Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 09.07.1951, Síða 3

Mánudagsblaðið - 09.07.1951, Síða 3
Mánudagur 9. júlí 1951 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 1 SAMNORRÆNA SUND KEPPNIN Ráðleggingar ungs manns til þeirra, sem ekki vilja lenda í hjónabands„sælunni“. Ráð þessi eiga að Fylgdu engri reglu. duga, '' ii M hvort sem stólkan er IjóshærS eða dökkhærS Á þriðjudaginn lýkur sam- norrænu sundkeppninni. Til þessa er eigi hægt að segja annað en að keppnin hafi gengið að óskum. Þjóð- in hefur í heiid tekið henni vel. Allir sundstaðir eru not- aðir. Meira að segja hafa gamlir sundstaðir veinð teknir aftur í notkun og ein torflaug byggð. Aðsókn til sundstað- anna hefur verið meiri og al- mennari en dæmi eru til hér á landi. — Sérstaklega hef- ur kvenfólkið aukið sókn sína til sundstaðanna. Margir sundstaðir hafa komið á eða aukið sérstak- lega kvennatíma, og hafa þeir alls staðar yfirfyllzt. Isfirðingar hafa sett sér að ná 700 þátttakendum. Af þeirri tölu átti kvenfólkið að vera 300. Þær hafa náð 260. Að Sundhöll Reykjavíkur hefur aðsókn kvenna þrefald- azt. — Einn daginn sóttu 2400 manns Sundlaugar Reykjavíkur, 900 Sundhöllina og 500 komu í Nauthólsvík- ina. Prá sundlaugarlausum foyggðarlögum hefur fólk far- ið í stórum hópum langan veg til sundlauga. T.d. hafa Eyrbekkingar farið margar hópferðir til Hveragerðis og 70 íbúar þegar lokið keppn- inni. I Höfn í Hornafirði, þar sem synt er í kaldri tjöm, hafa 25 tekið þátt 1 keppn- inni. Mörg samhljóða dæmi mætti nefna frá öðmm byggðalögum og sundstöðum. Af einstökum hreppum er þátttakan almennust, eða um 30 %, í Biskupstungum, Skeið- um, Hrunamannahreppi og í Mosfellssveit. — Árnessýzla mun vera hæst af sýzlunum, en Ólafsfjörður af kaupstöð- um. Hvað sem sigri í keppninni líður, þá hefur þegar verið unninn stór sigur af þjóð- inni með þessari auknu að- sókn. Þing hins norræna sund- sambands setti íslandi hæstu jöfnunartöluna, þ.e. 10.000, eða rúm 7% af íbúatölu þjóð- ai’innar. Hinar Norðurlanda- þjóðirnar hlutu jöfnunartölur sem hér segir: Svíþjóð 150.00 eða 2.14% Ibúafjöldans. Finnl. 105.000 eða 2.63% íbúa. Noregur 35.000 eða 1.93% íbúa. Dan- mörk 40.000 eða 0.95% íbúa. Landssundnefndin hefur á- ætlað þjóðinni aðra tölu. — Eftir fyrstu 20 dagana náð- ust 36.6% þeirrar tölu, en nú að loknum 37 dögum 70%. — Tekst þjóðinni á þeim 13 dög- um, sem eftir eru, að fylla mælinn ? Landsnefndin efar ekki, að það takist. Hún veit, »ð margir eru við sundiðkan- ir, og þeim tekst flestum að synda 200 metra. Hún treyst- ir því, að hinir mörgu, sem enn hafa dokað við með þátt- töku, komi til keppninnar. Nefndin hefur reynslu fyrir því, að margir hafa efazt um sundfærni sína og hafa beð- ið með að gera tilraun þar til þeir sjá hversu jafningj- um tekst til. Hún treystir því, að hinir yngri, sem eru ofmargir eftir með þáttöku, komi, er þeir sjá, hve vel hinir eldri hafa lagt sig fram, já, meira að segja blindir, lamaðir og fatlaðir. Æskunni er enn treyst, — til þessa hefur hún látið bíða um of eftir sér. Vér vitum, að þessar síð- ustu vikur muni aðsókn að sundstöðunum enn aukast, og því heitum við á alla starfs- menn keppninnar að búa sem bezt í haginn fyrir þá að- sókn, sem í vændum er. Það eina, sem skyggt hef- ur á framkvæmd keppninnar er, að ekki hefur verið unnt að afgreiða þau sundmerki, sem þátttakendur hafa ósk- að eftir að kaupa. — Sumir telja, að fólk fari ekki til þátt- töku vegna þess, að það fái eigi keypt merki. Treystum vér því, að fáir hugsi þannig, en landsnefndin mun leitast við að útvega merkin og dreifa þeim þá daga, sem eftir eru af keppnistímanum. Þér, sem eigið eftir að taka þátt í sundkeppninni, en get- ið það, komið sem fyrst til þáttöku, svo að sundstaðirn- ir yfirfyllist ekki síðustu dag- ana. Ekki er að vita, nema fyrstu tilraunimar mistakist. Frændþjóðirnar gerðu oss stóran hlut að keppa að, vér höfum sjálf sett oss enn stærri hlut. Stöndum einhuga, svo að hlutur Islands megi verða enn meiri en hann var oss gerður. Landsnefnd samnorrænu sundkeppninnar Þá er betri sagan af kon- unni, sem arfleiddi manninn sinn að 10000 sterlingspund- um, en með því skilyrði, þó að hann byði elskhuga sín- um þrisvar í viku út að borða í sama veitingahúsinu, sem þau voru vön að finnast. Ég veit, að hringrásarkerf- ið felur í sér mikla vinnu, og stundum gleymirðu með hvaða tækni þú vinnur. En letinginn, sem gerir sér það að venju að vera alltaf með sömu stelpunni, er þegar kom- inn með annan fótinn í snör- una . Vertu ekki góður við börn eða dýr. Ég á ekki við það, að þú -gerir þér far um að sparka í bömin eða binda blikkdós í rófuna á dýrunum. En ef það er nokkuð til, sem kveik- ir ástareld í brjósti ungrar stúlku, þá er það, er stór og sterkur maður hossar hvolpi, eða kitlar litlu barni undir hökuna. Segðu að f járhagur þinn sé ömurlegur. I návist föður stúlkunnar skaltu kvarta mjög yfir því, að þú verðir að vinna eins og þræll, en fáir sama og ekkert kaup. Krosslegðu fæt- urna af tilviljun, til þess að sýna honum götin á sólanum. Fáðu lánuð naglaskærin móð- ur hennar til þess að klippa trosnuðu druslurnar af skyrtukraganum þínum. Svo skaltu öðru hvoru biðja hana að lána þér 5 krónur og gleyma að borga henni þær aftur. Ef hún þá leyfir þér að gleyma því. Vertu ekki nærgætinn eða stimamjúkur við móður stúlk- unnar, sem þú ert með. Margur ungur maður, sem gætinn er og varfærinn, hef- ur flaskað á því að vera of stimamjúkur við konuna, sem hann brátt sér, að verður tengdamóðir hans. Smá hug- ulsemi eins og sú að færa mömmu blómvönd, og segja mömmu, hver snilldar mat- reiðslukona hún er, og fara með henni í bíó, svona öðru hverju, hefur vakið hjá mörgum dætrum þá hugmynd að þú verðir fyrirmyndar eiginmaður. Sigraðu föður hennar í leikjum. Þegar karlinn fer með þig út og býður þér í golf, þá reyndu að vinna, og hafðu rangt við í laumi, ef það er nauðsynlegt. Ef þetta sann- færir hann ekki um, að þú sért tuddamenni, þá skal' u narra hann í annan leik, leika hann upp á peninga og gjörsigra hann. En ef hann skyldi vinna, „þá getur þú hlegið og sagt: „Þetta er á- gætt, en gleymdu að borga honum. Komdu þér útundan lijá vinum hennar. Fyrr eða síðar er hún viss með-að kynna þig vinum sín- um, til þess að kveða upp dóm um þig. Þetta er hættu- stund, jafnvel þó einhver einn víki henni afsíðis og hvísli: „Andskoti er hann sniðugur, hvar náðirðu í hann?“ — En þá er úti um þig, bróðir! Svo að hvenær sem vin- ir hennar eni að dandalast í kring um þig, og drauma- dís þín hverfur fram í eld- húsið, til að búa til eitthvað góðgæti, þá skaltu sýna stelp- unum spilagaldra, vera ósam- mála strákunum um stjórn- mál, og spyrja þá, hvort nokk- ur þeirra viti, hvort faðir stúlkunnar þinnar sé ríkur. Vertu ekki of örlátur né alltof kurteis. Ég á ekki við það, að þú gefir henni ekki jólagjöf, ef þér hefur ekki tekizt að gera hana illa út í þig um jóla- Ieytið. En láttu það ekki bregðast að hafa verðmiðann á gjöfinni, og mundu, að verð- ið á miðanum fari ekki fram úr fimm krónum. Vertu heldur ekki of ör- látur á kurteisina, eins og t.d. þá að hjálpa henni að fara í kápuna, kveikja í sigarett- unni fyrir hana og opna bíl- dyrnar fyrir hana. Þegar stúlka fær þá hugmynd, að hún fái þessa þjónustu kostn- aðarlaust, það sem eftir er ævinnar, bara með því að narra þig í kirkju nokkrar mínútur, þá getur hún gert sig fallegri en fallegasta sól- arlag á vorkveldi. Reyitdu að vera óaðlaðandi I augum annarra stúlkna. Eitt af því, sem sannfær- ir stúlkuna um, að þú sért rétti maðurinn handa henni, er að koma því inn hjá henni, að önnur stúlka sé á eftir þér. Þess vegna skaltu minn- ast á það við hana, hve fáar stúlkur séu í bænum og hve önnum kafnar þær alltaf virð- ist vera. — Þegar hún segir, að hún hafi stefnumót, þá skaltu láta sem þú verðir hræddur, er þú hugsar til þess að missa af henni eitt augna- blik. Ef hún gengst upp við þetta, þá láttu hana skilja, að þetta komi til af því að þú sért orðinn of gamall til þess að fara að svipast um eftir öðrum stúlkum. Ef þú hlýðir þeim bending- um, sem hér eru greindar, og horfi hún samt sem áður í augu þér þannig að hjartað hoppi í brjóstinu á þér og þú segir að þú viljir heldur sitja hjá henni einni en spila pók- er, eins og þú annars gerir á þriðjudagskvöldum, þá getur ekkert ráð bjargað þér í svip- inn en að giftast henni, — og það gerirðu bráðlega. Ungu hjónin höfðu rifizt í fyrsta sinn. Allt kveldið mælti hvorugt þeirra orð frá vörum. Loks ákvað eiginmað- urinn að láta undan og sagði: „Talaðu við mig elskan mín, ég skal játa að ég hafði rangt fyrir mér, en þú rétt“. „Það er ekki til neins“, svaraði unga konan með grátstafinn í kverkunum, „ég er búin að skipta um skoðun“. Skritlur !; Frambjóðandi var að smála atkvæðum og gekk hús úr húsi. Einar dyr opnuðust og gribbuleg kona kom til dyra. „Hvaða flokki fylgir mað- urinn yðar frú?“ spurði fram- bjóðandinn smeðjulega. „Flokki", svaraði gribban. Ég er flokkurinn og hann fylg ir mér.“ □ Verkakonum í vopnasmiðju í Kingsburg í Indíana (USA)j hefur verið skipað að vera í buxum, með brjósthaldara og í nærpilsi úr bómullardúk, af því að eftirlitsmennimir kom- ust að því, að þegar verið var að ferma sprengikúlur, urðu oft miklar sprengingar, sem orsökuðust af rafmagni í silkinærfötum stúlknanna. Yfirlit um Nóbelsverð- launamenn, sem prentað er í Stokkhólmi, sýnir að 45 af hundraði þeirra, sem verðlaun hafa fengið fyrir afrek síu í læknisfræði, eðlisfr. bók- menntum og ritum um frið* hafa nauðulega staðizt lög-« skipuð próf. □ ..J ISfoppuð húsgögn Alstoppuð sett, mikið úrval. Svefnsófar og einstakir !j stólar. margar teg. Ennfremur ódýrir borðstofustólar jj Húsgagnaverzlun Guðmundar Guðmundssonar jj Laugavegi 166 — Sími 81055. ! j

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.