Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 12.09.1959, Qupperneq 5

Frjáls þjóð - 12.09.1959, Qupperneq 5
FRJXlS PJtJ-Ð — oCauýarJagiun 12. iept. 1959. t- Niðurlag........ . . • Walter Schwartz sagði einu Einni i fyrirlestri, að andspænis abstraktlistinni saknaði maður sárar en ella auðkenna, þ. e. fót- íestu eða aðstöðu til að meta gildi hennar, og er það ný og mikilsverð bending í þá átt, að abstrakt list sé lokað einkafyr- jrtæki. Hér finnum við einnig stað- festingu hjá postulanum. Með tilliti til hins félagslega, verð- ur Páll nefnilega skorinort að ]ýsa eftir kennimerkjum eða auðkennum. Hann velur fyrst dæmi af tónlistinni: „hvort heldur er pípa eða harpa, ef þær gefa ekki mismunandi hljóð frá sér, hvernig ætti þá að skiljast það, sem leikið er á pípuna eða hörpuna?“ Og í þeirri trú, að| við ,,skiljum“ tónlistina með hreyfiskyni okkar heldur hann áfram: ,,Því að svo er það um lúðurinn; gefi hann óskilmerki- legt hljóð, hver býr sig þá til bardaga?“ Dæmi af tungumálunum. Kröfu sína um skiljanleik styður postulinn því næst með athugun á hinum óteljandi lif- andi tungumálum. Hann kemst að raun um, að „ekkert þeirra er þó málleysa,“ þ. e. a. s. að í þeim öllum er nauðsynlegt sam- band milli hljóða og merkingar. Hafi maður ekki á valdi sínu 2), phil. ^Jaqe \S>cliiöttz-(jJliriíte ta^e nóen. tala tunpi — og tala litum >f ABSTRAKTMÁLARARNIR OG PÁLL POSTULI >f eða vii'ði það kerfi af félagsleg- um venjum, sem málið er, verður allt samband manna á milli ómögulegt. Eða með orð- um postulans: „Ef ég nú ekki þekki merkingu málsins, verð ég sem útlendingur fyrir þann sem talar, og hinn talandi út- lendingur fyrir mér.“ Sam- kvæmt þessari athugun, sem ó- gerlegt er að hafa nokkuð á móti, verður málið göfugasta tækið til mannlegs samlífs, og á hinn bóginn er þá tilviljana- kennt tungutal andfélagslegt og þar að auki óguðlegt, því að guð Páls er, eins og guð hvers ann- ars samfélags, ekki guð trufl- unarinnar, heldur reglunnar (,,friðarins“). Hver mállýzka tilviljun. Gagnrýnandinn staðhæfði, að abstraktlistin væri „með tákn- rænni merkingu sinni aðgengi- leg öllum almenningi.“ For- sendur þess, að þetta geti verið rétt, hljóta að vera, að hin sýni- legu abstrakt tákn séu almennt viðurkennd á sama hátt og hlijóðtákn málsins. En á ekki litatalið það sameiginlegt með tungutalinu, að hver mállýzka skapist af tilviljun og hana tali aðeins einn maður? Þegar Páll hefur vinsamlega hvatt tungutalarana til þess að sýna sæmandi félagsanda, svo að allir fái útrás, gerir hann þeim kostina méð berum orð- um: ef sá, sem tungu talar, get- ur ekki á eftir útlistað, hvað hann hafi sagt, með öðrum orð- um: sannað, að snefill af skyn- semi hafi verið í tungutali hans, „þá þegi hann á safnaðarsam- komunni, en tali við sjálfan sig og við gu.ð.“ En ég flýti mér að taka það skýrt fram, að þessi ltirkjuföð- urlegi strangleiki kemur ekk- ert við þeim samanburði, sem hér er gerður. Mvnd ..af einhverju“. teknu kröfu, sem oft hefur ver- ið gerð hlægileg, að myndin eigi að vera „af einhverju.“ 1 Það hefur verið sagt, að eitt- hvað abstrakt væri líka að finna hjá hinum sígildu meisturum málaralistarinnar, og það er vafalaust rétt. En það er víst líka rétt, að meistararnir urðu þá fyrst meistarar, er þeir sögðu skilið við hina beinu hrifni sína og héldu áfram á braut Páls. Þessir meistarar lofsungu einn- ig með skilningnum, þar eð þeir tengdu beina litagleði sína hlutum úr hinum sammannlega heimi. Þeir gáfu myndum sín- um innihald, sem aðrir þekktu og skildu — eða eins og sagt er: myndir þeirra höfðu alltaf : mótíf. I EUki af skorti á listrænum þroska. Þeim málamiðlunartilraun- um, sem textinn gæti gefið til- efni til sleppi ég alveg með góð- fúsu leyfi lesandans. Aftur á móti ætla ég að reyna að athuga ofurlitlu nánar þá síendur- fest, og var ekki laust við, að hann sæi sig í anda gera hin- um danska vini sínum við tæki- íæri kost á að segja í annað sinn: „Det siges“ í þeim tón, sem þá félli að staðreyndum. Fljótgert var að fá það stað- fest, að ávæningurinn um móð- urætt Eriksens bildhöggvara var-ekki úr lausu lofti gripinn. .1 dönskum æviskrám (Bricka). er þjóðerni móður Eriksens að vísu ekki beinlínis greint, en sjálft nafnið tekur af öll tví- mæli, því aS hún hét Svanfríð- ur Magnússon, jafnvel eð-inu, aldréi þessu vant í dönskum texta, ekki undan stolið, heldur •svó mikið fyrir haft að afla sér þess úr annarri leturgerð. TT'n borgarinn vildi vita betur. Hver var hún, þessi Svan- fríður Magnússon? Hvaðan af landinu var hún og hverra manna? í ljós kom, að þetta vissi eng- inn hinna líklegustu manna. -Jón biskup Helgason, sem skrif- að hefur heila bók um íslend- inga í Danmörku, nefnir hana ekki á nafn og ekki heldur hinn merka son hennar. Þeir, sem skyldastir voru til að vita deili á henni, eftir því sem síðar kom í ljós, þeir Sighvatur Borg- firðingur, Hannes Þorsteinsson ög Páll Eggert Ólason, nefna hana að vísu allir og vita, að húii hafði horfið ung til Dan- mekur, en síðan kunnu þeir ekkert af henni að segja. Fyrir þeim öllum var hún aðeins nafn eitt. Er þetta eitt með öðru glöggur vitnisburður um það, hve íslendingar hafa allt til þessa gert sér ótítt um haf- me.vjar, . . Lesendur Frjálsrar þjóðar munu minnast þess, að snemma á síðastliðnum vetri (í 7., 8. og 9. tbl. þ. á.) birtist þátt- ur af heldur lánlitlum manni, Jóni Hjaltasyni, silfursmið, er eyddi ævidögum sínum fyrir og eftir miðja síðast liðna öld í Steingrímsfirði, Breiðafirði og ísafjarðardjúpi, illa leikinn af valdamönnum og ekki að öllu leyti óverðskuldað. En athvarf átti hann um einn tíma ævi sinnar á prestsheimili vestra og var þó einkum skjólstæðingur maddömunnar, sem var fjórða kona manns síns-, er var nærri 25 árum eldri en hún, drykk- felldur í meira lagi og allhrum- ur orðinn, en maddaman með nokkrum ólíkindum frjósöm í sambúðinni, nema nokkuð hafi til borið um dáleika hennar á silfursmiðnum, sem mun hvergi nærri hafa verið grunlaust. Umræddum prestshjónum á Brekku í Langadal í ísafjarðar- djúpi, þeim séra. Torfa Magnús- syni (f. 24/1 1786, d. 17/3 1863) og fjórðu konu hans, Kristínu Pálsdóttur (f. 29/9 1810, d. 28/11 1867) Guðmundssonar frá Fagurey í Breiðafirði, fæddist hinn 3. dag febrúarmánaðar 1854 dóttir, er' hlaut nafnið Svafnfríður Torfadóttir, enda þótt almannarómur drægi. fað- ernið í efa. og muni hafa þótt silfursmiðurinn prestinum á all- an hátt til þess líklegri. Hefði óheitanlega verið fróðlegt að Vita, hvort Jón okkar Hjaltason var aðeins réttur og. sléttur klambrari á silfursmíðar eða af- brigðilega hagvirkur, þvi að barnið, sem vafi leikur á, hvernig feðra skuli, er engin önnur en Svanfríðúr Magnús- son,móðir hins listfenga danska bildhöggvara, sem hafmeyna gerði fagurlegast handa Döp- um, en þó einkum til augna- yndis gestum þeirra, og nú nef- ur goldið íslendingum móðern- ið með því að -verða óbeinlínis að því valdur, að þeim hefur áskotnazt hin kaliforníska haf- meyjarmynd í Reykjavíkur- tjörn, og er það ekki hans sök, þó að henni liði þar auðsjáan- lega einhvern veginn ekki vel. TT'erill Svanfríðar Torfadóttur •*- á íslandi er fljótrakinn. Hún lifði bernsku sína með foreldr- um sínum, yngst fimm alsystk- ina, á Brekku í Langadal, frá- leitt við mikinn kost. Föður sinn, prestinn, missti hún níu ára og móður sína þl'ettán ára. Hún fermdist að Kirkjubóli munaðarlaus einstæðingur, að vísu eflaust frá vænu fólki, Guðmundi Ásgeirssyn'i, bónda á Arngerðareyri, bróður Ásgeirs skipherra, og konu hans, Dag- björtu Sigurðardóttur, sýslu- manns, Guðlaugssonar. - Við fermingu er Svanhildur dável læs, dável kunnandi og hegðar sér ágætlega. Árið eftir er hún ÁlísJenzk hafmey. komin í vist á ísafirði, hjá Sóf- usi Nielsen, verzlunarmanni, síðar verzlurarstjóra þar og kaupmanni um langan aldur. Hjá honum er hún í þrjú ár, en flyzt þá (1872) af landi brott, að því er virðist ein síns liðs, til Kaupmannahafnar, og lýkur þar með sögu hennar á íslandi þar til nú. Eftir ekki langa dvöl í Kaup- mannahöfn mun Svanfríður hafa gifzt þar dönskum skó- smið, Martin Eriksen (f. 1850, d. 1933). Sonur þeirra, bíld- höggvarinn, fæðist 10. marz 1876. Svanfríður náði sjötugs- aldri og dó 1924. Ókunnugt er, hvað Eriksen gerði úr íslenzku ætterni sínu, nema hvað vit- að er, að hann hefur gert sér far um að halda óbrjáluðu svipmóti nafns móður sinnar, og segir það að vísu sína sögu. Me'ð honum sjálfum og beztu listamönnum íslendinga á liðn- um tímum er það ættarmót, að sjálfur" er hann stórum minna frægur en verk hans. Hér hefur áðurnefndur góð- ur Reykjavíkurborgari heimildir úr að spila, er hann hittir næst hinn danska vin sinn, sem svo lítt var uppnæm- ur fyrir heimildum um íslenzkt faðerni Thorvaldsens. Ekki skal hinum góða borgara og ágæta íslendingi þó ráðið til þess of- lætis að láta í veðri vaka, að Danir geti engan bíldhöggvara átt að gagni, nema hann sé ís- lenzkur í aðra ætt. Hann kynni að fá það framan í sig, að ís- lendingum væri ef til vill enn meiri þörf blóðblöndunar en Dönum til að geta orðið sér ein- hlitir um höggmyndalist. Ein- hvern yeginn er það svo, þegar maður " virðir gaumgæfilega Framh. á 7. síðu, I þessu sambandi ætla ég að- dirfast að fullyrða, að mótífiS, scm segir sögu, sé undirstöðu- atriðið í málaralistinni til snert- ingar milli listamannsins og almennings. Það svarar til skynsamlegs samhengis í mæltu máli og þess, sem Páll postuli nefnir skilning. í mótífinu takast Diónýsos og Apollon í hendur. Krafan um, að myndin sé „af ein- hverju", þarf því ekki nauðsyn- lega að stafa af skorti á listræn- um þroska eða smáborgaraleg- um ótta við að skyggnast djúpt, heldur má skýra hana sem þörf til samfélags við aðra menn, fé- lagsskapar um menningarverð- mætin. Sé ótta að finna í kröf- unni um, að mynd sé „af ein- hverju“, getur það verið rétt- mætur og virðingarverður ótti við, að menningin sé að verða eins-manns-menning og þar með að leysast upp. Innblástur abstraktmálara. Hugtækur kafli, sem varpar ljósi á þetta, er í skáldsögu Jó- hannesar V. Jensen, Einar El- kjær, sem út kom 1898. Einar er þar á skeiði, þar sem snert- ingarleysið við aðra menn er bæði þjáning hans og stolt. Hann reikar um gersamlega einangraður, og hann vill ein- mitt sjálfur, að svo sé. Meðan hann er í þessu ástandi, hendir það, að litnum slær út í hug hans — og í eftirfarandi kafla er eins og maður sjái innblást- ur abstraktmálara: Meðan Einar lá í myrkr- inu hugsaði hann liti. Hann lét hvitgular ræmur líða um rúmið, hann sá smaragð- grænar þokur og feiknahvít- ar súlur, ef hann kærði sig um; hann lét purpurakúlur hefjast upp yfir loggula himna. Hann fékk rúmið til að streyma niður sem fíla- bein og mjólk með kliðandi rósaflúri úr ljósu, skrýfðu gulli . . . Einar skapaði sér rautt -rúm af ósegjanlegri dýpt, unað Ijóss ... Það er vitað, hvernig Jóhann- es V. Jensen tók sér stöðu langt frá öllum öfgastefnum í list. Það sem kom honum til þess, var ekki skilningsskortur á eðli þeirra, heldur sú tilfinning, að listin megi ógjarnan verða að einkanostri án sambands við það, sem er sammannlegt. Framhald greinar dr. Björns Sigfússonar háskóla- bókavarðar birtist í næst» blaði. L ■ - *>

x

Frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.