Morgunblaðið - 11.01.2005, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.01.2005, Qupperneq 1
2005  ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR BLAÐ B B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A NÝLIÐINN VILHJÁLMUR HALLDÓRSSON Á LEIÐ Á HM Í TÚNIS / B3 BJARNI Guðjónsson var besti maður Ply- mouth í bikarleiknum gegn Everton á laug- ardaginn, samkvæmt staðarblaðinu Plymouth Evening Herald. Bjarni lék sem fremsti miðju- maður og samvinna hans við sóknarmanninn Mickey Evans þótti mjög góð, auk þess sem hann skoraði laglegt mark. Bjarni sagði við blaðið að liðsandinn hjá Plymouth væri sá besti sem hann hefði kynnst á sjö ára ferli sínum sem atvinnumaður. „Það hefur verið mjög auðvelt að aðlagast liðinu og ég er sannfærður um að við höldum sæti okk- ar í 1. deildinni, sem er takmarkið í ár. Sjálf- ur er ég fyrst og fremst ánægður með að spila fótbolta á ný. Það eru forréttindi að hafa atvinnu af því að leika knattspyrnu,“ sagði Bjarni, sem spilaði sinn sjötta leik eftir að hann gekk til liðs við Plymouth frá Cov- entry rétt fyrir jólin. „Besti liðsandi sem ég hef kynnst“ Garcia hélt til Kúbu á milli jóla ognýárs til að vera viðstaddur út- för föður síns. Ekkert samband náð- ist við hann á Kúbu til að fá á hreint hvenær hann hygðist koma til móts við íslenska landsliðið. Seint á sunnudag náði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, loks sam- bandi við Garcia en þá var hann kom- inn í frí á Púertó Ríkó í stað þess að hraða sér til Íslands til æfinga strax að lokinni jarðarför. „Garcia þykist geta komið núna, en það er bara of seint, það tekur meira en einn dag að koma frá Púertó Ríkó til Íslands,“ segir Viggó, sem heldur með sveit sína til Spánar í æfingabúðir á fimmtudag þar sem leiknir verða þrír vináttu- landsleikir. Þótt Garcia komi til landsins um miðja vikuna hefur hann misst af meira en viku af undirbún- ingi landsliðsins og kæmi alveg óundirbúinn í leikina á Spáni. Slíkt er Viggó ekki tilbúinn að samþykkja. Það lá fyrir viku áður en Garcia hélt til Kúbu í jarðarförina að óskað væri eftir kröftum hans í íslenska lands- liðið á HM. „Því er það alveg hlægi- legt hjá manninum að fara í þetta frí,“ segir Viggó sem er afar ósáttur við framkomu Garcia. „Vilhjálmur kemur því endanlega inn í HM-hópinn sem nú hefur tekið á sig endanlega mynd. Það er mikið nær fyrir okkur að taka með okkur efnilegan leikmann á heimsmeist- aramótið heldur en að vera með ein- hvern sem ekki hefur áhuga á því sem við erum að fást við í landsliðinu. Metnaður og áhugi Garcia er ekki mikill,“ segir Viggó. Ekkert við Garcia að gera „ÞAÐ náðist loks í Garcia seint á sunnudagskvöldið og þá gat hann ekki gefið neinar skýringar á framkomu sinni, var bara með tuð. Ég hef því ekkert við hann að gera,“ sagði Viggó Sigurðsson landsliðs- þjálfari í handknattleik í gær eftir að hann ákvað að hætta við að velja Jaliesky Garcia í landsliðið fyrir heimsmeistaramótið í hand- knattleik. Vilhjálmur Halldórsson, Val, kemur í staðinn en hann hef- ur æft með landsliðinu frá upphafi undirbúningsins þar sem óvissa ríkti um þátttöku Garcia. ÓLAFUR Stefánsson leikur á heimavelli þegar íslenska landsliðið í handknattleik tek- ur þátt í fjögurra þjóða móti á Spáni um næstu helgi. Mótið fer fram í Ciudad Real, þar sem Ólafur er búsettur og leikur með samnefndu liði. Landsliðið mætir Frökkum á föstudaginn, Spánverjum á laugardaginn og Egyptum á sunnudaginn. Þetta eru þrír síðustu leikir landsliðs- ins áður en það heldur á HM. Ólafur á heimavelli FINNSKI skíðastökkvarinn Janne Ahonen er óstöðvandi – vann sinn ellefta sigur í heimsbikarkeppnni í skíðastökki í Willingen í Þýskalandi á sunnudaginn. Ahonen stökk 152 metra, sem er metstökk. Að loknum þrettán mótum í heimsbikarkeppn- inni er Ahonen langefstur – hefur fagnað ellefu sigrum og tvisvar orðið í öðru sæti. Hér á myndinni er hann í keppni og á litlu myndinni til hliðar er hann með son sinn Mico. Reuters Janne Ahonen er óstöðvandi FYLKISMENN ætla að leita eftir liðsstyrk að utan en talsverð skakkaföll hafa orðið á leik- mannahópi Árbæjarliðsins frá því Íslandsmótinu lauk í haust. Fylk- ismenn hafa misst þrjá leikmenn til annarra liða, Þórhall Dan Jó- hannsson í Fram, Ólaf Pál Snorrason í FH og Þorbjörn Atla Sveinsson í Fram og þá er fyr- irséð að Ólafur Stígsson og Haukur Ingi Guðnason verða ekkert með í sumar vegna alvar- lega meiðsla. Aðeins einn nýr leikmaður hef- ur bæst í hóp Fylkis, Viktor Bjarki Arnarsson sem kom frá Víkingi. „Við eigum mikið af ungum og efnilegum leikmönnum sem við ætlum að treysta á í sumar en því er ekki að neita að við höfum verið að líta út fyrir landsteinana með liðsstyrk og ég reikna fastlega með því að við tökum allavega tvo útlendinga. Við telj- um betra að leita erlendis enda eru launakröfur þeirra íslensku leikmanna sem við höfum spurst fyrir um algjörlega komnar úr böndum. Við erum komnir með slatta af nöfnum á blað en við erum helst að skoða spilara frá Danmörku, Svíþjóð og Englandi,“ sagði Ás- geir Ásgeirsson, formaður meist- araflokksráðs Fylkis, við Morg- unblaðið. Fylkis- menn leita erlendis

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.