Morgunblaðið - 15.01.2005, Qupperneq 4
KNATTSPYRNUFÉLAG Siglu-
fjarðar, KS, hefur ákveðið að inn-
heimta ekki æfingagjöld fyrir yngri
flokka sína fyrri hluta ársins 2005. Í
staðinn skorar stjórn KS á foreldra
barna hjá félaginu að láta andvirði æf-
ingagjaldanna renna til landssöfnun-
arinnar Neyðarhjálp úr Norðri
vegna náttúruhamfaranna í Asíu.
BERTI Vogts, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari Þýskalands og Skotlands,
sagði við Bild að þýska landsliðið væri
og myndi ekki verða nægilega sterkt
til að geta tryggt sér heimsmeistara-
titilinn í Þýskalandi 2006 – eins og
Þjóðverjar gerðu á heimavelli 1974.
Þá lék Vogts með þýska liðinu.
JAYSON Williams sem lék með
NBA-liðinu New Jersey Nets á sínum
tíma og var frákastahæsti leikmaður
deildarinnar er þessa dagana að
reyna fyrir sér hjá CBA-liðinu Idaho
Stampede. Hann er 36 ára gamall en
hætti sem atvinnumaður í körfuknatt-
leik vegna alvarlegs fótbrots.
WILLIAMS hefur hinsvegar verið í
fréttum vegna morðákæru en hann
var sýknaður í apríl af þeirri ákæru.
Þann 8. mars n.k. verður nýtt mál sótt
gegn Williams af ættingjum hins
látna, en þar er hann sakaður um
manndráp af gáleysi.
WILLIAMS hefur æft með NBA-
liðinu Cleveland Cavaliers og Port-
land TrailBlazers hefur einnig boðið
Williams að taka þátt í æfingum liðs-
ins. Williams var á sínum tíma valinn í
stjörnulið NBA-deildarinnar og þótti
gríðarlega sterkur varnarmaður og
frákastari.
PETER Meisinger, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Grosswall-
stadt, hættir í vor og við starfi hans
tekur Michael Roth. Tveir Íslending-
ar leika með Grosswallstadt, Einar
Hólmgeirsson og Snorri Steinn Guð-
jónsson. Liðinu hefur ekki gengið
sem best á leiktíðinni og er í 14. sæti
af 18 liðum með 10 stig eftir 18 leiki.
Meisinger hefur þjálfað Grosswall-
stadt í átta ár.
JOACHIM Boldsen, leikstjórnandi
danska landsliðsins í handknattleik
og leikmaður þýsku meistaranna
Flensburg er meiddur og telur Torb-
en Winther, landsliðsþjálfari Dana,
aðeins vera um helmingslíkur á að
Boldsen geti tekið þátt í heimsmeist-
aramótinu í Túnis. Lars Krogh
Jeppesen, helsta skytta Dana, glímir
einnig við meiðsli og leikur einnig
mikill vafi á að hann geti leikið með
Dönum á HM.
FÓLK
NÝTT mót fyrir meist-
araflokk kvenna í knatt-
spyrnu, Faxaflóamótið, hefst
á morgun, sunnudag. Þar
leika félög af höfuðborg-
arsvæðinu, utan Reykjavík-
ur, ásamt liði ÍBV. Mótið er
mjög sterkt því að í því taka
þátt sex af átta liðum úrvals-
deildar, Breiðablik, ÍBV,
Stjarnan, FH, Keflavík og
ÍA, og auk þeirra er 1. deild-
arlið Hauka með í mótinu.
Það eru Breiðablik og ÍA
sem mætast í fyrsta leik
mótsins en hann hefst kl. 15
á morgun í Fífunni í Kópa-
vogi.
Um aðra helgi hefst síðan
Reykjavíkurmótið í meist-
araflokki kvenna. Í því taka
þátt úrvalsdeildarlið KR og
Vals og 1. deildarlið Fjölnis,
Fylkis, ÍR og HK/Víkings.
Faxaflóamót
í kvenna-
flokki
Byrjunarlið íslenska liðsins erþannig skipað: Friðrik Stef-
ánsson, Njarðvík, Magnús Þór
Gunnarsson, Keflavík, Páll Axel Vil-
bergsson, Grindavík, Hlynur Bær-
ingsson, Snæfell, Sigurður Þor-
valdsson, Snæfell. Aðrir leikmenn
eru: Sævar Ingi Haraldsson, Hauk-
um, Eiríkur Önundarson, ÍR, Gunn-
ar Einarsson, Keflavík, Páll Krist-
insson, Njarðvík, Svavar Atli
Birgisson, Tindastóll. Sigurður
Ingimundarson valdi sjálfur Brent-
on Birmingham úr Njarðvík og Lár-
us Jónsson úr KR í sitt lið.
Byrjunarlið erlendra leikmanna
er þannig skipað: Anthony Glover,
Keflavík, Clifton Cook, Skallagrím-
ur, Nick Bradford, Keflavík, Darr-
rell Flake, Fjölni, Darrell Lewis,
Grindavík.
Aðrir leikmenn eru: Chris Woods,
Hamar /Selfoss, Joshua Helm, KFÍ,
Matt Sayman, Njarðvík, Jason Pry-
or, Val, Jeb Ivey, Fjölni, Einar Jó-
hannsson valdi sjálfur ÍR-ingana
Theo Dixon og Grant Davis, ÍR.
Leikurinn hefst kl. 16.
Kvennalandsliðið mætir
sterku úrvalsliði
Í Stjörnuleik kvenna, sem verður
kl. 14, mætast annars vegar lands-
liðshópur sem Ívar Ásgrímsson,
landsliðsþjálfari valdi ásamt Henn-
ing Henningssyni aðstoðarþjálfara.
En liðið mun mæta erlendum leik-
mönnum í 1. deild kvenna auk ís-
lenskra leikmanna sem valdir voru
af Sverri Þór Sverrissyni þjálfara
liðsins, en Sverrir þjálfar kvennalið
Keflavíkur.
Landsliðið er þannig skipað:
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík,
María Ben Erlingsdóttir, Keflavík,
Rannveig Randversdóttir, Keflavík,
Svava Stefánsdóttir, Keflavík,
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík,
Helga Jónasdóttir, Njarðvík, Ingi-
björg Vilbergsdóttir, Njarðvík, Erla
Þorsteinsdóttir, Grindavík, Alda
Leif Jónsdóttir, ÍS, Signý Her-
mannsdóttir, ÍS, Þórunn Bjarna-
dóttir, ÍS, Erla Reynisdóttir,
Grindavík.
Styrkt lið erlendra leikmanna:
Ebony Shaw, Haukum, Jerica
Watson, KR, Vera Janjic, Njarðvík,
Jaime Woudstra, Njarðvík, Myriah
Spence, Grindavík, Anna María
Sveinsdóttir, Keflavík, Bára Braga-
dóttir, Keflavík, Helga Þorvalds-
dóttir, KR, Sólveig Gunnlaugsdótt-
ir, Grindavík, Ólöf Helga Pálsdóttir,
Grindavík, Petrúnella Skúladóttir,
Njarðvík. Ragnheiður Theodórs-
dóttir úr Haukum tekur þátt í þess-
um leik verði ekki erlendur leik-
maður kominn í raðir Keflavíkur
fyrir laugardag.
Stjörnuleikir KKÍ
á Hlíðarenda
ÁRLEGIR Stjörnuleikirr Körfuknattleiksambands Íslands fara fram í
dag í íþróttahúsinu á Hlíðarenda í Reykjavík, heimavelli Valsmanna.
Íþróttafréttamenn völdu karlkaliðin sem mætast. Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflavíkur, mun stýra liði sem skipað verður ís-
lenskum leikmönnum, en Einar Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkinga,
stýrir liði sem skipað verður erlendum leikmönnum.
AP
Austurríska skíðakonan Renate Götschl, 29 ára, sem er hér á ferðinni – fagnaði í gær sigri í annað
sinn á aðeins þremur dögum á heimsbikarmóti í risasvigi í Cortina d’Anpezzo á Ítalíu. Lindsay C.
Kildow frá Bandaríkjunum varð önnur og Silvia Berger frá Austurríki þriðja.
FIFA, Alþjóða knattspyrnu-
sambandið, og Knattspyrnu-
samband Evrópu, UEFA, ætla
að sameinast um að halda fjár-
öflunarleik til styrktar þeim
sem eiga um sárt að binda í
Asíu vegna hamfaranna á öðr-
um degi jóla. Leikurinn fer
fram á Nou Camp í Barcelona
þriðjudaginn 15. febrúar og
lána Börsungar leikvang sinn
til þess að kostnaður verði
sem minnstur.
Annað liðið sem leikur verð-
ur skipað leikmönnum sem
fæddir eru utan Evrópu og
verður Brasilíumaðurinn Ron-
aldinho, knattspyrnumaður
ársins, fyrirliði þess. Hitt liðið
verður skipað Evrópubúum og
verður Úkraínumaðurinn And-
riy Shevchenko fyrirliði.
Marcello Lippi og Arsene
Wenger verða titlaðir þjálf-
arar þess liðs, en Carlos Al-
berto Parreira og Frank
Rijkaard hafa umsjón með liði
Ronaldinhos.
Fastlega er búist við að
flestir fremstu knattspyrnu-
menn heims taki þátt í leikn-
um og að um 100.000 áhorf-
endur greiði aðgangseyri.
Góðgerð-
arleikur á
Nou Camp
í Barcelona