Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 24.10.1959, Page 1

Frjáls þjóð - 24.10.1959, Page 1
8. árg. Laugardaginn 24. október 1959 39. tbl. Snúizt gegn pálitiskum yfirgangi og spiflingu: VEITIÐ FERSKU LOFTI INN í ÞINGSALINA Reykvíkingar: Á sunnudaginn kemur tryggið þið Þjóðvarnarflokknum þingsæti MEÐ stjómarfarslegu og efna- hagslegu sjálfstæði, heilbrigðu atvinnulífi, tæknilegri uppbygg- ingu, heiðarlegri embættisfærslu ★ GEGN fjármálaóreiðu, her- mangssiðferði, hneykslum og yfirgangi gömlu flokkanna Það er margra manna mál, að gömlu flokkarnir standi nú uppi í lok kosmngahríðannnar berir að fleiri og verri ávirðingum en fóik hafði almennt grunað þá um. Þegar svo er í pottmn búið, er ekki óeðlilegt, þótt spurning sem þessi vakni hjá-sumum: Væri nokkru glatað, þótt nokkur þúsund Reykvíkmga neituðu sér um þá ánægju að kjósa þá að þessu sinm, en veittu Þjóðvarnarflokknum lið í þess stað? Gömlu flokkarnir hafa ekki nein ný stefnumið, og ekkert' mál er á döfinni, er höfði sér- staklega til fólks, eins og til dæmis í vor, þegar. að mestu leyti var kosið um kjördæma- málið. Hvergi örlar á neinni brevtingu hjá gömlu flokkun- um, sem getur laðað fólk til tryggðar við þá eða vakið nýj- ar vonir, eins og til dæmis gerð- ist vorið 195o, þegar bandaiög- in tvö voru stofnuð og sumir. gömlu flokkanna létu sem þeir gengju í endurnýjungu lífdag- anna. í þess stað hafa foi’ingj- ar þeirra og liðsmenn hamazt við að bera hver annan sem þyngstum brigzlum og afhjúpa sem verstan verknað, svo að nú má loks ekki á milli sjá, hver þeirra hefur hlotið versta út- reið og orðið berastur að mest- um ósóma. Uppljóstranir, sem mest hefur verið rætt um að undanförnu, benda óneitan- lega til þess, að ekki værí van- þörf á að veita fersku lofti ínn í þingsalina og taka duglega í taumana. Og þá má orða aðra spurn- ingu: Hefur þess nokkurn tíma’ heyrzt getið, að þeir Gils Guð- mundsson og Þorvarður Örn- ólfsson hafi verið við annað riðnir en það, sem sæmilegt er og fullkomlega drengilegt?. Hefði það þó sennilega ekki verið látið liggja í láginni í kosningahríðinni, ef á eitthvað. slíkt hefði verið hægt að benda. Geta ekki nokkur þúsund Reyk- víkinga, hvaða flokka, sem þeir kunna áður að hafa kosið, verið Frh. á 2. síðu. xF Fréttatilkynning um Essó-mái stöðvuð Ýmsir framámenn hernámsflokkanna flæktír í málið: áfengissmygl — vélasmygl - mútugjafir og önnur botnlaus óreiða Hjá umboðsdómara þeim, sem rannsakað hefur Essó-mál- in og margvísiegt misferli ann- að, er komið hefur á daginn í sambandi við þau, er nú til reiðu greinargerð í formi frétta- tilkynningar um einn þátt þess- ara mála, smyglið. Útsending þessarar frétta- tilkynningar hefur verið stöðvuð fram yfir kosningar, enda gengur staflaust, að þarna komi óþægilega við sögu innlend og erlend stór- menni, sem að minnsta kosti tveimur stærstu stjórnmála- flokkum landsins komi mið- ur vel, að nafngreind séu í þcssu sambandi rétt fyrir kjördaginn. Þó verður að á- lykta, að hér ráði fyrst og fremst hlífð við annan þeirra — þann, sem heldur lífinu í ríkisstjórninni, Sjálfstæðis- flokkinn, sem til skamms tíma hefur gert sér mjög títt um þetta mál. En auk þessa kemur öllum j hernámsflokkunum harla illa, að almenningur f ái einmitt þessa dagana að sjá sýnishorn þess, sem gerzt hefur í skjóli hermangs og hersetu. Fullyrt er, að einn þáttur þessa máls sé stórfellt áfeng- Frh. á 2. síðu. úðríður Gísladóttir, fimrnti maður F-listans í Rvík, i Gitfe íluðmundsson, •efstt F-lis'táns < Rvík, Þorvarður Örnólfsson, annar maður F-listans í Rvík Þórtiallur Vilmundarsoa, þriðji maðuc F-Rstans í Rvík. Guðmundur Löve, fjórði maður F-listans i Rvík Veitið gömlu flokkunum nauðsynlegt aðhald með |iví að kjósa þjéðvarnarmenn á þing

x

Frjáls þjóð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.