Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 34

Morgunblaðið - 20.12.2004, Side 34
34 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ * EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSwww.borgarbio.is Sýnd kl. 6 og 8.. Miðasala opnar kl. 15.30 Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnar Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 14 ára. VINCE VAUGHNBEN STILLER Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og 10.15. PoppTíví  Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 4. Hann er á toppnum... og allir á eftir honum Framleidd af Mel Gibson Pottþéttur spennutryllir... ... DodgeBallÓ.Ö.H. DV Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 10. kl. 4, 6, 8 og 10. Jólaklúður Kranks Jólamynd fjölskyldunnar SVAKALEGA ÖFLUG BARDAGAMYND Í ANDA BRUCE-LEE EIN ÓHUGNALEGASTA MYND SEINNI ÁRA HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI CARY ELWES DANNY GLOVER MONICA POTTER „Balli Popptíví“  EKKERT fyrirtæki býr að eins miklu safni af íslenskri tónlist og Skífan, því ekki er bara að fyrirtækið hafi yfir að ráða upptökum úr eigin útgáfusögu heldur hefur því líka áskotnast obbinn af því sem til er upptekið af íslenskri tónlist. Und- anfarin ár hefur Skífan marvisst unnið að því að gefa út tónlist úr safni sínu og hyggst enn auka útgáfuna á næstu árum, enda virðist ekki skorta eftirspurn. Fyrir þessi jól sendir Skífan frá sér nýjar plötur með göml- um lögun Ellyar Vilhjálms, Helenu Eyjólfsdóttur og Óðins Valdimars- sonar, en einnig heldur áfram útgáfa á svonefndu Óskalagasafni, en það er eins konar dægurlagasaga Íslands, út kemur áttunda platan í þeirri röð og einnig Óskastund 3 með lögum sem Gerður G. Bjarklind hefur valið. Óskir fólksins Eiður Arnarson, útgáfustjóri hjá Skífunni, segir að endurútgáfum fyr- irtækisins megi skipta í þrennt; fyrst sé að nefna endurútgáfu á heilum plötum, stundum með aukalögum en oftar með litlu eða engu aukaefni, þá eru það safnplötur af gömlu efni sem sé oft selt á vægara verði og svo gef- ur Skífan út það sem hann kallar fer- ilsplötur, þar sem reynt sé að gefa sem besta mynd af ferli einstaks tón- listarmanns eða hljómsveitar og þá mikið lagt í að safna góðum upplýs- ingum um viðkomandi, myndum og þess háttar. Eiður segir að Skífan fari mikið eftir óskum fólks þegar verið er að ákveða hvað eigi að endurútgefa hverju sinni. „Sem dæmi um það er að við gáfum út safnplötu með bestu barnalögum Ruthar Reginalds á síð- asta ári og vorum þá að svara ein- dregnum óskum fólks,“ segir Eiður en bætir við að ekki séu þeir Skífu- menn alltaf sammála því að tímabært sé að gefa út safnplötu þótt beðið sé um hana, það sé alltaf mat hverju sinni. Fleiri lög og betri hljómur Að sögn Eiðs gerir Skífan æ meira af því að endurnýja safnplötur, ef svo mætti segja, að gefa út nýja safn- plötu þótt þegar sé til á markaðnum safnplata sem jafnvel selst prýðilega. „Platan með Elly, Allt mitt líf, er gott dæmi um þetta því safndiskur með helstu lögum hennar, Lítill fugl, kom út 1994 og hefur selst gríðarlega vel, seldist til að mynda í eitt þúsund ein- tökum á síðasta ári. Það var þó orðið fyllilega tímabært að gefa þau lög út í betri hljóm og þá var tekin ákvörðun um að hafa mun fleiri lög á diskinum og gera þetta allt betur.“ Allt mitt líf með Elly er dæmigerð „ferilsplata“, eins og þeir Skífumenn kalla það, en Skífan gefur út tvær aðrar ferilsplötur í haust, annars vegar plötu Helenu Eyjólfsdóttur, Hvítu mávar, og hins vegar Er völlur grær með Óðni Valdimarssyni, en þau Óðinn og Helena voru samstarfs- fólk í Atlantic-kvartettinum fyrir norðan á sínum tíma. Eiður segir að þegar vinna var langt komin með plötuna hennar Ellyar hafi mönnum dottið í hug að gefa út safnplötu með Helenu, en engin slík plata er til þrátt fyrir mikl- ar vinsældir hennar í gegnum tíðina. Í framhaldi af því hafi svo þótt við hæfi að gefa líka út plötu með safni laga sem Óðinn Valdimarsson hefur sungið. Eiður segir að mörgum þyki eflaust skrýtið að ekki skuli áður hafa verið gefin út safnplata með lög- um Helenu. „Hugsanlega hefur mönnum þótt safnplatan sem gefin var út með Hljómsveit Ingimars Ey- dals duga, en þó skarast Hvítu mávar að litlu leyti við þá plötu, ekki eru nema örfá sömu lögin á báðum plöt- unum.“ Óskalög þjóðarinnar Sala á safnplötum er eðlilega mis- jöfn, en Eiður segir að þegar vel tekst til hlaupi salan á nokkrum þús- undum og þannig hafi plata Vil- hjálms Vilhjálmssonar, Dans gleð- innar, sem kom út á geisladisk 1999, selst í 12–13 þúsund eintökum og ný plata Ellyar sé þegar komin í um 4 þúsund eintök en að sögn Eiðs hefur fjöldi annarra slíkra ferilsplatna gengið afar vel á undanförnum árum. Ekki er bara að Skífan sé að gefa út ferilsplötur á árinu heldur kemur einnig út áttunda platan í útgáfuröð sem kallast Óskalögin. Eiður segir að markmiðið með þeirri útgáfu sé að hafa plöturnar ódýrar í útgáfu til að geta selt þær ódýrt og þannig sé Óskalögin 8 á 2 þúsund kr. út úr búð, en á diskinum eru 40 lög. „Það stend- ur til að fara upp í tíu í þeirri útgáfu- röð, en hugmyndin með henni var að segja eins konar dægurlagasögu Ís- lands, að vera með eins breitt svið og hægt er, stundum ólík lög og ólíkar tónlistarstefnur en alltaf lög sem hafa verið vinsæl á hverjum tíma,“ segir Eiður. Átak í endurútgáfu framundan Tækninni fleygir fram og sífellt verða menn betri í því að færa tónlist á stafrænt gagnasnið fyrir geisla- diskaútgáfu. Eiður segir og að þeir Skífumenn hafi það sem þumalputta- reglu að ef liðin eru fimm ár eða meira síðan tónlist var unnin fyrir geisladisk sé það gert aftur. „Við er- um alltaf að fá betri og betri tæki fyr- ir stafræna yfirfærslu auk þess sem færni og reynsla tæknimanna eykst og margar plötur kalla reyndar á það að vera gefnar út aftur með end- urbættum hljómi. Gott dæmi um þetta er fyrsta útgáfa af Hana nú með Vilhjálmi Vilhjálmssyni á geisla- diski og svo nýja útgáfan sem er í verslunum núna, en það er lygilega mikill munur á þessum tveimur plöt- um hvað sú síðarnefnda hljómar miklu betur.“ Þess má svo geta að lokum að Skíf- an hyggst gera átak í endurútgáfu á næsta ári og gefa þannig út talsvert af plötum á geisladiskum sem ekki hafa verið fáanlegar áður auk þess sem ýmsar útgáfuraðir eru í bígerð. Tónlist | Safnplötur koma út með dáðum dægursöngvurum Elly, Helena og Óðinn arnim@mbl.is BRESKA leikkonan Vanessa Red- grave tók þátt í sýningu Vesturports á Rómeó og Júlíu í Playhouse- leikhúsinu í Lundúnum í fyrrakvöld, fór með lokaorðin. Redgrave er í hópi kunnra leikara sem tekið hafa að sér að fara með lokaorð verksins nú í desember og janúar. Á morgun er röðin komin að sir Derek Jakobi og á miðvikudag verður Jonathan Pryce gestur Vest- urports. Að sýningu lokinni stillti Redgrave sér upp með leikhópnum fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins. Hún er fyrir miðri mynd með blómvönd og flösku í hendinni en annar frá hægri er breski leikarinn Alan Rickman sem var áhorfandi á sýningunni. Hann er í seinni tíð lík- lega þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Snape prófessor í Harry Potter- myndunum vinsælu. Vanessa Redgrave í góðum félagsskap Ljósmynd/Daniel Sambraus AKUREYRINGAR voru svo sann- arlega ekki út- undan í gleðinni um helgina en þá kom Sálin í hinn sögufræga skemmtistað Sjall- ann og hélt uppi dynjandi dansfjöri. Ekki var kvartandi yfir skorti á vin- sældum sveitar- innar en talið er að um ellefu hundruð manns hafi mætt í húsið til að skemmta sér á föstu- dagskvöldið og ku hafa verið stút- fullt út úr dyrum. Sálin er ein elsta og vinsælasta starfandi hljómsveit landsins og eiga þeir mikið safn sígildra slag- ara. Sálin í Sjallanum Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.