Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 12.09.1959, Side 8

Frjáls þjóð - 12.09.1959, Side 8
s---------------------------------------------------- _ f Viðtal við Þorkel Grímsson safnvörð: Víkurbær stóö nálægt Aöalstræti á elzta uppdrætti Sjálfsagt a5 vernda einn söguhelgasta stað landsins: bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar og Skúla fógeta Af tilefni greinar þeirrar um verndun bæjarstæðis Ingólfs Arnarsonar og Skúla fógeta, sem birtist fyrir skömmu hér í blaðmu, kom FRJÁLS ÞJÓÐ að rnáli við Þorkel Grímsson fornleifafræðing, sem nú hefur tekið við safnvarðarstarfi við Þjóðminjasafmð, og spurði bann um álit bans á því máli. Fer viðtalið hér á eftir. — Hvað segir þú um bæjar- stæði Ingólfs? — Auðvitað er erfitt að benda nákvæmlega. á blettinn. Ekki hefur verið fylgzt nægi- lega með uppgrefti fyrir húsum í gamla bænum, fyrr en grafið var fyrir Steindórsprenti. Þá komu í ljós leifar öskuhaugs, steinkola og geirfuglabein, og fannst þetta á nærri tveggja metra dýpi. Sýnir dýpið, að fornleifar þessar eru frá mjög gamalli tíð. Skoðanir fræðimanna. Fimm fræðimenn hafa eink- ura skrifað um bæjarstæði Ing- ólfs. Jón Helgason biskup taldi, að bærinn hefði legið í beinni röð frá austri til vesturs, frá horni Gildaskála upp að Grjóta- götu 4. Eiríkur Briem hugði bæjarstæðið hafa verið vestan við Aðalstræti, milli Túngötu •og Bröttugötu. Klemens Jóns- .son nefndi til Aðalstræti 14 og 16 vestan Aðalstrætis, og hann .«egir einnig frá því, að aska hafi komið upp, þegar grafið var fyrir Aðalstræti 12. Danski fræðimaðurinn Kristian Kálund fann árið 1880 uppdrátt af Reykjavík eftir Hoffgaard frá 1715, og mun það vera elzti uppdráttur, sem til er af Reykjavík. Uppdrátturinn er að vísu ekki mjög skýr, en þó sýnir hann, að bærinn Vík, eins og hann hét áður, hefur staðið vestan við kirkjugarðinn gamla (núverandi bæjarfógeta- garð við Aðalstræti) og þó ver- ið breitt sund á milli. Virðast bæjarhúsin hafa snúið norður og suður líkt og Aðalstræti nú. Loks fellst Árni Óla ritstjóri á hugmynd Eiríks Briem í riti sínu Fortíð Reykjavíkur. Þó að þessum fræðimönnum beri ekki í öllum atriðum sam- an um staðsetningu hins forna Réýkjavíkurbæjar, kemíir þeim öllum saman um, að bærinn hafi staðið á þessum slóðum: við Aðalstræti sunnanvert, ein- mitt þar sem Skúli fógeti reisti seinna innréttingar sínar, og at- hyglisvert er, að enginn þeirra telur hugsanlegt, að bærlfm hafi staðið á öðrum slóðum. Ráðhús á bæjarsiæðinu. — Hvað segir þú um að sýna þessum fornhelga sögustað sóma með því að vernda hann og reisa þar t. d. táknræna bygg- ingu eins og ráðhús Reykja- víkur? — Ég er því fyllilega sam- þykkur. Ég geri mér ljóst, að erfiðleikar eru á því vegna bygginganna í kring, en við verðum að hafa það í huga, að slík bygging sem ráðhús er reist til margra alda og minna ger- ir til, þótt aðrar byggingar (eins og t. d. Herkastalinn) verði að þoka fyrir henni. Það er skoðun rnjn, að taka ætti til- lit til þess í skipulagi bæjarins, hve merkur sögustaður Reykja- vík er — bæði sem elzta land- námsjörðin og síðar hinn fyrsti raunvérulegi kaupstaður lands- ins. T. d. þykir mér ástæða til, að skipulagsstjórn bæjarins taki tillit til alþingishúss og dómkirkju, þegar framtíðar- skipulag miðbæjarins verður ákveðið, þannig að ekki verði skyggt á þau með háum bygg- , ingum í nánd. Landssaín í Viðey. — Vildirðu segja fleira um sögustaði í Reykjavík og' grennd? — Þar kemur Viðey einna fyrst í hugann. Þar eru bæði uppistandandi hús frá 18. öld og órannsakaðar gamlar rústir. Frh. á 7. síðu. Ekki metra af svo góíu, takk! Líkur eru til, að Gunnar Jóhannsson á Siglufirði bjóði sig ekki fram við kosning- arnar í haust, en ella væri hann sjálfkjörinn í efsta sæti á lista kommúnista í Norð- urlandskjördæmi vestra. Til skamms tíma hefur verið reiknað með því, að Ármann Jakobsson lögfræð- ingur á Siglufirði yrði arf- taki Gunnars. Upp á síðkast- ið eru bó veðrabrigði í þeim efnum. í fyrsta lagi hefur Hannibal Valdimarsson bor- ið víur í þetta sæti, en lítinn hljómgrunn fengið. í annan stað , hefur Þóroddur Guð- mundsson á Siglufirði og fleiri í liði kommúnista snú- izt hatramlega gegn fram- boði Ármanns á þeirri for- sendu, að sízt sé ástæða til að fjölga mönnum úr „þeirri fjölskyldu‘! í þingflokki kommúnista. Ármann er mágur Finn- boga R. Valdimarssonar. LÍTIÐ FRÉTTABLAÐ Laugardaginn í 21. viku sumars. Y éKxátirbrtnSelttrittn ttf Þegar vinstri stjórn- : in sáluga var að gliðna sundur, vakti Frjáls þjóð athygli á Því, að um sömu mundir var hið þrí- stofna „líftré“ stjórn- arinnar á bak við St jórnarráðshúsið að syngja sitt síðasta vers. Undir lokin var stofnunum þremur haldið saman með .snærum, en ekkert dugði. Tréð var vígt dauðanum, einn stofn- inn dó fyrstur og síð- an voru hinir höggnir tipp síðasta sumarið, sem stjórnin lifði, og litu margir á það sem fyrirboða. Enn töldu sumir það fyrirboða, að nýtt 'líftré var gróðursett á bak við stjórnarráðið, í Þetta sinn éinstofna erlent barrtré. Af þroska þess er það að segja, að fyrst í stað stóð það með nokkr- um blóma, enda traustlega varið með skjólgóðri girðingu,' en nú í sumar hefur tréð þó orðið fyrir á- falli: vaxtarbroddur þess brotnaði i næð- ingnum, og er óséð, eftir áfallið. Er þetta einn fyrirboðinn enn? Miðstöð fisk* verzlunar Fisksalar i Reykja- vik hafa stofnað til félagsskapar, sem hef- ur það markmið að annast kaup og dreif- ingu á fiski. Hafa þeir hug á að búa starf- semi þessari samastað á Grandagarði og munu þegar hafa sótt um nauðsynleg leyfi til framkvæmda. AUflestir fisksalar bæjarins eru aðilar að félagsskap þessum. Þjóðleikhússtjóri hefur látið boð út ganga um það, hver verða. muni verkefni leikhússins á starfsárl þvi, sem nú fer í hönd. Það vekur athygli, að meðal leikrlta; sem á- formað er að sýna, er Júlíus Cæsar eftir Shakespeare. Svo er að sjá, sem Frá Mormónum Mormónar i Utah sendu hingað menn fyrir fáum árum til að ljósmynda kirkju- bækur og önnur mannfræðigögn í Þjóðskjalasafni. Er það starf i samræmi við trúarbrögð þeirra, þar sem þeir hugsa mjög um sálarheill forfeðra sinna og biðja fyrir þeim. Nú stendur til, að Mor- mónar komi hér enn til frekari heimilda- söfnunar. Nýtur Þjóð- skjalasafn góðs af, þvi að safninu hefur verið gefið eintak af öllum þeim filmum, sem Mormónar hafa tekið hér. nýstárlegan kæk, því að þetta er þriðja ár- ið í röð, sem Júlíus Cæsar er tilkynntur á verkefnaskrá leik- hússins, án þess að vart hafi orðið við hann á fjölum þess. En búast má við, að hann verði ekki lengi að sjá og sigra, þegar hann loksins lcemur eftir allan þennan undirbúning. þjóðleikhusstjóri hafi hvort það jafnar sig i þarna lagt sér til all- Nýstárlegur kækur cJJauqítrcf^ÍRÍHH- 12, ðept'. 1959 “rFR JALS Þ J □ -Ð' Elzti uppdráttur, sem til er af Reykjavík, gerður af Hoffgaard árið 1715, sýnir Örfirisey með verzlunarhúsunum neðst til vinstri. Fyrir botni víkurinnar (merkt Rvigk) er kirkjan í gamla kirkjugarðinum, þar sem nú er bæjarfógetagarðurinn við Aðalstræti, en vestan við kirkjuna er bærinn í Vík og þó allbreitt sund á milli. íslenzkur sendiherra hjá Santeinuðu þjóðunum lausn á framboðsvandamáli á Vestfjörðum Þingmen Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum skipa fjögur efstu sæti á lista flokksins í því kjördæmi við kosningarnar nú í haust. Er Gísli Jónsson efstur á blaði, enda fullyrt af mörgum, að hann hafi því að- eins gefið kost á sér í vor, að hann skipaði efsta sæti í haust. Kjartan læknir á ísafirði er í öðru sæti, Sigurður Bjarna- son í þriðja og Þorvaldur Garð- ar í fjórða. Sjálfstæðisflokkur- inn getur ekki gert sér vonir um að fá nema þrjá menn kjörna á Vestíjörðum í haust, og hef- ur Þorvaldur Garðar því ekki von um þingsæti. Sjálfstæðismenn í Reykja- vík skýra hins vegar frá því — og telja sig hafa fyrir satt — að Sigurður Bjarnason verði von bráðar skipaður sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum. Hverfur hann þá að sjálfsögðu af þingi, en Þor- valdur Garðar tekur sæti sem varamaður. Segja menn, að þannig hafi verið leyst fram,tíðarvandamál Sjálf- siæðisflokksins á Vestfjörð- um. Er þá að sjálfsögðu ekki horft í það, þótt stofna þurfi nýtt, rándýrt og al- óþarft sendiherraembætti, enda borgar almenningur brúsann. Það styður þessar fregnir, að Sigurður Bjarnason skipar þriðja sæti listans. Að öllu 4skrifendnr! Sendiö hiaðgjaldið, 108 j kr., sem aílra fyrst til af- i greiðslunnar, Ingólfsstræti 18.- sjálfráðu má telja ólíklegt, að hann hefði látið sér annað lynda en annað sætið og síðan fyrsta sætið að Gísla frágengnum, en varla þarf að vænta þess, að hann sitji á þingi meira en eitt kjörtímabil enn. Erfitt vandamáf á Austurlandi Mikill vandi er risinn í sam- bandi við framboð Sjálfstæðis- flokksins á Austfjörðum. Til þess var ætlazt af flokksforyst- unni hér í bænum, og raunar einnig af mörgum Sjálfstæðis- mönnum á Austurlandi, að Ein- ar Sigurðsson, sem skipað hef- ur efsta sæti á lista flokksins í Suður-Múlasýslu við tvennar síðustu kosningar, yrði í efsta sæti í hinu nýja kjördæmi. En nú er þar komið illilegt babb í bátinn. Sveinn Jónsson á Egilsstöðum krefst þessa sæt- is fyrir sjálfan sig og sækir málið af miklu harðfylgi og of- urkappi. Ekki veit blaðið, hversu mikinn stuðning hann kann að hafa heima fyrir, en heyrzt hefur, að Helgi GLslason, sem verið hefur í framboði fyr- ir Sjálfstæðisflckkinn í Norður- Múlasýslu, veiti Sveini braut- argengi. Ganga sögur af því, að þeir hafi báðir, Sveinn og Helgi, haft í hinum grimmileg- ustu hótunum við floltk sinn, ef ékki verði látið að vilja þeirra. Er vandamál þetta sagt mjög öi’ðugt og erfitt viðureignar, og vildu kunnugustu menn engu um það spá, þegar þetta er rit- að, hver málalokin yrðu.

x

Frjáls þjóð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.