Morgunblaðið - 06.01.2005, Síða 4

Morgunblaðið - 06.01.2005, Síða 4
ÓLAFUR Stígsson, knattspyrnu- maður úr Fylki, leikur ekkert með Árbæjarliðinu á komandi keppnis- tímabili. Á dögunum kom í ljós að hann er með slitið krossband í hné og þarf að gangast undir aðgerð, sem þýðir að hann getur ekki byrj- að að æfa á ný fyrr en í haust. Þetta er mikið áfall fyrir Fylkis- menn því Ólafur, sem er 29 ára miðjumaður, er einn af þeirra reyndustu leikmönnum. Hann á að baki 94 leiki í efstu deild með Fylki og Val, lék með Molde í norsku úr- valsdeildinni 2002 og 2003, og hef- ur leikið níu A-landsleiki fyrir Ís- lands hönd. „Það bendir allt til þess að ég hafi spilað síðasta sumar með slitið krossband. Ég gat lítið æft, var aðallega í sundi, mætti á eina æf- ingu fyrir hvern leik og var síðan oftast skipt af velli í seinni hálf- leik,“ sagði Ólafur við Morgun- blaðið í gær en þrátt fyrir þessi meiðsli spilaði hann 17 af 18 leikj- um Árbæjarliðsins í úrvalsdeildinni og skoraði 3 mörk. „Það er mest svekkjandi að þetta skyldi ekki koma fyrr í ljós, því þá væri ég löngu búinn að fara í að- gerð. Þetta þýðir að nú verða tvö sumur nánast ónýt hjá mér. Ég fór í aðgerð á liðþófa á milli leikja í haust en skánaði ekkert að ráði og fór því í allsherjarskoðun fyrir skömmu og þá kom þetta í ljós. En ég legg ekkert árar í bát og held mínu striki í fótboltanum þegar ég kemst aftur í gang,“ sagði Ólafur. Þar með eru tveir úr leikmanna- hópi Fylkis frá keppni í ár. Haukur Ingi Guðnason, sem missti alveg af síðasta sumri vegna slitins kross- bands, þurfti að fara í aðra aðgerð í vetur vegna mistaka í þeirri fyrri og verður ekki kominn í gang fyrr en með haustinu.  JERMAINE O’Neal skoraði 55 stig fyrir Indiana Pacers í fyrrinótt þegar lið hans sigraði Milwaukee Bucks, 116:99, í NBA-deildinni í körfuknattleik. Þetta er hæsta stiga- skor einstaklings í deildinni í vetur og það mesta sem O’Neal hefur skorað í leik á ferlinum. Hann var að- eins tveimur stigum frá félagsmet- inu en Reggie Miller setti það árið 1992 þegar hann skoraði 57 stig fyrir Indiana gegn Charlotte.  O’NEAL hefur heitið því að gefa eitt þúsund dollara, eða 62 þúsund krónur, fyrir hvert stig sem hann skorar gegn San Antonio þegar liðin mætast í nótt til bágstaddra við Ind- landshaf. Ef hann leikur sama leik og gegn Milwaukee verða það 3,4 milljónir króna.  ENSKA knattspyrnuliðið Man- chester United varð fyrir miklu áfalli í fyrrakvöld þegar Ryan Giggs haltraði af velli, tognaður í læri. Í gær kom í ljós að hann spilar ekki með liðinu næstu vikurnar vegna þessara meiðsla. Giggs hefur farið mikinn í undanförnum leikjum Unit- ed og skoraði þrjú af fimm mörkum liðsins um hátíðirnar.  GÓÐ frammistaða Giggs að und- anförnu hefur vegið upp á móti þeim áföllum sem lið United hefur orðið fyrir. Ruud van Nistelrooy og Louis Saha hafa verið fjarverandi vegna meiðsla og Wayne Rooney er í miðju þriggja leikja banni.  EL-HADJI Diouf, leikmaður Bolt- on, var ásakaður um að hafa hrækt á áhorfendur og það alls ekki í fyrsta sinn á ferlinum. Nú var hann sak- aður um að hafa hrækt á stuðnings- menn Birmingham þegar hann fagn- aði marki sínu gegn Birmingham í fyrravöld. Í gær sögðu forráðamenn Birmingham að þeir hefðu engar kvartanir fengið frá stuðningsmönn- um sínum og ekkert benti til að kappinn hefði gerst sekur um að hrækja á áhorfendur og því engin ástæða til að aðhafast eitthvað í mál- inu.  KEVIN Keegan, knattspyrnu- stjóri Mancheser City, segir að ástæða þess að Nicolas Anelka lék ekki með gegn Arsenal, hafi verið að hann eigi í meiðslum í baki. Orðróm- ur var uppi um að ástæðan væri sú að Keegan og Anelka væru ekki á eitt sáttir og Frakkinn vildi róa á önnur mið og væri á leið til Liver- pool. Keegan segir ekkert vera hæft í þessum orðrómi.  STEPHANE Henchoz, varnar- maður Liverpool, hefur lítinn áhuga á að leika fyrir Rangers, en skoska félagið hefur þeim mun meiri áhuga á honum. Vegna þessa er talið í óvíst að Svisslendingurinn flytji sig um set til Skotlands. Henchoz er laus undan samningi hjá Liverpool í vor og getur þar með samið við annað fé- lag. Hugur Henchoz stendur til þess að leika áfram í Englandi og talið er hann sé ofarlega á lista hjá South- ampton. FÓLK Þrjú lið eru efst með 16 stig eftirellefu leiki, Keflavík, Njarðvík og Snæfell. Þar á eftir koma nýlið- arnir í Fjölni og Skallagrími með 14 stig, þá ÍR og Grindavík með 12 og Hamar/Snæfell er með tíu stig í átt- unda sæti. Átta efstu liðin fara í úr- slitakeppnina og má búast við harðri keppni um síðustu sætin þar því Haukar og KR eru með átta stig og Tindastóll sex en KFÍ rekur lestina. Manciel með á ný Haukar fá Fjölni í heimsókn í kvöld en leikur liðanna í fyrstu um- ferðinni í byrjun október varð sögu- legur en lauk með eins stigs sigri Fjölnis eftir kæru og áfrýjun. Fjölnismenn eru með óbreytt lið frá því er liðið hóf leik í haust – þrír erlendir leikmenn eru í herbúðum liðsins en nýliðarnir hafa komið verulega á óvart í vetur eru í 4. sæti. Haukar mæta með Mike Manciel í sínum röðum en hann lék með liðinu í fyrra og var einn af bestu bandarísku leikmönnum deildarinnar, með rúm 23 stig að meðaltali og 13 fráköst að meðaltali í leik. Haukar létu Damon Flint fara frá liðinu en hann lék tvo deildarleiki með Haukum sem eru í 9. sæti deildarinnar með 8 stig. Breytingar hjá Tindastóli Keflvíkingar taka á móti Tinda- stóli og ættu að vera nokkuð öruggir um sigur enda höfðu þeir betur fyrir norðan, 110:76. Keflvíkingar hafa staðið í ströngu í Evrópukeppninni í vetur og hefur það komið nokkuð niður á liðinu í Intersportdeildinni. Nick Bradford er kominn á ný í Keflavíkurliðið og lék 6 deildarleiki fyrir áramót eftir stutta veru hjá ensku liði en Bradford var einn af lykilmönnum liðsins í fyrra er Kefla- vík vann alla titla sem í boði voru. Tindastólsliðið hefur misst nokkr- ar skrautfjaðrir frá því í síðustu um- ferð en Bandaríkjamaðurinn Ron Robinson er farinn frá liðinu og að auki er framherjinn Nikola Cvjetko- vic ekki lengur með Tindastóli. Bethuel Fletcher er því eini erlendi leikmaður liðsins en Svavar Birgis- son, miðherji liðsins, er stigahæsti ís- lenski leikmaður deildarinnar með 25 stig að meðaltali í leik. KFÍ ekki unnið leik Njarðvíkingar heimsækja Ísafjörð og ætla sér bæði stigin í þeirri bar- áttu eins og þeir gerðu í fyrri leikn- um þegar þeir unnu 106:85. Njarðvíkingar gáfu aðeins eftir á lokasprettinum fyrir áramót – liðið var lengi vel í efsta sæti en hefur tap- að þremur af síðustu fimm leikjum sínum. Engar breytingar voru gerð- ar á leikmannahópi liðsins yfir jólin. Ísfirðingar hafa í sínum röðum stigahæsta leikmann deildarinnar en Bandaríkjamaðurinn Joshua Helm hefur skorað 35,8 stig að meðaltali í leik og tekið 13,8 fráköst í leik. Varn- arleikur KFÍ er sá slakasti í deildinni en liðið fær að meðaltali 106 stig á sig í leik og tapar leikjum sínum með 21 stigs mun að meðaltali. KFÍ hefur ekki gert neinar breytingar á sínu liði frá því deildarkeppnin hófst. Anderson farinn Búast má við spennandi leik þegar ÍR-ingar taka á móti Skallagrími en Borgnesingar höfðu betur í fyrri leik liðanna, 103:100 eftir framlengdan leik. Skallagrímur er í hlutverki ný- liðans í úrvalsdeildinni en liðið hefur bitið frá sér og þá sérstaklega á heimavelli. Bandaríkjamaðurinn Nick Anderson leikur ekki fleiri leiki með Skallagrími en hann var með í 8 leikjum og verða Borgnesingar án miðherja í leiknum gegn ÍR en ekki hefur verið ráðinn nýr leikmaður í stað Andersons. Eldskírn hjá Harper KR-ingar taka á móti Hamri/Sel- fossi, sem var á góðri siglingu fyrir áramótin. KR sótti hins vegar tvö stig til Selfoss þegar liðin mættust þar í upphafi móts, 90:77. Hamar/ Selfoss vann hins vegar fimm leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni.Engar breytingar hafa verið gerðar á liði Hamars/Selfoss yfir jólin en KR-ing- ar hafa hins vegar gert breytingar. Aaron Harper mun leika sinn fyrsta leik með KR en hann leysir landa sinn Damon Garris af hólmi. Gjörbreytt lið Snæfells Grindvíkingar fara í Hólminn og leika þar gegn deildar- og Hópbíla- bikarmeistaraliði Snæfells og ætla sér örugglega að ná í stig þar eins og þeir gerðu í fyrri leiknum, en þá vann Grindavík með tíu stiga mun, 90:80. Snæfell hefur gengið í gegnum miklar breytingar frá því að liðið lék síðast í deildinni en báðir bandarísku leikmenn liðsins eru nú farnir, Pierre Green og Desmond Peoples. Í þeirra stað hefur Snæfell fengið bandarísku leikmennina Mike Ames og Calvin Clemmons. Þeir leika í fyrsta sinn með liðinu gegn Grindavík. Gestirnir úr Grindavík hafa fengið bandarískan leikstjórnanda í lið sitt en sá heitir Taron Barker og er 24 ára en miðherjinn Terrel Taylor verður áfram í herbúðum liðsins. Ný nöfn og gamlir kunningjar mæta til leiks er Íslandsmótið hefst að nýju eftir jólafrí Hnífjöfn barátta KÖRFUKNATTLEIKSMENN fara á fullt á nýjan leik í kvöld þegar síð- ari hlutinn í úrvalsdeild karla, Intersportdeildinni, hefst. Fyrri helm- ingurinn var jafn og spennandi og engin ástæða til að ætla annað en sá síðari verði það einnig, en nokkur lið eru talsvert breytt frá því fyrri hluta Íslandsmótsins lauk 16. desember enda margir erlendir leikmenn að leika sína fyrstu leiki með sínum liðum. Morgunblaðið/Sverrir Hart barist um frákast í leik Fjölnis og Snæfells fyrr í vetur.                                    !              Ólafur ekkert með Fylki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.