Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 09.07.1951, Síða 5

Mánudagsblaðið - 09.07.1951, Síða 5
Mánudagur 9. júlí 1951 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 6 BókmenntaviSburður: Kvöldvaka — tímarit Umtal vekur nú nýjasti bók- menntaviðburðurinn í landinu, en það er tímaritið Kvöldvaka, sem helgar sig bókmenntum og öðrum menningarmálum þjóðar- innar. Umtalinu veldur það, að þessu riti er talsvert nýjabragð, fjörugur stíll og víða allskorinort til orða tekið. Enda eiga menn von á að svo sé, þareð útgefand- inn er Snæbjörn Jónsson rithöf. og skáld, sem þekktur er að því að fara sínar eigin götur og að vera hispurslaus í ræðu og riti. Svo hefur hann í þetta sinn fengið í lið með sér einn hinn ritfærasta af prestum landsins (• sr. Benjamín Kristjánsson, er rit- ar m.a. um „Kristindóminn og þjóðina". Er það eirihver hin þyngsta ádeila, sem sézt hefur á efnishyggju og andkristni kommúnista. En þá um leið verð- ur þetta óbein órás á kirkju landsins fyrir afstöðu sina gagn- vart þessu geigvænlega tímanna tákni, er vart getur orðið skilið öðruvísi en meðhald með stefn- unni undirniðri. Hér nægir tæp- ast að bregða kirkjuyfirvöldunum um þáð sama og sumum mót- mælendakirkjum hefur verið brugðið um, sem sé einskonar „þegjandi samkomulagi við sjálf- an höfuðóvininn“, því að þrátt fyrir það munu kirkjurnar þykj- ast hafá alít sitt á þurru landi. En gö'muí þjóðsaga af þessu samkomulagi er svona: Þegar kirkja ICrists tók að klofna í margar sjálfstæðar deild- ir, sendi kölski deildunum svo- látandi boðskap: •— Hingað til hefur mér nægt að hafa eitt sendiráð í Róm, en að eiga að fara að kosta slíkar nefndir í öllum þeim fjölda sjálf- stæðra kirkjurikja, sem nú risa upp og enginn veit hvað mörg verða — það blöskrar mér, og ég sé mig því neyddan til að bjóða yður í staðinn óheyrt kosta- boð í eitt skipti fyrir öll, svo- liljóðandi: — Ég eftirlæt ykk- ur að prédika, syngja og spila Drottni til áýrðar án þess að ég skipti mér af því, og jafnvel megið þið breiða þennan mein- lausa sið ykkar út meðal ein- stakra sálna. En þar á móti lieimta ég að þið blandið ykkur ekki inn í stjórn mína á hinum jarðneska synduga heimi með neinum raunhæfum aðgerðum eða fyrirkomulagsbreytingum. í stuttu máii — þið reynið ekki að hafa áhrif á skipulagsmál né pólitík — það skulu vera min sérmál. Minnist þess að meistari ykkar sagði, að sitt ríki væri ekki af þessum heimi. — Látið því þennan heim sem mest af- skiptalausann". — . Ekki er þess getið að kirkjuhöfðingarnir hafi skrifað undir neitt eða neinu lofað. En hinu hafa menn tekið eftir, að kirkjudeildir þær, sem mesta áherzlu leggja á „réttlæt- íngu vegna trúar“, séu tillögu kölska ekki með öllu fráhverfar. Blaðamaður hafði aftur á móti spurt erkibiskup Grikkja Dam- askínos, um það hvort hann teldi að kirkjuvöldin, almennt talað, ættu að skipta sér af pólitík. „Ef ég skipti mér ekki af póli- tík, gæti ég ekki talið mig krist- inn!“ — hafði hann svarað. — Já, kannske eru hinir katólsku prestar kristnir í raunhæfara' skilningi en hinir lútersku, sem sýnast meta það mest að hafa frið við allt og alla og djöfulinn með. En hvað lengi gengur það? Nú er upprisinn við hliðina á séra Pétri í Vallarnesi annar ófriðarseggurinn á kærleiksheim- ili kirkjunnar, og hver veit hvað margir þeir kunna að verða. Varla mundi kommúnistum verða skotaskuld úr því hér fremur en annars staðar, að láta allan klerkdóm vorn með tölu kannast við það í heyranda hljóði, að hann hefði jafnan haft ófrið í huga og alltaf setið á svikráðum við land sitt og þjóð! Þessi útúrdúr spannst nú út af reiðilestri sr. Benjamíns. En klerkur leggur á fleira gjörva hönd en trúmálin. Hann ritar einnig í Kvöldvöku ágætis grein, sem hann nefnir „Litið til gömlu skáldanna". Og þegar svo bæt- ast við greinar ritstjórans sjálfs um „Nýjar bækur og gamlar", „Um Fornritaútgáfuna“, „Stak- steinar“ ofl. þá kennir þar svo margra grasa, að maður á erf- itt með að hugsa sér að þeir menn geti talað með um bók- menntir og ýms dagsins vanda- mál, sem láta þessar greinar ó- lesnar. — Svona spjall um einn höfuðþáttinn í þjóðlífinu, — bók- menntirnar, — er mjög nauðsyn- legt, því að það vekur menn til að lesa, og lesa með athygli, í stað þess að ösla á hundavaði yfir efnið eins og margir gera. Kvöldvaka getur átt eftir að vekja til vitundar marga bók- menntavini, sem ekki vissu að þeir voru það. Skritlur □ Klúbbur einn í París, þar sem í eru einungis sköllóttir menn, bað kvenfólkið að svara eftirfarandi spurningu: „Því geðjast ykkur ekki að sköllóttum mönnum, jafnvel þótt þeir séu rikir og lagleg- ir?“ % Verðlaunasvar kom frá 18 ára stúlku og hljóðaði á þessa leið: „Af því að þeir eru sköllóttir“. □ Glerbrot, er fannst í kart- öflupoka, sem afhentur var á heimili einu í Gangkofen í Þýzkalancli, reyndist vera demantur 150 sterlingspunda virði. Ungur verkfræðingur kynnir sér málningarframleiðslu á vegum Etna- Ungur íslenzkur námsmað- ur, Hannes B. Kristjánsson, hefur nýlega lokið prófi í efnaverkfræði við Massachus- etts tækniháskólann í Banda- ríkjunum, og mun hann inn- an skamms hefja verklegt framhaldsnám hjá málningar- verksmiðju í Baltimore, Maryland, þar sem hann mun kynna sér framleiðslu á máln- ingu og lökkum. Nám Hannesar, sem er lið- ur í áætlun efnahagssam- vinnustjórnarinnar mn tækni lega aðstoð til handa með- limalöndunum, mun taka um það bil f jóra mánuði, og jafn- framt því, sem hann leggur stund á, að kynnast nýjustu tækni í málningarframleiðslu, mun hann stunda efnarann- sóknir í sambandi við fram- leiðsluna. 'PasM the Ammun'Uion’ Prom the daily newspapor THE ATIAKTA CONSTITUTICN, Atlanta, Georgia, U. S. A. Láttu skotfæiin ganga Mao Á s.l. sumri starfaði Hann- es hjá Málningarverksmiðj- unni Hörpu h.f. í Rvk., og er hann kemur heim að námi loknu, tekur hann við stjórn á rannsóknarstofu verksmiðj- unnar, en hún framleiðir nú um 1.000 tonn af málningu árlega og fullnægir þar með um 2/3 hlutum af árlegri málningarþörf íslands. Nokk- ur hluti þess hráefnis, er verksmiðjan hefur þurft til framleiðslunnar undanfarin ár, hefur verið fluttur inn fyrir fé frá efnahagssam- vinnustjórninni. Þess er vænzt, að þetta sérnám Hannesar muni hafa töluverða þýðingu fyrir verk- smið juna i sambándi við vöru- vöndun og gæði framleiðsl- unnar. * 1 Hollenskur liermaður kennir nýliðum í Abyssiniu vopnameðferð Flugáætlun frá 1/7 1951 (Innanlandsflug) FRÁ REYKJAVlK: ; Sunnudaga: Til Akureyrar f.h. — Vestmannaeyja -— Sauðárkróks — Akureyrar e.h. “Mánudaga: Til Akureyrar f.h. — Vestmannaeyja — Ólafsfjarðar -— Norðfjarðar — Seyðisfjarðar —• Kirkjubæjarklausturs — Hornafjarðar — Siglufjarðar — Kópaskers — Akureyrar e.h. Þriðjudaga: Til Akureyrar f.h. — Vestmannaeyja — Blönduóss — Sauðárkróks — Siglufjarðar •— Akureyrar e.h. j* r Miðvikudaga: ; Til Akureyrar f.h. ! — Vestmannaeyja ; — Egilsstaða ! — Hellisands — ísafjarðar — Hólmavíkur — Siglufjarðar '— Akureyrar e.h. Fimmtudaga: Til Akureyrar f.h. — Vestmannaeyja — Ólafsfjarðar — Reyðarf jarðar — Fáskrúðsfjarðar — Blönduóss ! — Sauðárkróks ; <— Siglufjarðar : — Kópaskers i — Akureyrar e.h. Föstudaga: ; Til Akureyrar f.h. ; — Vestmannaeyja — Kirkjubæjarklausturs ! — Fagurhólsmýrar ; — Hornafjarðar — Siglufjarðar — Akureyrar e.h. ; Laugardaga: Til Akureyrar f.h. — Vestmannaeyja — Blönduóss — Sauðárkróks —fsafjarðar — Egilsstaða — Siglufjarðar — Akureyrar e.h. Frá Akureyri: Til Reykjavíkur: 2 ferðir daglega. Til Siglufjarðar — Alla virka daga. ; Til Ólafsf jarðar, mánudaga og fimmtudaga. í'il Kópaskers: Mánudaga og fimmtudaga. Til Austfjarða föstudaga. FLUGFÉLAG ÍSLANDS h.f.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.