig hefur Margrét ritað ýt-
arlegan fræðilegan inngang að bókinni
til frekari skýringa og samið æfingar
fyrir spænskunema sem er að finna
aftast. Fengur er að spænsk-íslenskri
tvímála útgáfu þar sem ekki er til
spænsk-íslensk orðabók á Íslandi.
Dreifingu annast Háskólaútgáfan og
fæst bókin í bókaverslunum.
Fjölmála texti