Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.2005, Qupperneq 13

Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.2005, Qupperneq 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 5. nóvember 2005 | 13 Þegar Bruce Springsteen sendi frá sér sínaþriðju breiðskífu, plötuna Born to Run, áárinu 1975, áttu margir vart orð til aðlýsa hrifningu sinni. Platan vakti strax mikla athygli og Springsteen komst á forsíðu beggja vikuritanna Time og Newsweek á sama tíma. Það var augljóst að þetta var eitthvað sem skipti máli, og þeir höfðu svo sannarlega rétt fyrir sem spáðu því að Springsteen myndi verða einn af mikilvægari tónlist- armönnum komandi ára. Born to Run er án efa merk- asta plata Springsteen og jafnframt ein af allra bestu plötum rokksins. Fyrir rokkáhugamann eins og þann sem hér skrifar jafnast fátt á við gott gítarstef sem gengur í gegnum lag. Það var einmitt það sem vakti athygli á Springsteen og þessari plötu hans síðla sumars fyrir þrjátíu árum. Gítarstefið í titillaginu er þannig að eftir því er tekið, það er einfalt, seiðandi og frá- bærlega útfært með flottu sándi, sem minnir á viss- an hátt á hljóðvegg Phil Spector, því þarna er fullt af hljóðfærum. Enda kom á daginn að Springsteen var þrjá og hálfan mánuð að taka upp þetta eina lag. Eitt af því skemmtilega við vínyl-plöturnar í gamla daga var að það þurfti að snúa þeim við. Hvernig skyldi seinni hliðin vera? Betri en sú fyrri? Þetta er liðin tíð með geisladiskunum. Nú líður hver plata bara áfram þangað til hún er búin. Þá er gott að eiga Born to Run á vínyl, þrátt fyrir smá- vægileg aukahljóð vegna mikillar spilunar. Engin leið er að gera upp á milli hliða eitt og tvö á Born to Run. Á hvorri um sig eru fjögur lög. Fyr- ir utan að vera flott rokklög eru textarnir sér- staklega sterkir, eins og einkennt hefur það sem Springsteen hefur sent frá sér allar götur síðan. Textarnir við lögin á Born to Run eru litlar sög- ur. Þetta er allt eitthvað sem við þekkjum um sam- skipti fólks, nokkuð sem oft hafði verið samið um áður, en Springsteen gerir með sínum sérstaka hætti. Þarna eru strákar sem krúsa um á amerísk- um krómuðum köggum og bjóða stelpum far, róm- antík, hættur næturinnar og væntingar um betra líf. Og heiti laganna segja til um innihaldið; Thun- der Road, Night, Backstreet, o.s.frv. Þetta minnir á margt, svo sem James Dean, Bob Dylan og West Side Story, en þó var eitthvað splunkunýtt við Born to Run. Plötuumslag Born to Run er sérstaklega skemmtilegt. Springsteen með Telcaster-gítarinn, sem hefur alla tíð verið hans einkenni, hallar sér upp að öxlinni á manni og horfir út úr myndinni. Þegar umslaginu er snúið við sést að það er saxó- fónleikarinn Clarence Clemons sem Springsteen er að halla sér upp að. Það er eins og hann sé að sýna hvað hljómsveitin sem hann hefur lengst af starfað með, The E Street Band, skiptir miklu máli. Hinn 15. nóvember næstkomandi mun Col- umbia-útgáfufyrirtækið gefa út sérstakan þriggja diska kassa í tilefni af því að þrjátíu ár eru liðin frá útgáfu Born to Run. Auk plötunnar sjálfrar verður þar í DVD-diskur með tónleikum Springsteen og The E Street Band í Hammersmith Odeon- tónleikahöllinni í London frá árinu 1975. Þá verður í kassanum annar DVD-diskur, heimildarmynd um gerð plötunnar Born to Run. Það er alltaf svo gam- an að hlakka til einhvers skemmtilegs sem er í vændum. Krúsað um með vindinn í hárið Poppklassík Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is RY Cooder hefur alla tíð einkum veriðþekktur á meðal pælara og það varekki fyrr en Buena Vista SocialClub-platan kom út árið 1997 að al- menningur komst í tæri við nafn þessa fjölhæfa gítarleikara. Og varla þá, þar sem nafninu er ekki beint haldið á lofti heldur var Cooder í bakgrunni eins og oft áður og gegndi þar hlut- verki einsslags tónlistarstjóra. Enginn, síst Cooder sjálfur, sá fyrir þær gríðarlegu vinsæld- ir sem sú plata átti eftir að njóta. Áhrif plötunnar náðu út fyrir það að geta einfaldlega af sér frábæra tónlist, segja má að Cooder hafi stuðlað að mik- ilvægri menningarsögulegri endurreisn og -skoðun með plötunni og bullandi pólitík lá leynt og ljóst undir niðri. Nýjasta plata Cooder, Chavez Ravine, lýtur svipuðum lögmálum og í fyrsta skipti í langan tíma stígur hann fram fyrir tjöldin en á umslaginu stendur „Chavez Ravine – A Record by Ry Cooder“. Síðasta sólóplata Cooder var Get Rythm frá 1987 þar sem þemað var rannsóknir á mismunandi tökt- um og stemmum og allt virðist þetta bindast saman því að Chavez Ravine er og þemaplata; hugmyndafræðilegt, sögulegt og rammpólitískt verk sem er glæsilega útfært af Cooder og hans fólki. Niðurbrot Chavez Ravine er heiti á litlu þorpi sem stóð í útjaðri Los Angeles í eina tíð. Það var byggt mexíkóskum innflytjendum og um 300 fjöl- skyldur lifðu þar fram á miðja síðustu öld – eða þar til borgaryfirvöld í L.A. straujuðu yfir svæðið með jarðýtum svo hægt væri að koma fyrir hafnarboltaleikvangi, heimavelli L.A. Dod- gers (þá Brooklyn Dodgers, liðið flutti vestur þegar því bauðst þessi líka fíni völlur). Hin öm- urlega og klisjukennda setning „íþróttir eru af hinu illa“, sem er vinsæl á meðal sjálfskipaðra „antisportista“, fær aðra og óhugnanlegri merkingu í þessu samhengi. Chavez Ravine var sjálfbært samfélag, geitur ráfuðu um strætin og íbúar framleiddu eigin mat auk þess að sjá um rekstur á skólum, kirkjum og þess háttar. Árið 1949 ákváðu borg- aryfirvöld að tími væri kominn á byggingu verkamannablokka og var Chavez Ravine- svæðið, sem var álitið vera skítugt fátækra- hverfi, m.a. ætlað undir þær. Íbúum var gert að flytja í burtu en var lofað forkaupsrétti að nýju íbúðunum. Þremur árum síðar voru allir farnir. En íbúðirnar voru aldrei byggðar. Frank Wilk- inson, yfirmaður verkefnisins, var dreginn fyrir rétt (McCarthyisminn var á fullu um þetta leyti) og kærður fyrir „óameríska“ hegðun. Honum var óðar stungið í steininn en það að ætla að bjóða fólki upp á ódýrt húsnæði var álitið argasti kommúnismi. Eftir þetta fjaðrafok læddu Dodgers sér svo inn á svæðið. Cooder er fæddur og uppalinn í Los Angeles og með plötunni grandskoðar hann þá tónlist og menningu sem nærri honum lá í uppvext- inum. Cooder hefur ferðast um allan heim sem tónlistarmaður og lagt fyrir sig stíla frá Afríku, Kúbu, Hawaii og Asíu en þetta er í fyrsta skipti sem hann gefur bakgarðinum almenni- lega auga (eyra). Vinna við plötuna tók allt í allt þrjú ár og varð að þráhyggju hjá Cooder, hann sökkti sér á kaf í rannsóknir á svæðinu og sögu þess til að geta dregið upp sem nákvæm- asta mynd á plötu. Cooder tekst listavel að mála upp mynd af þorpsstemningu, reglugerða- brölti, spillingu og sveittri klúbbastemningu, allt innan þess ramma sem einn geisladiskur leyfir. Það er í raun stórmerkilegt hversu vel hann nær að fanga anda þessa tímabils og færa hlustandanum hann svo gott sem ljóslifandi. Platan rennur í gegn án þess að hiksta, er eins og nokkurs konar ljúfur dagdraumur (með stöku martraðarinnskotum). Chavez Ravine einkennist af sorgbitinni eftirsjá og angurværð; lífsgleði, fegurð og ískaldri mannvonsku, allt í senn. Reynsla og hæfileikar Cooder stuðla að þessari vel heppnuðu útkomu og platan virkar á mörgum sviðum; er tilfinningaleg rennireið auk þess að vera sögulegt plagg, pólitísk ádeila og það sem kannski mestu máli skiptir á end- anum, æði forvitnileg tónlistarlega. Metnaður Lögin fimmtán eru í bland tökulög og frum- samin lög og er þeim haglega raðað saman svo vel sé hægt að segja söguna. Sú tónlist sem ríkjum réð í austurhluta L.A. fyrir fimmtíu ár- um síðan var mexíkósk dægurtónlist á borð við „conjunto“ og „corrido“ sem blandað var við rytma og blús, sveifludjass, búggí vúggí og fleira. Þessa stemningu laðar Cooder svo fram með hjálp frá mönnum sem voru á staðnum. Við sögu kemur Little Willie G., sem leiddi sveitina The Midniters á sjöunda áratugnum en hún var ígildi Bítlanna í austurhluta L.A. á þeim tíma. Þá syngur Lalo Guerrero, faðir chic- ano-tónlistarinnar, nokkur lög og annar frum- kvöðull, Don Tosti (pachuco-tónlist), kemur einnig við sögu. Inni á milli eru svo tilrauna- kenndari lög, sveimkennd og löng stykki þar sem meðal annars má greina túvískan barka- söng! Cooder er með allar klær úti svo að þessi metnaðarfulla plata megi ganga vel upp. Þegar rætt er um hugmyndafræðileg verk („concept“) í tengslum við popp fer iðulega um fólk. Chavez Ravine er hins vegar skínandi skært dæmi um að ef kórrétt er haldið á spöð- um eiga slík vinnubrögð fyllilega rétt á sér. Íþróttir eru af hinu illa Ferill gítarleikarans Ry Cooder spannar yfir fjörutíu ár og á þeim tíma hefur hann sinnt æði fjölbreyttum störfum, bæði sem sólólistamaður og verktaki. Eftir að hafa sinnt baktjaldavinnu um átján ára skeið sneri hann aftur í sumar með „Ry Cooder“-plötu sem fengið hefur einróma lof gagnrýnenda. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Ry Cooder „Chavez Ravine er og þemaplata; hugmyndafræðilegt, sögulegt og rammpólitískt verk sem er glæsi- lega útfært af Cooder og hans fólki.“ Vestur í Bandaríkjunum hefurallsérstök þróun átt sér stað sem margir eru að velta fyrir sér þessa dagana. Snýst hún í megindráttum um aðdrátt- arafl eldri tón- listarmanna og yngri þegar kemur að tón- leikum en und- anfarin ár hef- ur það gerst að á sama tíma og ungir lista- menn á borð við Aliciu Keys, Nick- elback og Black Eyed Peas sitja einir á toppi vinsælda- og plötulista eru það hinir eldri og reyndari tón- listarmenn sem ríkja sem ókrýndir kóngar tónleikahallanna. Uppselt hefur verið á alla tón- leika McCartney og Stones und- anfarna mánuði, jafnvel á þeim tónleikum þar sem miðaverð í sæti slagaði hátt í 500 dali, og nú gerð- ist það á dögunum í fyrsta skipti í bandarískri tónlistarsögu að hljóm- sveitin Eagles spilaði fyrir fullum leikvangi í Los Angeles, tólf kvöld í röð.    Á sama tíma og yngri tónlist-armenn eiga að meðaltali þrjú topplög sem þeir geta spilað á tón- leikum, þá eigum við um… úff… þrjú hundruð,“ sagði McCartney nýlega að- spurður um ástæðuna. „Það krefst nokkurrar hæfni að leika fyrir framan mik- inn fjölda og þessi hæfni verður ekki numin á einni nóttu. Sú kvöl og sú pína, sem við höfum gengið í gegnum til að komast á þann stall sem við erum á í dag, borgaði sig á endanum.“ Margir þeirra sem vinna í tón- listariðnaðinum eru þegar orðnir áhyggjufullir vegna þessarar þró- unar því að ef fer sem horfir gæti tónleikaiðnaðurinn kolfallið eftir tíu til tuttugu ár þegar þessir öld- ungar ákveða að leggja skóna á hilluna.    Yngri sveitum á borð við GreenDay, Dave Matthews Band og Coldplay hefur að vísu gengið mjög vel á tónleikaferðum sínum á þessu ári miðað við hið magra ár 2004 en jafnvel þessi bönd og önnur, sem reyna eftir fremsta megni að stilla miða- verði í hóf, blikna í samanburði við þau eldri. Sam- kvæmt spá Billboard-listans um tekjur tónlistarmanna af tónleika- haldi mun hljómsveitin Dave Matt- hews Band fá meira en 64 milljónir dala í heildartekjur af 73 tón- leikum. Paul McCartney mun á hinn bóginn hala inn rúmar 80 milljónir dala á einungis þrjátíu og sjö tónleikum. Ef litið er aftur til ársins 2000 hafa tónleikavinsældalistar verið einokaðir af eldri tónlistarmönnum á borð við Bruce Springsteen, Tinu Turner, U2, McCartney, Eagles, Fleetwood Mac og Rolling Stones. „Þessir listamenn eiga margar kynslóðir aðdáenda,“ segir Alex Hodges, einn stjórnenda House of Blues-tónleikakeðjunnar. „Eins lengi og fólk heldur áfram að kaupa Dark Side of the Moon, Legend Bob Marleys eða Jimi Hendrix-plötur, þá eiga þessir listamenn eftir að vera stórir. Og þegar þeir koma fram, þá eru þeir líka tilbúnir að vinna.“ Erlend tónlist Alicia Keys Coldplay Paul McCartney

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.