Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 30.03.1963, Síða 5

Frjáls þjóð - 30.03.1963, Síða 5
 frændi“. Ef þeir hefðu að- eins haldið sig þar, sem þeir þá voru, hefðu þeir alltaf getað fengið sitt daglega brauð við eldlnisdyrnar að húsi hins hvíta manns. En svo hófu Harriet frænka og Tommi frændi skólagöngu, þau lærðu að skilgreina eina setningu og að elska guð, þau voru þá kölluð „séra“, „biskup“ og „prófessor“, en aldrei „herra“ og „ungfrú“. Tímarnir breyttust og mennimir með. „Tommi frændi“ varð ,dr. phil. Tóm as“. Og hið mikilvæga hlut verk hans, var að fá negr- ana til að skilja, að allt væri í himnanna lagi. Allt þetta krafðist sér- stakrar hstar, mjög athygl- isverðrar listar. En nú- tíma-negrinn verður að hætta að ljúga. Hann verð- ur að geta staðið uppréttur frammi fyrir bömum sín- um og frammifyrir veröld- inni. Þessu trúðs-tímabili .verður að ljúka. Tími hins hugsandi negra er runninn upp. Hann verður að kom- ast að kjama málsins og setja vandamál negrans í samband við heimsástandið og kreppu alls mannkyns. Nútíma-negrinn verður að vita, hvað hann segir. Hann má ekki halda, að það sé nokkur ávinningur að ógnunum, en láta sér skiljast, að ef bandaríski negrinn nær fullum mann réttindum án þjáninga, er hann eina mannveran á jörðinni, sem hefur tekizt það. Listin að yera negri krefst skilnings á því, hvað maðurinn er, hvaða stöðu og þýðingu hann hefur. Listin að vera negri krefst auk þess eðlislægs söguskilnings, því sé það svo, að hæfileikinn ,til að hugsa skapi manninum al- gjöra sérstöðu meðal teg- undanna, verður að beina sjóninni að sögunni. Burt séð frá öllum þeim fullyrðingum og and-full- yrðingum, sem hafa mynd- að grundvöll svo margra styrjalda, getum við sagt með vissu, að ástandið í heirninum sé betra nú en það hefur nokkru sinni áð- ur verið. Fólk hefur meira að borða, betri húsakynni, fleiri bækur til að leita upp lýsinga í ,fleiri lyf til að linna kvalir. Fleira fólk vinnur að mannúðarmá]- um, það er meira að lifa fyrir, og vísindin lengja líf mannsins. Allir eru sam- mála um þetta. En svo er talað um, að maðurinn sé ef til vill ekki jafn siðferði- lega þroskaður og áður. Mig grunar, að þetta sé að- eins siðræn rómantík, kær minning tim eitthvað, sem aldrei hefur verið. Minnist hjátrúar frum- mannsins, þrælahaldsins í Hellas, heimsveldisstefnu Rómverja, leiguliðanna á lénstímanum, stéttarskipt- ingarinnar á renesanstíma- bilinu, valdasýkinnar á upp lýsingatímabilinu, hags verkamanna í iðnbylting- unni og kreddutrúar puri- tanismans (hreintrúarstefn unnar), sem barst til Am- eríku vegna trúarbragða- ófrelsis í garnla heiminum. Sá sem vill hugsa sjálfstætt — og vill gjarna eiga langt og þægilegt líf til þess — getur aðeins komizt að þeirri niðurstöðu, að við séum betur sett en nokkru sinni áður. Listin að vera negri felst einnig í því. að hafa eðlis- lægan skilning á sögu Bandaríkjanna. Það er einnig betra að búa í Bandaríkjunum en áður. Þrælahaldið tilheyrir ekki eingöngu fortíðinni — það getur aldrei komizt á aftur. Kynþátta vandamál- ið hefur ekki verið leyst. En Bandaríkin sjálf eru eins og negrinn hætt að þurfa að vera með yfirdrepsskap. Þjóðin verður að vera heið- arleg. Hún verður að láta í ljós, hvað hún lifir fyrir, og hún verður að vera fús tll að deyja fyrir það. — Því hefur Rússland komið til leiðar. Það er ekkert ein kennilegt, þótt bágstatt og kúgað fólk vænti meir af Bandaríkjunum. Banda- ríkjamenn gera meiri kröf- ur til sjálfra sín. Það er freistan*' negra að draga sii verri hliðar bandai , <íí sögu. En í rauninni er saga Bandaríkjanna — einkum með tilliti til kynþátta- vandamálsins — í eðli sínu jákvæð. Hvíti maðurinn kom þrælahaldinu og kyn- þáttaaðskilnaðinum á. En það var einnig hvíti mað- urinn, sem barðist harðast gegn þrælahaldinu og að- skilnaðinum. Þótt margar aðrar ástæður væru fyrir borgarastyrjöldinni, ber fyrst og fremst að líta á hana sem stríð milli hvítra manna um frelsi til handa hinum svörtu. Listin að vera negri felur í sér eðlislægan skilning á sögu negrans. Bandaríski negrinn er maður. Líffræðilega er hann blandaður, og trúar- lega byggir hann á um- myndun gyðinglegra-krist- inna kenninga. Staðreynd- in er sú, að negrinn er eina mannveran, sem er skapað- ur að sál og líkama af hin- um nýja heimi. Bandaríski negrinn heyrir til hinum vestræna heimi fremur en nokkur önnur mannvera. William Caldwell Dean Acheson Frh. af bls. 3. beiðni Bretlands í Efnahags- bandalag Evrópu, mun hún vart úr sögunni. Ef til vill verður hún nú miðuð við myndun bandalagsríkis ensku mælandi þjóða og fáeinna annarra. Acheson hélt áfram: „En allt gefur ekki tilefni til svartsýni í herbúðum Norður-Atlantshafsbanda- lagsins Styrkur okkar og von eru fólgin í þeirri þróun i átt til samruna í Vestur-Evr- ópu, sem fram hefur undið í liðlega áratug. Að baki þess- ari stefnu framsýni og hug- myndaauðgi standa vissulega öfl uppbyggingar í framtíð- inni, sem vonir okkar og stefna eru tengdar við. Þegar hefur mjög mikið á- unnizt Ef borin er saman staðan í Evrópu í júní 1947, ' þegar Marshall hershöfðir.gi flufti ræðu sína í Harvard, við stöðuna í Evrópu nú, fimmtán árum síðar, fæst nokkur hugmynd um það, sem áunnizt hefur. Ennfremur vitum við af eigin reynslu, sem kemur heim við reynslu annarra bandaríkja, að fyrirkomulag bandaríkisins stendur aldrei í stað. Það annað hvort berst í átt til aukins styrks, er í vaxandi mæli stjórnað af miðstjórn, eða þvf hættir til að glata styrk og flosna upp. Ef komið verður í veg fyrir hið síðarnefnda, mun hið fyrrnefnda eiga sér stað. Um þessar mundir stendur Evrópa samtíðarinnar á tírna- mótum sakir umsóknar brezku ríkisstjórnarinnar um að vera tekin inn í Samein- aða markaðinn. Ef fallizt verður á upptökubeiðni þess, hefui enn eitt skref, og hið mikilvægasta, verið stigið fram á við.... Bandaríkjun- um ber að gera grein fvrir stefnu sinni varðandi næstu skrefin, sem þau hyggjast stíga ásamt evrópskum banda mönnum sínum. Og til þess telst að setja fram tillögur í þeim málum, sem Bandaríkin hljóta að hafa forystu fyrir.... Einar þessara tillagna hljóta að vera að ná samkomulagi um og hrinda í framkvæmd áætlun um varnir Evrópu. Áætlunin sjálf og hliðarráð- stafanir varðandi framkvæmd hennar hljóta að vera liðir í tillögum. ^Aðrar tillögur nrundu fjalla um efnahags- nrál og fjármál,---um brott- nám tálmana á vegi við- skipta, sem yrði öllum hin- um frjálsa heimi til hags- bóta, og um samræmingu landsmálastefna í efnahags- málum og fjármálum, eins og nauðsynlegt er til að knýja fram þá aukningu framleiðslu, sem er skilyrði þess, að rnynda megi það umhverfi, sem frjálsar þjóðir Frh. á bls 6. Frjáls þjóð — laugardaginn 30. marz 1963. I 5

x

Frjáls þjóð

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.