Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 09.07.1951, Qupperneq 8

Mánudagsblaðið - 09.07.1951, Qupperneq 8
ANNAÐ '-víWF** 33 íaxar á dag — Yíkverji fil Ameríkas — Stgrún sem Toíneífe — Nýff tízktálað Er þaá satt að sjóðþurðarskriðan hjá því opinbera haldi áfrani að renna? , Frægasta fiskisagan, sem enn hefur borizt, siðan laxveiðar hófust í sumar, fjallar um Guðmund frá Miðdal og veiði hans í Norðurá síðastliðinn sunnudag. Fréttin hermir, að Guðmundur hafi á einum degi dregið 38 laxa, en maður, sem með honum var, 18. Það mun ali óvenjulegt, að slík veiði fáist á stöng á einum degi, og má vera, að hér sé um nýtt met að ræða. Ivar Guðmundsson, Víkverji Morgunblaðsins, er nú á förum til Bandarikjanna, að því er heimildarmenn vorir fortelja oss. Segja menn, að ívar fái veigamikla stöðu við Sameinuðu þjóðirnar og hyggist dveljast mjög lengi ytra. Eftirmaður hans verður eflaust Gísli J. Ástþórsson, sem um skeið reit ,,Meðal annarra orða“-dálkinn, sem birtist neðan við daglega lífið Ivars, en hætti skyndi- lega. Margir undrast þessa ráðstöfun Ivars. Æfingar á ímyndunarveikinni eru nú í fulJum gangi. I hlutverk Toinette, sem frú Anna Borg lék, hefur nú verið ráðin Sigrún Magnúsdóttir, sem gat sér góðan orðstír i Elsku Rut, sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi við ódæma aðsókn í Reykjavík og á Akureyri. Nýkomið er á markaðinn tízkublað, sem nefnist Clip. Blað þetta er mjög vel úr garði gert cg hlýtur al- mennt lof kvenna. I fyrsta tölublaði er m. a. ný snið, tizkumyndir, grein um andlitsböð og snyrtingu eftir Idu Jensen, sögur og skrítlur, auk ýmiss efnis, sem konur geta fært sér í nyt. Ritstjóri er Ingi H. Magnússon. Æfinfýra- maSur Framhald af 1. síSu. Er nú komið á daginn, að piltur hefur nælt sér í á fjórða hundrað þúsund króna frá ýmsum mönn- um og Landsbankinn feng- ið 70 sterlingspunda ávrs- un í kveðjuskyni, undirrit- aða af Gunnari. Sennilega hefur Gunnar gert þetta í endurminningarskyni við bankann, því banki Gunn- ars í Englandi vill ekki taka við ávísuninni — að minnsta kosti eklti fyrir peninga. Hér heima sitja svo við- skiptavinir Gunnars eftir með minninguna eina um liinn djarfa unga og al- mennilega mann með bros- ið hýra og gyltu loforðin — ogvfal!egu ritliöndina lians á víxlunum, sem þeir bjuggust við að fá marg- falt endurgreidda. Og nú er timburhöllin haws Gumiars við Hörpu- götu seld ásamt borði, út- varpi og dívan. Konsúlar og kaupmenn, sem margir hverjir ekki vildu kæra víxlana og lánin af tómri skömm, ásamt sjómannin- um, sem ætlaði að fara að gifta sig og léði Gunnari síðustu peningana sína til þess að kaupa mublur í í- búðina sína, bíða nú eftir því einu að Gunnar komi aftur. En ef rakinn er ferðafer- ill Gunnars ytra, þá geta menn fræðst á því að hinn ævintýraríki frímerkjasali hefur gist hin beztu hótel Parísarborgar og Riviera. Og nú býr frúin (sem við teljum saklausa af öllu þessu), ásamt börnunum I Höfn, en Gunnar? Hvar er hann? Þeir, sem vilja kynnast heiðursmanninum geta fundið hann í Suður-Af- ríku. Mánudagsblaðið 3 millján doliara íramlag Efnahagssamvinnustjórnin í Washington hefur fyrir nokkru samþykkt að veita Islandi sérstakt framlag að upphæð $3.000.000 (ca. kr. 49 miljónir) í Evrópugjald- eyri í því skyni að aðstoða ríkisstjórnina við að leyfa aukinn innflutning á nauðsynlegum neyzlu- og rekstrar- vörum og að afnema verzlunarhöftin, eins og gert var í aprílmánuði s.l. Tilgangurinn með aðstoð þessari er fyrst og fremst sá að fullnægja eftirspurn eftir vörum þessum, svo og að koma upp nokkrum vörubirgðum í landinu og þar með skapa aukið jafnvægi í vöruverði og efnahags- lífinu yfirleitt. BEIN AÐSTOÐ. Svo sem áður hefur verið tilkynnt nema fjárveitingar þær, sem Islandi hefur verið veittar sem bein aðstoð frá efnahagssamvinnustjórn- inni samtals $20.700.000, þar af $5.400.000 á tímabilinu frá 1. júlí 1950 til þessa dags. Þessum f járveitingum er var- ið til vörukaupa frá dollara- löndunum gagnstætt þeim framlögum, sem um getur hér að framan, og notuð eru til kaupa á vörum frá Evrópu. Hinn 31. maí sl. Var efna- hagssamvinnustjórnin búin að gefa út innkaupaheimildir fyrir samtals $19.010.000 til kaupa á ýmsum vörum og þjónustu í dollaralöndunum. Af þessari upphæð voru gefn- ar út innkaupaheimildir fyrir $645.000 í apríl og maí s.l., fyrir eftirtöldum vörum og þjónustu: 1. Verkfræðileg að- stoð við byggingu áburðarverksmiðj unnar .......... $200.000 2. Plógar, herfi, sláttuvélar, sax- blásarar og önn- ur landbúnaðar- verkfæri ....... $15.000 3. Vélar fyrir Kassa- gerð Reykjavíkur til framleiðslu á pappaöskjum fyr- ir freðfisk ..... $41.000 4. Pökkunarvélar fyrir íshús, skil- vinda fyrir sildar- og fiskimjölsverk- smiðjuna að Kletti varahlutir í frysti- vélar og niður- suðuvélar.........$29.000 5. Eik og annar við- ur til skipa......$40.000 6. Dýptarmælar vara hlutir í radiotæki talstöðvar o. fl..$100.000 7. Smurningsolíur og smurningsfeiti .... $120.000 8. Soyabaunaolía til smjörlíkisgerðar . . $100.000 Samtals $645.000 Hedy selur allt — giftmgahringi og nærföt Kvikmyndadísin Hedy La- marr, sem er nú í brúð- kaupsferð í Mexícó með f jórða manni sínum, hefur skipað uppboðshöldurum sínum í Hollywood að selja mest allt af dóti sínu, sem hún hefur eignazt í fyrri hjónaböndum. Meðal úrvalsgripa, sem stjarnarx selur, eru þrír gift- ingahringir, náttkjólar og seiðandi nærbrækur ásamt öllu gulldjásni sínu, sem hún vill ekki sjá aftur. Gullgrip- ir hennar eru taldir sjötíu þús. punda virði, en auk þess eru 480 alklæðnaðir á boðstólum. Þá eru taldir nokkrir minka-pelsar og hálfpelsar, sjötíu og fimm pör af skóm og óteljandi smærri gripir úr eign hennar. ,,Það verður milljón dollara virði af gripum Hedys, sem fara undir hamarinn 25. júní“ sögðu tfppboðshaldararnir. Vinir í Hollywood halda, að Hedy hafi ritað listann áður en hún fór í brúðkaupsferð- ina og sent síðan skeyti, um að selja gripina, frá Mexícó. Nánir kunningjar stjörnunn- ar segja, að hún hafi sagt þeim, að hún vildi byrja nýtt líf, og mun þetta einn þáttur þess. „Hún er að selja allt, jafn- vel listaverk, sem við héldum áð hún ynni og þetta er hið mesta áfall fyrir okkur", sögðu vinimir. ö,-fbli0 bz mb mb mb mb Kínverskir lierfangar í Kóreu Gulina hliðið Framliald af 1. síðu komin á skipulagðan flótta til ritið í sambandi við Edinburg Festival, sem fram fara í ágúst. Gullna hliðið verður frumsýnt 7. ágúst, en sýning- ar verða þar aðeins í viku samkvæmt venjum leikhúss- ins. Leiltrit þetta hefur verið sýnt áður í sama leikhúsi árið 1948 við fádæma aðsókn. Skozka skáldið Robert Kiemp hefur samið forspjall að leikritinu, en þýðingu ann- aðist hinn kunni þýðandi Galthorne Hardy, sem annazt fjölda þýðinga úr norsku. Eins og skiljanlegt er, felst þessu mikil og ágæt viður- kenning fyrir skáldið Davíð frá Fagraskógi og að sama skapi landkynning um þróun okkar á leikritunarsviðinu.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.