Frjáls þjóð

Issue

Frjáls þjóð - 16.02.1953, Page 1

Frjáls þjóð - 16.02.1953, Page 1
FRJALS ÞJOÐ 2. árg. Mónudaginn 16. febrúar 1953. 6. tbl. Stóriðja hér á landi verður aft miðast ú þarfir íslenzku þjóðarinnar Það verður að varast erlend áhrif og yfirdrottnun í sam bandi við erlent fjármagn til þeirra framkvæmda Fá tíðindi munu hafa vakið hér jafn mikla og ai- menna athygli og frásagnirnar í siðasta tbl. FRJÁLSR- AR ÞJÓÐAR af áformuðum framkvæmdum Banda- ríkjanna hér á landi. Sérstaklega voru það upplýsingar blaðsins um fyrirhugaðar virkjunarframkvæmdir við Þjórsá og stóriðju í sambandi við þær, sem athygli vöktu. Gíbraltar norðurhafa Hinar nýju kröfur Banda- ríkjanna um stórfelldan hernaðarviðbúnað og fram- kvæmdir hér á landi, sem frá var skýrt í síðasta tbl. FRJÁLSRAR ÞJÓÐAR, sýna glöggt og ótvírætt, hvað Bandaríkin ætlast í raun og veru fyrir með ísland. Það er ljóst nú, að varnarsamn- ingurinn frá 1951 var aðeins sá litli fingur, sem átti að skapa þeim aðstöðu til að hrifsa alla höndina, þegar þeim byði svo við að horfa. Og það verður gert, ef þjóðin ekki veitir stjórnarvöldum sínum þá áminningu, sem dugir. Það getur engum dulizt lengur, að áform Bandaríkj- anna eru þau að gera ísland að öflugu útvígi sínu og hag- nýta auðlindir þess í sína þágu, hvort sem stríð brýzt út eða friður helzt. Amerísk- um liernaðaryfirvöldum er ljóst, að Vestur-Evrópa verð- ur ekki varin, ef til styrjald- ar kemur. Þess vegna er ís- land þeim jafn mikilvægt og raun ber vitni. Það yrði rammbyggt virki í fremstu víglínu — réttnefnt Gí- braltar norðurhafa. Héð- an yrðu gerðar árásir á Rúss- land og Austur-Evrópuríkin, og hingað yrði stefnt gagn- árásum. Á íslandi mundi brotna fyrsta holskefla styrj- aldarinnar með öllum sínum geigvænlegu afleiðingum. Það voru til menn í land- inu — aðrir en kommúnistar — sem gerðu sér ljóst fró öndverðu, að afleiðingarnar af þátttöku okkar í Atlants- hafsbandalaginu og hersetu Bandaríkjanna hér yrðu ó þessa lund, að við réttum Bandaríkjunum litla fingur- inn með varnarsamningnum 1951 og yrðum von bráðar að sjá á eftir hendinni allri. Sá dagur er skammt undan, ef þjóðin heldur áfram að dotta „dáðlaus, viljasljó“. Það er of seint að vakna, þegar Bandaríkin hafa endanlega Iokið við að leggja ísland undir sig, hernaðarlega og f járhagslega, og innlimað það að fullu í vígbúnaðarkerfi sitt. Þá hefur þjóðin verið hremmd í þá hörðu kló, „sem bágt mun úr að víkja“. Ef Bandaríkjunum verður látið haldast uppi að framkvæma óform sín hér á landi, er ís- lenzka þjóðin sem sérstök sjálfstæð þjóð dæmd til tor- tímingar. ★ Varnarsamningurinn svo nefndi var réttlættur með því, að ísland mætti ekki eitt allra þátttökuríkjanna í At- lantshafsbandalaginu vera ó- varið. Hinn stóri hernaðar- flugvöllur á Reykjanesi byði heim árás og yrði þess vegna að vera undir stöðugri gæzlu herliðs. Þjóðin var fullvissuð um, að hér byggi ekkert ann- að undir en það, að komið yrði upp landvörnum á ís- landi, fámennt herlið hefði aðsetur á Keflavíkurflugvelli og lítils háttar aðstaða yrði látin hernum í té í Hvalfirði. Við þetta var varnarsamn- ingurinn miðaður. Kröfur Bandaríkjanna nú geta því með engu móti samrýmzt þessum samningi. Það verður að teljast nálega óhugsandi, að ríkisstjórnin leyfi sér að ganga að þessum kröfum Bandaríkjanna án þess að gera við þau nýjan samning. Og það er þjóðarinnar að koma stjórnarvöldunum í skilning um það, að hún æski ekki eftir slíkri samninga- gerð. Bátagjaldeyrisbraskið framlengt Lágu til þess tvær höfuð- ástæður. Önnur var sú, að mörgum hefur orðið það æ Ijósara, einkum nú hin svonefndu „betliár“, að hér yrði að koma á fót stóriðju í einhverri mynd, ef þjóðin ætti að geta veitt sér þau lífsþægindi og það menn- ingarlíf, sem hún gerir kröfur til í dag, án þess að vera þurfalingur erlendra stórvelda, AÐ HÉR YRÐI AÐ KOMA Á FÓT STÓR- IÐJU, SEM EINGÖNGU VÆRI ÆTLAÐ ÞAÐ HLUTVERK AÐ AFLA ÞJÓÐINNI GJALDEYRIS- TEKNA. Hin ástæðan var sú, að það skyldu vera Bandaríkin, sem ætluðu að leggja til fjármagnið í þessar framkvæmdir, og miða þær við SÍNAR þarfii og óskir, en EKKI OKKAR ís- lendinga. Öllum var ljóst, hver voði slíkt væri íslenzku þjóðinni, þegar þess alls var gætt, hvílík risafyrir- tæki Bandaríkin gætu stofnsett hér, aðstaða sú, sem þau hafa þegar náð hér á landi, og vilja- og getuleysi núverandi stjórn- arflokka og ráðamanna til að halda eins og MENN á rétti íslands gagnvart hinni bandarísku ásælni. Nauðsyn stóriðju. Eins og áður var sagt, fjölgar þeim nú stöðugt, sem gera ser þess grein, að það getur engin þjóð, jafnvel ekki mjög fá- menn þjóð, skapað sér til lengdar örugga velmegun og það menningarlíf, sem nútíma fólk gerir kröfur til, og á að gera kröfur til, með því að eiga allt sitt „undir sól og regni.“ Orð eins og „aflabrestur ', „síldarleysi" og „markaðseri'ið- leikar“ heyrast of oft nefnd, til þess að þeir, sem þessi mál hugleiða, sjái ekki, hvert stefn- ir. Og öll alvarleg umhugsun um þessi mál hefur leitt að einni niðurstöðu. Allar helztu menningarþjóðir veraldar eru iðnaðarþjóðir. Og það getur ekki verið nein tilviljun, að þeim mun lengra, sem iðnþrjun hinna ýmsu þjóða er komin, þeim mun meiri velmegun og auðugra menningarlíf hafa þær öðlazt. Sú skynsamlegasta ályktun, sem við getum af því dregið, ætti því að vera sú, að Islend- ingar verði að snúa á sömu braut, ef þeir ætla að verða í framtíðinni sjálfstæð þjóð á sama hátt og aðrar sjálfstæðar þjóðir. — Að vísu á þessi skoð- un enn þá of fáa fylgjendur. Enn þá heyrast mótbárur gegn henni, eins og þær, að það skorti markaði, iðnaðarvörur yrðu of dýrar hér og því ekki samkeppnisfærar o. s. frv. — Þetta er þó ekki rétt, hvorki raunvemilega né fræðilega. Okkar þarfir eru svo broslega smáar miðað við það vörumagn, sem árlega er boðið fram á heimsmarkaðinum, að þeirra yrði varla meira vart en drop- ans í hafinu, ef iðnaðarfram- leiðsla hér væri eingöngu mið- uð við þarfir okkar einna, þ. e. gjaldeyrisþarfir. Þar að auki mundu margar þjóðir vilja kaupa iðnaðarvör- ur, sem við framleiddum, til að selja okkur aðrar vörur, sem þær framleiddu of mikið af, en okkur vantaði. í annan stað eru hér skilyrði fyrir hendi til iðnaðarframleiðslu, sem hvergi eru annars staðar og mundu gera okkar fram- leiðsluvörur ódýrari en annarra þjóða. Mun nánar vikið að því síðar. Sem dæmi má þó nefna það, sem sagt var frá hér í síðasta blaði. Til að breyta úraníum í1 plútóníum þarf óhemju raf- orku. Bandaríkin framleiða þessa raforku með olíu, sem er mörgum sinnum dýrari orku- gjafi en vatnsaflið, þar sem það er mikið og auðbeizlað eins og hér. Það er því auðséð, að aðstaðan hér til þessarar framleiðslu er mun betri en í Bandaríkjunum. Stóriðja við okkar hæfi. Það hlýtur að vera öllum ljóst, sem þessi miál hugleiða í alvöru, að stóriðja hér á landi verður að miðast við þarfir ís- lenzku þjóðarinnar. Ef það sjónarmið væri ekki lagt til grundvallar allri slíkri framleiðslu hér, mundu íslenzku þjóðarinn- ar bíða þau örlög ein að verða þrælar en ekki herr- ar þeirrar framleiðslu. En hverjar eru þá þarfir ís- lendinga í þessum efnum? — Síðustu árin hefði verið hér almenn velmegun, ef útflutn- ingstekjur okkar hefðu numið 1000—1200 milljónum króna á ári. Ef við gerum ráð fyrir, að stóriðja hér byggðist að veru- legu eða einhverju leyti á inn- fluttum hráefnum, mætti gera ráð fyrir, að gjaldeyristekjur okkar þyrftu að vera um 2000 millj. króna á ári, til þess að um almenna velmegun og næga atvinnu handa öllum yrði að ræða. Mætti þá gera ráð fyrir, að reikna mætti með öruggum gjaldeyristekjum fyrir sjávar- afurðir um 500 millj. kr. ár- lega (hafa verið 600—700 millj. kr.) miðað við núverandi gengi, og er þá gert ráð fyrir afla- brestum o. fl. Af því er ljóst, að sú stóriðja, sem hér yrði stofnuð, þyrfti að skapa okkur útflutningsverð- mæti, sem svaraði 1500 milljón- um króna árlega (brúttó) eða um 32,8 millj. sterlingspunda, (en það er eins og afköst eins miðlungs fyrirtækis í Bret- landi). Ef Bandaríkjunum væru hins vegar veitt réttindi til að reisa hér iðnfyrirtæki, sem miðuð væru við þeirra þarfir og óskir, en ekki okkar, gætu þau auðveldlega reist hér fyrir- tæki, sem miðuð væru við að framleiða fyrir 15.000—20.000 millj. króna árlega. Er það auðséð, hvaða möguleika jafn fámenn þjóð og við íslendingar og fátæk að veraldar auði, með innan við 2000 milljón króna þjóðartekjur, hefði til að eignast og gerast herrar þeirrar framleiðslu. Við hefðum ekki einu sinni nóg af verkfæru fólki til að reka þau fyrirtæki. Mundi því fara á svipaða lund fyrir okkur og íransbúum gagnvart brezka olíuhringnum, að okkar fólk lærði ekki einu sinni að stjórna eða reka þau fyrirtæki. Og þó yrðu þessi hlutföll, sem nefnd voru, okkur enn óhag- stæðari en olíufyrirtækin í íran voru írönsku þjóðinni. Hvers konar stóriðja? Það mun að vonum verða um það spurt, hvers konar stóriðju (Framh. á 4. síðu) Neðanmálsgreinin Neðanmálsgrein blaðsins að þessu sinni fjallar um ein- kennilegan mann, borgfirzk- an, Björn Sigurðsson að nafni, sem auknefndur var og kallaður Björn biblía. Hann var aukapóstur vestan- lands um tuttugu ára skeið, stundaði kall sitt af trú- mennsku, en þótti kynlegur í háttum. — Þáttur þessi er prentaður hér eftir handriti í Landsbókasafninu. Tilkynnt hefur verið, að bátagjaldeyrisbraskinu skuli haldið áfram þetta ár með svip- uðum liætti og verið hefur. FRJÁLS ÞJÓÐ hefur áður skýrt lesendum sínum frá því, hvers konar starfsemi þar er um að ræða. — Skýrði blaðið frá því fyrir nokkrum mánuð- um síðan, að ríkisstjórnin liefði skipað nefnd opinbcrra starfs- manna, til að rannsaka, hver þörf væri fyrir bátagjaldeyris- álagið, og hvert það rynni. Nú er loks ljóst, hvaða opin- berir starfsmenn áttu sæti í þessari nefnd. Voru það þeir Gunnlaugur Briem, Þórhallur Ásgeirsson, Sigtryggur Klem- enzson, Benjamín Eiríksson og dr. Oddur Guðjónsson. Enda þótt nefnd þessi muni hafa komizt að svipuðum niðurstöð- um um bátagjaldeyrisbraskið og getið var hér í blaðinu, hef- ur hún fallizt á að þessari hneykslanlegu ráðstöfun skuli áfram haldið, að mestu ó- óbreyttri, til óbætanlegs tjóns fyrir allan almenning, svo og sjómenn og útgerðarmenn. — Mbl. segir að af hálfu sjómanna og útgerðarmanna hafi þeir útgerðarmennirnir Sverrir Júl- íusson, Finnbogi Guðmundsson, Sigurður Egilsson og Baldur Guðmundsson tekið þátt í samningunum, en Elías Þor- steinsson fyrir S. H. og Ólafur Jónsson fyrir S.Í.F. Hinsvegar láðist blaðinu að geta þess, að a.m.k. Finnbogi Guðmundsson er áhrifamaður í S. H. og Mið- stöðinni með Elíasi Þorsteins- syni og í varastjórn S.Í.F. með Ólafi Jónssyni. Svo geta menn velt því fyrir sér, ef þeir vilja, hvernig á því standi, að hlutur sjómanna og útgerðarmanna er alltaf fyrir borð borinn, og að þessir „ s a m n i n g a r“ leiddu til þess, að ákveðið hefur verið að fiskvinnslustöðvarnar greiði sama verð og í fyrra fyrir þorskinn, sem er meginhluti aflans. Sjómenn og útgerðar- menn verða að skilja það í eitt skipti fyrir öll, að þeir eiga að- eins eitt ráð til að verja sig fyrir þeirri svikamyllu, sem hér er leikin, en það er að verka SJÁLFIR þann þorsk, sem þeir afla, herða hann og salta, og reyna á þann hátt að fá það, sern þeim ber fyrir framleiðslu sína. Reyni þeir það ekki, munu þeir verða arð- rændir ennþá rækilegar á þessu Framhald á 4. síðu Þögnin mikla Hin uggvænlega þögn ríkisstjórnarinnar í landhelgis- málinu veldur vaxandi kvíða þjóðarinnar. Sú spurning er nú æ oftar borin fram, hvort stjórnin muni vera að undirbúa undanhald og svik í þessu brýna hagsmunamáli þjóðarinnar. Fyrir alllöngu síðan bárust íslendingum þær fregnir er- lendis frá, að brezka stjórnin hefði sent íslenzku ríkisstjórn- inni orðsendingu varðandi þetta mál — og er það ekki í fyrsta skipti, sem þjóðin fær fyrstu fregnir varðandi við- kvæm, íslenzk mál fyrir milligöngu erlendra fréttastofnana. En ríkisstjórnin þegir þunnu hljóði. Hún gerir hvorki að svara orðsendingu Breta né gefa þjóðinni neitt til kynna um efni orðsendingarinnar. Og svo laumulega er með þessa orðsendingu farið, að jafnvel FRJÁLSRI ÞJÓÐ hefur ekki tekizt að afla sér neinnar vitneskju um efni hennar. Ríkis- stjórnin sveipar þetta mál meira myrkri og þögn en nokkurt mál annað, sem til hennar kasta hefur komið. — Þessi ugg- vænlega þögn spáir engu góðu. Hún getur naumast boðað annað en það, að nú sé verið að brugga einhver ráð, sem hentara sé, að þjóðin fái engar upplýsingar um fyrr en í síðustu lög. Stækkun landhelginnar er eina skrautfjöðrin í hatti núverandi ríkisstjórnar. Þess vegna hefur margur maðurinn ekki viljað trúa því, að stjórnin mundi bregðast LÍKA í ÞESSU MÁLI. Óskandi væri, að mönnum yrði að þeirri trú sinni, en ÞÖGNIN MIKLA spáir engu góðu um heilindi stjórnarinnar í landhelgisdeilunni. En reynslan leiðir í ljós á sínum tíma, hver gifta muni fylgja forustu ríkisstjórnar- innar í þessu máli.

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.