Morgunblaðið - 11.01.2005, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 11. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Í KVÖLD
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
Breiðablik – Ármann/Þróttur ............110:47
Staðan:
Stjarnan 10 8 2 811:749 16
Valur 10 8 2 907:778 16
Þór A. 9 8 1 841:631 16
Höttur 9 6 3 734:713 12
Breiðablik 10 5 5 835:770 10
Þór Þorl. 10 5 5 790:726 10
ÍS 9 4 5 685:743 8
Drangur 9 2 7 645:711 4
ÍA 10 1 9 683:891 2
Ármann/Þrótt. 10 1 9 704:923 2
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Toronto – Golden State...................... 109:87
New York – Portland ....................... 113:105
Phoenix – Indiana............................... 124:89
Seattle – Miami................................... 108:98
Denver – Houston .............................. 98:116
KNATTSPYRNA
England - 2. deild
Tranmere – Bristol City ...........................0:1
Staða efstu liða:
Hull 26 18 2 6 52:32 56
Luton 26 16 6 4 48:27 54
Tranmere 27 14 7 6 42:34 49
Sheff. Wed. 27 13 7 7 50:33 46
Bristol City 27 11 10 6 47:34 43
Hartlepool 26 13 4 9 45:37 43
Bikarkeppnin:
Dregið til 4. umferðar, 32 liða úrslit, í gær:
Derby – Watford eða Fulham
Manch.Utd eða Exeter – Middlesbrough
Cardiff eða Blackburn – Colchester
Chelsea – Birmingham
West Ham – Sheffield United
Oldham – Bolton
Arsenal – Wolves
Everton – Sunderland
Nottingham Forest – Peterborough
Brentford – Hartlepool eða Boston
Reading/Swansea – Leicester/Blackpool
Burnley eða Liverpool – Bournemouth
Southampton – Portsmouth
WBA – Tottenham
Newcastle – Coventry
Charlton – Yeovil
Leikirnir fara fram 29. og 30. janúar.
HANDKNATTLEIKUR
Undankeppni EM 2006
1. riðill:
Hvíta-Rússland – Ungverjaland......... 27:33
Kýpur – Ítalía ....................................... 26:29
Ítalía 4 stig, Ungverjaland 4, Hvíta-
Rússland 0, Kýpur 0.
2. riðill:
Belgía – Makedónía.............................. 23:29
Tyrkland – Bosnía ................................ 34:28
Makedónía 4 stig, Bosnía 2, Tyrkland 2,
Belgía 0.
3. riðill:
Rúmenía – Úkraína .............................. 29:31
Lúxemborg – Eistland......................... 34:38
Eistland 4, Úkraína 4, Rúmenía 0, Lúx-
emborg 0.
4. riðill:
Pólland, Slóvakía, Holland og Aserbaíd-
sjan. Keppni ekki hafin.
5. riðill:
Finnland – Lettland ............................. 32:31
Ísrael – Austurríki................................ 30:29
Austurríki 2, Lettland 2, Finnland 2, Ísr-
ael 2.
6. riðill:
Litháen – Portúgal ............................... 32:18
Litháen 3, Portúgal 1, Búlgaría 0.
GOLF
Bandaríska mótaröðin, PGA, Mercedes-
mótið á Hawaii, Plantekruvöllurinn, par 73.
Lokastaðan og verðlaunafé:
Stuart Appleby ................................271 (-21)
(74-64-66-67) / 67,3 millj. kr.
Jonathan Kaye.................................272 (-20)
(68-67-66-71) / 38,1 millj. kr.
Tiger Woods.....................................273 (-19)
(68-68-69-68) / 22,2 millj. kr
Ernie Els ..........................................273 (-19)
(69-65-68-71) / 22,2 millj. kr.
Adam Scott.......................................274 (-18)
69-72-68-65 / 16 millj. kr.
Vijay Singh.......................................274 (-18)
66-65-69-74 / 16 millj. kr.
Stewart Cink....................................274 (-18)
68-68-67-71 / 16 millj. kr.
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, DHL-deildin:
Kaplakriki: FH – ÍBV...........................19.15
Hlíðarendi: Valur – Víkingur ...............19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
DHL-höllin: KR - ÍS .............................19.15
BLAK
1. deild karla:
Digranes: HK – Stjarnan.......................... 20
Leiðrétting
Jóhannes B. Jóhannesson sigraði Peter
Pace frá Möltu, 4:0, í leiknum um 3. sætið á
bikarmótinu í snóker sem lauk á sunnudag-
inn. Úrslit í leiknum um þriðja sætið misrit-
uðust í blaðinu í gær.
MARGIR af reyndustu leikmönnum 1. deildarliðs Breiðabliks í knatt-
spyrnu eru hættir og verða ekki með Kópavogsliðinu á komandi tímabili.
Þar á meðal eru Kristófer Sigurgeirsson, fyrirliði liðsins í fyrra, sem ætl-
ar að leita fyrir sér annars staðar, Sverrir Sverrisson, Hákon Sverrisson
og Kjartan Antonsson sem væntanlega leggja allir skóna á hilluna.
„Það er ljóst að Kristófer og Hákon verða ekki með okkur og það eru
mestar líkur á að Sverrir og Kjartan hætti líka, ég reikna ekki með
þeim. Það eru samtals farnir tólf leikmenn úr okkar hópi síðan ég tók
við liðinu fyrir síðasta tímabil,“ sagði Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Breiðabliks, við Morgunblaðið í gær. Meðal annarra sem farnir eru frá
Breiðabliki er Pétur Ó. Sigurðsson, sem var í láni frá FH í fyrra og skor-
aði 8 mörk í 1. deild, og þeir Þorsteinn Sveinsson og Ívar Jónsson sem
eru farnir til HK.
„Ég er með ungan hóp sem stendur, marga efnilega stráka, en það
hafa staðið yfir breytingar á rekstri meistaraflokksins og við öndum ró-
lega á meðan. Ég reikna með því að við leitum fyrir okkur með liðsstyrk
erlendis áður en tímabilið byrjar,“ sagði Bjarni Jóhannsson. Hann tók
við Breiðabliki fyrir síðasta tímabil og liðið endaði í fjórða sæti 1. deild-
ar.
Margir reyndir hættir
hjá Breiðabliki
CHELSEA er efst á blaði hjá veðbönk-
um í London – þegar er veðjað er um
sigurvegara í bikarkeppninni, með 5-2.
Liðið mætir Birmingham á heimavelli í
fjórðu umferð, 32 liða úrslitum, en dreg-
ið var í gær í bikarkeppninni – dráttinn
má sjá í úrslitadálknum. Arsenal, sem
mætir Úlfunum heima, er í öðru sæti
með 9-2. Manchester United, sem þarf
að leggja Exeter að velli í aukaleik, til
að tryggja sér rétt til að leika heima
gegn Middlesbrough, er í þriðja sæti hjá
veðbönkum með 11-2. Einn af stórleikj-
unum í fjórðu umferð er viðureign
Southampton og Portsmouth. Harry
Redknapp, sem stjórnar nú Dýrling-
unum frá Southampton, var látinn taka
poka sinn hjá Portsmouth á dögunum.
Hjá veðbönkum standa liðin jöfn, 50-1.
Flestir veðja
á Chelsea
Á leið sinni í undanúrslitin slóWatford út tvö úrvalsdeildarlið,
Southampton og Portsmouth, og var
Heiðar á skotskónum gegn báðum
liðunum. Heiðar skoraði tvívegis í
3:0 sigri á Portsmouth og eitt í 5:2
sigri á Southampton. Heiðar skoraði
á laugardaginn gegn Fulham í ensku
bikarkeppninni svo hann hefur skor-
að í öllum þremur leikjum Watford
gegn liðum úr úrvalsdeildinni í vetur
og spurningin hvort hann heldur
sínu striki gegn Liverpool í kvöld.
Ray Lewington, knattspyrnu-
stjóri Watford, á ekki góðar minn-
ingar frá síðustu heimsókn sinni til
Anfield. Hann var þá þjálfari og leik-
maður hjá Fulham sem lék þá í 3.
deild en liðið sótti Liverpool heim í
deildabikarnum og tapaði 10:0.
„Við gerum okkur alveg grein fyr-
ir því að við erum litla liðið og ég geri
fastlega ráð fyrir því að Rafael
Benítez tefli fram sterkara liði gegn
okkur heldur en á fyrri stigum
keppninnar. Það er hins vegar eng-
inn beygur í mínum mönnum. Þó svo
að okkur hafi ekki gengið sem skyldi
upp á síðkastið þá sýndi liðið í leikn-
um við Fulham í bikarkeppninni á
laugardaginn að það getur staðið
uppi í hárinu á góðu úrvalsdeildar-
liði. Við viljum ná hagstæðum úrslit-
um og koma okkur þannig í góða
stöðu fyrir heimaleikinn,“ segir
Lewington.
Lið Liverpool hefur lent í talsverð-
um hremmingum hvað varðar
meiðsli á leiktíðinni. Markvörðurinn
Chris Kirkland, Xabi Alonso, Djibril
Cisse, Harry Kewell og Milan Baros
eru allir meiddir og verða fjarri góðu
gamni í kvöld og það ætti að gefa
Watford aukna möguleika á að
velgja úrvalsdeildarliðinu undir ugg-
um.
Í hinni undanúrslitaviðureigninni
eigast við Chelsea og Manchester
United á Stamford Bridge annað
kvöld.
Tekst Heiðari að
skora á Anfield?
Heiðar Helguson hefur skorað grimmt að undanförnu.
HEIÐAR Helguson og Brynjar
Björn Gunnarsson verða í eld-
línunni með Watford í kvöld
þegar 1. deildarliðið mætir Liv-
erpool á Anfield í fyrri viðureign
liðanna í undanúrslitum deilda-
bikarkeppninnar. Síðari leik-
urinn verður á Vicarage Road,
heimavelli Watford, hinn 25.
þessa mánaðar og sigurveg-
arinn úr leikjunum tveimur
mætir annaðhvort Chelsea eða
Manchester United í úrslitum á
Þúsaldarvellinum í Cardiff.
KRISTJÁN Andrésson, fyrirliði
sænska handknattleiksliðsins GUIF,
segir að samstaða hafi náðst meðal
flestra leikmanna liðsins um að spila
áfram með því út þetta tímabil þrátt
fyrir að samningum þeirra hafi verið
sagt upp vegna fjárhagsvandræða
félagsins.
„Það var ekki stórmál að ná sam-
stöðu um þetta, það vildu allir leggja
sig fram fyrir hönd félagsins. Við
viljum ekki að það sé okkur að kenna
að félagið fari í gjaldþrot. Nú erum
við lausir við þetta vandamál í bili og
getum einbeitt okkur að handbolt-
anum,“ sagði Kristján við dagblaðið
Eskilstuna-Kurieren um fund leik-
manna með stjórn GUIF á laugar-
daginn. Kristján, sem lék með ís-
lenska landsliðinu á Ólympíu-
leikunum í Aþenu, hefur ekkert
getað spilað með liðinu það sem af er
vetri þar sem hann sleit krossband í
haust, en gegnir samt stöðu fyrirliða
í leikmannahópnum.
Allir sænsku leikmennirnir hjá fé-
laginu ætla að spila með út tímabilið.
Þrír erlendir leikmenn GUIF eru
spurningarmerki en Kristján sagði
við blaðið að hann hefði rætt við
serbneska leikmanninn Dane Sijan í
síma og hann færi hvergi.
„Þetta er vendipunktur í okkar
vandræðum. Ég er snortinn af vel-
vilja strákanna,“ sagði fram-
kvæmdastjóri GUIF, Anders Krafft,
við blaðið.
GUIF er í sjötta sæti af fjórtán lið-
um í sænsku úrvalsdeildinni en hlé
er á deildinni til 9. febrúar vegna
heimsmeistaramótsins í Túnis sem
hefst 23. janúar.
Samstaða hjá
leikmönnum GUIF
Kristján Andrésson
PAUL Jones, markvörður ut-
andeildarliðs Exeter City, hefur
varað liðsmenn Manchester United
við þegar liðin mætast á heima-
velli Exeter í endurteknum bik-
arleik hinn 19. þessa mánaðar.
Leikurinn fer fram á St. James
Park, ekki heimavelli Newcastle,
heldur ber nafn heimavallar Ex-
eter sama nafn og tekur 9.000
manns.
Jones átti frábæran leik á milli
stanganna á Old Trafford á laug-
ardaginn þegar utandeildarliðið
náði markalausu jafntefli gegn
varaliði Manchester-liðsins og eft-
ir leikinn varð Sir Alex Ferguson
ævareiður og húðskammaði leik-
menn sína.
„Við eigum alla vega helmings-
möguleika á að slá United út.
Heimavöllurinn hefur mikla þýð-
ingu í keppni sem þessari og ég er
viss um að leikmenn United eru
skíthræddir,“ segir Jones í viðtali
við Daily Star.
Fjárhagnum bjargað
Leikirnir gegn Manchester Unit-
ed koma til með að bjarga fjárhag
Exeter en liðið hefur staðið höllum
fæti peningalega eins og mörg
önnur félög á Bretlandseyjum. Nú
hefur BBC ákveðið að sýna leikinn
í beinni útsendingu og gefur sjón-
varpsrétturinn félaginu 150.000
pund, eða um 18 milljónir króna,
og koma tekjur utandeildarliðsins
út úr leikjunum til með að verða
750.000 pund, sem samsvarar um
90 milljónum króna.
Exeter
malar
gull
Vi
yngr
því é
ég ti
H
vera
bakd
ast.
hafi
átti k
hópi
urinn
innst
hópu
um þ
hafð
kalli
við M
Vil
VILH
inn í
runa
Vigg
ann
Vigg
land
Eftir
Skúla
Svein