Frjáls þjóð - 19.05.1956, Blaðsíða 12
12
FRJÁLS þjóð
Laugardaginn 19. maí 1953,
Utanríkisráðlierru leysir frá skjóðiiiini:
Herstjórnin hér sek um
yfirgang og íhlutun
Þó „álítur hann ekki útilokað“, að „liðkað verði um samn-
inga við Bandaríkjamenn og heimsendingin dragist“
Sænska blaðið Expressen birti 10. maí viðtal, er
Bandaríkjafréttaritari þess, Arne Thorén, átti við dr.
Kristin Guðmundsson. I þessu viðtali ber dr. Kristinn
þungar sakir á Bandaríkjamenn, yfirgang og afskipti
af íslenzkum stjórnmálum. Herstöðvavinnan hafi líka
beiniínis leitt af sér verðbólgu. En jafnframt ljóstrar
utanríkisráðherrann því upp, að vel geti komið til
greina, að heimsending Bandaríkjamanna verði dregin
á langinn árum saman!
Viðtalið hefst á þessum orð-
um, sem höfð eru eftir dr.
Kristni Guðmundssyni, „hvít-
hærðum þungavigtarmanni“:
„Bandaríkjamenn lofuðu
að blanda sér á engan hátt
í íslenzk innanríkismál.
Þetta loforð hafa þeir ekki
efnt. Þeir hafa brotalaust
stutt SjáIfstæðisflokkinn“.
Litlir stjórnvitringar.
Síðan heldur ráðherrann
áfram:
„Bandaríkjamenn eru, eins
og þér vitið, ekki sérstakir
diplómatar. Hefðu 'þeir hald-
ið á spilunum sínum af lítið
eitt meiri Iipurð og lítið eitt
minni ágengni við síðustu
; samninga okk.ar 1953, væri
sennilega ekki svo komið
sem nú er.“
Fréttaritarinn tekur fram, að
utanríkisráðherrann hafi sagt
beizkyrði sín um Bandaríkja-
menn á hæglátlegan hátt, eins
og þegar menn rifja upp stað-
reyndir, en ekki með þeim
hætti, að hann væri að verja
samþykkt alþingis.
Þó eru vélráð brugguð.
Síðan segir, að flugbækistöð
og radarstöð eigi að vera j
áfram í Keflavík. „Við ætlum;
að halda áfram því starfi, sem
Bandaríkjamenn hófu, en með
íslenzku starfsliði", segir ráð-
herrann.
Og nú slær fljótt í bakseglin
í viðtalinu. Fyrst er frá því
skýrt, að ríkisstjórnin hafi ekki
formlega tilkynnt Bandaríkja-
stjórn uppsögn hernámssamn-
Framhald á 11. síðu.
LÍTIÐ FRÉTTABLAÐ
Matur er
mannsins megin!
Frá Reykjavík til Ham-
borgar er eitthvað sex
klukkutíma flug. Þegar þeir
Ólafur Thors og dr. Kristinn
Guðmundsson fóru í heim-
sóknina til Þýzkalands, þótti
ótækt, að þeir legðu í slíkt
ferðalag upp á þau býti að
fá ekki annað í svanginn á
leiðinni en svipaða máltíð og
venjulegum flugfarþegum er
í té látin.
Þess vegna var veitinga-
maður fenginn til þess að
matreiða handa þeim um
nóttina, áður en þeir fóru, og
búa um matinn á hitageym-
um, svo að þeir vanmegnuð-
ust ekki á flugferðinni við
lélegan kost.
Hvaða útbúnað skyldu
gangnamenn, til dæmis
Hreppamenn, sem eru marga
sólarhringa á öræfum uppi í
íslenzkri haustveðráttu, en
ráðherrarnir voru sex
klukkutíma í hlýrri flugvél,
þurfa að hafa með sér í Ieit-
irnar, ef þeim dytti í hug að
halda til jafns við fyrirmenn
þjóðarinnar eða taka þá sér
til fyrirmyndar?
Orðabeigur
Guðmundur ríki hirtir
sjálfan sig
í Timanum 16. maí s.l. er grein
um bók eftir norskan ferðalang,
Sven Brun. Er tekinn upp kafli
úr bókinni, þar sem höfundur
birtir orð séra Sigurbjarnar Ein-
arssonar um hernámsmálið. Síð-
an bætir Tíminn við:
„Með því að birta þennan ræðu-
kafla í bók sinni, tekur höfund-
urinn undir þessi alvöruþrungnu
orð Sigurbjarnar Einarssonar,
prófessors, sem hann inælti á
þeirri örlagastundu, er æðimargir
„Guðmundar ríku“ hér í Reykja-
vík vildu orðalaust selja Banda-
ríkjamönnum á leigu aðstöðu til,
herbækistöðva. Þetta var gert síð-
ar í nafni Atlantshafsbandalags*
ins, og við höfum fengið reynsl*
una.“
Þeim er ekki klígjugjarntj.
Tímamönnum.
fivorn kýstu?
Deila er sögð hafa staðið úm
það að undanförnu innan Sósíal-
istaflokksins, livor ofar eigi aði
vera á lista glæfrabandalagsins í
Reykjavik og þá jafnframt odd*
viti listans: hermangarinn Hanni*
bal Valdimarsson eða persónu-
dýrkándinn Ein-ar Olgeirsson..
Deilan var óútkljáð, þegar síðast
fréttist. i
Hvorn kýst þú heldur, reyk»
viskur kjósandi, — hermangar-
ann eða persónudýrkandann?
Hneykslisuthlutun
húsnæðismálastjórnar
Húsnæðismálastjórnin virðist
fara eftir einkennilegum regl-
um, er hún ákveður, hverjir
skuli fá lán úr húsnæðismála-
sjóði. Aðeins örfáir þeirra,
er sækja um lán hafa fengið
áheyrn. Samt sem áður kemur
það í ljós í síðasta tölublaði
Kaupsýslutíðinda, að meðal
þeirra, er fengið hafa sjötíu
þúsund króna fasteignalán úr
þessum sjóði, er Axel Sigur-
geirsson kaupmaður — maður,
sem á tvær stórar og arðsamar
matvörubúðir, átti ágæta íbúð
í Hlíðunum, en seldi hana og
er nú að byggja sér einbýlis-
hús, þar sem almenningur kall-
ar Snob Hill.
Við því hefði ekkert verið
að segja, þótt þessi maður-
fengi slíkt lán, ef engimrt,
sem lakar var settur, þurfti
að fara bónleiður til búðar.
En begar hundruð og þús-
undir manna, sem af litluni
sem engum efnum eru aS
reyna að koma upp þaki yfír
höfuð sér, fá neitun á
Framb á 11. síðu.
♦
Nýir áskrifendur a®
FRJÁLSRI ÞJÓÐ eru nú
orðnir 525. Nýjar áslcriftíir
berast jafnt og þétt alla
daga. Hringið í síma 8-29-95.
Laugardaginn í 5. viku sumars.
Snerisf hugur á síðustu stumíu:
Breyttist til batnaðar
1 *!na fangahús lands-
íns í sveit mun vera í
Egilsstaðaþorpi á Hér-
ari Ekki er fangahús
þe.i stór bygging, og
el-:V v r hað reist á Eg-
il.-ist.óíiu fyrir þær
h. : . , • A á Austurlandi
sr- ; ss hrýnni þörf eu
an þetta lit.la fangahús
var reist.
Kenpur og gerist.
En þar. sem mjög
víón annars staöar, voru
oröin að því nokkur
brö({ð að einsítaka ölv-
aðir; menn J spilltu
skermr tunurn • almenn-
ings. V a r þá' stofnuð
sveitb •erregla,; en starf
henna örðugt, ef
hveríri voru til reiðu
klet'a r •. h r sem geyma
mátti roamenn, unz af
þeim. ' un. — Sagt er,
að bi eytzt hafi veru-
lega til hins betra
um f i-cmk >riu þeirra
mantv í ölæði j
hætti "s að vekja|
ófríö >Tnum, síð-
-f 4 aka
Éthl fnd lista-:
msr. t: mcðal
anzíii r. ■Áíi tiJ þess
a<) fei! írlega niður
viðurk :Ú tíl GÚð-
muhdá a .Kristjáns-
8w|*» íir i úíái'c s-ái KH-1fju-i
bóli, i • : -in það er
af |..e ástæóu» kþ-
Guðm i nöur Ingr búí
utáh s iónc eikiarbririéá
nefndn r, éóa ein-
íiterri rr i. ■
Lárus Jóhannesson orti
fyrir nokkru vísu, er
hófst á þessum orðum:
„ísland selja þeir,
Grænland gefa þeir.“
Nú hefur verið ákveöið,
að hann verði enn á ný
frambjóðandi Sjálfstæð-
isflokksins á Seyðis-
firði. Gefst. honum að
þessu sinni sérstakt
tækifroii til þess að
skýra sölumennskuna,
sem nú er eina baráttu-
mál Sjálfstæðisflokks-
ins í kosningunum.
Lúður elámsins
Þjóðkunnur maður,
sem er nákominn Sjálf-
stæðisflokknum, lét ný-
lega þessi orð falla:
„Framkoma foringjanna
í hersetumálunum getur
ekki leitt til annars en
uppreisnar í flokknum
og stórkostlegs fylgis-
taps.“
Tíminn birti á mið-
vikudaginn nýja sögu
um framboð þjóðvarn-
armanna í Eyjafirði.
En sannleiksgildi sög-
unnar var með þeim
hætti, að uppi voru
raddir um það meðal
stari'smanna, að þetta
tölublað mætti ekki
komast norður, þar sem
menn vissu sannleik-
ann.
,Tveh*, bæridur, gamlir
kjósendur Framsóknar-
flokksms 1 kjördæmi,
þar sem vaiió á fram-
bjóðanda þess flokks
heí’ur tekizt mjög illa
að þegsÚL sihni, ræddu
síri á 'iíiHi. um'jnið, hvers
vegna flokksfpringjarn-*
ir hofðti haldið þéssúrn
mnnni svo mjög fram
tiJ' . frambo.ós. Annar
þeirra, m er öÍJu ,tann-
hyassári yát, imelti:
;,0, ætli þeir bafi elcki
bára vijjáð gefa íháld-
inu þingsætið hérna í
trekkja rgjöfú-O'iv á
anlegan hjúskap eftir
kosningar! Það er sagt,
að þeir hafi hjálpað
þeim á fsofirði síðast.“
Annnft kxupféhig hef-
ur farið að dæmi þing-
evKk.u samvinnuraann-
anna og samþykkt að
selja . ekki . sóra- op.
glæpiirit. Það cr Kaun-
félag Borgfirðingai
Fullvíst má telja, aö
fldirí kotni'.'á eftif. ;
Heimdellingar þorðu ekki ai
mæta ungum þióðvarnarmönnum
Hinn 7. maí skoraði Félagl
ungra þjóðvarnarmanna í|
Reykjavík á Heimdall, félag.
ungra Sjálfstæðismanna, að:
efna til almenns umræðufund- i
ar um stjórnmál, þar sem full-
trúar þessara félaga ættust við,
með jöfnum ræðutíma. Var þess!
óskað, að hólmganga þessi færi;
fram mjög bráðlega og þess far-
ið á leit við Heimdall, að hann
tilnefndi fulltrúa, er ræddu við
fulltrúa af hálfu þjóðvarnar-
manna um fundarstað, fundar-
tíma og tilhögun fundarins. Var
beðið um svar fyrir 15. maí. |
Á þriðjudaginn var svo langt
komið, að ákveðið var, að full-
trúar beggja félaganna ættu
viðræður þann þag. En áður en
komið var að tilsettum tíma.
barst Félagi ungra þjóðvarnar-
manna bréf frá Heimdalli. þar
sem hafnað var tilmælunum um
kappræðufund og viðræðum af-
lýst.
Af þc t einsýnt, að skor-j
./t he:. • leikinn á síð-l
• ’ in og ;:omið í vég fvr-
*. ■ Frartih.á 7. síðú, ■
KOSIIIIDIGASKRIFSTOFA
ÞJÓÐVARNARFLOKKS ÍSLANDS
Lækjargötu 8. — Sími 82985.
#A/Vh)f«I7Iill7M €»BS n 1
Lítið inn á kosningaskrifstofuna sem oftast
Athugið, hvort þið eruð á kjörskrá. — Kjörskrá
fyrir allt landið liggur nú frammi á skrifstof-
unni.
^ Eflið kosningasjóðinn.
Ar Greiðið áskriftargjöld FRJÁLSRAR ÞJÓÐAR.
Jr Kaupið skuldabréf blaðsins.
Takið happdrættismiða til sölu.
íi
•jAr Takið virkan þátt í kosningaundirbúnipgi í
hverfunum. i