Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.2005, Qupperneq 15

Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.2005, Qupperneq 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. apríl 2005 | 15 Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri: BeCool Vélmenni  (SV) In Good Company Darkness Smárabíó Vélmenni  (SV) In Good Company Hitch  (SV) Spanglish BeCool Regnboginn Der Untergang The Oxic Avenger Hotel Rwanda The Door in the Floor The Woodsman Laugarásbíó In Good Company Vélmenni  (SV) Gríman 2: Sonur grímunnar  (SV) Meet the Fockers  (SV) Sjóræningjar á Saltkráku Danny The Dog Vanity  (HL) Háskólabíó The motorcycle diaries Maria Full of Grace Don’t Move A Hole in my Heart Million Dollar Baby  (HJ) Life Aquatic  (HL) Les Choristes  (SV) The Mother The Life and Death of Peter Sellers The Mayor Sunset Strip Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri Boogeyman Svampur Sveinsson m/ísl. tali Svampur Sveinsson m/ensku tali The Ring Two  (HL) Coach Carter  (HL) The Life Aquatic  (HL) Constantine  (SV) Bangsímon og Fríllinn  (SV) Miss Congeniality2  (SV) The Life and Death of Peter Sellers The Pacifier Million Dollar Baby  (HJ) Myndlist Artótek Grófarhúsi: Að- alheiður Valgeirsdóttir sýnir. Til 10. apríl. Árbæjarsafn: Í hlutanna eðli – stefnumót lista og minja. Til 5. júní. Banananas | Metorðastiginn – Tinna Kvaran sýnir. Energia Smáralind: Mál- verkasýning aprílmánaðar. Ólöf Björg. FUGL, Félag um gagnrýna myndlist : Anna Hallin – Hugarfóstur – kort af sam- tali. Til 17. apríl. Gallerí Gangur: Haraldur Jónsson. Afgangar. Gallerí Dvergur: Baldur Bragason. Skúlptúrar. Stend- ur til 23. apríl. Gallerí i8: Hrafnkell Sigurðs- son. Til 30. apríl. Gallerí List: Daði Guðbjörns- son kynnir ný olíumálverk í Hvíta sal. Gallerí Sævars Karls: Regína Loftsdóttir sýnir olíumálverk máluð á striga. Gallerí Tukt: Erna Þorbjörg Einarsdóttir – Verk unnin með blandaðri tækni. Gerðuberg: Ljósberahóp- urinn – Hratt og hömlulaust. María Jónsdóttir – Gull- þræðir. Til 22. apríl. Klippi- myndir, verk úr muldu grjóti, olíumálverk og fleira í Bog- anum. Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir (Gugga) sýnir málverk í forsal. Hafnarborg: Jóhannes Dags- son opnar sýninguna „End- urheimt“, 9. apríl kl. 15. Á sýningunni eru verk unnin með blandaðri tækni. Til 9. maí. Sýningin Sögueyjan – Íslandsmyndir danskra og ís- lenskra málara í 150 ár, opn- uð 9. apríl. Til 9. maí. Hallgrímskirkja: Vignir Jó- hannsson. Sólstafir. Hoffmannsgallerí í Reykja- víkurAkademíunni: Á sýn- ingunni Þverskurður af mál- verki eru verk eftir u.þ.b. 30 listamenn. Sýningin stendur yfir til maíloka. Hrafnista Hafnarfirði: Gerða Kristín Hammer sýnir akríl- myndir og fleiri listmuni í Menningarsal á fyrstu hæð. 101 gallery: Helgi Þorgils Friðjónsson myndlist- armaður opnar sýninguna „Skáhalli tilverunnar (Theo van Doesburg, Goya og aðr- ir)“, 9. apríl kl. 17. Til 8. maí. Kaffi Sólon: Birgir Breiðdal – eitt verk, ekkert upphaf né endir. Kling og Bang: Guðrún Ben- ónýsdóttir, Lars Laumann og Benjamin Alexander Huseby opna sýninguna „Atlantic Inclusions“, 9. apríl kl. 17. Íslensk grafík | Nikulás Sig- fússon, vatnslitamyndir. Listasafn ASÍ: Helgi Þorgils Friðjónsson. Olíumálverk og skúlptúrar unnin í leir og máluð með olíulitum. 9. apríl kl. 14. Listasafn Íslands: Íslensk myndlist 1930–1945. Rúrí – Archive – Endangered wat- ers. Listasafn Kópavogs – Gerð- arsafn: Fjórar glerlistasýn- ingar. Stendur til 1. maí. Listasafn Akureyrar: Erró. Jónssonar. Slunkaríki: Jón B.K. Ransu – Virðingarvottur til staðgeng- ilsins: Hluti I – Kenning um skynjun. Suð-suðvestur, Reykja- nesbæ: Ásmundur Ásmunds- son. Thorvaldsen: Ásta Ólafs- dóttir – Hugarheimur Ástu. YZT Gallerí: Kristín Þorkels- dóttir – Nánd. Elísabet Olka – Svipir. Þjóðminjasafnið: Ljós- myndasýningarnar Í Vest- urheimi 1955 – ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Ís- lendingar í Riccione – ljós- myndir úr fórum Man- fronibræðra. Til 5. júní. Leiklist Austurbær: Ávaxtakarfan, sun. Borgarleikhúsið: Alveg brilljant skilnaður, fim, fös. Draumleikur, lau. sun. fim. Riðið inn í sólarlagið, fim. fös. Segðu mér allt, lau. Svik, lau. Terrorismi, fös. Hugleikur: Patatz, lau. Loftkastalinn: Ég er ekki hommi, lau.fös. Þjóðleikhúsið: Koddamað- urinn, mið. fim.Grjótharðir, lau. fim. fös. Klaufar og kóngsdætur, sun. Mýrarljós, lau. fös. Til 6. maí. Listasafn Reykjanesbæjar: Erlingur Jónsson og sam- tímamenn. Til 24. apríl. Listasafn Reykjavíkur – Ás- mundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Nían – Mynda- sögumessa. Brynhildur Þor- geirsdóttir – Myndheimur. Til 24. apríl. Listasafn Reykjavíkur, Kjar- valsstaðir: Markmið XI Hörður Ágústsson – Yfirlits- sýning í Vestursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson – Markmið XI í miðrými. Kjarval í Kjar- valssal. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Bára ljósmyndari – Heitir reitir. Stendur til 22. maí. Norræna húsið: Farfugl- arnir, sýning sex norrænna myndlistarmanna frá Finn- landi, Danmörku og Íslandi. Til 24. apríl. Nýlistasafnið: Egill Sæ- björnsson og Magnús Sig- urðsson – Skitsófrenía – Skyssa og Frenía – Skits og Frenja. Leen Voet – Limbo. Til 10. apríl. Safn, Laugavegi 37: Ingólfur Arnarsson og listamenn frá Pierogi-galleríinu. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms REGÍNA Loftsdóttir er útskrifuð úr mál- aradeild Myndlista- og handíðaskólans 1998 og kennaramenntuð frá LHÍ 2003. Að því er ég best fæ séð er þetta fyrsta einkasýning Regínu. Myndefni hennar er af andlegum toga, myndskreyting á hugmyndum um æðri verur, fengnum að mestu leyti úr bókunum Hvíta bræðralagið – Helgistjórn jarðarinnar og Þráðurinn gullni. Fjögur stór málverk eru á sýningunni og nokkur minni. Stóru mál- verkin þrjú af þeim Kwan Yin, Hinni hvítu Töru og Ísis náðu mest til mín, þær eru góð- legar og mildar og minna á Maríu mey með barnið. Nú þekki ég ekki fræði þau sem nefnd eru hér að ofan og vitnað er til í sýn- ingarskrá en það skiptir varla meginmáli, það er túlkunin sem hér er til skoðunar. Hlutverk þessara þriggja kvenvera felst í verndun mæðra og barna, þetta eru eins konar helgi- myndir. Fjórða stóra málverkið sýnir Þöglan varðmann og er ekki eins markvisst og kven- myndirnar þrjár. Regína málar með olíulitum en blandar þá með einhverju grófkornóttu, ek. sandi. Litirnir eru mattir og eykur það á jarðtengingu myndanna en gullinn bak- grunnur skapar helgiblæ. Nokkur minni mál- verk eru einnig á sýningunni, sömuleiðis ímynduð portrett af helgum verum. Það er svonefnd Helgistjórn jarðar sem hér birtist og hefur yfirbragð barna og geimvera. Um þessa Helgistjórn segir í sýningarskrá að eru ljúfar myndir og það hvílir yfir þeim kyrrð og ró. Að mínu mati þjónar það litlum tilgangi að setja verk sem þessi undir mæli- ker samtímalista, markmið þeirra er einfald- lega annað, sem um leið veltir upp þeirri spurningu hvort Gallerí Sævars Karls sé hentugasti sýningarstaður þeirra. Það gæti samt verið að hér komi einmitt saman efnið og andinn og ef til vill eru við- skiptavinir Sævars vænlegir kaupendur, enda er hér um fallegustu myndir að ræða þó að markmið þeirra sé ekki framsækin rannsókn á möguleikum málverksins. Stefnumót efnis og anda Ragna Sigurðardóttir Ekki framsækin rannsókn „Að mínu mati þjónar það litlum tilgangi að setja verk sem þessi undir mæli- ker samtímalista, markmið þeirra er einfaldlega annað.“ MYNDLIST Gallerí Sævars Karls Til 20. apríl. Opið á verslunartíma. Málverk, Regína Loftsdóttir Morgunblaðið/Árni Torfason hún sé Bræðralag sem er ríki í áru hnattar- ins, nefnt kærleika- eða viskuríkið og vinni að velferð jarðar og mannkyns. Í ríki þessu eru þúsundir vera en fáar þeirra þekktar með nafni. Mér líst bara vel á hugmyndina um slíkt ríki og megi þeir vera sem flestir sem vernda okkur og börn okkar daga og nætur. Þegar litið er á tilgang þann sem málverk af þess- um toga þjóna er varla annað um þau að segja en að þau séu ágætlega gerð og gefi fólki hugmyndir að styðjast við þegar tilvist okkar og gátur hennar eru hugleiddar, vænt- anlega út frá fyrrgreindum fræðum. Þetta DREIFA þurfti fjölda aukastóla á hádegistón- leikunum í Hafnarborg á miðvikudag sakir bullandi aðsóknar þrátt fyrir norðangarrann. Elín Ósk Óskarsdóttir hafði forfallazt á síðustu stundu, og hljóp Ólafur Kjartan Sigurðarson því í skarðið. Í stað boðaðra óperuaría eft- ir Mozart, Verdi og Puccini komu aríur eftir efst- greinda höfunda, og kynnti Ólafur sjálfur megininntak söngtextanna. Á boðstólum voru fimm söngvar um ástina frá ólík- um sjónarhornum. Piacer d’amor eftir Martini, kontrapunktkennara Mozarts í Bologna, er kunnari undir franska heitinu Plaisir d’amour, enda flutti Ólafur hann á frönsku; hægt og innilega í samræmi við angurværa eftirsjá. O del mio dolce ardor eftir Gluck var einnig tregafull aría, tónsviðsfrek að auki og sungin af sterkri tilfinningu. Sama gilti um Donizetti- aríurnar þrjár úr Don Pasquale, þótt ást- arharmur viki fyrir réttlátri (að maður segi ekki þórðarglaðri) reiði í Lu trademiento og blíðskaparyndi í La conocchia á annars furðu- breiðum tjáningarskala. Hin kunni ástarvals sama höfundar, Amore marinaro, var gáska- fullur og kraftmikill, sem og raunar und- angengnu atriðin, og hefði að ósekju mátt hafa flygillokið á hálfopnu í stað lægsta ops, því söngþróttur Ólafs dugði stærstu óperuhúsum og vel það. Ólafur sýndi frábær leikræn tilþrif með söngnum, ekki sízt þegar efnið snerti ein- hverja kómíska hlið, þó að staka hátónn virtist ofurlítið þvingaður. Enda var oft óþarflega mikið gefið í, líkt og til að fylla jafnvonlausan söngsal og Gamla bíó, í stað þess að nýta sér mun hagstæðari hljómburð Hafnarborgar til fulls og ágóða fyrir fíngerðustu blæbrigðin. Á móti var söngstílsvörumerki Ólafs – að „forslá“ fyrsta atkvæði stakra áherzluorða, og hnykkja á endasamhljóðum í hendingalok (du- lítið eins og fyrir ofstuðning) – hófstilltara en stundum áður. Fór vel á því, enda sterkt krydd og hætt við að trufli í stórum skömmtum. Antonia Hevesi fylgdi söngvaranum eins og skuggi með nánast lýtalausum en safaríkum píanóundirleik. Undirtektir voru með bezta móti og framkölluðu enn aðra aríu úr óperu Donizettis um gamla nirfilinn sem aukalag við bráðskemmtilega hádegistónleika. Heitar ástir í kuldakasti TÓNLIST Hafnarborg Óperuaríur eftir Martini, Gluck og Donizetti. Ólafur Kjartan Sigurðarson barýton, Antonia Hevesi píanó. Miðvikudaginn 6. apríl kl. 12. Hádegistónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Ólafur Kjartan Sigurðarson EFTIR seinustu myndir byggðar á handriti og framleiddar af franska kvikmyndamógúlnum Luc Besson, dró ég lappirnar á eftir mér á leið- inni á Danny the Dog. Ég bjóst við enn einni kvikmyndinni sem hvorki heldur vatni né vindi. En Danny the Dog er ekki alveg svo slæm. Hún segir frá Danny sem hefur verið alinn upp sem slagsmálahundur af Bart nokkrum frá því í æsku. Bart er glæpon í Glasgow sem lætur Danny berja hvern þann til óbóta sem ekki borgar Bart. Líf Dannys breytist hins vegar til muna þegar hann kynnist blindum píanóstilli sem á unga frænku í píanónámi. Með Jet Li í aðalhlutverkinu má vænta glæsi- legra bardagaatriða og þau fær maður. Þau eru flott, frumleg og spennandi. Jet Li er sannkall- aður bardagasnillingur. Það sem ég kunni svo afskaplega vel við var að bardögunum var stillt í hóf, þeir voru fáir en flottir. Þess á milli er Danny the Dog drama mikið og frekar væmið, með kunnuglegu stefi um tamningu villta barnsins. Reyndar er dramað grunnt og ekki jafn vel heppnað og bardagahlutinn. Þannig verður myndin eiginlega hvorki almennileg bar- dagamynd né drama. Persónur myndarinnar eru mjög grunnar og ófrumlegar. Það er villimaðurinn sem drepur án tilfinninga og litla sæta saklausa stelpan í sokkaleistunum, með einlægt bos og koss á kinn. Það er vondi glæponinn og góði mentor- inn. Einhvern veginn minntu þær mig á aðra og betri mynd Bessons – frá þeim dögum þegar hann vandaði enn til verka og lét ekki einungis gróðasjónarmið ráða ferðinni – Léon. Í þeirri mynd voru persónurnar mun dýpri, áhugaverð- ari og þar af leiðandi betur leiknar. Bob Hosk- ins nær að standa sig vel í hlutverki Barts, en Morgan Freeman og Kerry Condon eiga erf- iðara með að gera eitthvað úr sínum væmnu hlutverkum sem píanóstillirinn Sam og píanó- neminn Viktoría. Jet Li er bara ágætur sem Danny, þótt seint verði sagt að hann sé hæfi- leikaríkur leikari. Tónlist Massive Attack og slagsmálaatriðin voru ljósu punktarnir í mynd sem annars er bæði væmin og ófrumleg. Fríða og dýrið Jet Li og Bob Hoskins í Danny The Dog. KVIKMYNDIR Regnboginn, Smárabíó og Laugarásbíó Leikstjórn: Louis Leterrier. Handrit: Luc Besson. Kvikmyndataka: Pierre Morel. Tónlist: Massive At- tack. Aðalhlutverk: Jet Li, Morgan Freeman, Bob Hoskins og Kerry Condon. BNA/Frakkl./Bretl./ Hong Kong. Europa Sales 2005. Danny the Dog  Hildur Loftsdóttir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.