Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 12.09.1959, Page 7

Frjáls þjóð - 12.09.1959, Page 7
ERJXlS Þ J □ O "• eJJaufarcfaýinrt J2, iepf, 195$ Vandamál New York — n PYamh. af 3. síðu. Sóknin tii útborganna. H nnað vandamál borgarinnar er *• alvarlegra, þegar til lengdar lætur. Eins og betri hluta lág- launastéttanna er ýtt út úr leigu- húsnæði borgarinnar, þannig er einnig verið að ýta allri milli- stéttinni út úr borginni, en í henni er einmitt að finna kjöl- festuna í borgarlífinu, á- byrgustu kjósendurna og þá, sem bera þungann af skattbyrðun- um. 1 vaxandi mæli er þessi stétt manna að gera sér grein fyrir því, að leiga fyrir húsnæði í sómasamlegu hverfi hrekkur langt til að byggja eigið hús með garði í útborgunum. Þannig er New Yonk óðum að verða borg hinna efnuðu, sem eru of fáir til að geta verið mikilvægt pólitískt afl, og hinna sái’fátæku, sem flytjast til borgarinnar í stórum hópum árlega. Söiuskattar og stimpilgjöld. T'jármálalega er þessi þróun * tvöfalt áfall fyrir borgina. 1 millistéttinni, sem er að flytjast úr borginni, eru ekki einungis aðalskattgreiðendurnir, heldur lika viðskiptavinirnir, sem verzl- unin blómgast af. Og þeir eru tiltölulega lítils þurfandi um op- inbera þjónustu. Láglaunastétt- irnar, sem flytjast til borgarinn- ar, greiða minnst i skatta og þurfa auk þess mest á að halda lögreglu, eldvörnum, sjúkrahjálp og slíku. Afleiðingin er sú, að borgin er í sífelldum fjárkrögg- um og stöðugt að reyna að finna nýjar tekjulindir. Hingað til hef- ur eina lausnin verið söluskattar og stimpilgjöld hvað ofan á ann- að og niðurskurður á almennri þjónustu. Iðnaður á fallanda fæti. «|vo margbreytilegur iðnaður og •"verzlun er í New York, að borg- in sýnir flestum öðrum betur sveiflur fjármálanna. Eftir styrj- öldina hefur hún mjög dregið að sér aðalstöðvar alls konar banda- ríska og alþjóðlegra fyrirtækja, og þar hefur verið byggt meira af skrifstofu- og verzlunarhús- næði en annars staðar i Banda- rikjunum samanlagt. Samt á borgin við mörg við- skiptavandamál að stríða, og á vinnumarkaði lætur hún stöðugt undan síga fyrir öðrum borgum. Höfnin i New York er enn þá stærsta höfn Bandaríkjanna, en þó minnkandi. Árið 1952 fóru um hana 33.8% af út- og innflutningi til landsins, en á síðasta ári að- eins 26%. Aðaliðnaður borgar- innar, klæðaiðnaðurinn, er einn- ig á fallanda fæti, og hjálpast þar að bæði staðsetning hans á miðri Manhattan, þar sem fast- eignir eru einna dýrastar í heim- inum, og há vinnulaun. Margir klæðaframleiðendur hafa þvi flutt framleiðslu sína til Kali- foi'niu. Flest stórt í sniðum. pinn og sami flokkur hefur “ lengi ráðið stjórn borgarinn- ar, og er það flokkur Demókrata, en innbyrðis klofningur og ólga ríkir í flokknum. Foringi hans er Tammany nokkur Hall, sem er hægrisinnaður mjög, en í vinstri arminum eru helzt frú Eleanor Roosevelt og Thomas K. þ’inlett- er. Mikil spilling hefur lengi þró- azt í stjórn borgarinnar, og hef- ur reynzt erfitt að uppræta hana. Nú er sagt, að Nelson Rockefell- er, rikisstjóri New York-fylkis, sem er Repúblikani, hugsi sér, eftir því sem völd hans leyfa, að taka í taumana í borginni og reyna að leysa þau vandamál, er borgarstjórninni hefur ekki tek- izt. New York er borg hinna miklu stærða. Hún er skuldugasta borg í heimi, og fjárhagsáætlun henn- ar er önnur h’æst i Bandarikjun- um. aðeins fjárlög sambands- stjórnarinnar i Washington eru hærri. Og i borginni eru hæstu og mestu skýjakljúfar í heimi. Það virðist því ekki fjarri lagi að álykta, að ef hún eigi við vanda að etja, sé hann einnig stór í sniðum. Og þannig er það ein mitt. Blóðblöndun - Framh. af 5. síðu. fyrir sér hafmeyjarmyndina nýju í Reykjavíkurtjörn, að ó- notagrunur læðist að manni um, að myndin hefði getað orðið jafnvel enn smiðslegri og feg- urri, ef bíldhögvarinn, höfund- ur hennar, hefði verið ofboð- lítið danskur í aðra ættina’. Bæjarstæði Ingólfs — Frh. af 8. síðu. í Viðey væri tilvalinn staðUr fyrir allsherjarútisafn fyrir landið, því að bæði eru gömul hús fyrir, eins og áður er sagt, og einnig nægilegt landrými á fögrum stað fyrir önnur gömul hús. Þar væri vel til fundið- að reisa endurgerðar byggingar eins og skála í fornum stíl, sem minnzt var á í síðasta tölu- blaði Frjálsrar þjóðar, og aðr- ar byggingar, sem sýndu þróun- ina í byggingarsögu íslendinga. Það er einnig staðnum til ágæt- is, að þar ættu vel heima göm- ul hús, sem staðið hafa við sjó, eins og flest íslenzk kaupstaða- hús hafa gert. Ef einhver nefndi samgönguerfiðleika í sambandi við Viðey, má benda á, að tal- að hefur verið um að gera hafn- argarð frá Gufunesi út í Viðey •og annan með hafnarmynni frá Laugarnesi út í Viðey, og telja margir, að þessar framkvæmd- ir í hafnarmálum Reykjavíkur yrðu ódýraci og heppiiegri en hafnargarður út í Engey. Eftir slíkum hafnargarði mætti að sjálísögðu leggja veg út í Við- ey. Áður en til þessa kæmi, væri þó engan veginn frágangs- sök að koma upp safni í Viðey, því að þangað mætti fara á þar til gerðum bát, og væri sú ferð að mörgu leyti eftirminnilegri og til meiri ánægju fyrir safn- gesti en venjuleg bílferð. Bifreiðasalan BÍLLINN Varðarhúsinu shni iis-&-;*:{ Þar sem flestir eru bílarnir, þar er úrvalið mest. Oft góðir greiðslu- skilmálar. Útsvarsmáhn — við að fara í kvörnina, sem ntalar óbreyttum borgur- urn útsvör. Fleiri íhaldsgæðingar. í síðasta blaði FRJÁLSRAR ÞJÓÐAR var skýrt frá ósam- ræminu milli tekjuskatts og útsvars þeirra Gunnars Thor- oddsens borgarstjóra, Ólafs Thors, formanns Sjálfstæðis- flokksins, Jóhanns Hafsteins alþingismanns og Guðmundar Vilhjálmssonar framkvæmda- stjóra. Við frekari blaðaskrif um málið hefur nú komið fram, að hópur framá- manna Sjálfstæðisflokks- ins, sem nýtur hinna dul- arfullu útsvarsfríðinda, er mun stærx-i. Þannig virðist Bjami Benediktsson rit- stjóri greiða 12000 krón- urn lægra útsvar en hon- um ber, Guðmundur Bene- diktsson bæjargjaldkeri 4700 krónum lægra og Gunnlaugur Pétursson borgarritari 5800 krónum lægx-a. Það er skýlaus krafa jiessa blaðs — og þar mæl- ir það vafalaust fyrir munn þorra bæjarbúa — að út- svarsmál þetta verði upp- lýst til fullnustu. — Geri forkólfar Sjálfstæðisflokks- ins ekki hreint fyrir sinum dyrum i þessu máli, er það lýðum ljóst, að með völdin í þessu bæjarfélagi fer flokkur ræningja og saka- manna. Bankastjóraskfpti — Framh. af 1. síðu: Reykjavík vildi láta Bernharð draga sig í hlé frá framboði nú í haust, og sömu sögu var raun- ar að segja um ýmsa áhrifa- menn flokksins heima í héraði. vakra fréttaþjónustu sína. ÚTGEFENDUR ATHUGIÐ! Tökum að okkur að lcsa prófarkir. Uppl. fyrir liádcgi daglcga í símum 19622 og 19985. ^KOLALÆKMR Skólalækna vantar að skólum í Reykjavík. Um- sóknir sendist til Heilsuverndarstöðvar Revkja- víkur fyrir 9. október n.k. Nánari upplýsingar gefur borgarlæknir. Stjórn Heilsuvermlarstöðvar Reykjavikur. Bólstruð húsgögn Sóiasett nied teak á örmunum og lausum púðum. Sóiasett í léttum stíl. SveinsóÍ£ir eins og 2ja manna. Sóia barö in nskatsbarö Góöir greiðsiuskiltntíluM* BÖLSTRARIIMIM Hverfisgötu 74. Laus staða Staða aðalbókara landssímans er laus til umsóknar. — Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir, ásamt upplýsmgum um menntun og fyrri störf skulu haía borizt póst- og síma- málastjórninni eigi síðar en 5. okt. 1959. Póst- og símamálastjórnin. 8. september 1959. 5 JT Islenzk tunga tímarit um íslenzka o almcnna málfræði: Ritstjóri: Hreinn Be'< J.iktsson prófessor. Ritnefnd: Halldór H. son, Árni Böðvr.: hdörsson, Jakob Benedikts- Útgefendur: Félag í Menningársjóðs. fræða og Bókaútgáfa Áskriftarverð: Kr. 7 <í á áii (kr. 130 í lausasölu). Útkomutími: Októb náiiuður. Undirrit . . . gerist „íslenzkrar tungu“, póstkröfu. v .eð áskrílandi íimaritsihs iö fá ritið sent gegn Nafn: Heimili: I Pósthús: Til Bókaútgáfu Menn Reykjavik. arsjóðs, Pósthólf 13SS, 'i!.\

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.