Morgunblaðið - 15.01.2005, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 D 3
SLÓVENAR, sem leika með Íslend-
ingum í riðli á heimsmeist-
aramótinu í Túnis síðar í þessum
mánuði, unnu öruggan sigur á Evr-
ópumeisturum Þjóðverja, 27:19, í
vináttulandsleik sem fram fór í
slóvensku borginni Krsko í gær.
Staðan í hálfleik var 14:10, Slóven-
um í hag, og þeir völtuðu hreinlega
yfir Þjóðverja í síðari hálfleik en
munurinn var orðinn níu mörk um
miðjan hálfleikinn. Gorazd Skof,
markvörður Slóvena og einn af níu
leikmönnum stórliðsins Celje Lasko
í þeirra hópi, átti frábæran síðari
hálfleik.
Heiner Brand, þjálfari Þjóðverja,
skellti skuldinni að mestu leyti á
dómara leiksins, en þeir voru
heimamenn sem komu í staðinn fyr-
ir austurríska dómara, sem forföll-
uðust á síðustu stundu. „Það voru
tvær ástæður fyrir þessum ósigri,
hræðileg nýting á dauðafærum og
ótrúleg túlkun sannkallaðra heima-
dómara á reglunum. En við eigum
talsvert í land með að fínpússa okk-
ar leik,“ sagði Brand eftir leikinn.
Miladin Kozlina, Matjaz Brumen
og Zoran Jovicic skoruðu fimm
mörk hver fyrir Slóvena og Siarhei
Rutenka skoraði fjögur.
Frank Von Behren skoraði fimm
mörk fyrir Þjóðverja, þar af fjögur
úr vítaköstum, og þeir Oleg Velyky
og Torsten Jansen gerðu þrjú mörk
hvor.
Þjóðirnar mætast aftur í dag.
Slóvenar fóru létt með
Evrópumeistarana
FÓLK
BADMINTONKONURNAR
Ragna Ingólfsdóttir og Sara Jóns-
dóttir eru í 29. sæti á heimslistanum
í tvíliðaleik, en nýr listi var gefinn út
í fyrradag. Þær hafa hækkað um tvö
sæti á listanum frá því um áramót.
Ragna er í 56. sæti í einliðaleik og
hefur hækkað um eitt sæti en Sara
hefur hækkað um níu sæti og er
komin í 74. sæti.
ATLI Sveinn Þórarinsson, knatt-
spyrnumaður, sem samdi við Val
fyrr í vetur, æfir þessa dagana með
enska 2. deildar liðinu Chesterfield,
samkvæmt frétt á Fótbolti.net í gær.
Ekki náðist í Atla Svein í gær en
sagt var að hann myndi æfa með
fleiri enskum liðum í næstu viku.
ÞÓRARINN Kristjánsson, kefl-
víski knattspyrnumaðurinn, er í leik-
mannahópi Aberdeen í fyrsta skipti
á morgun. Aberdeen tekur þá á móti
skosku meisturunum Celtic í úrvals-
deildinni á heimavelli sínum, Pitt-
odrie. Þórarinn samdi á dögunum
við Aberdeen til sex mánaða.
RENATE Götschl, skíðakona frá
Austurríki sigraði í gær öðru sinni á
þremur dögum á heimsbikarmóti í
risasvigi. Hún var hlutskörpust í
Cortina d’Anpezzo á Ítalíu 8/100 úr
sekúndu á undan Lindsay Kildow
frá Bandaríkjunum. Silvia Berger
frá Austurríki varð þriðja og Carole
Montillet frá Frakklandi fjórða.
BENJAMIN Raich frá Austurríki
sigraði í alpatvíkeppni í heimsbikar-
móti í Wengen í Sviss í gær. Hann
tók forystuna í sviginu og tryggði sér
síðan sigur með því að ná ellefta sæt-
inu í bruni. Lasse Kjus frá Noregi
varð annar og Didier Defago frá
Sviss þriðji en Bode Miller, sem er
efstur í heimsbikarkeppninni, heltist
úr lestinni í sviginu.
HOUSTON Rockets og New Jers-
ey Nets eru með marga fræga körfu-
boltamenn í sínum röðum en hinn til-
tölulega lítt þekkti Bob Sura stal
samt senunni þegar liðin mættust í
NBA-deildinni í fyrrinótt. Sura
skoraði 35 stig fyrir Houston sem
sigraði í framlengdum leik, 94:85, en
það er besta skor hans á ferlinum í
deildinni. Tracy McGrady bætti við
18 stigum fyrir Houston en Vince
Carter skoraði 17 stig fyrir New
Jersey og Jason Kidd 16.
ÍSLENSKI landsliðshópurinn í
handknattleik leikur sinn síð-
asta leik á Spánarmótinu gegn
Egyptum á morgun kl. 12.15 að
staðartíma. Síðasti leikur móts-
ins, Spánn – Frakkland, fer
fram kl. 16. Leikmenn íslenska
liðsins ætla ekki að sjá þann
leik, heldur halda þeir frá
Ciudad Real strax eftir leikinn
gegn Egyptum – til Madrid.
Ástæðan fyrir því er að lands-
liðsmennirnir ætla að bregða
sér á knattspyrnuleik á Sant-
iago Bernabeu í Madrid, og
horfa á stjörnulið Real Madrid
taka á móti leikmönnum Real
Zaragoza kl. 21 annað kvöld.
Bregða sér
á Santiago
Bernabeu
a við
ættu
agði
ar á
ulagi
ekki
sem
það
menn
liðið
seg-
nstu
menn
rður
afur
sson,
dlit í
um.
ang,
Þeg-
at-
kum
iggó
hef
Sig-
ssari
keppni. Nú fær hann loks að ein-
beita sér að því hlutverki sem hann
þekkir best, það er að vera leik-
stjórnandi. Hann hefur verið settur
í alls kyns reddingar undanfarin ár
og skilað því á misjafnan hátt. Nú
verður hann leikstjórnandi númer
eitt. Það kæmi mér því ekki á óvart
þótt Dagur eigi eftir að fara á kost-
um og leika eins sá sem valdið hef-
ur. Þannig getur hann hugsanlega
lokið sínum landsliðsferli með mikl-
um stæl,“ segir Guðjón sem þekkir
vel til hlutverks og ábyrgðar leik-
stjórnanda.
Markús og Arnór skila
skyttustöðunni með sóma
Margir hafa sett spurningar-
merki við styrkleika landsliðsins
þegar kemur að stöðu skyttunnar
vinstra megin í sókninni, en þá
stöðu hefur misjafnlega gengið að
manna síðustu ár. Eftir að Jaliesky
Garcia datt út úr myndinni veðja
flestir á að mest eigi eftir að mæða
á Markúsi Mána Michaelssyni í
þeirri stöðu, en hann hefur ekki
mikla reynslu af alþjóðlegum hand-
knattleik. Guðjón telur að Markús
eigi eftir standa undir væntingum
en einnig langar Guðjón til að sjá
Arnór Atlason spreyta sig í þeirri
stöðu á móti Markúsi. „Ég hef rosa-
lega trú á Arnóri og vil sjá hann fá
gott tækifæri í stöðu skyttunnar á
vinstri vængnum. Hann og Markús
eru rosalega flottir á meðan þeim
gengur allt í haginn og það á bara
að leyfa þeim að skjóta sig í stuð.
Ef illa gengur á bara skipta þeim
út, leyfa þeim að skipta stöðunni á
milli sín. Viggó er þannig þjálfari að
hann gefur þeim nokkra möguleika,
segir við þá; farðu inn á og vertu
óhræddur við að skjóta. Hann sýnir
þeim fullt traust og leyfir þeim að
skjóta nokkrum sinnum, kallar þá
ekki strax af velli eftir eitt mis-
heppnað skot til þess eins jafnvel að
brjóta niður sjálfstraustið,“ segir
Guðjón Árnason, sem telur að ungu
mennirnir í liðinu eigi eftir
blómstra undir handleiðslu Viggós
Sigurðssonar á heimsmeistara-
mótinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ungu leikmennirnir sem taka þátt í sínu fyrsta stórmóti undir stjórn Viggós Sigurðssonar lands-
liðsþjálfara. Vilhjálmur Halldórsson, Arnór Atlason, Vignir Svavarsson, Hreiðar Guðmundsson,
Ingimundur Ingimundarson, Markús Máni Mikaelsson, Einar Hólmgeirsson, Logi Geirsson og Al-
exander Petersson. Þeir eru nú á ferðinni á fjögurra landa móti í Ciudad Real á Spáni.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Guðjón Árnason, fyrrverandi fyrirliði FH-liðsins og landsliðs-
maður í handknattleik, hefur trú á ungu mönnunum í liðinu.
ra
m
eg-
að
ar
iben@mbl.is
„Verða tilbúnir að vaða
eld og brennistein“
Á MORGUN
f
ÍÞRÓTTIR