Frjáls þjóð - 02.12.1965, Side 6
Blóm afþökkuð
Framhald af bls. 4.
enda fer þar aS verða stutt
yfir í óþarflega langt mál.
Blóm afþökkuð, síðasta
saga bókarinnar, hefði hins
vegar mátt skerast svolítið
niður. Efnið er lítið, og
þótt endalokin séu snjöll,
nægja þau ekki til að upp-
hefja helzt til atkvæðalítið
miðbik sögunnar. Hins veg-
ar nær höfundur sér veru-
lega á strik í sögunni Smá-
bæjarskáld, sögunni um
flatningsmanninn Gunnstein
Helgason skáld, strákinn
hennar Vilhelminu í Beykis-
kofanum, sem ætlaði að
lesa úr verkum sínum fyrir
fólkið í þorpinu og hafði
tekið á leigu samkomuhús
þorpsins í því skyni. Hug-
myndin minnir að vísu svo-
lítið á kafla úr Brekkukots-
annál, en engu spillir það,
og samskipti piltsins við
móður sína og viðhorf hans
til þorpsbúa og sjálfs sín
eru glöggt uppteiknuð, eink
um er niðurlag sögunnar vel
gert. ,,Og ef betur var að
gætt — hann var þess megn
ugur að vekja unað og hrifn
ingu í einni mannssál, svo
að þar risi há bylgja óum-
ræðilegs fagnaðar. Og þó
að honum hefði tekizt að
snerta hundrað sálir á sama
hátt, var það í sjálfu sér
ekki svo stórkostlegur vinn-
ingur. Álit og viðurkenning
samborgaranna var honum
kannski ekki eins mikilsverð
og hann hafði áður álitið.
Það skipti ekki öllu máli
þó að fólk kynni að meta
hann lítils og líta verk hans
smáum augum. Þau voru
sennilega ekkert afbragð
eða sérlega aðdáunarverð.
En hann grunaði að þeirra
yrSi þó lengur minnzt en
þess sem samtíSarfólk hans
í þorpinu talaði og fram-
kvæmdi.
Og honum verSur hugar-
hægra eftir því sem lengra
líSur á lesturinn Beiskjan
og sviSinn, sem skilnings-
skortur og tómlæti fólksins
hafSi bakaS honum, líSur
brott úr huga hans smátt og
smátt. Fyrr en varir hefur ó-
vild hans breytzt í vorkunn-
semi, því aS einhvern veg-
inn er hann sér þess meS-
vitandi að sú vanvirSa, sem
fólkiS hefur gert honum á
þessum degi, muni þegar
fram líða stundir verSa
þeirra eigin smán."
Bókin er snyrtilega gerS,
ANDRÉS auglýsir
NÚ er óþarfi að kaupa fötin erlendis,
því viS bjóðum:
í HERRADEILD
VönduS erlend karlmannaföt á kr. 1.490,00,
1.690,00 og 1.990,00.
Stakir jakkar á kr. 895,00.
Blazer-jakkar (bláir meS gylltum tölum)
drengjastærSir kr. 650,00 til 750,00,
karlmannastærSir kr. 895,00.
Terylenebuxur:
drengjastærSir kr. 495,00 til 565,00,
karlmannastærSir kr. 575,00.
Nælonskyrtur (hvítar, gráar og bláar)
drengjastærSir kr. 150,00,
karlmannastærSir kr. 180,00.
Vetrarfrakkar kr. 1.990,00.
I DÖMUDEILD:
Nælonsloppar kr. 245,00.
VatteraSar nælon nátt-treyjur kr. 295,00
VatteraSir nælon greiSsIusloppar kr. 595,00
og margt fleira.
myndskreytt af Kjartani
GuSjónssyni, og HörSur
Ágústsson hefur sett upp
kápu. Hún er 19. heftiS í
smábókaflokki Menningar-
sjóSs.
Kristinn Jóhannesson.
Ský í buxum
Framhald af bls. 4.
neitt aS velja, þótt þetta sé
engin lausn. Undir bréfiS
skrifaði hann fjórar miSlín-
urnar úr kvæðinu Brot, sem
er síSasta. ljóðiS í bókinni
Ský í buxum. Auk kvæð-
anna Ský í buxum og Brot
eru í bókinni kvæSin TalaS
viS skattheimtumann um
skáldskap og kafli úr
1 50.000.000,00, sem fjallar
um bóndann Ivan, sem meS
hundraS og fimmtíu milljón
höfuS og handleggi eins
langa og Névufljót veSur yf
ir Atlantshaf aS berjast viS
Woodrow Wilson.
Geir Kristjánsson hefur
snúiS kvæSunum á gott ís-
lenzkt mál og skrifar auk
þess nokkurn pistil um höf-
undinn í bókarlok.
Á döfinni
Framh. af bls. 3.
ViS viljum í tilefni af
þessari merku deilu og
grein Jóns AuSuns dómpró-
fasts í Mbl. nýlega, ítreka
mikilvægi þessa máls fyrir
andlega heill þjóðarinnar.
Segir ekki postulinn Páll í
Fyrra Korintubréfi, aS þeir
fyrir kraft hennar hafni
heimsku þessa heims? Af
því leiSir, að hver sá, sem
meStekur heimsku þessa
heims, afneitar þar með pré
dikuninni, guðs orSi og öllu
heila endurlausnarverki
hans. Hins vegar ber aS
virða þá viSleitni kirkjunn-
ar manna aS straumlínulaga
örlítiS miSaldahugmyndir
hennar til þess aS þær kom-
izt inn í hugskot manna og
veiti þeim friS. ÞaS er ein-
mitt eitt helzta viSfangsefni
biskupsins af Woolwich aS
nauSraka gamla kenninga-
reifiS þannig, aS menn nú-
tímans fáist til aS trúa því,'
aS kirkjan eigi erindi til
þeirra. En þar meS lendir
biskupinn í þeim öfgum aS
afneita heimsku prédikunar-
innar og meStaka heimsku
þessa heims. Hann á ekki
afturkvæmt í kenninga- og
goðsagnaheim kirkjunnar.
ÞaS eru haldin böll í kirkj-
unum og kvikmyndir sýnd-
ar, en hinn benjum þjáSi
Kristur er tekinn niður af
Krossinum.
Kirkjunnar menn — hvort
sem þeir eru lúterskir eSa
kaþólskir — verSa aS gera
sér grein fyrir því, aS ef
þeir ætla sér aS láta mann-
leg vandamál til sín taka út
frá grundvelli rökhyggju,
vísinda og nútímaraunveru-
leika — þá verða þeir aS
afklæSast Kristi og játa, aS
allt endurlausnarverkiS sé
bara gamaldags píp, sem
leysi engan vanda. Ef þeir
hins vegar vilja halda fram
kristinni trú, verSa þeir aS
segja: Credo, quia absur-
dum. Ef kirkjan á aS vera
kirkja, verSur hún aS trúa
á guS, og eins og kunnugt
er, þá eru vegir hans órann-
sakanlegir. QuS er æSri og
efri veruleiki og allt stritiS
í táradalnum aSeins for-
skóli fyrir alsæluna í faSmi
hans. Ef kirkjan ætlar aS
yfirgefa þetta sjónarmiS og
fara aS lifa í táradalnum og
hlíta leikreglum \ hans, þá
væri sæmra aS láta allar
goSsagnirnar upp á hillu í
fornminjasafninu og eftir-
láta þaS síSan safnvörSum
aS skýra forvitnum gestum
frá því, hvers konar hégilj-
ur menn festu trúnaS á í
gamla daga til þess aS viS-
halda sálarfriSi sínum.
Nú er beSiS eftir næsta
leik: Ætlar íslenzk kirkja að
leysa sálarkreppu sína meS
því aS varpa Kristi fyrir
borS, eSa ætlar hún aS hafa
orS postulans í heiSri?
Váli.
LET U R
Hverfisgötu 32
Sími 23857
■BBHB»SKSSHE*rw. :
Framleiöum ýmsar tegundir aff leikföngum úr
plasti ogi tré. Sterk, létt og þægileg leikfföng,
jafnt fyrir telpur og drengi. Fjölbreytt úrval
ávallt fyrírlíggjancffi.
Vinnuheimilið að ReykjaSundí
Slmi um Brúarland
Aðalskriffstoffa í Reykfavik
Bræðraborgarstíg 9, Sími 22150
6
Frjáls þjóS — fimmtudaginn 2. desember 1965.