Morgunblaðið - 20.12.2004, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 20. DESEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
UNGLINGAR í Valhúsaskóla settu upp sýn-
inguna Hárið í Félagsheimili Seltirninga í gær.
Sáu unglingarnir sjálfir um allan undirbúning
sýningarinnar og rann allur ágóði af henni,
miðasölu sem sælgætissölu, til barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans. Sýningin heppn-
aðist vel, mikið fjör var á sviðinu og undirtektir
áhorfenda góðar. Að sögn talsmanns sýning-
arinnar var troðfullt út úr húsi og krakkarnir
mjög ánægðir með hvernig til tókst. Ágóðinn
verður afhentur forsvarsmönnum BUGL bráð-
lega.
Sungu og léku til styrktar BUGL
Morgunblaðið/Kristinn
ALGENGUSTU fyrirspurnir sem
Húseigendafélagið fær yfir hátíð-
irnar varða jólaskreytingar, há-
vaða vegna
flugelda og
lyktarmeng-
unar af hinni
vestfirsku
skötu. Nokk-
uð ljóst er að
ekki finnst
öllum lyktin af skötunni sem fyllir
loftin á Þorláksmessu jafn góð.
Ekki eru t.d. allir íbúar í fjöleign-
arhúsum á eitt sáttir um lyktina
sem borist getur fram á gang.
Það er gömul saga og ný að oft
eru athafnir einum til ánægju og
yndisauka en öðrum til ama og
óþæginda, skrifar Hrund Krist-
insdóttir, lögfræðingur Húseig-
endafélagsins. Það er harla ólíklegt
að eigendur í fjöleignarhúsum geti
að hennar mati krafist þess að ná-
grannar þeirra láti af þeim alda-
gamla vestfirska sið að elda skötu á
Þorláksmessu./Fasteignir
Ilmurinn úr
eldhúsinu
ekki alltaf
lokkandi
MIKIÐ hefur verið hringt á tækni-
frjóvgunarstofuna ART Medica síð-
ustu daga og spurt út í egg til gjafar
eða greiðslu. Fleiri hafa þó boðið fram
aðstoð sína, án þess að hugsa um að fá
eitthvað greitt fyrir það.
Þetta kemur fram í viðtali við eig-
endur stofunnar, læknana Þórð Ósk-
arsson og Guðmund Arason, í Morg-
unblaðinu í dag.
Að sögn þeirra hafa þær konur sem
hringt hafa gjarnan sagt að þær hafi
ekki áttað sig á hve þörf fyrir gjafa-
egg væri mikil.
„Þörfin fyrir egg er mikil en fram-
boðið hefur nær ekkert verið,“ segir
Þórður en í dag eru á bilinu 25–30 pör
sem bíða eftir því að fá egg til frjóvg-
unar. Hafa sum pörin beðið í mörg ár.
Á undanförnum þremur árum hafa
um 40 börn orðið til með tæknifrjóvg-
un hér á landi. Um 300 meðferðir
vegna tæknifrjóvgunar fara fram hér
á landi árlega.
Margir
hringt vegna
eggjanna
Erum alls ekki/28–29
STJÓRNENDUR Íbúðalánasjóðs
gerðu ráð fyrir innkomu bankanna á
húsnæðislánamarkaðinn og að til
uppgreiðslu lána myndi koma, skv.
upplýsingum Halls Magnússonar,
sviðsstjóra þróunar- og almennings-
tengslasviðs Íbúðalánasjóðs. Hann
segir það ekki rétt sem fram hafi
komið í fréttaskýringu Morgunblaðs-
ins sl. sunnudag að sjóðurinn geti
komist í þrot ef framhald verður á
miklum uppgreiðslum á útlánum
sjóðsins. Hallur segir þó ýmislegt í
grein blaðsins standast fræðilega
séð.
Hallur segir að sérstaklega hafi
verið haldið fyrir utan skuldabréfa-
skiptin sl. sumar rúmlega 120 millj-
örðum kr. í húsbréfum og þar að auki
tryggi skiptiprósenta í útboðinu
sjóðnum annað eins. ,,Það þýðir að
öllu óbreyttu að sjóðurinn er með
hátt í þriðja hundrað milljarða getu
til þess að takast beint á við þessar
breytingar, óháð öðrum þáttum sem
við getum gripið til og höfum verið að
grípa til í gegnum okkar mjög svo
virku áhættu- og fjárstýringarstefnu
og fjárstýringaraðgerðir,“ segir
hann.
Í fréttatilkynningu Íbúðalánasjóðs
í gær segir að lánshæfismatsfyrir-
tækið Moody’s hafi staðfest „frábært
lánshæfismat Íbúðalánasjóðs Aaa og
telur að horfur sjóðsins séu stöðug-
ar,“ eins og segir í tilkynningunni.
Hallur Magnússon, sviðsstjóri hjá Íbúðalánasjóði
Gerðu ráð fyrir innkomu
banka og uppgreiðslum
Segir fjarri/6
Leiðari/20
KONUR greiða hlutfallslega
meira fyrir lyf sem þær nota en
karlar ef skoðað er meðaltal
allra lyfjaflokka. Þetta kemur
fram í Staðtölum almannatrygg-
inga fyrir árið 2003 sem eru
gefnar út af Tryggingastofnun
ríkisins (TR). Þar af leiðandi fer
meira fé í að greiða niður lyf fyr-
ir karla og á það við um alla ald-
ursflokka nema tvo (0–4 ára og
65–69 ára) þar sem kynin eru
jöfn. Munurinn er mestur á ald-
ursbilinu fimmtán til þrjátíu ára.
Sigurbjörn Sveinsson, formað-
ur Læknafélags Íslands, segir að
ástæðan sé sú að konur vegi
meira í þeim lyfjaflokkum þar
sem teknar hafa verið ákvarð-
anir um takmarkaðri niður-
greiðslur frá Tryggingastofnun.
Hann tekur sem dæmi að flest
algengustu geðlyfjanna séu að-
eins skrifuð út fyrir 30 daga í
senn en konur eru líklegri til að
taka slík lyf en karlar.
„Ríkissjóður tekur því start-
gjald á þrjátíu daga fresti eins
og leigubílstjóri sem er að reyna
að fá eins marga stutta túra og
hann getur,“ segir Sigurbjörn og
bætir við að svona sé þessu ekki
háttað með lyf við hjarta- og
blóðsjúkdómum sem karlar taka
frekar.
Þarf að endurskoða kerfið
Inga J. Arnardóttir, lyfjafræð-
ingur hjá TR, segir að Trygg-
ingastofnun taki mismikinn þátt
í endurgreiðslu lyfja. „Lyf við
krónískum sjúkdómum eins og
hjarta- og æðasjúkdómum og
astma eru meira niðurgreidd en
önnur lyf. Meiri partur lyfja hef-
ur hins vegar minni niður-
greiðslu eins og gigtarlyf og
annað en notkun kvenna vegur
þungt þar. Lyf sem karlar nota
meira af eru dýr og meira nið-
urgreidd,“ segir Inga en bætir
við að getnaðarvarnarpillan vegi
líka nokkuð þarna þar sem hún
sé ekki niðurgreidd. „Það má
kannski sjá þetta í pólitísku ljósi;
að kerfið mismuni körlum og
konum.“
Inga segir að umræða um
endurskoðun á greiðsluþátttöku-
kerfinu hafi verið í gangi í nokk-
ur ár. „Ég held samt að flestir
séu sammála um að kerfið sem
við höfum í dag er óréttlátt. Það
er mismikil niðurgreiðsla eftir
lyfjum og svo virðist sem sum lyf
séu „fínni“ en önnur. Maður get-
ur verið heppinn að fá einn sjúk-
dóm frekar en annan varðandi
kostnað. Það þarf að gera kerfið
gagnsærra og réttlátara,“ segir
Inga.
Konur borga meira
fyrir lyf en karlar
Ríkið tekur
startgjald eins
og leigubíl-
stjóri, segir for-
maður Lækna-
félagsins
Sex milljarðar/8
KJARTAN Henry Finnbogason og Theodór
Elmar Bjarnason, ungir knattspyrnumenn úr
KR, sömdu í gær við skoska meistaraliðið Glas-
gow Celtic og hefja atvinnuferilinn með því í
janúar. Báðir skrifuðu þeir undir samning til
ársins 2007 og KR-ingar gengu jafnframt frá
samningum við Celtic í Glasgow í gær.
Kjartan Henry og Theodór Elmar eru fyrstu
íslensku knattspyrnumennirnir í röðum Celtic
síðan Jóhannes Eðvaldsson lék með félaginu á
áttunda áratugnum./Íþróttir
Ungir KR-ingar
sömdu við Celtic
Morgunblaðið/Kristinn
Kjartan Henry og Theodór Elmar í búningi
skosku meistaranna Glasgow Celtic.
UNGUR piltur slasaðist mjög
alvarlega á baki á vélsleða á
Ólafsfjarðarvegi við Hauga-
nesafleggjara um miðjan dag
í gær. Hann var fyrst fluttur
á Fjórðungssjúkrahúsið á Ak-
ureyri, en síðan um kvöldmat-
arleytið með sjúkraflugi suð-
ur til Reykjavíkur á Land-
spítala – háskólasjúkrahús til
frekari rannsókna og með-
ferðar.
Pilturinn er ekki talinn í
lífshættu, en er engu að síður
mjög alvarlega slasaður.
Slasaðist
alvarlega á
vélsleða
♦♦♦