Morgunblaðið - 15.01.2005, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR
2 D LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild kvenna, DHL-deildin:
Framheimilið: Fram - Haukar..................15
Vestmannaeyjar: ÍBV - Stjarnan .............14
Sunnudagur:
Kaplakriki: FH - Víkingur....................19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
1. deild karla:
Höllin, Akureyri: Þór A. - Drangur ..........15
Stjörnuleikir að Hlíðarenda
Kvennaleikurinn fer fram kl. 14 og karla-
leikurinn kl. 16.
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Norðurlandsmótið, Powerade-mótið:
Boginn: KA - Fjarðabyggð...................14.15
Boginn: Leiftur/Dalvík - Tindastóll.....16.15
Sunnudagur:
Norðurlandsmótið, Powerade-mótið:
Boginn: Fjarðabyggð - Hvöt ................13.15
Boginn: Huginn - Þór............................15.15
Faxaflóamót kvenna
Fífan: Breiðablik - ÍA.................................15
GLÍMA
Önnur umferðin í Meistaramóti Íslands í
glímu fer fram í Reykjahlíð á morgun,
sunnudag, kl. 13.
UM HELGINA
HANDKNATTLEIKUR
Frakkland – Ísland 30:26
Quijote Arena, Ciudad Real, Spáni, 30. al-
þjóðlega Spánarmótið, föstudaginn 14. jan-
úar 2004.
Mörk Íslands: Róbert Gunnarsson 6, Vign-
ir Svavarsson 5, Guðjón Valur Sigurðsson
4, Ólafur Stefánsson 3/1, Alexander Pet-
ersson 3, Arnór Atlason 2, Vilhjálmur Hall-
dórsson 1, Einar Örn Jónsson 1, Dagur Sig-
urðsson 1.
Allir 16 leikmenn Íslands voru á leik-
skýrslu.
Varin skot: Roland Valur Eradze 4/1,
Hreiðar Guðmundsson 6.
Önnur úrslit:
Spánn – Egyptaland............................. 33:21
Rocas 6, Raúl Entrerríos 4 og Garabaya
4 skoruðu mest fyrir Spán en Awad gerði 6
mörk fyrir Egypta. Spánverjar voru yfir í
hálfleik, 15:13, en kafsigldu síðan Egyptana
á lokakafla leiksins.
Mót í Svíþjóð/Danmörku
Svíþjóð – Tékkland............................... 32:30
Danmörk – Brasilía .............................. 41:15
Mót í Noregi
Rússland – Alsír ................................... 27:21
Noregur – Sviss .................................... 31:22
Æfingaleikur í Slóveníu
Slóvenía - Þýskaland ............................ 27:19
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla
ÍA – Þór Þ .......................................... frestað
Stjarnan – Breiðablik........................... 63:87
Höttur – Drangur................................. 87:63
Staðan:
Valur 10 8 2 907:778 16
Þór A. 9 8 1 841:631 16
Stjarnan 11 8 3 874:836 16
Höttur 10 7 3 821:776 14
Breiðablik 11 6 5 922:833 12
Þór Þorl. 10 5 5 790:726 10
ÍS 10 4 6 744:819 8
Drangur 10 2 8 708:798 4
Ármann/Þrótt. 11 2 9 780:982 4
ÍA 10 1 9 683:891 2
NBA-deildin
Úrslit í fyrrinótt:
Houston – New Jersey......................... 94:85
Eftir framlengingu.
Sacramento – Utah ............................ 107:93
LA Lakers – Cleveland........................ 98:94
KNATTSPYRNA
England
1. deild:
QPR – Stoke City ..................................... 1:0
Staðan:
Ipswich 28 16 7 5 52:34 55
Wigan 28 15 8 5 49:20 53
Sunderland 28 15 5 8 40:26 50
Reading 28 14 6 8 36:26 48
Sheff. Utd 28 13 9 6 38:34 48
West Ham 28 13 6 9 37:33 45
Millwall 28 12 6 10 32:26 42
Derby 28 12 6 10 39:35 42
Preston 28 12 6 10 38:39 42
QPR 29 12 4 13 37:41 40
Crewe 27 11 6 10 48:46 39
Burnley 26 10 9 7 23:21 39
Stoke City 29 10 8 11 18:21 38
Leeds 28 9 9 10 33:31 36
Leicester 27 8 11 8 28:26 35
Watford 28 7 12 9 31:31 33
Plymouth 28 9 6 13 33:39 33
Brighton 28 9 6 13 22:35 33
Wolves 28 7 11 10 36:38 32
Coventry 28 8 8 12 34:44 32
Cardiff 28 7 9 12 30:34 30
Gillingham 28 7 5 16 27:47 26
Nottingham F. 28 5 9 14 27:43 24
Rotherham 28 3 10 15 22:40 19
É
g lít nokkuð björtum
augum til heimsmeist-
aramótsins í hand-
knattleik og líst vel á
það sem Viggó Sig-
urðsson landsliðsþjálfari hefur gert
síðan hann tók við og hvað hann
ætlar að leggja upp með þegar á
heimsmeistaramótið kemur. Ég
þekki Viggó afar vel eftir að hafa
æft undir hans stjórn um nokkurra
ára skeið hjá FH. Hann leggur sig
allan fram og er afar vandaður í
allri vinnu. Að grunni til er hann að
gera það sama nú með landsliðið og
hann gerði þegar hann tók við FH-
liðinu á sínum tíma eða Haukum ell-
egar Wuppertal í Þýskalandi. Þegar
hann tók við þjálfun FH hér um ár-
ið hafði hann í höndum lið sem hafði
vegnað nokkuð vel. Eigi að síður
„henti“ hann strax inn í liðið heilli
kynslóð af ungum mönnum; þar má
nefna Héðin Gilsson, Bergsvein
Bergsveinsson og Hálfdán Þórðar-
son, svo dæmi sé tekið. Á þessum
hópi byggði hann upp alveg hörku-
gott lið á einstaklega skemmtilegan
hátt. Mig grunar að hann sé að gera
eitthvað svipað með landsliðið núna.
Þetta virkaði hjá Viggó þá og ég er
viss um að það gerir sig einnig með
íslenska landsliðið þótt í allt öðrum
styrkleikaflokki sé,“ segir Guðjón
sem öðru fremur finnst eitt skína
skærar hjá öllum liðum sem Viggó
hefur þjálfað; sjálfstraust. „Gríðar-
legt sjálfstraust hefur alltaf skinið
úr augum allra leikmanna þeirra
liða sem Viggó hefur þjálfað í gegn-
um árin. Ástæðan er örugglega
meðal annars sú að Viggó skilgrein-
ir afar vel hvaða hlutverk hver leik-
maður hefur, menn velkjast aldrei í
vafa um það. Með því að velja sex-
tán manna hópinn snemma gafst
góður tími til þess að koma öllum í
skilning um sitt hlutverk, enginn er
í vafa um hvað hann á að gera, allir
vita, eins og í þessu tilfelli, að þeir
eru á leið á heimsmeistaramót. Síð-
an skilgreinir Viggó skýrt hvert
hlutverk hvers manns er, hverjir
eru í fyrsta hóp, það er í byrj-
unarliðinu, og hverjir koma þar á
eftir. Allur hópurinn er því með á
nótunum frá upphafi um til hvers sé
ætlast af þeim. Markviss skilaboð
frá þjálfara eiga alveg örugglega
eftir að skila landsliðinu þeim litla
viðbótarkrafti sem stundum hefur
vantað upp á og getur gert gæfu-
muninn þegar á hólminn er komið,“
segir Guðjón og bætir því við að
einnig skipti það gríðarlegu máli
fyrir sjálfstraust leikmanna að hefja
mótið vel. Góð frammistaða og hag-
stæð úrslit í fyrstu leikjunum hlaði
enn ofan á sjálfstraustið.
Ekki verra að byrja á
sterkum andstæðingum
Fyrsti leikur Íslands á HM verð-
ur við Tékka sunnudaginn 23. jan-
úar og tveimur dögum síðar verður
röðin komin að Slóvenum. „Ég tel
það alls ekki vera ókost að mæta
þessum tveimur sterku þjóðum í
fyrstu tveimur viðureignunum. Það
er síst betra að leika við Kúveit og
Alsír í upphafi. Oft vita menn lítið
um þær þjóðir, þær eru fullar sjálf-
trausts í byrjun sem síðan fjarar út
þegar á líður auk þess sem það
tekst að kortleggja leik þeirra með því að
vera áhorfandi að fyrstu viðureignunum.
Auðvitað er krafan sú að vinna bæði Alsír
og Kúveit en þegar menn þekkja ekki
andstæðinginn til hlítar þá vill oft vera
ákveðin spenna í mannskapnum, kvíði við
það sem menn þekkja ekki.
Við vitum betur á móti hverjum við er-
um að fara að leika þegar gengið er út á
völlinn gegn Tékkum og Slóvenum, það
þarf að ná toppleik til þess að vinna þær
þjóðir og þá fara menn bara með því hug-
arfari í leikina.
Ef við vinnum Tékkana í fyrsta leik þá
held ég að skemmtilegir hlutir geti átt sér
stað hjá íslenska landsliðinu, ég tala ekki
um ef það nær einnig að leggja Slóvena
að velli. Ég reikna með því að Slóvenar
séu sterkari af þessum tveimur þjóðum.
Fyrstu tveir leikirnir eru alveg rosalega
mikilvægir í svona langri keppni. Ef þeir
ganga vel þá finna menn að það sem þeir
hafa unnið að í undirbúningnum virkar,
það styður rosalega vel við sjálfstraustið,“
segir Guðjón sem ennfremur telur það
einkenni á aðferðafræði Viggós sem þjálf-
ara að hann leggur leiki yfirleitt skyn-
samlega upp. „Það sást best í Evrópu-
leikjunum hjá Haukum á sínum tíma.
Þótt Haukar væru á tíðum að leika
nokkur fremstu félagslið Evrópu og æ
fyrir fram ekki mikla möguleika þá l
Viggó leikinn þannig upp í hendurna
sínum mönnum, með réttu leikskipu
og hugarfari, að úr urðu oftar en e
hnífjafnir og æsispennandi leikir þar
vart mátti á milli sjá hvort liðið væri
„stóra“. Þessi vinnubrögð eiga m
örugglega eftir að sjá þegar íslenska
fer að spila á heimsmeistaramótinu,“
ir Guðjón sem segist ekki hafa minn
áhyggjur af að ekki verði allir leikm
klárir í slaginn þegar á hólminn ver
komið, en nokkrir þeirra, svo sem Ól
Stefánsson og Guðjón Valur Sigurðs
náðu e.t.v. ekki að sýna sitt rétta and
vináttulandsleikjum við Svía á dögunu
Dagur á eftir að blómstra
sem leikstjórnandi
„Óli og Guðjón eiga eftir að fara í ga
ég hef ekki minnstu áhyggjur af því. Þ
ar á hólminn verður komið kemur
vinnumaðurinn upp hjá þessum strák
og þegar við blandast hvatning frá Vi
verður ekki að sökum að spyrja. Ég
rosalega mikla trú á því að Dagur [
urðsson] eigi eftir að blómstra í þes
Guðjón Árnason, fyrrverandi fyrirliði
FH og landsliðsmaður í handknatt-
leik, spáir í spilin fyrir HM í Túnis
„Gríðarlegt sjálfstraust hefur alltaf skinið úr augum allr
leikmanna þeirra liða sem Viggó hefur þjálfað í gegnum
árin,“ sagði Guðjón Árnason, fyrrverandi fyrirliði FH, þe
ar Ívar Benediktsson spjallaði við hann og bað hann um
leggja mat á íslenska landsliðið í handknattleik nú þega
um vika er þar til flautað verður til leiks á HM í Túnis.
Sjálfs-
traust
á eftir að skína af
hverjum manni
JOSE Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, vill að enska knattspyrnu-
sambandið breyti reglunum í bik-
arkeppninni á þann hátt að lið úr
úrvalsdeildinni þurfi alltaf að leika
á útivelli í 3. umferð, ef þau dragast
gegn liðum úr neðri deildum.
Chelsea þurfti að hafa mikið fyrir
því að sigra 3. deildarlið Scun-
thorpe á Stamford Bridge, 3:1, á
laugardaginn.
„Ég er sannfærður um að ef leik-
urinn hefði farið fram í Scunthorpe,
þá hefðum við hæglega getað tap-
að. Ég ber mikla virðingu fyrir leik-
mönnum Scunthorpe sem mættu á
Stamford Bridge með því hugarfari
að þeir gætu unnið leikinn. Þeir
komu ekki þangað í skoðunarferð.
Og það er auðvitað mikil upplifun
fyrir Scunthorpe og Exeter að spila
á Stamford Bridge og Old Trafford,
og fyrir stuðningsmenn þeirra að
fara þangað. Stuðningsmenn Scun-
thorpe sköpuðu frábæra stemningu
á Stamford Bridge.
En ég er á því að litlu liðin eigi að
fá þau stóru í heimsókn í þessari
umferð. Þá eiga þau meiri mögu-
leika, fleiri fá tækifæri til að sjá
stjörnur stóru liðanna spila, og ef
ég hefði þurft að fara til Scun-
thorpe, hefði ég aldrei getað leyft
mér að hvíla marga lykilmenn eins
og ég gat gert á heimavelli. Nú hef
ég kynnst ensku bikarkeppninni og
hún er stórkostleg,“ sagði Mour-
inho.
Mourinho vill að stóru lið-
in spili á útivelli í 3. umferð