Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.2005, Side 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. apríl 2005
!
Með tilliti til aðstæðna í hin-
um íslenska menningar- og
listaheimi sé ég mér ekki fært
að halda áfram ritun þeirrar
skáldsögu sem ég hef verið að
vinna að undanfarna mánuði
og mun ég því ekki skrifa
undir útgáfusamning þar að
lútandi.
Eins og þjóð veit því þrír vita þá er
hér átt við þá skáldsögu sem „Túristi“
átti að heita og stóð til að a) fjallaði
um, b) afhjúpaði og c)
gerðist í hinu svokallaða
bókmenntaumhverfi á Ís-
landi, sem í raun sam-
anstendur af þremur
mönnum með hatt og tveimur í fríi,
svo reynt sé að vera með útúrsnúning
og grín. Hér var um svokallaða „tví-
sögu“ að ræða, það er að segja sögu
sem annars vegar segir frá höfundi
sem reynir að skapa sér tilvist með því
að skrifa sjálfan sig inn í þekkt sögu-
svið, og hins vegar sögusvið sem af-
neitar skapara sínum, fellir hann af
stalli höfundarins og étur hann lifandi.
Inn í þetta blandast síðan langdregin
eintöl sálarinnar og einstaka prent-
villur.
Ég hóf ritun sögunnar á jafnræð-
isgrundvelli og án þess að vera til þess
hvattur af alþýðufólki eða menning-
arvitum og ekki í umboði eins eða
neins, hvorki eigin sannfæringar, efa
eða utanaðkomandi niðurrifsafla.
Hef ég ítrekað tranað mér fram og
tjáð mig um bók þessa á óskýran og
sjálfhverfan hátt, einungis til að fá yfir
mig holskeflu vangaveltna, umfjallana
og túlkana ýmiskonar, sem ég hef jafn-
an vísað aftur til föðurhúsanna, en án
árangurs þar sem utanáskrift var
ábótavant. Þrátt fyrir að svona hafi
verið vegið að fjölmiðlapersónu minni
með eðlilegum hætti, skáldsjálf mitt
upphafið með hæpnum fullyrðingum,
hreinum skoðunum haldið á lofti og
mér allt að því hótað frekari umfjöllun,
ákvað ég engu að síður að láta sem allt
undanfarið hafi ekki verið undan eigin
rifjum runnið og rembast áfram eins
og rjúpan við staurinn, með það að
leiðarljósi að það sem ekki geti valdið
mér ritstíflu geri mig bara hrokafyllri.
Í svívirðilegum útúrsnúningi á dokt-
orsritgerð minni um kaffiþamb utan
þéttbýlis, sem birtist í Lesbók, það er
útúrsnúningurinn, það er að segja, og
reyndar doktorsritgerðin einnig, var
því haldið fram að ég a) drykki ekki
bjór og annað áfengi, b) þyrði ekki
einn í sund á Akureyri og c) gerði
hvorki mynd- né vitrænan greinarmun
á jórtrandi sauðfé við jötu annars veg-
ar og bjórsötrandi smásálum við hring-
borð hins vegar, og er svona rógburð-
ur með öllu sannur og langt fyrir
neðan virðingu til dæmis DV, sem ekki
hefði birt svona svívirðu án gruggugra
ljósmynda, nafnalista og frekari að-
dróttana.
Svona ópersónulegar árásir eru mér
ekki að skapi. Þetta var kornið sem
fyllti mælinn.
Hver man ekki eftir sögunni um
manninn sem lenti í því að það sprakk
á bílnum hans og hann rölti að næsta
bóndabæ (Akureyri) til að fá lánaðan
tjakk, en á leiðinni þangað náði hann
að sannfæra sjálfan sig um að bóndinn
(bæjarstjórinn) myndi neita sér um
tjakkinn til láns, og endar sagan þann-
ig að maðurinn æpir fyrirvaralaust á
bóndann: „Þú getur átt þinn helvítis
tjakk!“ En „bóndinn“ skilur ekkert í
þessu, enda var maðurinn einungis
kominn til Dalvíkur en ekki alla leið til
Akureyrar, og eins og allir vita er eng-
inn tjakkur á Dalvík, og hefur aldrei
verið. Svona geta fordómar alið af sér
einelti ef ekki er að gáð.
Ég hlakkaði til að fá að skrifa það
sem mér sýndist um hvað sem væri í
friði og ró minnar skemmdu tilveru,
þar sem ég nýt trausts og er þekktur
fyrir málefnalegan innri hugsanagang.
Það er því með kúk í buxum og
kjökri í hjarta að ég lýsi yfir að vænt-
ingar mínar til eigin yfirburða á sviði
almannahylli voru á misskilningi
byggðar.
Með trega
Eftir Stefán
Mána
stefan.mani
@simnet.is
Höfundur er rithöfundur.
Lesbók Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Þröstur Helgason, throstur@mbl.is Auglýsingar sími 5691111
netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins
ABBA og Carola, Herreys-bræður,Lena Philipson og nú Martin Sten-marck. Íslendingar þekkja sumþessara nafna en ekki öll. Þetta eru
heimilisvinir Svía í gegnum allar Evrópu-
söngvakeppnirnar sem eru þeirra ær og kýr.
Svíar eru sérfræðingar í júróvisjón.
Melodifestivalen er ár-
viss viðburður hér í Sví-
þjóð. Hér færi allt á annan
endann ef þær hugmyndir
heyrðust að júróvisjónlagið yrði valið einhvern
veginn öðruvísi en með forkeppni sem kölluð
er Melodifestivalen. Og það er ekki bara ein
forkeppni heldur fjórar og svo æsispennandi
lokaúrslitakeppni þar sem sigurlagið er valið.
Þetta er allt búið að eiga sér stað hér í Svíaríki
og allt er þetta feikivinsælt sjónvarpsefni þar
sem það er útlitið sem skiptir máli en varla
innihaldið.
Herlegheitin hefjast strax í janúar þegar
blöðin byrja að fjalla um hverjir muni kynna í
sjónvarpsútsendingunum t.d. frá Gautaborg
eða Växjö. Það eru til dæmis þátttakendur frá í
fyrra, þekktir uppistandarar, leikarar eða tón-
listarmenn. Viðtöl við þetta fólk fylla blöðin og
það þykir ekki lítil upphefð að fá að kynna tón-
listarmennina á svið og segja brandara á milli.
Í febrúar er fyrsta forkeppnin og margföld
íbúatala Íslands límist fyrir framan sænska
skjái og dillar sér í takt við nútíma Diggiloo.
Stemning. Á hverju laugardagskvöldi fjórar
vikur í röð velja áhorfendur tvö lög í úr-
slitakeppnina og nokkur fá m.a.s. annað tæki-
færi í sérstökum samnefndum þætti.
Hápunkturinn er úrslitakeppnin í Globen í
Stokkhólmi í mars. Hún er eiginlega mikilvæg-
ari en sjálft „Schlager-EM“ eins og Svíar kalla
aðalkeppnina sem haldin verður í Kiev í Úkra-
ínu þetta árið. Og þótt ég hafi misst af Globen í
sjónvarpinu hef ég upplifað keppnina í gegn-
um aðra fjölmiðla.
Martin Stenmarck og lagið Las Vegas voru
sem sagt valin til að keppa í Kiev fyrir hönd
Svíþjóðar 21. maí. Og Svíarnir eru bara nokk-
uð ánægðir held ég. Honum er ekkert endilega
spáð sigri en frændur okkar eru álíka ánægðir
með sig og Íslendingar þegar kemur að Evr-
ópusöngvakeppninni. Í Göteborgs-Posten er
Stenmarck sagður skera sig úr og hann fær
næsthæstu einkunn á eftir eistneskri stelpna-
hljómsveit sem keppir fyrir Sviss og sést á
myndum í bolum merktum Icelandair. Hnatt-
væðing í hnotskurn.
Maður þarf nefnilega ekkert að vera sviss-
neskur til að keppa fyrir Sviss eða sænskur til
að keppa fyrir Svíþjóð eins og sannaðist í for-
keppnunum þar sem talsvert fór fyrir ensku-
mælandi fyrrverandi poppstjörnum. Í Kiev
keppir líka Norðmaður fyrir Finnland og Svíi
fyrir Grikkland. Lagahöfundarnir eru það sem
málið snýst um þótt annað gæti virst miðað við
alla áhersluna á flytjendur, framkomu þeirra,
frammistöðu og útlit, hvort sem er í Svíþjóð
eða annars staðar. Í GP er líka minnst á Selmu
sem er sett í þriðja sæti ásamt fleiri flytj-
endum.
Þetta er allt voða skemmtilegt og allir farnir
að hlakka til 21. maí hér eins og á Íslandi. Mel-
odifestivalen og Schlager-EM á einhvern sér-
stakan sess í hjarta Svía. Enda ekki nema von
eftir alla ABBA-söguna. Veturinn yrði tómur
án Melodifestivalen. Tómarúmið núna frá
mars og fram í maí er nógu mikið. Til að
minnka tómarúmið á haustin er búið að finna
upp Lilla Melodifestivalen sem er vettvangur
yngri kynslóðarinnar. Á haustmánuðum troða
krakkar og unglingar upp með tónsmíðar sínar
og er það næstum orðið að jafnstórri skemmt-
un og fullorðinskeppnin. Og úrslitakeppni á
Evrópuvísu er í burðarliðnum.
Slagarakeppnin hefur gengið eins og smurð
í sænsku sjónvarpi og Svíarnir kunna þetta
greinilega. Nú er Svíi orðinn yfirmaður Evr-
ópusöngvakeppninnar. Sá vann áður hjá
sænska ríkissjónvarpinu og er einmitt sá sem
átti hugmyndina að fyrirkomulaginu með fjór-
ar forkeppnir og eina úrslitakeppni sem hefur
hlotið hylli sjónvarpsáhorfenda. Það verður
hans hlutverk að endurvinna hylli annarra
áhorfenda í Evrópu með einhverri svipaðri
formúlu, þar sem annað sjónvarpsefni eins og
Idol er farið að stela áhorfendum frá Júró-
visjón. Það á nú aldrei eftir að gerast í Svíþjóð.
Sænskir slagarar
’Slagarakeppnin hefur gengið eins og smurð í sænskusjónvarpi og Svíarnir kunna þetta greinilega. ‘
Eftir Steingerði
Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
Áundangegnum árum hefur margsinnis verið talað um að bókmennt-irnar séu orðnar að sjálfskapandi kerfi. Hins vegar datt engumtískumenningarvitanum í hug að líkja ríki skáldskaparins við sjálfs-
þurftarbúskap í sveit: Rafmagnið kemur frá dísilmótor í nálægum skúr,
sauðfjárrækt sér um að framboð á næringarefnum sé fullnægjandi og við-
hald fjölskyldunnar í fámenninu er í nauðum tryggt með sifjaspellum.
Skáldskapurinn sem smáalheimur af holdi og blóði sem verst aðsókn eyð-
ingaraflanna með öllum ráðum – líklegast verður maður að koma frá land-
nemalandi eins og Íslandi til að sjá að hjarðsæl heimkynni skáldskaparins
geta líka leynst í harðneskjuheimi landbúnaðarins. Það kemur vissulega á
óvart að sjá skopmyndateiknarann, málarann og rithöfundinn Hallgrím
Helgason bregða sér í líki landbúnaðarhagfræðings, en það er ekki síður
óvænt að sjá að hinn 600 síðna doðrantur Höfundur Íslands er í öllum grein-
um fullkomin andstæða skáldsögunnar vinsælu 101 Reykjavík. Þar reisti
Hallgrímur hinum náttúrufirrta eðalslæpingja og dekadent borgarhetju tí-
unda áratugarins verðugt minnismerki sem reyndar var höggvið í íslenskt
eldfjallagrjót, eins og fram kemur í bókarlok. Þar situr hetjan ein með fjar-
stýringuna sína úti í hrauni. […]
Hallgrímur fer hér í lopapeysuna og smitar textann með fjósalykt og
fiskifýlu en það er ekki gert til að lesendum sem eru orðnir vanir borg-
arsögum bregði. Hér er heldur ekki á ferð menningarþreytt smáskáld sem
prédikar bókmenntalegt afturhvarf til náttúrunnar. Höfundur Íslands er
annað, hún er hylling á íslenskri bókmenntasögu: Hún lýsir hvernig heims-
vís fagurfræði nútímaskáldskapar etur stöðugt kappi við ósveigjanlegt
raunsæi sveitanna, en í þeim liggja rætur íslenskrar menningar.[…]
Undir lok bókarinnar gefur svo Hallgrímur í botn og sýnir glögglega
hversu stórkostlegur írónisti hann er. Meira að segja borgarfríkið hans
birtist á ný, nú sem skopstæling „með tyggjó í trantinum, ormatónlist í eyr-
unum, klámmyndir fyrir augunum, kraftalyf í blóðinu og bjánaglott á vör“.
En lesandinn kemur ríkari til baka eftir langa dvöl í grýttum heimkynnum
sagnamennskunnar. Því þegar allt kemur til alls eiga sögur borganna líka
þangað rætur að rekja.
Andreas Rosenfelder
Frankfurter Allgemeine Zeitung
www.edda.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Íslenskur strúktúralisti.
Hallgrímur
í lopapeysunni
I Í upphafi er allt upprunalegt, segir JeanBaudrillard og í kjölfarið kemur rök-
leiðsla sem fær suma til að kalla þennan
Fransmann fáráðling frekar en fræðimann:
Veröldin á sér ekkert jafngildi. Þessi full-
yrðing gæti verið skilgreining á veröldinni.
Hún gæti líka verið skilgreiningarvandi
hennar í hnotskurn. Veröldin á sér ekkert
jafngildi, engan tvífara, enga táknmynd,
enga spegilmynd. Speg-
illinn myndi vera hluti af
veröldinni sjálfri hver svo sem hann væri.
Og það er ekki nægilegt rými fyrir bæði
veröldina og tvífara hennar. Sökum þessa er
ekki til nein staðfesting á því að veröldin sé
til. Þetta er ástæðan fyrir því að „raunveru-
leikinn“ er blekking. Veröldin er tálsýn þar
sem það er ekki hægt að staðfesta að hún sé
til. Þessi óvissa um tilveru veraldarinnar
hefur lengi verið eitt af meginviðfangsefnum
mannsandans sem hefur átt erfitt með að
trúa því að það væri eitthvað til fyrir utan
hann sjálfan – orðið ver-öld er jú hugtakið
maður tvítekið. Margir hafa styrkst í trúnni
en aðrir veita því stöðugt meiri athygli
hvernig maðurinn vinnur jafnt og þétt að því
að ræna veröldina upprunaleikanum. Fjallað
er um veldi hins tilbúna táknheims manns-
andans í grein Jóns Karls Helgasonar á mið-
opnu Lesbókar í dag.
II Ef lýðræði þýðir að lýðurinn eigi að ráðaþá hlýtur það að vera andlýðræðislegt að
lýðurinn megi ekki andmæla ráðagerðum
ráðamanna, jafnvel þótt þeir hafi verið lýð-
ræðislega kjörnir til þess að ráða fyrir mál-
um lýðsins. Eða er það ekki allt að því
óþægilega afhjúpandi dæmi um umskipti á
ágætri hugmynd að setja fólki stólinn fyrir
dyrnar í kerfi sem snýst um almenning og
er á allan hátt haldið uppi af almenningi?
Nei, það er eins og að hafa sporð fyrir haus
þegar manni er sagt að mótmæli – og jafn-
vel þótt það séu harkaleg mótmæli – hins al-
menna vinnandi manns séu óþörf og meira
að segja algerlega óæskileg afskipti af því
hvernig hlutirnir eiga að vera. Og þá vaknar
enn einu sinni spurningin sem ennþá hefur
ekki tekist að svara svo vel sé: Hverju á rík-
ið að ráða? Fjallað er um ríkið í grein Torfa
H. Tuliniusar á baksíðu Lesbókar í dag.
III Við erum afurð fortíðarinnar, sagðiforveri Baudrillards í franska stór-
skotaliðinu, Michel Foucault. Í hugsunum
okkar og orðum býr allt það sem þegar hef-
ur verið sagt og gert. Spurningin er að geta
bætt einhverju við. Til þess þarf að þekkja
hefðina til hlítar. Sjö rithöfundar skrifa um
helsta áhrifavald sinn á næstu opnu. Á for-
síðunni eru birt nöfn áhrifavalda í listum og
menningu. Þar vantar mörg nöfn, eitt þó
sérstaklega.
Neðanmáls