Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 13.07.1953, Blaðsíða 6

Mánudagsblaðið - 13.07.1953, Blaðsíða 6
IS MÁNTJÐAGSBLAÐIÐ Mánudagurinn 13. júlí 1953 tekki leynt því. Þetta var svo jnýafstaðið...... ! Eg sló hann. i' Þú slóst hann? Já, það gerðiég, þegar hann Bagði mér að við yrðum báðir •lað hjálpast að. Þetta sagði 'hann. Svona ætlaði hann að (koma sér undan því. Það yrðu að vera tveir. Zona glennti upp augun, !hún gat ekki hamið sig leng- 1lir. Henni fannst hún vera að ikafna. Hún starði á hann ó- isjáandi augum, eins og allar .iilfinningar hennar væru slokknaðar. Ö, sagði hún, íhenni blöskraði svo að hatrið íblossaði upp í henni og óstöðv iandi löngun til að komast í Iburtu. Hún æpti og grét sem örvita manneskja, hún sneri aér fljótlega undan og stökk yfir gólf ið inn í svefnherberg- iið. Hún lá lengi í rúminu. Loks ívar hún orðin dauðþreytt á grátinum, en hélt áfram að snökta, af því það var einasta ihuggunin. Hún skildi nú, hvað hún hafði gert móti honum. ’Allt, sem hún hafði tekið og gefið, og reitt sig á, var nú allt einu einu kippt í burtu frá honum. Hún varð að finna ein- ’hver ráð, heiðarleg eða óheið- arleg til að réttlæta sig. Hún mundi, að hann hafði spurt !hana um, hvenær samband hennar við Foster hefði byrj- að. Það leit út fyrir að vera mikilsvirði fyrir hann að fá að i'vita þetta. Hún skildi á því, isem hann hafði áður sagt um jþáð, hvernig grunur hans hefði vaknað, á spurningum hvers vegna Forster hefði tekið hann í félagið og hvað þetta allt gææti þýtt. Hann píndi mig svo lengi, sagði hún grátandi. Hvað? Allt síðan í fyrrasumar. Hversvegna sagðirðu mér þetta ekki þá? Röddin var hörð og reiðileg. Eg vildi gera það, en gerði það samt ekki. Eg gat ekki íhugsað mér, að ég .... En þú gerðir það samt. Hann kom hingað einu sinni iárdegis. Gerðist það hérna? Aðeins einu sinni. Fyrst þeg tar hann kom hingað heim, rak ég hann í burtu. Næsta sinn ég gat ekki ráðið við það, ég gat það ekki! Ekkiþað? Hún beið nokkra stund með svarið. Það var af því, hvernig hann neyddi mig til þess, allt ifrá byrjun. 1 Hvernig fór hann að því, að neyða þig ? Hann — hann sagðist geta hjálpað þér. Sagðist hann geta hjálpað :mér? Hann sagðist skyldi sjá um, að færi illa hjá þér, að þú skaðaðist, ef ég féllist ekki á juppástungu hans. Hann starði á hana. En hann getur það ekki hrópaði ifaann. Hana — hamingjan góða! WWAWlViftWIAWlWVVVWiVWVWVbVrfWWVWWWVWVWWWWVWWWVWW Theodore Prait: Framhaldssagan 15. ZON A (THE TORMENTED) Hún horfði á hann, meðan hann var að velta þessu fyrir sér, og hún óskaði að það væri þetta sem hann vildi heyra. Gat hann trúað þessu? Vildi hann trúa því? 1 andlitssvip hans skiptist á ofsareiði og og gremja. Þú vildir það sjálf, sagði hann ásakandi. Nei, nei, ég vildi það ekki! Jú, sagði hann. Eg hataði hann. Þú vildir það sjálf. Það er engin önnur skýring til á þessu, nema — Hún sat upprétt og í fyrsta sinn brúkaði hún röddina með fullum styrkleika. Eg segi þér, að ég hataði hann, æpti hún. Eg hefði getað drepið hann! Hún var hissa á hinni sterku hatursfullu rödd sinni, og hún slcildi allt í einu, að ekki gat leikið vafi á því, að nú tryði hann henni. Hún hnipraði sig aftur saman í rúminu og fór að gráta. Þegar hann síðar fór að tala, var þreyta 1 röddinni, og það var eins og hann væri langt í burtu. Foster sagði við þig, að hann skyldi taka mig með í félagið ef þú létir til við hann ? Hann vildi skaða mig, bægja mér frá, ef þú gjörðir það ekki ? Og þú trúðir honum. Þú hjálpaðir mér! Hann sagði þetta eins og það væri lexía, sem hún átti að læra utanbók- ar. Eitthvað, sem hann reyndi að losna við. Já, þú hjálpaðir mér vel. Þú græddir 32 þús- und dali. 32 þúsund fjögur hundruð sjötíu og sex dali og 35 sent. Það var það sem hann borgaði fyrir þig. Þú varst að minnsta kosti ekki ódýr. Hvorugt þeirra sofnaði dúr um nóttina. Þau lágu vakandi hvort við annars hlið, klukku- stundum saman án þess að segja eitt orð, án þess að hreyfa sig, nærri því án þess að draga andann, en fundu með sársauka hvort til ann- ars návistar. Þau fóru á fætur um morg- uninn, sem fjendur, sem svo var ástatt fyrir, að þeir neydd ust til að þola hvor annan, en höfðu ekki löngun til nán- ari samveru. Hann var þögull, og hún , sem beið eftir merki frá honum, var líka þögul. Og í beiskjuþögn fó'r hann til vinnunar og lét hana sitja eft- ir fulla af sorg og óvissu all- an daginn. Þegar hann kom heim þetta kvöld töluðu þau saman, eða réttara sagt, hann talaði, en hennar hlutverk var að svara. En orðin voru bara meining- arlaus hljóð, bara orð, n?tuð- synleg til að halda uppi dag- lega lífinu. Hm kvöldið eftir þoldi hún þetta ekki lengur. Kvölin að bíða og vita ekki neitt, var meiri en hún gæti borið. Og hún sagði grátandi við hann. Hvað ætlarðu að gera? Hann horfði á hana, starði á hana í fyrsta sinn í tvo daga. Gera? Spurði hann hásum rómi. Hvað get ég gert ? Hversu miklu Roger trúði af sögu hennar, vissi Zona ekki, en hún skildi, að hann ætlaði sér að láta sem allt væri í lagi, að minnsta kosti út á við. Jafnvel þótt hjúskapur- inn hefði liðið skipbrot, þá var þó betra að halda því litla, sem eftir var, heldur en að tæta allt í sundur. Fyrir mann, sem var jafníhaldssamur og hann, var það betra að láta sem allt væri í lagi, betra en að auglýsa skömm síria fyrir almenningi. Meðan hún beið eftir, að Roger fyrirgæfi henni, sá hún hvað hún hafði gert honum. 1 hennar augum hafði hann breytzt; áður var hann ungur fjörugur maður, nú hafði hann elzt, unglingssvipurinn bar horfinn. Aldrei framar mundi hann geta litið upp til nokkurs manns. Roger hafði alltaf dreymt um það að fá nokkurt fé og verða ríkur maður. Það hafði verið aðalmarkmið hans og því hafði hann náð. En nú fann hann, að því aðeins gæti hann gleymt, hvernig hann hafði aflað fyrsta höfuðstóls- ins, að hann gæti losnað við þá viðbjóðslegu peninga. Hann setti hvern eyri í kaup- hallarbrask og bjóst við að tapa öllu. En verðið hækkaði og hækkaði og hann seldi fyr- irfram, áður en hann gat tvö- faldað það, sem hann lagði inn. Hann varð gramur yfir velgengni sinni og lagði fé í allt gott og illt, mögulegt og ómögulegt. Meðan aðrir menn leituðu eftir góðum hluta- bréfum, gel^k hann á veiðar eftir þeim, sem voru óviss. Stundum tapaði hann ,en ekki nógu miklu, eða svo fljótt, að hann yrði undir. Oft vann hann, og einn dag var hann kominn yfir fyrstu 100 dalina, og var á góðri leið með að ná í næstu 100 þúsundin. Hann breytti um aðferð, og lagði fé í beztu hlutabréfin á markaðnum og hélt að þau hlytu að lækka af því að þau voru komin svo hátt. Þau héldu áfram að hækka tak- markalaust og ástæðulaust og heimskulega. Það leit svo 'út, sem . hlutabréfamarkaðurinn hefði kippt í burt þyngdarlög- málinu. Zona og Roger voru ein heima mn jólin, og þau voru gleðisnauð. Af gömlmn vana fyldu þau gömlum jólasiðum að gefa hvort öðru gjafir. En gjöf Rogers til Zonu var ekki annáð en fimm hundruð dala ávísun, en gjöf Zonu sýndi, að hún þráði fyrirgefningu. Rog- er hafði engar ráðagerðir um gamlaárskvöld. Endir gamla ársins og byrjun nýja ársins þýddu bersýnilega ekkert í hans augum. Hann sat þögull allan tímann, sem þau borð- uðu miðdagsmatinn, og þegar Gladys var farin, sýndi hann engin merki þess að hann vissi hvaða dagur þetta var. Zona reyndi að komast að því, hvort hann hefði í raun og veru gleymt þessu, og hugsaði að brátt mundi reka að því, að hún þyldi ekki lengur hið ís- kalda viðmót hans. Hún varð mjög undrandi, þegar hann stakk upp á því, að þau færu eitthvað út og fengju sér glas. Henni tókst ekki að leyna á- kafanum og spratt á fætur. Já, það skulum við gera, við skulum f ara út. En hún hikaði lítið eitt, áður en hún spurði varlega: Roger, eigum við ekki að búa okkur ? Þá get ég brúkað nýja kjólinn minn, hann er svo fallegur. Roger, þú hefur ekki séð hann ennþá. Þér mun geðjast að honum, og það tekur ekki mínútu að hafa fataskipti. Hálfönugur sans- iðst hann á þetta, og hún hljóp inn í svefnherbergið til að búa sig. Zona beið með að segja hon- um hvað vel hann leit út, þangað til þau voru komin í það veitingahús, sem Roger hafði valið. Þegar hún dans- aði við hann, í faðmi hans, og hávært og glatt fólk allt í kringum þau, þá gerði hún allt, sem hún gat til að heilla hann til sín aftur. Hún vissi, að hún sjálf var mjög falleg í nýja kvöldkjóln- um sínum, sem var keyptur fyrir nokkuð af jólagjöf Rog- ers. Roger leit á hana, og jafn- vel þótt hann segði ekki eitt orð um útlit hennar, gat hann ekki leynt aðdáuninni, sem lýsti úr auginn hans, og af því að hann þrýsti henni dá- lítið þéttara að sér, ákvað hún að gefa því gætur, ef einhvern tíma vaknaði í honum aftur þrá til hennar. Þá hef ég unn- ið, sagði hún sigri hrósandi. — Þá hef ég fengið hann aftur til mín. 16. KAFLI Zona vissi, að hún hafði að- eins fengið vopnahlé við Rog- er, en engan sigur. Ef hún missti stjómina á sér einu sinni enn, þá yrði ekki tæki- færi til að vinna hann aftur. Hún fann upp erindi og alls- konar störf til að fylla daginn og hugann, til að berjast gegn þeim öflum, sem þegar einu sinni, höfðu komið henni í vandræði, og hún fór í langar göngur til þess að fá útrás fyrir krafta sína. Hún gekk suður um borgina alla leið út í f jármálahverfið, þar sem 14 —16 milljónir hlutabréfa skiptu mu eigendur daglega. Hún gekk norður um bæinn út í skemmtigarðinn og hún gekk austur og vestur, og hingað og þangað, í þeirri von að finna það, sem hún þarfnaðist mest — vernd gegn sjálfri sér. Einn dag þegar hún var á göngu, heyrði hún að maður, sem gekk framhjá, ávarpaði hana. Sæl vert þú, brúðmey. Hún sneri sér við og Johnny Leonard brosti vingjarnlega framan í hana. Eg sagði þér, að einn góðan veðurdag mundi ég koma og sækja þig, sagði hann og heils aði með handabandi. Johnny, hvað ert þú að gera í New York? Eg? Eg er hér til að reyna ölföngin. Hvar er Gracie? Gracie ? Hver er það ? Zona starði á hann. Ó, þú átt við Gracie. Hef- urðu ekki heyrt það ? Hvað, nei, hvað er —? Hann hikaði augnablik, meðan hann horfði á hræðslu hennar, en svaraði síðan. Henni líður vel. Hann hló létt eins og hann var vanur. , Hvað ert þú að gera hér án hennar? sagði Zona. Johnny varð óvenjulega í- bygginn. Hann leit í kringum sig til að sjá hvort nokkur hlustaði og hvíslaði síðan. Komdu, og svo förum við yfir í gistihúsið mitt, þá skal ég segja þér það.. En — Eg verð að sýna þér það. Það er upp í gistihúsherberg- inu mínu. Hann tók undir höndina á henni. Komdu nú, brúðmey. Zona skildi ekki, hvað það var, sem hann ætlaði að sýna henni. Kannski Gracie væri þarna. En einhvemveginn hafði það ekki þesskonar á- hrif á hana, því Gracie mundi hafa símað henni. Hún var að hugsa hvort nokkuð hefði komið fyrir á milli þeirra, en Johnny vildi ekki segja fleira. Hann var leyndardómsfullur og íbygginn alla leið. Þegar þau komu í gistihús- ið. Þá fór hann með hana inn í herbergið sitt. Hún fann sér stól að sitja á, en hann gekk að ferðatösku, sem stóð undir glugganum. Hann tók upp úr henni whiskyflösku, sem hann skeliti á borðið,

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.