Frjáls þjóð - 07.12.1967, Síða 4
ár verið hreppstjóri í sveit sinni, en við lát
hans mun Finnbogi tengdasonur Sólrúnar. hafa
tekið við þeirri vegtyllu. Sýnir það, að Sólrúnu
mun hafa veitzt auðvelt hverju sinni að hafa
nokkur áhrif á sveitarmálefni, j)ar eð allir
menn hennar voru hreppstjórar og ef'tir lát
hins síðasta tók tengdasonur hennar við em-
bættinu.
Arið 1876 er HjÖrtur Líndal talinn í Króks-
fjarðarnesi, en það ár flytzt Elínborg Gísla-
dóttir frá Tindum og norður að Víðidalsá í
Staðarsókn í Strandasýslu. Var Elínborg þá
vanfær eftir Hjört, og 15. júlí 1876 ól hún
dreng, er skírður var Rögnvaldur og talinn
sonur Asgeirs Snæbjörnssonar vinnumanns á
Víðidalsá. Voru þau Elínborg og Asgeir síðan
gefin saman í hjónaband um haustið. Þess er
hér vert að geta. að meðal skírnarvotta. er
Rögnvaldur var skÞður, var Ólafur læknir Sig-
valdason. mágur Ingunnar unnustu Gests
Pálssonar. Má telja líklegt. að barnsfæðing
þessa hafi getað borið á góma milli þeirra Ól-
afs og Gests, er hann var heima veturinn
1877—1878.
Ekki varð barneign þessi orsök neinna stór-
mæla hálfn Sólrúnar. og Elínborg lifði lengi
eftir þetta í farsælu hjónabandi og varð lang-
líf kona.
Sólrúnu mun hafa verið fullkunnugt um
faðemi Rögnvalds, þótt kallaður væri hann
Asgeirsson.
Ekki gekkst þó Hjörtur við þessum syni
sínum fyrr en hann var fermdur. Var Sólrúnu
mjög í mun, að hann kannaðist við þennan
afkomanda sinn.
Af svo mikilli friðsemi sem öll þessi mál
virðast hafa farið fram. dró nú til örlagaríkari
og öllu sögulegri atburða, næst er Hirti Líndal
fæddist erfingi. I prestsþjónustubók Garps-
dals er Hjörtur talinn flytjast 1877 frá Króks-
fjarðarnesi að Felli í Kollafirði í Strandasýslu.
Hóf hann þar búskap og var þar staðarhaldari.
Þess verður hér að geta, að vorið 1876 höfðu
þau hætt búskap á Tindum Finnbogi og IMar-
grét systir Hjartar og flutzt til Reykjavíkur.
Mun þeim hafa vegnað þar miðlungi vel. og
þegar Hjörtur fór að búa í Felli, fór Margrét
til hans sem rúðskona, en Finnbogi var þar í
húsmennsku. Með þeim fluttist úr Reykjavík
Guðbjörg Bjarnadóttir léttastúlka.
Guðbjörg þessi fæddist 18. september 1852.
og var dóttir Bjarna Magnússonar og Guð-
bjargar Jónsdóttur á Stóra-Hrauni í Stokks-
eyrarsókn. Sem Guðbjörg gerðist nú vinnu-
kona hjá Hirti staðarhajdara í Felli, urðu með
þeim tíðleikar slíkir, að Guðbjörg varð barns-
hafandi. Vorið 1878 tóku þau á nýjan leik að
búa á Tindum Finnbogi og Margrét, og mun
Guðbjörg þá hafa farið með þeim þangað. Sá
nú brátt stað kunningsskapar þeirra Hjartar,
og ól Guðbjörg honum son 17. maí 1878. Var
hann skírður Húnbogi.
Guðbjörg var skapmikil og áköf. Dvaldist
hún með bam sitt þar vestra um sumarið.
Vann hún að saumum fyrir Sólrúnu, er þá var
komin að Tindum.
Að áliðnu þessu sumri, meðan ástkonan
sunnlenzka saumaði lín Sólrúnar á Tindum,
festi Hjörtur Líndal ráð sitt. Ivvæntist hann
18. ágúst 1878 Guðfinnu Bjamadóttur frá
Núpsdalstungu í Húnavatnssýslu. Engum get-
um skal hér leitt að hugrenningum hinnar
stórlyndu saumakonu þetta síðsumar. En er
haust fór að, lmgðist hún leita til Reykjavík-
ur og hafa með sér barn sitt. Barnið var um
þessar muudir veikt, og vildi Sólrún. sem var
yfirsetukona og lagin við lækningar, ekki
sleppa því. Bað hún Guðbjörgu að lofa sér að
hafa barnið, unz það væri orðið frískt. Það
vildi Guðbjörg ekki, og sló í allharða nmmu
á milli þeiri’a af þessu efni. Svo lyktaði þeirri
deilu, að Guðbjörg fór með barn sitt. Asakaði
Sólrún sig ætíð síðan fyrir að hafa sleppt barn-
inu sjúku. Kvað hún það ekki mundu þola
ferðalagið.
Það kom og á daginn, að barn þetta varð
ekki langlíft. Elnaði því sóttin við ferðina, og
í prestsþjónustubók Reykjavíkur er sagður
dáinn 14. okt. 1878 Húnbogi Hjartarson,
„óekta ungbarn við Austurvöll (í Waageshúsi)
fætt fyrir norðan, nýkomið hingað “ h jórum
dögum eftir lát barnsins skrifaði Ami Þorsteins
son, síðar prestur, Finni Jónssyni tíðindin til
Kaupmannahafnar, og með þeim klæmna níð-
vísu, sem gárungar Reykjavíkur höfðu sett
saman um Guðbjörgu i tilefni þessarar barn-
eignar. Þá voru þeir Finnur og Gestur herberg-
isfélagar á Garði, og mátti níðið vel verða til
að rifja upp fyrir honum ógæfusögu hinnar
umkomulitlu vinnukonu Sólrúnar á Tindum.
Er nú raunar sögð sú saga, sem mestu máli
skiptir fyrir þessa athugun á fyrirmyndum
Gests að Kærleiksheimilinu.
Af Guðbjörgu er það að segja, að hún flutt-
rt»»»»»>»»»»»»»»»»»»»»»l»»»»»»»»»»»»»»>»»»>»l>»ll»»>»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»
^V.V.'.VAV.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V'.V.V.V.V.V.V.V.V.'i
QLkLc} joLÍ
.3ariœtt
nt
ítt f
ari
☆ ☆ ☆
ZS.
Verkamannafélagið
i
ý.V.WAV.WAV.V.V.V.V.V.VAW.VWW.VW/W.V.VAVWAV.'.
il 5
Cjlekletj jó(!
U'a.ricelt
ny
VIÐSKIPTIN
ítt 1
ar:
í
í
í
V.VVV.VVVV.W.VV.VVVVVVVVVVVVVVVVVVV.VVVVVVVVVVWV.VW.VVVVV
■; s
í J;
— , í
| LANDSBANKIISLANDS }
Austurstræti 11 — Reykjavík — Sími 17780
í I
ÚTIBÚIREYKJAVÍK: ;.
■ ■
=:
I; Austurbæjarútibú, Laugavegi 77, sími 21300. /
Langholtsútibú, Langholtsvegi 43, sími 38090. í;
í; Múlaútibú, Lágmúla 9, sími 83300 j;
jl Vegamótaútibú, Laugavegi 15, sími 12258. »;
Vesturbæjarútibú, Háskólabíói við Hagatorg, sími 11624. v
í.
ÚTIBÚ ÚTI Á LANDI: I;
AKRANESI í
AKUREYRI <
ESKIFIRÐI ;.
GRINDAVÍK Í:
■:
HÚSAVÍK
HVOLSVELLI
ÍSAFIRÐI
SANDGERÐI
SELFOSSI
AFGREIÐSLUR:
KEFLAVÍK
RAUFARHÖFN
ÞORLÁKSHÖFN
I
I:
Bílasala Guðmundar
i ____________________________
V.VVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVVV.VVVVVV.VVV.VVVVVVW.VVVVVVVVVVV’.
■; Annast öll venjuleg bankaviðskipti innanlands og utan.
■:
VV.W.'AVV.VW.VVW.V.V.V.V.VAVV.V.V.V.WAVV.V.W.V
.vvw'
4
^riáls þjóð — JÓLABLAÐ 1967