Morgunblaðið - 06.01.2005, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR 2005 D 3
FORRÁÐAMENN úrvalsdeildarliðs
Grindavíkur í körfuknattleik hafa
komist að samkomulagi við banda-
ríska leikstjórnandann Taron Bark-
er en hann er 24 ára og lék með
Cincinnati-háskólanum á sínum
tíma. Barker er viðbót í leik-
mannahóp Grindavíkur en miðherj-
inn Terrel Taylor er í herbúðum
liðsins en í desember fékk Darrel
Lewis íslenskt ríkisfang, en hann er
að hefja sitt þriðja tímabil með
Grindavík. Í reglum KKÍ er aðeins
leyfilegt að hafa tvo leikmenn utan
EES, og gátu Grindvíkingar því
bætt einum bandarískum leikmanni
í lið sitt þar sem Lewis er nú með
tvöfalt ríkisfang.
Grindavík var með Justin Miller
og Lewis í sínu liði í upphafi keppn-
istímabilsins en Miller óskaði eftir
því að fá að fara frá liðinu vegna al-
varlegra veikinda sem komu upp í
fjölskyldu hans. Að auki var talið að
Helgi Jónas Guðfinnsson yrði með
Grindavík í vetur en meiðsli í baki
hafa gert honum erfitt að æfa með
liðinu. Kristinn Friðriksson lék og
þjálfaði með Grindavík í upphafi
leiktíðar en honum var sagt upp
störfum og tók Einar Einarsson við
þjálfun liðsins.
Borgnesingar hafa sagt upp
samningi sínum við miðherjann
Nick Anderson en hann lék 8 leiki
með liðinu fyrir áramót en hélt til
síns heima í jólafrí. Skallagríms-
menn hafa ekki enn fengið leik-
mann í stað Anderson en leit að eft-
irmanni hans stendur nú yfir.
Taron Barker í Grindavík –
Nick Anderson er farinn
vorum manni færri að stórum
a í síðari hálfleik og það gerði
ur erfitt um vik,“ sagði Viggó
urðsson við Morgunblaðið eftir
nn. Hann tók sem dæmi um
a dómgæslu norska dómarap-
ns að Róbert Gunnarsson hefði
ð rifinn niður í ákjósanlegu færi
nunni á lokakafla leiksins. „Hann
bara eftir að skora en þá var
md lína á Róbert, þeir bruna fram
kora.“
iggó var ánægður með breiddina
enska landsliðinu þar sem margir
menn létu að sér kveða í sókn-
iknum í stað þess að einn maður
drægi vagninn. „Það fengu allir að
spila í leiknum en við komumst að
samkomulagi við Svíana um að nota
alla leikmenn hópsins í þessum leik
og voru sextán leikmenn því á
skýrslu.“
Í dag mun íslenska landsliðið fara
yfir leikinn á myndbandi og telur
Viggó ágæta möguleika á því að
leggja Svía að velli í Skövde. „Að
mínu mati lékum við mjög vel. Vörn-
in virkaði mjög vel en við verðum að
finna lausnir á því að stöðva sænsku
hraðaupphlaupin. Að auki eru lyk-
ilmenn á borð við Ólaf Stefánsson og
Guðjón Val Sigurðsson langt frá sínu
besta og þeir geta breytt miklu í síð-
ari leiknum. En ég er alls ekki ósátt-
ur við leik okkar, það var mjög
margt jákvætt í honum, en eins og
áður segir átti þetta ekki að falla
okkar megin að þessu sinni. Það voru
aðrir en við sem stýrðu því,“ sagði
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari.
ynd/Berndt Wennebrink
mörk í leiknum.
rgt mjög
kvætt“
ði yfirhöndina gegn Svíum í
lt þar til í síðustu sókn leiks-
kið fimm sekúndum fyrir
einum leikmanni fleiri á vell-
sað af leikvelli skömmu áður
n vallar en Svíar voru alls 6
SKRAUTLEGT mark sem
Roy Carroll, markvörður
Manchester United, fékk á
sig gegn Tottenham í ensku
úrvalsdeildinni í fyrrakvöld
hefur enn og aftur vakið
upp umræður um hvort nýta
skuli tæknina til að skera úr
um vafaatriði í knattspyrn-
unni. Pedro Mendes skaut
að marki Manchester Unit-
ed frá miðjum velli, Carroll
missti boltann klaufalega
yfir sig og hann var greini-
lega kominn langt inn fyrir
marklínuna þegar Carroll
náði að sópa honum í burtu.
Aðstoðardómarinn var ekki
nægilega vel á verði og því
sluppu Carroll og Manchest-
er United með skrekkinn.
Leikurinn endaði 0:0, ekki
1:0 fyrir Tottenham eins og
niðurstaðan hefði væntan-
lega orðið ef markið hefði
staðið, því atvikið átti sér
stað á lokamínútu leiksins.
Knattspyrnustjórar beggja liða, Mart-
in Jol hjá Tottenham og Alex Ferguson
hjá Manchester United, lýstu því yfir í
viðtölum eftir leikinn að þeir vildu að
upptökur yrðu notaðar til að skera úr í
vafaatriðum eins og þessum.
„Ef einhvern tíma hafa komið fram
rök fyrir því að nota myndbandsupptök-
ur í knattspyrnunni, þá komu þau fram í
kvöld. Það á að vera hægt að komast að
niðurstöðu á hálfri mínútu, svipuðum
tíma og það tekur að taka hornspyrnu
eða markspyrnu, svo það ætti ekki að
tefja leikinn. Í svona tilvikum er ekki
hægt að áfellast aðstoðardómarann eða
dómarann. Aðstoðardómarinn var á
hlaupum í áttina að markinu en sá þetta
ekki,“ sagði Ferguson. Hann vildi reynd-
ar frekar benda á atvik fyrr í leiknum
þar sem Rio Ferdinand var felldur, inn-
an vítateigs að mati Fergusons, en dæmd
var aukaspyrna utan teigsins.
„Þetta er til skammar, nú er árið 2005
og næg tækniþekking til staðar í heim-
inum. Það er tími kominn til að nýta sér
hana. Við vorum rændir tveimur stig-
um,“ sagði Martin Jol, knattspyrnustjóri
Tottenham.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem um-
ræða á borð við þessa kemur upp. Segja
má að hún hafi hafist árið 1966 þegar
Englendingar skoruðu markið umdeilda
í úrslitaleik HM gegn Vestur-Þjóðverj-
um á Wembley – mark sem flestir telja
eftir endalausar endursýningar að hefði
ekki átt að standa. Hún lætur á sér
kræla í hvert skipti sem umdeilt atvik á
sér stað við marklínurnar – þegar deilt
er um hvort boltinn hafi farið allur inn
fyrir línuna eða ekki.
Vissulega er tæknin til staðar. Það er
hægt að fara eftir myndbandsupptökum,
og það er líka hægt að koma fyrir raf-
eindabúnaði á mörkum, sem segir til um
hvort boltinn hafi farið allur inn fyrir
marklínuna. En það væri óheillaspor
fyrir knattspyrnuna, að mínu mati, að
fara inn á þá braut.
Knattspyrna er einfaldur leikur með
einföldum reglum sem hafa tekið til-
tölulega litlum breytingum í gegnum ár-
in. Þetta er vinsælasta íþróttin sem
stunduð er á jarðarkringlunni og að-
dráttaraflið sem hún hefur á unga sem
aldna er nánast kynngimagnað. Og stór
þáttur í því er öll sú umræða sem á sér
stað þegar leik er lokið. Um frammi-
stöðu liða og leikmanna, um ákvarðanir
dómarans, og um öll þau umdeildu atvik
sem eiga sér stað.
Ef tæknin verður tekin fram yfir
mannsaugað hverfur einn af þessum
skemmtilegu vinklum á knattspyrnunni.
Þeir sem verða fyrir umdeildu atvik-
unum, eins og Tottenham í þessu tilviki,
verða að sjálfsögðu sárir á þeirri stundu
en til lengri tíma litið jafnast þetta út.
Það tapa allir eða græða einhvern tíma á
þessu. Dómarar og aðstoðardómarar
eiga að hafa úrskurðarvaldið áfram,
mistökin sem þeir gera eru ómissandi
hluti af leiknum og allri þeirri umræðu
sem honum fylgir.
Svo gengur ekki að setja reglur eða
gera tæknilegar breytingar á dómgæslu
sem ekki er hægt að framfylgja á öllum
stigum íþróttarinnar. Reglurnar í fót-
boltanum eru þær sömu, hvort sem við-
komandi leikur er í ensku úrvalsdeild-
inni eða í 4. flokki á Íslandi. Þannig á
þetta að vera. Það er ekki nokkur leið,
og verður aldrei hægt, að koma fyrir
upptöku- eða rafeindabúnaði við öll
mörk, alls staðar.
Víðir Sigurðsson.
Mistökin
eru hluti af
leiknum
Á VELLINUM
Eins og sést á þessari mynd er knötturinn
kominn langt inn í markið hjá Manchester
United þegar Roy Carroll krafsar hann út úr
markinu í leiknum gegn Tottenham.
MIKIÐ er fjallað um markið sem Totten-
ham gerði á móti Manchester United í
fyrrakvöld en ekki var dæmt. Boltinn
fór þá greinilega inn fyrir marklínuna
hjá United en aðstoðardómarinn sá það
ekki og markið því ekki dæmt. Tals-
menn enska knattspyrnusambandsins
sögðu í gær að sambandið gæti vel hugs-
að sér að komið yrði fyrir einhvers kon-
ar sjálfvirkum búnaði við mörkin þannig
að hægt væri að sjá strax hvort knöttur
fer allur yfir marklínuna eða ekki. Einn-
ig væri hugsanlegt að notast við mynd-
bandsupptöku ef hægt yrði að koma
skilaboðum strax til dómara þannig að
leikurinn tefðist ekki af þessum völdum.
Tækninefnd Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins fundar í lok febrúar og þá
verður málið tekið fyrir en á Teamtalk
er sagt í gær að þar verði kynntur nýr
knöttur frá adidas sem gefi frá sér
merki þegar hann er kominn yfir mark-
línuna. Þar segir að hugmyndir séu um
að prófa hann í úrslitaleik deildabikar-
keppninnar en vandamálið er að enska
knattspyrnusambandið er með samning
við Mitre um að nota knetti frá því fyrir-
tæki.
Sjálfvirkur búnaður
við mörkin?
SPÆNSKI miðjumaðurinn Xabi
Alonso og markvörðurinn Chris
Kirkland leika ekki með Liverpool í
ensku knattspyrnunni næstu þrjá
mánuðina. Báðir þurfa þeir að gang-
ast undir aðgerðir vegna meiðsla,
Alonso vegna ökklabrots og Kirk-
land vegna bakmeiðsla. Áður var tal-
ið að Alonso yrði tilbúinn í slaginn
eftir 5–6 vikur en í gær kom í ljós að
fjarvera hans yrði helmingi lengri.
Það er mikið áfall fyrir Liverpool því
Spánverjinn hefur leikið mjög vel
með liðinu í vetur.
ENSKA úrvalsdeildarliðið Charlt-
on er á höttunum á eftir Bernardo
Corradi, framherja hjá Valencia, en
hann hefur ekki átt fast sæti í
spænska liðinu í vetur. Umboðsmað-
ur Corradi hefur staðfest þessar
fregnir en jafnframt látið þess getið
að fleiri félög líti hýru auga til fram-
herjans vaska sem eitt sinn var á
mála hjá Lazio. Valencia mun ekki
vera tilbúið til að selja Corradi en
viljugt til að ræða lánssamning fram
á vor.
VALENCIA heldur því fram að
brasilíski miðvallarleikmaðurinn
Edu hafi þegar skrifað undir bráða-
birgðasamkomulag við félagið um að
leika með því frá og með næsta
sumri. Ekkert hefur verið staðfest af
hálfu leikmannsins sem einnig hefur
verið undir smásjá Real Madrid,
Barcelona og Manchester United.
Edu er laus undan samningi við Ars-
enal í vor.
EKKERT verður af því að Barce-
lona kaupi Danann Thomas Grave-
sen frá Everton eins og leitt hefur
verið líkum að. Frank Rijkaard,
þjálfari Barcelona, segir í viðtali við
spænska fjölmiðla að skapgerð
Gravesen henti Barcelona ekki og
því hafi félagið ekki áhuga á honum.
ALEM Techale, unnusta ólympíu-
meistarans í 10.000 metra hlaupi
karla, Kenenisa Bekele frá Eþíópíu,
lést í gær þegar þau voru úti að
hlaupa. Techale var 18 ára gömul,
millivegalengdarhlaupari og ung-
lingalandsliðskona Eþíópíu. Þau ætl-
uðu að ganga í það heilaga í maí.
Ekki er vitað hver dánarorsökin var,
en þjálfari þeirra sagði að hún hefði
látist skömmu eftir að þau lögðu af
stað í smá hlaupatúr.
CHRISTIAN Olsson þrístökkvari
frá Svíþjóð og Kelly Holmes, tvö-
faldur ólympíumeistari í hlaupum
frá Bretlandi, hafa verið útnefndir
frjálsíþróttamenn Evrópu af Frjáls-
íþróttasambandi Evrópu, EAA.
Þetta er annað árið í röð sem Olsson
er efstur í karlaflokki.
OLSSON verður ekkert með í þrí-
stökkinu á innanhússtíðinni í vetur.
Hann er meiddur á ökkla og verður
að hvíla sig en ætlar að ná sér góðum
áður en keppnistímabilið hefst utan-
húss.
FÓLKEINN af þekktustu veðbönkum Bretlandstilkynnti í gær að þeir sem hefðu veðjað á aðPetro Mendes, leikmaður Tottenham, myndiskora í leik gegn Manchester United í ensku
úrvalsdeildinni í fyrrakvöld, fengju vinning
sinn greiddan út.
„Þetta er sennilega sérkennilegasta atvik,
sem komið hefur upp í úrvalsdeildinni og við
teljum, að sá sem veðjaði á að Mendes skor-
aði fyrstur í leiknum, eða myndi skora yfir-
leitt, teldi sig órétti beittan vegna þess að
bæði dómarinn og aðstoðardómarinn virtust
staurblindir,“ sagði Graham Sharpe, tals-
maður veðbankans William Hill.
Hann viðurkenndi að fáir hefðu veðjað á
að Mendes yrði fyrstur til að skora í leiknum
eða skora yfirleitt.
Þeir sem veðjuðu
á Mendes vinna
SÆNSKA handknattleiksfélagið GUIF frá Eskilstuna hefur sagt upp
amningum við alla sína leikmenn vegna mikilla fjárhagserfiðleika.
Félagið skuldar á fimmta tug milljóna íslenskra króna og hefur grip-
ð til þessa ráðs til að forðast gjaldþrot. Kristján Andrésson er meðal
eikmanna GUIF en hann er reyndar frá keppni með slitið krossband,
íðan í haust. Kristján lék með íslenska landsliðinu á Ólympíu-
eikunum í Aþenu. Forráðamenn GUIF vonast til þess að sumir leik-
mannanna haldi áfram hjá félaginu þar sem bróðurpartur þeirra er í
hlutastarfi sem handboltamenn. Þrír atvinnumenn eru þó í hópnum,
Spyros Balomenos frá Grikklandi og Serbarnir Aleksandar Svitlica
g Dane Sijan, og óvíst er hvað verður um þá.
GUIF er í sjötta sæti af fjórtán liðum í sænsku úrvalsdeildinni.
GUIF gjaldþrota?