Frjáls þjóð


Frjáls þjóð - 13.10.1966, Qupperneq 4

Frjáls þjóð - 13.10.1966, Qupperneq 4
Rit þýzka utanríkisráðu neytisins, sem gefið er út á ensku (The German View) neyddist til að við- urkenna (19. febr. 1964) að fyrrverandi yíirsaksóknari ríkisins, Dr. Fraenkel, hafi verið „flekkaður nazisti.“ Jafnvel núverandi dóms- málaráðherra sambands- ins,. Dr Ewald Brecher, var meðlimur Nazistaflokks ins og vann fyrir gullmedal iu Hitlersæskunnar.“ Þannig segir í þessari grein eftir Bretann David Milds, en hann er sérfræð- ingur í þýzkri nútimasögu og var frambjóðandi Verka mannaflokksins í síðustu kosningum. Eftirlætisorðtæki póli- tíkusanna í Bonn er að V- Þýzkaland sé gerólíkt Weimarlýðveldinu (1919— 1933). Þeir benda á, að hin ar efnahagslegu forsendur, sem voru gróðrarstía naz- ismans, séu nú allt aðrar; þeir sýna fram á stöðugt stjórnarfar og útrýmingu öfgahreyfinga til hægri og vinstri á þinginu i Bonn og á fylkisþinginu. Þótt þetta sé að vísu aðdáanlegt, er hér samt um að ræða ein- földun staðreynda, ef ekki béina fölsun. Bonn er ekki Weimar. — Engu áð síður er óheilsu- samlegur fjöldi nazista og þjóðernissinna áberandi á öllum sviðum þýzks þjóð- lífs og í þýðingarmiklum' valdastöðum. Eins og New York Times komst að orði: „Skipan fyrrverandi naz- ista í fjölmörg stjórnarem bætti heldur áfram að grafa um sig í Sambands- lýðveldinu eins og smit- andi sjúkdómur.“ Einmitt á þeim stöðum, sem maður skyldi ætla að hinn nýi lýðræðisandi ætti helzt griðland, í háskólun- um, halda die alte Herren miklum völdum (sjá Die Zeit 21/6 ’61) og hin þjóð- ernissinnuðu „bræðralög", hafa mun fleirl meðlimi en „stjórnmálafélög stúdenta. Úr „bræðralögunum" flykkjast þeir umvörpum inn í embættismannastétt- ina, þar sem fjölmennar sveitir nazista sitja fyrir „Die Braune Universitát“ (Munchen 1965) er bók eft ir þýzkan rithöfund, Rolf Seeliger, þar sem kannað er, hve margir fyrrverandi nazistar sitja nú í fremstu röð við þýzka háskóla og æðri stofnanir. Samkvæmt Seeliger unnu mjög margir háskólaborgarar fyrir Hitl er. Hins vegar eru margir úr röðum menntamanna eindregnir andstæðingar nazismans, þ. á. m. rit- höfundar eins og Heinrich Böll, Gunter Gran, Gunter Weisenborg, Erich Kastn- ér og! Hans Werner Risht- er. Af frjálslyndum blöðum sem eru einarðlega í and- stöðu við nazista fyrr og nú má nefna Die Frankfurter Hefte, Die Monat, Die Zeit, Der Spiegel, Konkret. Einn ig ber í þessu sambandi að geta um samtökin Das Deutschc Friedensunion, þótt ekki séu þau fjölmenn. En þessir hópar og þessi rit hafa hvorki skipulagt, fjármagn né aðstöðu til að umbuna sínu fólki á borð við hina „virðulegu herra“ úr hægri klúbbunum og „bræðralögunum.“ Fyrir nokkru"" árum vakti það mikinn úlfaþyt er Martin Sommers. al- ræmdur SS-foringi, var dæmdur fyrir stríðsglæpi, en síðar kom í ljós, að dóm arinn hafði sjálfur verið einn af morðdómurum Hitlers (The Politics of Post War Germany, ed. W. Stahl). Þetta er ekki ein- angraður viðburður, því að „fyrrverandi" nazistar og aðrir hægrimenn hafa jafn an lagt mikla ástundun á lögvísi og eru fjölmennir meðal lögfræðinga. Þegar .1948, rétt eftir nazistahreinsanirnar, — skýrði N.Y. Herald Tribune svo frá (18. nóv.), að 60 prósent dómara á bapda- ríska hernámssvæðinu væru nazistar. Hversu margir nú? Stahl (bls. 24) hefur eftir Fritz Bauer, yfir saksóknara í Hesse, að míili 2/3 til 3/4 hinna 15.000 dómara Sambandslýðveldis ins hafi starfað undir og fyrir Hitler. Þess ber að minnast aö 16.000 dauða- dómar voru kvaddir upp í Þýzkalandi á seinni styrj- aldarárunum (fyrir utan um 10.000 af herdómstól- um), borið saman við 159 í Bretlandi á sama tíma. Rit þýzka utanríkisráðuneytis- ins, sem gefið er út á ensku (The German View) neydd ist til að viðurkenna (19/2 1964) að fyrrverandi yfir- saksóknari riklsins, Dr. Fraenkel, væri flekkaður nazisti („compromised nazi“). Jafnvel núverandi dómsmálaráðherra Sam- bandslýðveldisins, Dr. Ed- ward Mucher, var meðlim- ur Nazistaflokksins og vann fyrir gullmedalíu Hitlersæskunnar (Die Zeit, 5/6, 1964). Þó tók út yfir allan þjófabálk, er forstöðu maður „Alríkisstofnunar til rannsóknar á stríðsglæpum nazista" — sem var sett á laggirnar af rikisstjórninni í Bonn — Dr. Erwin Schute var neyddur til að viður- kenna eftir að Austur-Þjóð verjar höfðu haldið uppi árásum á hann, að hann hefði verið meðlimur í SA- brúnskyrtunum og, seinna meir, háttsettur meðlimur í Nazistaflokknum. (Der Spiegel, 17/2, 1961 og The Guardian sama dag). Eitt hundrað fjörutíu og þrír lögfræðingar voru sett ir á eftirlaun árið 1962, að mestu vegna uppljóstrana frá A-Þýzkalandi. Tveir þeirra höfðu árið 1942 dæmt þýzkan vagnstjóra til dauða fyrir að hafa keypt hanzka, sem stolið hafði verið af herbirgðum. Der Spiegel (8. febr. 1965) seg- ir frá hroðalegum ferli nokkurra Wehrmacht dóm- ara, sem dæmdu fjölda föð urlandsvina í Luxemburg til dauöa á hernámsárun- um, en áttu í engum erfið- leikum með að hljóta, em- bætti og frama í Rheinland Pfalz eftir stríð. 12. júlí 1964 segir sama rit frá því Adenauer að dómsmálaráðherra Rhine Westfalia, dr. Fleh- inghaus, hafi frætt Bonn- þingið um að 10 dómurnra hafi verið vikið úr starfi vegna stríðsglæpa. En sam kvæmt sömu heimild áætla yfirvöld í Bonn að um 60— 70 prósent starfandi dóm- ara í Sambandslýðveldinu hafi kveðið upp dauðadóma fyrir nazista. Þegar einstakir borgar- ar í Vestur-Þýzkalandi sýna það huarekki að fletta ofan af nazistadómurum, rata þeir ekki ósjaldan í vandræði. Dr. Elmar Herter ich, taugasjúkdómasérfræð ingur frá Wuertsburg, af- hjúpaði feril héraðsdómara á staðnum, og saksóknara, dr. Kolbs, á strlðsárunum. Þeir'voru um síðir «et.t.ir af, en dr. Herterich varð að þola sífelldar hötanir hátt settra manna og neyddist að lokum til að flýja land og settist að í Svíþjóð (Die Zeit, 22/2 1963). Þegar þess er gætt, hve margir nazistar hafa hreiðr að um sig í réttarfarskerf- inu, er ekki að undra, þótt fórnarlömb nazismans hafi orðið að þola margvíslega lagakróka og tálmanir í tilraunum sínum til að fá skaðabætur dæmdar. (sbr. Der Spiegel, 13/5 1964). Það þykir ekki tíðindum sæta þótt nazistamorðingjar fái milda dóma eða séu sýkn- aðir. í einu slíku máli á- lyktuðu dómararnir, að fyrrverandi liðsforingi Fischer, gæti vel hafa hald ’ið, að fjörutíu menn, kon- ur og börn, sem voru skot- in til bana að skipun hans í Rússlandi, væru njósnar- ar og skemmdarverka- menn. Fischer var sýknað- ur. (The Guardian, 14/5 1964. Öllu óþokkalegri voru mái tveggja aðstoðar- manna Eichmanns, Krum- eg og Hunsche, sem sáu um framkvæmd flutninga á gyðingum frá Budapest í gasofnana. Hunsche var sýknaður en Krumeg fékk 5 ár. (Der Spiegel, 10/2, 1965). Embættismannaráðin, sem eiga að fjalla um eft- irlaunaréttindi hafa hvað eftir annað gert sig ber að meira örlæti við gamla naz ista en andnazista. Konu hins alræmda forseta hinna svokölluðu „fólks- dómstóla“ nazista, Freis- hers, sem sendu m. a. upp- reisnarherforingjana gegn Hitler 1944 út í dauðann, var skenkt 1000 mörk á mánuði. Ekkja eins her- foringjans sem drepinn var mátti hins vegar gera sér að góðu 170 mörk á mán- uði. (Deutsche Volkszeit- ung, 29. maí 1964). Þetta eru engan veginn einangr- uð dæmi. Meðal þeirra sem nú þiggja rausnarleg eftir laun frá ríkisstjórn Sam- bandslýðveldisins, eru fyrsti yfirmaður sjálfs Gestapo, Rudolf Dills og Herta Ehlert, fyrrum, fangavörður við hinar ill- ræmdu Belsen útrýmiu'rar stöðvar (Helmut Hamm- erschmidt: Der Kurs ist Falsch). „BRÆÐRALAG" NAZISTA í VESTUR-ÞÝZKALANDI 4 Frjáls þjó'S — fimmtudaginn 13. október 1966

x

Frjáls þjóð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls þjóð
https://timarit.is/publication/311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.