Frjáls þjóð

Ataaseq assigiiaat ilaat

Frjáls þjóð - 30.03.1963, Qupperneq 3

Frjáls þjóð - 30.03.1963, Qupperneq 3
FRJÁLS ÞJÓÐ Ötgetandi: Þjóðvarnarflo.kkur tslands. Framkvæmdastjóri: Jafet Sigurðsson Ritstjórn: Ingimar Erlendur Sigurðsson (ábm.), Gils Guð- mundsson, Bergur Sigurbjörnsson og Þorvarður Ornólfsson. Áskriftargjald kr. 100,00 fyrir 1/2 ár, í lausasölu kr. 5,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 8. Sími 19985. Pósthólf 1419. Prentsmiðjan Edda h.f. Einangrunarstefna í blöðum stjórnarflokkanna hefur því þrásinnis verið haldið fram að undanförnu, að þeir, sem ekki vildu að íslenzk þjóð afsalaði sér sjálfsforræði sínu í fjárhags- og efnahagsmálum, atvinnu- og verka- lýðsmálum með því að tengjast Efnahagsbandalagi Evrópu órjúfandi böndum með einu eða öðru móti, væru einangrunarsinnar og fylgdu einangrunar- stefnu. Hefur tónninn í skrifum stjórnarblaðanna í þessum efnum verið svo ofstækisfullur og svo þrunginn algerri fordæmingu, að ókunnugir gætu haldið, að af hálfu íslenzkra stjórnarvalda væri í dag litið á það sem hinn hroðalegasta glæp, ef ein- hverjir leyfðu sér að hafa aðra skoðun á innlimun kotríkisins íslands í E.B.E. en núverandi stjórnar- flokkar. Nú vita allir landsmenn, að enginn einasti íslend- ingur hefur nokkru sinni haldið því fram að ís- land ætti að einangra sig frá öðrum þjóðum eða viðskiptum við þær, hvort sem er um menningar- leg eða efnahagsleg viðskipti að ræða. Hér hefur sem sé ekki fyrirfundizt einn einasti einangrunar- sinni öldum saman og mjög vafasamt að slíkur maður yrði talinn normal, ef hann kæmi fram á sjónarsviðið. En þrátt fyrir þessa augljósu stað- reynd, sést nú orðið einangrunarsinni oftar í for- ystugreinum stjórnarblaðanna en flest orð önnur. Það fer þá heldur varla framhjá neinum, að það er algjörlega ný merking lögð í þetta orð. Þar heitir það nú einangrunarstefna að vilja ekki braska með stjórnarfarslegt sjálfstæði íslenzkrar þjóðar fyrir von í einhverju, sem kallað er „fjárhagslegt öryggi“, svo notað sé orðalag úr Þjóðminjasafnsræðu Gylfa Þ. Gíslasonar, og þeir menn kallaðir einangrunar- sinnar, sem ekki vilja „selja“ frumburðarréttinn fyrir baunadisk, svo notað sé orðalag biblíunnar á sama athæfi. Og það er ekki aðeins að stjórnarblöð- in skrifi þannig, heldur æpa þau þetta eins og ó- kvæðisorð að hinum verstu skaðræðismönnum. Nú hljóta allir þeir sem hafa rósemi hugans til að bera, þegar þeir sjá þessi móðursýkisskrif stjórnar- blaðanna að spyrja í fyllstu alvöru. Hvað meintu þeir menn, sem í raun og veru bera ábyrgð á þess- um glórulausu blaðaskrifum, þegar þeir greiddu at- kvæði með því að ísland gerðist sjálfstætt ríki 1944? Var ætlun þeirra þá strax sú, að rjúfa sambandið við Danmörku til þess eins að geta innlimað landið í stærri ríkisheild nokkrum árum síðar? í þessum efnum tjóar það ekki fyrir valdamenn núverandi stjórnarflokka að afsaka sig með því. að í ritstjórastörf hjá stjórnarblöðunum hafi valizt sál- sjúkir ofstækismenn, sem ekki megi taka alvarlega. Þegar skrifum eins og þeim, sem hér eru gerð að umtalsefni er ekki mótmælt opinberlega af ráðherr- um og flokksformönnum, hlýtur almenningur að draga þá hina sömu valdamenn til ábyrgðar og líta svo á með fullum rétti að þeir séu þessum skrifum sammála í einu og öllu. Dean Acheson leysir frá skjdðunni Dean Acheson, fyrrum ut- anríkisráðherra Bandaríkj- anna, flutti ræðu um ástand- ið i alþjóðamálum við her- skólann í West Point 5. des- ember 1962. Þessi ræða hans hefur vakið athygli. Acheson sagði: „Við fyrstu sýn virðist sem bygging sovézkrar kjarnorku- herstöðvar á Kúbu varði í fyrsta lagi Bandalag Amer- íkuríkja, en aðeins í öðru lagi Atlantshafsbandalagið. En það viðhorf stenzt ekki nán- ari athugun. Átök á Kúbu geta bersýni- lega hrundið af stað átökum umhverfis Kúbu. En auk þess kynni, auðveldlega og ekki ó- sennilega, að gæta verkana þeirra annars staðar — t. d. 1 í Bandaríkjunum eða í Berl- ín, Tyrklandi, Kóreu eða á Formósusundi, Suður-Viet- nam eða á allmörgum þessara staða samtímis..við höf- um fengið áhrifamikla lexíu um gildi þess að eiga sem flestra kosta völ andspænis aðgerðum, andvígum hags- munum okkar. Ef ríkisstjórn- in hefði átt þann kost einan til að ná íram brottflutningi sóknarvopna frá Kúbu að hefja árás á Ráðstjórnarríkin með kjarnorkuvopnum, hefði Kúbu-kreppan án efa orðið miklu hættulegri en hún reyndist.... Meginverkefni Norður-At- lantshafsbandalagsins eru varnir Norður-Atlantshafs- svæðisins... Og til þess liggja gildar ástæður. Metin á mælistiku grundvallarþátta valds, — þ. e. samkvæmt nátt- úruauðæfum, framleiðslugetu og þjálfuðum mannafla — stendur Vestur-Evrópa nokk- urn veginn jafnfætis Ráð- stjórnarríkjunum. Þar sem Bandaríkin, sem nokkru 1 færra fólk byggir heldur en Ráðstjórnarríkin eða Vestur- Evrópa, hafa tvöfalda fram- leiðslugetu á við þau er auð- velt að sjá, að samanlagt hefði bandalag Norður-Am- eríku og Vestur-Evrópu tvö- faldat mannafla 05 þrefalda framleiðslugetu á við Ráð- stjórnarríkin..... Á okkar dögum hefur hinn stöðugi og gamalkunni heim- ur nítjándu aldarinnar horfið og við höfum þeytzt út í heim byltingarkenndra, og oft ofbeldiskenndra, breyt- inga. Gömlu stórveldin, stm drottnuðu yfir heiminum, hafa hrunið í tveimur heims- styrjöldum, og tveir ríkjahóp- ar virðast vera að koma fram á sjónarsviðið. Annar ér sá kínversk-sovézki ásamt fylgi- rikjum. En hinn nær yfir þau bandalög, sem mynduð hafa verið umhverfis Bandaríkin, eitt við Vestur-Evrópu, ann- að við Suður-Ameríku og hið þriðja við eyríkin á Kyrra- hafi. Hið langsamlegasta öfl- ugasta þessara bandalaga er ásinn milli Norður-Ameríku og Vestur-Evrópu .... Eins og sakir standa er hann ríkur af þeim Jráttum valdsins, sem ég hef rætt um, — náttúru- auðæfum, framleiðslugetu og mannafla..... Þótt varnir Evrópu séu meginviðfangs- efnið samkvæmt stofnsamn- ingi Norður-Atlantshafs- bandalagsins, eru Jrær engan veginn hið eina (sameigin- lega) viðfangsefni Vestur- Evrópu og Norður-Ameríku. Vegna sjálfs veldis þeirra, hnattstöðu og -^ögu er þeim brýn nauðsyn að viðhalda heilbrigðu umhverfi, sem frjáls Jrjóðfélög geta í lifað, vaxið og dafnað. — Stefna í hermálum er aðeins einn þeirra þátta, sem flétta þarf saman til að mynda starfhæft, sterkt og dugmikið bandalag. Herafli og hernaðaráætlanir um beitingu hans, — Jrótt góð séu til sinna nota, — koma ckki að gagni nema í banda- laginu sé gengið lengra um samkomulag og einingu .... Um hernaðarlega Jráttinn mun ég einungis setja fram nokkrar niðurstöður án rök- stuðnings.... Hernaðarað- staðan, sem nú blasii við er sú, að aðeins tvær þjóðir. við og Ráðstjórnarríkin, eiga kjarriorkuvopn að nokkru ráði. Vopnin og tækin til að koma þeim á áfangastað eru um tæknilega fullkomnun og magn komin á Jrað stig, að hömlulaus notkun þeirra gæti hæglega haft í för með sér gagnkvæma eyðileggingu. Þótt kjarnorkumáttur Banda ríkjanna sé um þessar mund- ir talsvert miklu meiri en Ráðstjórnarríkjanna getur Jrað breytzt. Hins vegar ráða Ráðstjórn arríkin yfir hefðbundnum herafla til notkunar í Evr- ópu, sem er miklum mun stærri en sá, sem bandamenn hafa Jrar til staðar eða geta með skömmum fyrirvara kvatt til vopna. Af staðreynd- um Jressum, eins og ég hef gert grein fyrir Jreim, dreg ég Jiessar ályktanir: í fyrsta lagi, nauðsyn ber til að auka verulega hefð- bundinn herafla banda- manna f Vestur-Evrópu og bæta útbúnað hans. í öðru lagi, skilyrði þess, að því verði komið í kring er, að Evrópa og Norður-Am- eríka verði á eitt sem bezt sátt um viðkomandi stefnu í stjórnmálum og herstjórnar- málum til varnar Evrópu. 1 þriðja lagi, að banda- menn okkar eigi fulla hlut- deild í mótun stjórnarstefnu og herstjórnaráætlana, sam- drætti nauðsynlegs herafla og í ákvörðunum um, hvenær og hvernig kjarnorkuvopnum skuli beitt. Upp er runnin sú stund, er ná þarf einingu um þær leiðir, sem fara skal, og stofn- anir til að varða hana. Þótt Atlantshafsbandalaginu sé ekki ætlað að fylgjast með einhug i efnahagsmálum, er Jiað vettvangur, þar sem mik- ilvægustu iðnaðarlöndin geta í trúnaði hafizt handa um framfylgd samræmingar fyrir- ætlana sinna í fjármálum og efnahagsmálum í þágu vaxt- ar. Aðrar stofnanir gætu sfð- ar tekið við.“ Þessi ræða Acheson hefur verið talin boða stefnu Banda ríkjanna á myndun einhvers konai ríkjabandalags, efna- hagslegs og stjórnmálalegs, sem næði til allra ríkja að Norður-Atlantshafi og et til vill fleiri landa. Þótt stefna þessi hafi beðið gífurlegan hnekki við írávísun upptöku- Frh. á bls. 5 i Frjáls þjóð — laugardaginn 30. marz 1963. 3

x

Frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.