Frjáls þjóð

Eksemplar

Frjáls þjóð - 16.02.1953, Side 2

Frjáls þjóð - 16.02.1953, Side 2
2 FRJÁLSþjóð Mánudaginn 16. febrúar 1953. FRJÁLS ÞJÓÐ Kemur út á hverjum mánudegi. Útgefendur og ritstjórar: Bergur Sigurbjörnsson, Valdimar Jóhannsson. Afgreiðsla: Skólavörðustíg 17. Rvík. Sími 2923. — Pósthólf 561. Áskriftargjald kr. 5,00 á mánuði. — Verð í lausasölu kr. 2,00. Félagsprentsmiðjan h.f. Vinaboð Stórveldin tvö í austri og vestri keppast um að bæta taflstöðu sína í refskákinni um heimsyfirráð. Að mörgu er hugað, einskis látið ófreistað og allra ráða neytt. Framleiðsla vopna og vígvéla og hvers kyns vígbúnaður til stórfelldra mannvíga er að vísu gildasti þáttur þessa kapphlaups, en í fleiri horn er litið. Eitt af því, sem stórveldi þessi leggja mikla rækt við, er að efla sem mest andleg áhrif sín meðal annarra þjóða, eign- ast sem víðast handgengna menn, er séu eins konar óform- legir fulltrúar þeirra og merk- isberar. t þessu skyni bjóða þeir heim mönnum, er þeir telja sér feng í að vinna á sitt band, sýna þeim ríki sín og dýrð þeirra og gera á alla lund sem bezt til þeirra. Margir þessara manna snúa aftur heimleiðis með ofbirtu í augum yfir þeim mikilleik og gæðum, sem þeir fengu augum litið í hinu mikla kóngsríki allrar dýrðar. Sjá þeir eftir það engan kost betri fyrir sína eigin þjóð en tengj- ast sem bezt stórveldi því hinu alfullkomna, er þeir hafa gist í góðu yfirlæti og þegið af margvíslega sæmd, taka sér til fyrirmyndar hvað eina í fari þess og fórna til þess því, er fórnað verður. Sjálfstæði, þjóð- erni, tunga og sérstæð menning eigin þjóðar verða í þeirra augum léttvæg gæði, sem eng- in sérstök þörf sé að vernda, þegar annars vegar er hið á- gæta, vinveitta stórveldi, er að- eins vilji landi og þjóð hið allra bezta. ★ íslendingar hafa ekki farið varhluta af þessum þætti hins kalda stríðs. „Utanstefningar“ héðan eru orðnar alltíðar til austurs og vesturs. Bandarík- in og Sovétríkin bjóða héðan á víxl heim íslenzkum mönnum til kynningar og vinmála. Hafa þeir menn flestir margt að segja af ágæti og dýrð sinna gisti- vina og mikla viðtökur og veitt- an beina. Og þeir, sem aðgang fá að íslenzka ríkisútvarpinu, flytja þar hjartnæm þakkar- ávörp. Mjög er aðstöðu þessara stór- velda misskipt til að greiða veg áhrifum sínum hér á landi. Annað hefur her í landi með góðu samþykki stjórnarvalda. Meginhluti af blaðakosti þjóð- arinnar er eindregið á þess bandi. íslendingar hafa átt við það ýmiss konar ^amskipti fyrr og síðar. Þar í landi ríkir lýð- ræðislegt stjórnarform. Þangað er margt að sækja til lærdóms og eftirbreytni. Tunga þess er kennd í hverjum unglinga- skóla landsins og er mörgum íslendingum furðu töm. Þaðan fáum við blöð og bækur, kvik- myndir, hljómlist og ótal margt fleira. Hitt stórveldið hefur ávallt verið fjarlægt. Við höfum ná- Iega aldrei átt við það nein skipti. Tungu þess skilur svo til enginn maður á íslandi. Menn- ingaráhrif berast þaðan fá og smá. Meginhluti þjóðarinnar hefur rótgróna andúð á stjórn- arfari þess. Við þetta bætist svo það, að flest blöð landsins verja nálega daglega til þess miklu rúmi að vara þjóðina við þessu stórvelfli, berjast gegn öllum áhrifum þaðan og stimpla alla formælendur þess hér á landi sem þjóðihættulega menn og fimmtu herdeild í landinu. ★ Það ræður því af líkum, að hér muni amerísk áhrif eiga auðveldara uppdráttar en rúss- nesk, enda er sú raunin. — Amerísku áhrifin flæða yfir ís- lenzkt þjóðlíf leynt og ljóst, beint og óbeint. Sú hætta, sem þetta boðar íslenzku þjóðerni, tungu og menningu, er sívax- andi áhyggjuefni allra hugs- andi manna. Og við erum ekki einir um þetta, íslendingar. Fjölmennari þjóðir og meira megandi en við ala nú ugg í brjósti af sömu ástæðum, þar á meðal sumar frændþjóðir okkar á Norðurlöndum, svo sem Norðmenn og Danir. Ýmsum beztu mönnum þeirra þjóða er orðið þetta mikið áhyggjuefni, og þeir eru teknir að vara þjóð- ir sínar við hinni þjóðernislegu hættu. Er þar ekki til að dreifa neinni óvild til hinnar voldugu Bandaríkjaþjóðar, heldur einni saman umhyggju fyrir eigin þjóð. Mættu þeir íslendingar, sem stimpla sérhverja viðleitni til verndar þjóðerni okkar og menningu sem kommúnisma og Rússaþjónkun, vera minnugir þessarar staðreyndar. En hér á íslandi eru flestir helztu framverðir okkar á sviði menningarmála furðu andvara- lausir. Þeim er boðið til Banda- ríkjanna hverjum á eftir öðr- um, og þeir koma hingað heim með glýju í augum. Síðan efla þeir félög til aukinna menning- arlegra tengsla milli landanna og opna amerískar lesstofur.á íslandi. Jafnvel á því áraskeiði, sem dönsk áhrif þóttu óþarf- lega mikil hér á landi og embættismenn á íslandi þáðu stöður sínar úr hendi danskra stjórnarvalda, var ekki borið við að stofna hér Danavinafélög til útbreiðslu danskrar menn- ingar og áhrifa. Svo mjög hef- ur sómatilfinningunni hrakað. Ur vthri ueröld FyrirhuguS virkjun og storiðja á Gullstrðndinni Túhnrœn fyrir 99leiö sérleyfn ay itínn**. þeyttr í hiut eiya stórveitii oy auöhrinyawi Nokkru fyrir áramótin síð- ustu var birt í London opinber skýrsla („hvit bók“) um fyrir- ætlanir brezkra stjórnarvalda og brezkra auðhringa um stór- kostlega alúminíumframleiðslu og virkjun fallvatna á Gull- ströndinni í Afríku. í þessari skýrslu var ræki- lega sagt frá imdirbúningi málsins, athugunum á mögu- leikum til alúminíumvinnslu í ríkum mæli á öðrum stöðum en þeim, sem endanlega varð fyr- ir valinu, áætlimum, sem gerðar hafa verið um slíka framleiðslu, kostnað, framleiðslumagn o. s. frv., og að síðustu frá þeim ákvörðunum, sem nú hafa verið teknar um framkvæmdir, þ. á. m. samningum, sem brezka stjórnin, nýlendustjórnin á Gullströndinni og hinir brezk- kanadísku auðhringar hafa nýlega gert með sér um til- högun framkvæmdanna og fjárútvegun vegna þeirra. Skýrsla þessi er hin fróð- legasta á margan hátt. Hún sýnir m. a. ljóslega, hvernig „leið sérleyfa og lána“, sem stjórnarblaðið Tíminn hefur svo oft og lengi mælt með, að farin verði hér á landi til þess að koma upp stóriðju, er í framkvæmd, þegar í hlut á annars vegar heimsveldi, sem þarf að gæta í senn sinna hags- muna og þá um leið hagsmuna nýlendna sinna, og hins vegar auðhringar, sem fara með ein- okun á framleiðslu og sölu mikilsverðrar vörutegundar á stóru svæði og eru því ríki í ríkinu. ★ Hin „hvíta bók“ brezku stjórnarinnar um þetta mál ber það með sér á margan hátt, að brezka stjórnin hefur gert sér far um að taka tillit til hags- muna nýlendu sinnar, Gull- strandarinnar, í málinu, enda eiga blökkumennirnir, sem hana byggja, nú mun meiri þátt í stjórn nýlendunnar en í flest- um öðrum nýlendum Breta í Afríku. Ef til vill má vænta þess, að þeir stjórnmálamenn íslenzkir, sem nú hafa mestan áhuga á sköpun stóriðju á íslandi með samningum við stórveldi og auðhringa, vildu ekki ætla ís- lendingum verri hlut í þeim viðskiptum en Bretar hafa" ætlað blökkumönnum sínum á Gullströndinni. Samningar þeir, sem gerðir háfa verið og skýrt er frá í hinni „hvítu bók“, eru milli þriggja aðilja, brezku stjórnar- innar í London, nýlendustjórn- ar Gullstrandarinnar og al- úminíumhringanna, Aluminium Ltd. í Kanada og British Al- uminium Co., en það voru ein- mitt þeir hringar, sem létu fyrir nokkrum árum athuga mögu- leika á stóriðju í Þjórsá með alúminíumframleiðslu fyrir augum. Samkvæmt þessum samning- um er gert ráð fyrir eftirfar- andi framkvæmdum á næstu árum: 1) Stórvirkjun í fljóti, sem rennur úr Valtavatni í Afríku til sjávar. Virkjun þess á full- gerð að framleiða 564 þúsund kílówött og kosta þá 54 millj. sterlingspund (um 2500 mill. ísl. króna). 2) Bygging stórkostlegra al- úminíumbræðsluofna og til- heyrandi verksmiðja annað hvort í námunda við virkjun- ina sjálfa eða úti við strönd- ina, þar sem ný höfn verður gerð. Áætlað er, að bræðslu- ofnar þessir geti framleitt í byrjun 80 þús. tonn af alúm- iníum og kosti þá 29 millj. sterlingspund, en geti síðan stækkað svo, að þeir framleiði 210 þús tonn og kosti þá full- gerðir 64 millj. punda. 3) Ný höfn, járnbrautir, veg- ir, leiðslur og byggingar i sam- bandi við virkjanirnar og stór- iðjuna yfirleitt er áætlað, að kosti alls 26 millj. sterlings- pund. ★ Byrjunarkostnaður við allar þessar framkvæmdir, þangað til framleiðsla getur hafizt, er á- ætlaður alls um 100 millj. sterl- ingspund, en áætlað, að hann muni síðar hækka í 144 millj. stpd., þegar fullri framleiðslu, 210 þús. tonnum árlega, verði náð. Af þessum kostnaði á brezka stjórnin sjálf að bera um 43%, nýlendustjórnin á Gullströnd- inni 36% og alúminíumhring- arnir um 21%. — Hringarnir fá sérleyfi til alúminíumfram- leiðslu í nýlendunni. Þeir eiga að reka bræðsluofnana og verk- smiðjurnar í sambandi við þá. Nýlendan sjálf leggur að nafn- inu til fram rúmlega % af kostnaðinum við fram- kvæmdirnar. Það fé, sem vitanlega er fengið að láni fyrir atbeina heimsveldis- ins, á fyrst og fremst að renna til vega, járnbrauta og bygg- inga. Meðan framkvæmdirnar eru á byrjunarstigi, fer undir- búningsnefnd, skipuð fulltrú- um frá hinum þremur aðiljum, s'em að þeim standa, með eftir- lit og stjórn, en síðan er gert ráð fyrir, að sérstök stjórn, „Volta River Authority“, einnig skipuð fulltrúum heimsveldis- ins og auðhringanna, fari með yfirstjórn fyrirtækjanna. — Nýlendustjórnin sjálf, sem enn hefur aðeins takmarkað vald í innanlandsmálum, mun þannig ekki fá í hendur neina yfir- stjórn eða úrslitavald yfir þeim risavöxnu framkvæmdum, sem hér eru ráðgerðar. Gildi ný- lendunnar fyrir brezka heims- veldið mun vissulega stórauk- ast. Áhrif hinna innfæddu á stjórn lands síns munu hins vegar síður en svo vaxa að sama skapi. Sá feikna-auður, sem verður framleiddur úr skauti náttúr- unnar, mun ekki falla hinum innfæddu blökkumönnum í skaut, heldur fyrst og fremst erlendu auðvaldi. -----» Nýtt tryggingafélag Tekið er til starfa í bænum nýtt tryggingafélag, Vátrygg- ingafélagið h.f., sem tekur að mestu við vátryggingastarfsemi Trolle & Rothe h.f. og Carl D. Tulinius & Co., h.f. Hlutafé félagsins er 1,2 millj. króna og er það allt innborgað, en stjórn félagsins skipa Carl Finsen, form., Bergur G. Gísla- son varaform., og meðstjórn- endur Friðþjófur Ó. Johnson Ólafur Georgsson og Árni Kristjánsson. Félagið mun taka að sér all- ar tegundir vátrygginga, er hér þekkjast, auk þess hefur félag- ið í hyggju að auka verksvið sitt og taka upp nýjar tegundir vátrygginga. Framkvæmdastjóri félagsins er Ólafur Finsen og skrifstofu- stjóri Gísli Ólafsson. Fyrirtækin Trolle & Rothe og Carl D. Tulinius & Co., sem bæði hafa starfað hér í bæ um árabil við traust og vinsældir, munu ekki hætta starfsemi sinni, þótt hið nýja félag muni nú annast hana að verulegu leyti. Þau munu t.d. halda á- fram að annast endurtrygging- ar og miðlunarstarfsemi, en Trolle & Rothe hefur bifreiða- tryggingar eftir sem áður. DR. JURIS Hafþór Guftmundsson málflutningsskrifstofa og lögfræðileg aðstoð. Laugavegi 27. — Sími 7601. Frá Birni biblíu Sigurissyni Prentað eftir handriti í Landsbókasafninu, „Lbs. 2005,4to.“ Sigurður hét maður, kona hans hét Sæunn; þau bjuggu í Suðurríki, það er hjáleiga eða kirkjujörð frá Borg í Borgar- hreppi í Mýrasýslu. Þorgrímur sýslumaður, er var í Hjarðar- holti í Stafholtstungum, hafði sett Sigurð í gapastokk fyrir slúður og kjaftæði, og var hann eftir það kallaður Sigurð- ur stokkmann. Þeim Sigurði og Sæunni varð auðið tveggja sona. Hét annar Bjarni. Giftist hann konu þeirri, er Guðrún hét; bjuggu þau á Gljúfurá. Son áttu þau, er Jón hét, og fleiri börn. Annar sonur Sigurðar hét Björn. Hann var vesalmenni, en mjög málugur og kíminn og framgjarn. Hann las heilög fræði og vitnaði oft í biblíuna í hversdagsræðum. Því kölluðu kersknir menn hann Björn biblíu. Sigurður bóndi deyði, er Björn var orðinn fulltíða mað- ur; var hann þá fyrir búi með móður sinni í Suðurríki, og var ei trútt um, að hann væri á- litinn oflátungur. Það var annaðhvort eftir dauða Sæunnar, móður Björns, að hann færi um einn vetur að Laxholti og tæki þar undir kennslu dóttur Gísla bónda, er Guðrún hét; hún var tornæm og komin undir tvítugt og enn nú óstaðfest í trú sinni — ellegar hitt, að Björn tæki hana til menntunar heim í Suðurríki. Gísli, faðir Guðrúnar, var hin mesta hrossagröf og át nálega öll hross, er drápust og frá voru lögð í því byggðarlagi. — Þá bjó, um sömu mundir sem Gísli sá var í Laxholti, Magnús lögmaður Stephensen á Hólmi og vildi hann innleiða hrossa- kjötsát í landið til sparnaðar í harðindum og til ómagafram- færis í sveitum. Vildi hann ganga á undan öðrum með það, að síður þætti mönnum last- vert eða svívirða í að neyta hrossasláturs sem annarrar fæðu. Gerðist þá Magnús lög- maður hrossæta og tók að fala hesta til sláturs. Gengu þá Gísla færri hross í greipar en verið hafði. Var þá þetta kveðið: Hrossætan á Hólmi býr, hefur margt að sýsla, etur merar álma-týr út úr Laxholts-Gísla. Sumir segja, að lögmaður hafi slátrað hrossum einasta hjá sér, en ekki falað þau til slátrunar af öðrum, og mun það sannara, því flest vildu menn gera manni þeim til skammar, er þó mátti teljast snillingur og hróður þjóðar sinnar. Björn tók Guðrúnu Gísla- dóttur til menntunar, sem áður er sagt, en fyrir því að hún var orðin vaxin og ekki stýrilát, varð Björn að láta hana sæta föðurlegri hirtingu. Varð það þá einhverju sinni, er hann vildi refsa meynni í einrúmi, að hann rak fót upp um hana, en þá er svo var komið, rann honum reiðin, og snerist það til annarrar leiðar fyrir honum, svo að hann gerði henni barn. Kom það andvana. Sætti Björn þungri aðvörun, og minnkaði þá gengi hans um hríð. Eftir þetta fór Björn frá Suðurríki og var með bróður sínum að Gljúfurá, og var hann þar eftir í sendiferðum og fylgd með heldri mönnum og kynnti sér land og siði manna. Gerðist hann þá aukapóstur um Vesturland. Var það í því innifalið að flytja Capituls- taxta (verðlagsskrá) og bréf á vorum sýslumanna á milli. Var hann í því mjög merkur og trúr og ávann sér margra hylli. Björn var raddmaður mikill, en svo skrækhljóðaður, að tekið gat hann nálega hljóð frá öðr- um mönnum og látið söng fara af hinu mesta ólagi. Varð það þá einhverju sinni, að Pétur prófastur Pétursson í Stafholti hlaut að kalla til hans í kirkj- unni, að hætta skyldi hann að

x

Frjáls þjóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.