Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 12.09.1959, Page 6

Frjáls þjóð - 12.09.1959, Page 6
Framhaldsfrásögn um örlagaríkasta dag heimsstyrjaldarinnar síöari, innrásardaginn 6. júní 1944 daguriHH 7l/|~ichel Hardelay, 31 árs gam- •*-*•*• all lögfræðingur, stóð út við gluggann í dagstofu móður sinnar- og beindi sjónaukanum að þýzkum hermanni, sem reið stórum áburðarjálki niður göt- una til sjávar. Báðum megin við hnakknefið héngu nokkrar blikkdósir. Michel Hardelay vissi, að kl. var nákvæml. 6.15 x. h. Á hverjum morgni gerðist sama sagan. Þjóðverjinn var aldrei of seinn: hann för alltaf með morgunkaffið niður til Vierville á þessum tíma. Dagur- inn var byrjaður fyrir áhöfn- um fallbyssuvirkjanna við ströndina — friðsældarlega, bogadregna sandströnd, sem innan 24 klukkustunda átti að verða kunn öllum heimi undir nafninu Omaha-strönd. Hardelay hafði horft á þetta ritúal mörgum sinnum áður. Á hverjum morgni reið hermað- urinn þriggja kílómetra vega- lengd, og Hardelay fannst það alltaf jafnskemmtilegt, að hin annálaða tæknikunnátta Þjóð- verja lét á sér standa, þeg- ar leysa þurfti jafneinfalt verk og að færa hermönnum á víg- stöðvum morgunkaffi. En gleði Hardelays var ekki óblandin. Um nokkurra mán- aða skeið hafði hann horft á þýzka hermenn og nauðungar- vinnuflokka grafa jarðgöng og gryfjur meðfram allri strönd- inni. Hann hafði horft á, með- an þeir brutu niður með þýzkri nákvæmni röð fallegra sumar- húsa og skrauthýsa fyrir neðan sjávarklettana. Nú voru aðeins sjö byggingar eftir af 90. Hin- ar höfðu verið brotnar niður til þess að standa ekki í vegi fyrir íallbyssukúlum Þjóðverja og einnig til þess að Þjóðverjar gætu notað timbrið til að þilja innan neðanjarðarbyrgi sín. — Hardclay átti eitt hinna sjö húsa, scm eílir stóðu. Fáum dög- um áður haiói hann íengið til- kynningu frá yfirmanni Þjóð- verja um, að hús hans yrði einn- ig rifið. Þjóðverjar þurftu á múrsteinunum að halda. Hardelay gerði nú gælur við þá von sína, að með einhverjum hætti yrði einhver til að breyta þessari ákvörðun. í sumum greinum voru Þjóðverjar óút- réiknanlegir. Hann fengi að vita vissu sína um það innan 24 stunda: honum hafði verið tjáð, að húsið yrði rifið á morg- un — þriðjudaginn 6. júní. Lengra niður með ströndipni var Fernand Broeckx, fertugur að aldri, við daglega iðju sína: með gleraugun á skakk og höf- uðið hallfleytt, sat hann und- ᣠkúnni Pg beindj jnjólk- urbununni í fötuna. Býlið hans, sem lá við mjóa moldargötu, var efst á hæð tæpan kilómetra frá sjónum. Hann hafði ekki gengið niður sjávargötuna um langt skeið — ekki síðan Þjóð- verjar lokuðu henni. Hann hafði stundað' búskap í Normandí í fimm ár. í fyrra stríði hafði heimiliBroeckx, sem var Belgíumaður, verið lagt í rústir. Hann hafði aldrei getað gleymt því. Árið 1939, þegar síðari heimsstyrjöldin hófst, sagði hann þegar í stað upp skrifstofustarfi sínu og fluttist með konu og dóttur til Nor- mandís, þar sem þeim átti að vera óhætt. Meðfram endilangri Nor- mandíströndinni stundaði fólk- ið sín venjulegu daglegu störf. Bændurnir unnu á ökrunum, hlúðu að eplatrjánum eða hugs- uðu um rauðskjöldóttar kýrnar sínar. í þorpum og smábæjum voru búðir opnaðar. Þetta var hversdagslegur hernámsdagur. í litla kauptúninu La Made- laine, á bak við sandhólana og hina breiðu sandströnd, sem brátt átti að verða fræg undir nafninu Utah-strönd, opnaði Paul Gazengel litlu búðina sína og kaffistofuna eins og venju- lega, þó að aðsókn væri svo til engin. Gazengel mátti muna þá tíð, þegar hann komst vel af. En nú var öll strandlengjan bann- svæði. Fólkið, sem bjó úti við ströndina á austanverðum Cher- bourgskaga, hafði verið flutt' brott. Aðeins bændunum hafði verið leyft að vera eftir. Við- skiptavinir Gazengels voru nú sjö fjölskyldur í La Madelaine og fámennt þýzkt herlið, sem hann var neyddur til að þjóna. Gazengel hefði helzt viljað fara burt. Þar sem hann sat nú í kaffistofunni og beið eftir fyrsta viðskiptavininum, hafði hann ekki hugmynd um, að innan 24 klukkustunda færi hann í ferðalag. Hann og allir aðrir karlmenn í þorpinu yrðu teknir höndum og sendir til Englands til yfirheyrslu. O T herbúðum Þjóðverja var<dag- urinn líka kyrrlátur og við- burðasnauður. Ekkert gerðist, og enginn átti von á, að nokk- uð gerðist: veðrið var svo vont, að prófessor Walter Stöbe yfir- veðurfræðingur sagði liðsfor- íngjum sínum í Lúxemborgar- höllinni í París, að þeir gætu hvílt sig. Hann efaðist jafnvel um, að flugvélar Bandamanna gætu aíhafnað sig þejinan dag. Loftvarnarliðinu var skipað að taka sér hvíld. Næst hringdi Stöbe til aðal- stöðva von Rundstedts í St.- Germain. Von Rundstedt fór seint á fætur þennan morgun að vanda, og það var komið fram undir hádegi, þegar hann ráðgaðist við yfirmann herfor- ingjaráðs síns og lagði blessun sína yfir „mat herstjórnarinnar á vesturvígstöðvunum á fyrir- ætlunum Bandamanna“, svo að unnt yrði að senda það áfrarn til höfuðstöðva Hitlers. í plagg- inu kom enn fram röngágizkun, Þar gat að lesa: „Kerfisbundin og greinileg aukning loftárása bendir til þess, að óvinirnir séu mjög langt komnir með undir- búning sinn. Líklegasta inn- rásarsvæðið er enn sem fyrr ströndin frá Schelde (í Holl.) til Normandís... og það er ekki óhugsandi, að telja megi með strönd Bretagneskaga ... (en) ... það er enn ekki ljóst, hvar óvinirnir ráðast inn á öllu þessu svæði. Ákafar loftárásir á strandvirki milli Dunkerque og Dieppe gætu bent til þess, að megininnrás Bandamanna verði gerð þar .. . (en)... ekki er unnt að sjá, að innrás sé alveg yfirvofandi. . .“ Þegar þetta óljósa mat á stöðunni var úr sögunni, fóru þeir von Rundstedt og sonur hans, ungur liðsforingi, til eft- irlætisveitingastaðar síns, Coq Hardi í Bougival þar í grennd- inni. Klukkan var rúmlega eitt. Tólf stundir voru til D-dags. Illviðrið hafði róandi áhrif á allt foringjalið Þjóðverja. í öll- um höfuðstöðvum voru menn þess fullvissir, að ekki yrði gerð árás á næstunni. Undirstaðan undir því mati Þjóðverja voru nákvæmar rannsóknir, sem gerðar höfðu verið á veðurfar- inu, þegar Bandamenn réðust inn í Norður-Afríku, Sikiley og ítalíu. í þau skipti höfðu veður- skilyrði að vísu verið misjöfn, en veðurfræðingarnir höfðu veitt því athygli, að Bandamenn höfðu aldrei freistað innrásar nema veðurhorfur væru góðar — sér í lagi hagstæðar til flugs. í augum hinna nákvæmu Þjóð- 'verja voru engin frávik til frá þessari reglu: veðrið varð að vera hagstætt — annars réðust Bandamenn ekki til landgöngu. Og veðrið var ekki hagstætt. í aðalstöðvum 84. herdeildar- -*- arinnar í St.-Ló var Fried- rich Hayn höfuðsmaður að und- irbúa afmælisveizlu fyrir for- ingja herdeildarinnar, Erich Marcks hershöfðingja. Afmælis- dagur hans var 6. júní. Þeir zJdau^ardacfinn !2. iept. 1939 ~ FRJ AL S Þ J □ £) ætluðu að koma hershöfðingj- anum á óvart með því að halda upp á afmælið á miðnætti, vegna þess að Marcks þurfti að fara til Rennes á Bretagneskaga í bítið um morguninn. Hann og allir yfirforingjarnir í Norman- dí áttu að taka þátt í mikilli landabréfaæfingu, sem átti að hefjast snemma á þriðjudags- morguninn. Allir bjuggust við, að „stríðsleikurinn'* yrði mjög lærdómsríkur: hann fjallaði um hugsanlega iqnrás, sem gerð yrði í Normandí. Max Pemsel hershöfðingi hafði áhyggjur af „stríðsleikn- um“. Það var nógu illt til þess að hugsa, að allir yfirforingj- arnir í Normandí og á Cher- bourgskaga yrðu fjarverandi á sama tíma. En það gæti verið mjög hættulegt, ef þeir yrðu í burtu að næturlagi. Það var löng leið til Rennes, og Pemsel var hræddur um, að sumir for- ingjarnir ætluðu sér að leggja af stað fyrir dögun. Hann hafði trú á því, að kæmi til innrásar í Normandí, yrði hún hafin í birtingu. Hann ákvað að vara alla þá við, "sem áttu að taka þátt í æfingunni. Skipunin, sem hann sendi út, hljóðaði svo: „Yfirforingjar og aðrir þeir, sem eiga að taka þátt í „stríðs- leiknum“, eru áminntir um að fara ekki af stað til Rennes fyr- ir dögun hinn 6. júní.“ En það var orðið of seint. Sumir for- ingjarnir voru þegar farnir af stað. Hver á fætur öðrum höfðu yfirforingjarnir -farið frá víg- stöðvunum, þegar orrustan var einmitt í þann veginn að hefj- ast. Allir höfðu þeir ástæður til að fara, en það leit næstum út fyrir, að duttlungafull örlög- in hefðu komið brottför þeirra í kring. Rommel var í Þýzka- landi. Sama var um Tempel- hoff, framkvæmdaforingja B- herjanna. Heinz Hellmich, for- ingi 243. herfylkisins, sem varði hálfan Cherbourgskaga, var farinn til Rennes, og sömuleiðis von Schlieben, foringi 709. her- fylkisins. Wilhelm Falley, sem réð fyrir hinu harðskeytta 91. herfylki, er nýkomið var til Normandí, bjóst til brottferðar. Meyer-Detring, aðstoðarforingi Rundstedts, var í orlofi. Foringi eins herfylkisins var á dýra- veiðum með franskri frillu sinni, og það náðist ekki til hans.*) *) Eftir D-dag urðu Þjóðverj- ar svo forviða á f jarveru margra foringja samtímis, að rætt var um að láta rannsókn fara fram til þess að ganga úr skugga um, hvort leyniþjónusta. Breta kynni að eigá sök á henni! Staðreynd er, að Hitler var sjálfur engu betur búinn undir daginn en hershöfðingjar hans. Foringinn var á hvíldarstað sín- um í Berchtesgaden í Bæjara- landi. Flotasérfræðingur hans, von Puttkammer aðmíráll, man eftir því, að Hitler fór seint á fætur, hélt hina venjulegu hern- aðarráðstefnu sína um hádegi og snæddi miðdegisverð klukkan fjögur. Auk frillu hans, Evu Braun, voru þar margir fyrir- menn nazista og konur þeirra. Grænmetisætan Hitler hafði hin venjulegu orð um kjötlausa mál- tíð sína við frúrnar: „Fíllinn er sterkasta dýrið; hann þolir ekki heldur kjöt.“ Eftir miðdegisverð- inn fór fólkið út í garðinn, þar sem foringinn drakk grasate. Hann lagði sig milli klukkan sex og sjö og hélt aðra hernað- arráðstefnu klukkan ellefu um kvöldið; siðan var aftur kallað á frúrnar um miðnætti, og að því er Puttkammer man bezt, urðu gestirnir að hlusta á Wagn- er, Lehar og Strauss í tvo klukku- tíma. tímarit Bókaútgáfu MennmgarsjóSs og Hms a íslenzka þjóðvinafélags. Andvan í hmum nýja búnmgi er kominn út 'dk og hefur venð sendur umboðsmönnum vor- um um Iand allt. Félagsmenn Bókaútgáfu Mennmgarsjóðs fá ritið án aukagjalds. Félagsmenn í Reykjavík eru góðfúslega beðnir að vitja tímaritsins í afgreiðsluna, Hverfisgötu 21. Þeir, sem hafa hug á að gerast félagsmenn, ættu að kynna sér hin einstæðu kjör, sem vér bjóðum: Stórt tímarit og fjórar bækur að auki, að nokkru eftir eigin vah, fynr aðeins 1 50 krónur. Ennfremur 20—30% afsláttur á öðrum útgáfubókum vorum. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Hverfisgötu 21, pósthólf 1398, símar 10282 og 13652. G ú m m.rs t í m p I á'r .Ó:. Smáprentun ' Sími j_ H*erfisgötu 50 - Reykjayik 10615 Afíið FRJÁLSRÍ ÞJÖÐ nýrra áskrifenrfa.

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.