Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.2005, Síða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.2005, Síða 4
4 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 5. nóvember 2005 við Háskóla Íslands undanfarið? Hefur ljóðið nægilega mikið vægi í kennsluskrá bók- menntafræðinnar og íslenskudeildarinnar sem þið kennið við?“ Sveinn Yngvi: „Ég held ekki. Ég held að ljóðið hafi ekki notið sín sem skyldi í skóla- kerfinu, hvorki í háskólanum né á öðrum skólastigum. En vonandi er það að breytast og bókinni er einmitt ætlað að vekja athygli á því hvað ljóð eru í raun fjölbreytilegt við- fangsefni. Og það er kannski engin tilviljun hvað þau höfða enn sterkt til okkar. Ég held að hvað ljóðið varðar, náttúrusýn og fleira þá lifum við á eftirrómantískum tíma. Með því er ég ekki að halda því fram að ljóðið hafi sömu stöðu nú og á nítjándu öld, ég tel að svo sé alls ekki. En við leitum til ljóða á eftirróm- antískan hátt. Við búumst við því að ljóðið segi okkur eitthvað um heiminn.“ Ástráður: „Já, ég held að það sé rétt að við erum að mörgu leyti enn börn rómantík- urinnar. Það kemur til dæmis fram í því að við neitum að gefa frumleikann upp á bátinn sem er rómantískt einkenni.“ Sveinn Yngvi: „Við höldum enn í fjöl- margar hugmyndir rómantíkurinnar, um frumleikann og hina einstöku sýn, snillinginn, höfundarmiðjuna og fleira.“ Ástráður: „Ég held reyndar að við þurf- um að horfa lengra aftur þegar ljóðið er ann- ars vegar. Það er erfitt að öðlast skilning á bókmenntahefð nema með hliðsjón af ljóðinu. Mikið af bókmenntum fyrri tíma er í bundnu formi og það skiptir máli hvernig þeim hefur verið miðlað inn í nútímann, frumleiki þýð- endanna skiptir máli. Í grein minni í bókinni kemur Helgi Hálfdanarson við sögu en hann er eitt aðalljóðskáld síðari hluta tuttugustu aldar á Íslandi, ekki síst í krafti þess hvernig hann miðlar til okkar öllum þeim hefðum sem hann hefur fengist við í þýðingum sínum.“ Sveinn Yngvi: „Ég held við eigum róm- antíkinni mjög margt upp að inna. Við notum hugtakaforða hennar nánast án þess að gera okkur grein fyrir því. Við köllum þessa bók Heim ljóðsins sem er mjög rómantískur titill, minnir á tilhneig- inguna til að líta á ljóðið sem lífræna heild, á skáldskapinn sem heim út af fyrir sig. Það kann að vissu leyti að vera gott að styðjast við þessa orðræðu nítjándu aldarinnar en það kann líka að byrgja okkur sýn að einhverju leyti.“ Dagný: „Framúrstefnuhreyfingarnar á tuttugustu öldinni reyndu að brjótast undan þessum hugmyndalega og fagurfræðilega arfi rómantíkurinnar en uppreisnin var ekki alltaf eins róttæk og hún virtist vera. Menn tókust til dæmis ekki á við kynjatví- hyggjuna og héldu áfram að „feðra“ skáld- skapinn.“ Ástráður: „Já, það reynist erfitt að losna við „höfundinn“, jafnvel í ljóðum þar sem tungumálinu er sundrað í einstök stafatákn eða brugðið á leik með því að raða stöfunum í mynd á blaði.“ Dagný: „Útilokun kvenna bæði úr hefð- bundinni ljóðlist og uppreisnargjörnum skáldahópum hefur verið notuð til að skýra að þær leituðu frekar í prósa og náðu heil- miklum áhrifum þar þó að framúrskarandi skáldkonur hafi náttúrlega alltaf verið til.“ Ástráður: „Ljóðið sjálft er líka lífseigt. Fólk heldur til dæmis fast í þá hefðbundnu hugmynd að ljóðið geti miðlað lífsreynslu á ögurstund.“ Blm.: „Það er reyndar merkileg þversögn að á sama tíma og nánast allir virðast vera að yrkja, ekki síst þegar mönnum finnst þeir þurfa að tjá tilfinningar sínar, þá seljast ljóðabækur mjög illa.“ Dagný: „Er það satt? Ef maður er svo heppinn að hafa ferðast um í útlöndum með Ingibjörgu Haraldsdóttur þá veit maður ekki fyrri til en íslenskir aðdáendur eru komnir og segjast sofa með ljóðabækur hennar á nátt- borðinu og vitna í ljóð eftir hana eins og ekk- ert sé sjálfsagðara. Það mætti halda að ljóða- bækur hennar seldust í 250 þúsund eintökum.“ Sveinn Yngvi: „Það er oft sagt að ljóðið geymi minningar, það sé sameiginlegur minn- ingabanki okkar. En svo er líka talað um það sem einskonar sjálfshjálpartæki, það geti hjálpað í sorg og neyð. Þetta kemur fram í ýmsum greinum bókarinnar.“ Ástráður: „En það eru líka einhver tengsl á milli þessa hlutverks og hins út- breidda viðhorfs að ljóðið sé spariform, fag- urfræðilegur hlutur sem ekki er hluti af hinni hversdagslegu bókmenntareynslu.“ Blm.: „Ljóðið er ekki lengur deiluefni eins og það var um og eftir miðja síðustu öld þeg- ar formbyltingin svokallaða ætlaði allt um koll að keyra.“ Ástráður: „Nei, en þetta tengist kannski frekar viðtökum ljóðsins. Ljóð eru auðvitað til í allri breidd og lengd, allt frá mjög formlegri tjáningu til talmáls eða jafnvel spjalls og þau gefa ítrekað tilefni til umræðna. Kannski erum við orðin of feimin að ræða ekki bara um heldur við ljóðið.“ Dagný: „Ég held að þetta sé enn arfur frá rómantíkinni að ljóðið sé dýpri eða sannari tjáning en prósinn, ljóðið spretti úr hug- arfylgsnunum og sambandi okkar við æðri máttarvöld og segi því satt. Þetta er kannski skylt viðhorfi okkar til barnsins sem sé hreint og saklaust og því eins konar sjáandi, það sjái það sem sé öðrum hulið eins og barnið í sögu H.C. Andersens um Nýju fötin keisarans.“ Blm.: „Tengsl ljóðsins við tónlistina skiptir kannski máli í þessu samhengi líka, að það sé fremur tjáning á tilfinningu en skynsemi. Því hefur til dæmis verið haldið fram að prentið hafi drepið ljóðið, það sé ekki hægt að kveða á hvítum pappír.“ Sveinn Yngvi: „Já, það er stundum litið á ljóðlistina sem eins konar tilfinningaflæði eða tónlist sálarinnar, en svo eru auðvitað til annars konar ljóð, ekki endilega ljóð sem eru að öllu leyti ort með höfðinu heldur ljóð sem eru ekki eins sönghæf ef svo má að orði kom- ast. Ég held að samtímakveðskapur eigi að ýmsu leyti uppruna sinn annars vegar í ímag- ismanum, knöppum ljóðum þar sem myndin er látin segja allt sem segja þarf, og hins veg- ar hefð mælskulegs flæðistíls suður- evrópskra eða rómanskra skálda eins og Lorca og Neruda. Snorri Hjartarson og Gyrðir Elíasson eru dæmi um hið fyrrnefnda en hjá mörgum skáldum má finna hvernig þessar tvær hefðir koma saman, til dæmis hjá Vilborgu Dagbjartsdóttur, Matthíasi Johann- essen og Sigurði Pálssyni. Vilborg yrkir jap- anskar tönkur en hún kann líka að láta ljóðið flæða.“ Dagný: „Mér þykir þetta forvitnileg kenn- ing en það má þó benda á að samband mynd- ar og ljóðs er eiginlega jafngamalt ljóðinu: Ut pictura poesis, sagði Hóras, eins og myndin svo er ljóðið. Þröstur nefndi samband tónlist- ar og ljóðs áðan en það má segja að ljóðið hafi verið í átakasambandi við myndina alveg frá upphafi.“ Sveinn Yngvi: „En ég vildi nú einna helst leggja áherslu á þessa tvo meg- instrauma í samtímaljóðlist, knöppu myndina og flæðið.“ Ástráður: „Ég veit ekki hvort þú nærð utan um ljóð nútímans með þessari kenningu þótt ég sé hrifinn af henni. Ezra Pound orti til dæmis frægt ljóð í tveimur línum um neð- anjarðarlestarstöð en hann orti líka geysilega orðmörg ljóð. Við getum líka nefnt Eyðiland Eliots og Tímann og vatnið eftir Stein Stein- arr sem er vissulega myndasafn, einnig Dymbilvöku Hannesar Sigfússonar og fleiri ljóðabálka sem virðast sprengja þessa tví- hyggju utan af sér.“ Sveinn Yngvi: „Þetta er ekki tvíhyggja í merkingunni andstæðuhugsun heldur tvær rætur eða tveir straumar í nútímaljóðinu sem renna oft saman. Tíminn og vatnið er í raun röð myndrænna smáljóða þó að þetta birtist sem ljóðabálkur. Eliot yrkir saman brot, að minnsta kosti í Eyðilandinu, en svo getur hann líka ort streymandi ljóð.“ Ástráður: „En með því að yrkja eins kon- ar brotasafn þá nær Eliot að skapa þennan heim heildarinnar sem þú varst að tala um áðan, og það er kannski eina leiðin til þess að endurspegla heiminn. Frægar lokalínur Eliots vísa einmitt til þess að í rústunum safnar maður saman brotunum og býr til úr þeim það sem maður getur. Og hvað með frá- sagnarljóðið sem á sér mikla hefð? Líður það undir lok?“ Sveinn Yngvi: „Ef þú átt við hið breiða epíska ljóð þá er það ekki mjög áberandi síð- ustu tvær aldirnar eða svo. Annars eru mörk- in milli sögu, leikrits og ljóðs oft mjög óljós. Forn skáldskapur sem við köllum jafnvel ep- ískan er oft settur fram í ljóðaformi. Þannig að það er erfitt að setja ljóðið á einhvern bás. Þessi tenging við tónlistina, sem Þröstur nefndi áðan, gengur síðan þvert á allar grein- arnar og gerir málið enn flóknara.“ Dagný: „Ég held reyndar að söguljóðið, ljóð sem segir sögu, hafi lifað áfram í ball- öðunni og þaðan yfir í fjöldamenninguna. Dægurlagatextar voru afar epískir eins og frægt er orðið, „Won’t you wear my ring aro- und your neck“, sem Presley söng, breyttist í Lóu litlu á Brún sem segir dramatíska sögu um flutninginn úr sveit í borg á Íslandi, átök kynjanna og neysluvæðingu þjóðarinnar. Þar er söguljóðið orðið að alþýðumenningu.“ Sveinn Yngvi: „Mér finnst þetta já- kvætt. Ég held að ljóðið hafi að vissu leyti gengið í endurnýjun lífdaga í dægurmenning- unni eða afþreyingarmenningunni, gömlu sagnadansarnir eða ballöðurnar til dæmis í söngvum Megasar og fleiri tónlistarmanna. Það hefur líka verið litið á rapp í ljósi alþýðu- hefðar fyrri alda, þulukveðskaparins. Áhyggj- ur manna af lífi ljóðsins eru því óþarfar, ljóðið er spriklandi í þessum menningarkimum.“ Blm.: „En talandi um mörk ólíkra bók- menntagreina þá hefur það verið lenska und- anfarin ár að skáld yfirgefi ljóðið og snúi sér að skáldsagnaritun. Þetta virðist vera algeng- ara nú en fyrir fimmtíu árum þegar hrein- ræktuð ljóðskáld, ef svo má segja, voru tals- vert mörg. Hver er ástæðan fyrir þessu?“ Sveinn Yngvi: „Þetta er afkomuspurn- ing.“ Ástráður: „Ef þetta er afkomuspurning, var það þá ekki þannig áður? Eða hefur skáldsagan svona mikið markaðslegt aðdrátt- arafl?“ Blm.: „Segir þetta hugsanlega eitthvað um innri styrk ljóðsins sem bókmenntagreinar nú um stundir, nær hún ef til vill ekki utan um tímann?“ Dagný: „Höfundar vilja ná út, bæði ungir og eldri, og það er þulið aftur og aftur að eng- inn lesi ljóð. Ég held að þetta hafi áhrif, ekki síst á ungt fólk. Það skrifar annaðhvort ekki ljóð eða skrifar kannski ljóð á ensku.“ Ástráður: „Það verður reyndar að nefna skáld eins og Jónas Þorbjarnarson og Sig- urbjörgu Þrastardóttur sem hafa sinnt ljóð- inu fyrst og fremst, það gildir einnig um Sig- urð Pálsson og Ágústínu Jónsdóttur, ásamt svo ýmsum eldri ljóðskáldum. Og Gyrðir Elí- asson hefur sýnt fram á það hvernig ljóðið og sagnagerðin geta vaxið fram hlið við hlið.“ Sveinn Yngvi: „Mér þykir að minnsta kosti óþarfi að leggja mikla áherslu á að menn séu á æðisgengnum flótta frá ljóðinu. Ég vil skilgreina ljóðið vítt. Mjög margt af því sem við verðum vitni að í samtímamenningu er ljóðrænt með einhverjum hætti, bæði í poppi, rokki og jafnvel í auglýsingum. Ljóðið á ekki að vera heilagt form í útgefinni bók heldur megum við alveg tala um ljóðið sem hið ljóðræna í samfélaginu. Grein Eiríks Guð- mundssonar um bókmenntaástand samtímans í Lesbók fyrir nokkrum vikum var til dæmis bullandi póesía í bland við fræði. Til hvers ættum við að aðgreina þessa hluti.“ Ástráður: „Hagmælska virðist líka í sókn; stakan eða lausavísan blómstrar víða, en ein grein bókarinnar fjallar einmitt um hana.“ Blm.: „Tölvupósturinn hefur hleypt nýju lífi í vísnagerð, það er augljóst til dæmis bara á fjölmennum vinnustað eins og Morg- unblaðinu þar sem fólk er að kveðast á um ólíklegustu málefni með tölvupósti.“ Ástráður: „Og svo við höldum áfram með ljóðrænuna, þá er hún líka frumefni í mörgum skáldsögum. Sumir skáldsagnamenn, ekki síst bahktínistar, kunna að líta á ljóðið sem eina þeirra bókmenntagreina sem skáldsagan hafi svelgt í sig. En það má líka horfa úr hinni átt- inni. Nefna má rithöfunda eins og Thor Vil- hjálmsson sem er að sumu leyti skrifandi ljóðskáld samfellt á tugum síðna í sögum sín- um. Einnig Guðberg Bergsson sem á marga fallega ljóðræna spretti sem hann síðan gref- ur gjarnan undan með andljóðrænu.“ Sveinn Yngvi: „Ég held við megum ekki heldur binda okkur við hið hefðbundna ljóða- form, það þurfi að vera á miðri síðunni og skipt í línur og svo framvegis.“ Ástráður: „Getum við ekki brugðið á ráð framúrstefnumanna, klippt nokkur orð út úr dagblaði og sett í hatt sem við síðan drögum ljóðin upp úr?“ Sveinn Yngvi: „Já, því ekki það, tilvilj- unin getur verið ljóðræn.“ Ástráður: „Og líklega er ljóðið talsvert tengt hinu óvænta.“ Blm.: „En að lokum, hvað segið þið um ungu skáldin. Eysteinn Þorvaldsson gagn- rýndi ungu skáldin í viðtali í Lesbók fyrir skömmu: „Þau yrkja um hversdagsleikann og einkalífið. Mér þykir vanta ástríðu í þennan kveðskap, skaphita, afstöðu en kannski er slíkt ekki lengur í tíðarandanum,“ sagði Ey- steinn. Hann talar líka um að ljóðformið sé í kreppu, ungu skáldin virðist ekki finna leiðir til að breyta því, laga það að nýjum tíma, nýj- um viðfangsefnum. Eruð þið sammála þessu?“ Sveinn Yngvi: „Þetta er gagnrýni sem áður hefur verið viðhöfð á tuttugustu aldar skáldskap. Það hefur verið talað um skort á lífsháska. Þorsteinn frá Hamri fjallar um þetta í ljóði sínu Jórvík þar sem nútímaskáld- ið fer halloka fyrir Agli Skallagrímssyni í samanburði á háskalegu líferni. En ég held að í ljóðum ungra skálda nú um stundir sé lífs- háskinn kannski ekki á yfirborðinu. Mér sýn- ist að í ljóðagerð tuttugustu aldar, alveg fram til loka kalda stríðsins, ef því er þá lokið, sé atómsprengjan undirtexti, kannski ekki endi- lega sprengjan sjálf heldur hvers kyns vá og gereyðingarógn. Þessi ógn birtist stundum í myndmáli en oftast sem hið hálfsagða eða ósagða. Á yfirborðinu er afskaplega hljótt en það á líka við um örvæntingu yfirleitt. Ég held því að það sé margt í hinni hljóð- látu ljóðagerð, hinum knöppu myndrænu ljóð- um til dæmis, brotaljóðunum eða þagnarljóð- inu, sem við komum ekki svo auðveldlega auga á. Ég held að atómskáld sé hrollkennt réttnefni á þeirri kynslóð en kannski líka síð- ari kynslóðum ljóðskálda.“ Dagný: „Ég held að Eysteinn sé eins og margir fræðimenn og raunar listamenn af hans kynslóð að tala út frá ákveðnu hand- verki og tilfinningu sem tilheyrði módernist- unum, fágaðri naumhyggju og skarpri tilfinn- ingu fyrir myndmáli, vánni undir og heimsendahljóminum sem hann Sveinn Yngvi var að lýsa. Ég tel að ungu skáldin í dag séu að vinna út frá allt annarri fagurfræði og það sé ekki rétt að segja að þau vanti þetta og hitt. Þeirra heimsendahljómur er allt annar en módernistanna. Sú kynslóð sem er að yrkja núna er undir áhrifum fjöldamenning- arinnar, kvikmynda, tölvuleikja, annarra og samsettari tjáningarforma en eldri skáld. Mér þykir þessi skáld vera mjög áhugaverð til dæmis Haukur Ingvarsson og Kristín Ei- ríksdóttir svo tvö séu nefnd. En þau verður að skoða út frá öðrum viðmiðum en klassískri tuttugustu aldar fagurfræði.“ Ástráður: „Ég ætla ekki að svara þessu beint en ég held það sé erfitt að dæma skáld af fyrstu verkum þeirra. Ef ég má koma aftur að höfundarhugtakinu sem við hófum þetta spjall á, þá má ekki síður spyrja hvað komi fram í æviverki skálds. Ég held að það eigi við um mörg ljóðskáld á tuttugustu öld að ljóðið sem lífsverkefni skipti öllu máli. Þegar skáldið hefur ort sig í gegnum lífið kemur í ljós einhver merkingarheimur. Pound er aug- ljóst dæmi, Ted Hughes líka, og maður getur fylgst með hvernig þetta er að gerast hjá Sea- mus Heaney, Þorsteini frá Hamri, Ingibjörgu Haraldsdóttur, Gyrði Elíassyni og fleirum. Ég held það séu gríðarlega mikil menning- arleg verðmæti í þeirri lífssýn sem birtist í æviverki ljóðskálda og þess vegna held ég að það sé mikill skaði ef skáld eru í auknum mæli að hverfa frá ljóðinu.“ Morgunblaðið/Þorkell Sveinn Yngvi, Dagný og Ástráður Þau ræða meðal annars um arf rómantíkurinnar, veldi höfundarins og ljóðrænuna í samfélaginu.Ljóðið er lífseigt

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.