Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 13.07.1953, Síða 8

Mánudagsblaðið - 13.07.1953, Síða 8
DREINUIANNAÐ Nýtt lag frá Sigfúsi — Erfiðleikar við Þjórsártún Bíllinn og stúlkan — Eg hélt ég fengi þrjá Fréttir herma að vinsæla lagið hans Sigfúsar Halldórsson- ar, Litla flugan, sé nú komið út á nótum í Kaupmannahöfn. Spánnýr danskur texti er við lagið. Þá segja kunnugir að nú hafi Sigfús samið enn eitt lag. Texti og nafn eru enn ekki fyrir hendi, en við vonumst til að geta sagt frá hvorutveggja næst. ★ Dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, fór ásamt nokkrum Ármenningum og Guðmundi Jónssyni í bii- reið Guðmundar á Vatnajökul. Dr. Sigurður sat á Hressingarskálanum ásamt kunn- ingjum sínum og ræddu þeir ferðalagið. M. a. spuiði einn viðstaddra, hvort ekki hafi verið margar torfærur í óbyggðum, sökum votviðra og vatnavaxta. Sigurður þagði um stund, en sagði síðan: „O jæja, ekki get ég nú kallað það, okkur reyndist einna erfiðast að komast framhjá Þjórsártúni". (P. S. Þjórsármótið var haldið kvöldið sem þeir fé- lagar fóru framhjá.) ★ Kunnur verzlunarmaður úr Reykjavík sem ekki lætur sér allt fyrir brjósti brenna, var á leið til útlanda með Gull- fossi. Hann tók bifreið sína með sér eins og margir aðrir. Þegar á áfanga kom, var bifreiðin höluð af skipinu upp á bnyggju. Svo óheppilega vildi til, að bönd slitnuðu meðan bifreiðin var hátt á lofti og féll hún niður og gereyðilagðist. Kunningi mannsins horfði á ófarirnar og hljóp aftur eftir skipinu til að tilkynna skaðann. Hann fann eiganda bílsins í klefa sínum og sagði þegar: „Veiztu maður, bíllinn þinn hrapaði úr trossunni og fór alveg í mask“. Eigandinn leit rólega upp og sagði: „Heyrðu, mikið hel- víti var hún lagleg þessi ljóshærða, sem sat hjá þér við bar- inn í gærkveldi". „En bíllinn. ... ?“ „Heyrðu, þú ættir að kynna mig fyrir henni %nð tækifæri“. Síðan hélt hann áfram að pakka saman dóti sínu. ★ Meðan á kosningum stóð um daginn, var mikill æsing- ur í smölum, að koma þeim mönnum á kjörstað, sem þeir hugðu að myndu kjósa flokk sinn. 1 Smalar Lýðveldisflokksins náðu í ungan skrifstofu- MÁNUDAGSBLAMIÐ Heimsókn.. Framhald af 4. síðu. þessir tveir, sem helteknir af stórum harmi. Mörg eru bág- indin í mannslífinu. Ekki trúi ég að Olafur nágtanni hafi ekki eitthvað létt undir byrð- ar þeirra11. „Þessir menn munu vera hinir mestu oflátar og ekki kunnað sig í híbýlum Ólafs, en honum líkar illa við tildur- menni, þau er lítt er í spunnið. Þess get ég að sá hinn stóri rumur, muni hafa viljað ásælast g'jafir þær, er ætlað- ar voru hinum væskillega, og mun Ólafur frændi vor hafa varpað þeim báðum á dyr sem fólum tveim eður afglöpum.“ „Rétt mun það, granni minn, og skulum vér hafna venjum vorum og spottast ei, að smá- mennum þessum. * sá hafði hníf falinn milli klæða og hefði banað mér ef ég hef ði haft uppi ásteytingar.“ „Það grunar mig að Ólafur hafi haft Heimdellinga fólgna í kjallara enda var hann ó- venju öruggur,“ sagði Her- mann og dæsti. „Ekki erum við Ólafur skild ir að skiptum, því nú skal sækja ráð til Vilhjálms sjóðs fóstra vors og mun hann kunna að ráða niðurlögum tröllsins í Sjálfstæðisflokkn- um“, sagði Eysteinn. „Vera má að svo sé, en hitt grunar mig, að Vilhjálmur muni semja frið við Ólaf, því hann er forvitri svo og sem hann metur einskis mín ráð. Nú skulum við fara sem hljóðlegast með öll þessi mál, svo ekki geri alþjóð gys að ferð vorri svo sneypileg sem hún er orðin. Mun Vilhjálmi þykja nóg að gert, þótt ekki komi smán ofan á svívirðing. Er bezt að við förum til heima húsa og skiljum hér leiðir. Skaltu Eysteinn þræða fá- mfenna stíga og sund því ekki þykir þú gæfulegur né sterk- legur og vildi ég sízt að út- hlaupsmenn eður stigamenn réðu á þig og káluðu þér áður en við báðir náum fundi Vil- hjálms. Er þó skömminni skárra að láta þig sæta átöl- um með mér en að ég einn standi og hlýði á slíkt.“ Lýkur þar með ferð þeirra félaga á fund Ólafs. Hermann var stórstigur mjög, er þeir félagar fóru frá Ólafi. Var við búið að Ey- steinn gæti ekki fylgt honum. Skyndilega snerist hann að Eysteini og mælti: „Það var mér næst skapi að ráða á Ólaf er'hann smánaði Sambandið, og það hefði ég gert ef ég hefði getað treyst þér til að ráða niðurlögum griðkonu hans. En þar sem fyrr ertu ónýtur Eysteinn og vesæll er sá maður er þig hef- ur að fylgiliði.“ „Sástu ekki að kvenskratti ttvað á að gera í hvöM GAMLA BÍÓ: Sigur íþrótta- mannsins. James Stewart, June Allyson. Kl. 5, 7 og 9. NÝJA BÍÓ: Fljúgandi smygl- arar. George Brent, Marta Toren. Kl. 5, 7 og 9. TJARNARBÍÓ: Eldfjöðrin. Sterling Hayden, Barbara Rush. Kl. 5, 7 og 9. mann, sem ekki hafði kosið áður og óku honum á kjör- stað. Vísuðu þeir honum í kjördeild og var nafn hans tekið og honum fenginn kjörseðill. Ungi maðurinn beið um stund og fór ekki inn í kjörklefann. Viðstaddur spurði eftir hverju hann væri að bíða og bað hann skjótast inn í klefann og kjósa. „Eg hélt ég fengi þrjá kjörseðla, eins og ég fékk í prófkosningunum hjá Lýðveldisflokknum", sagði ungi maðurinn um leið og hann hvarf inn í klefann. AUSTURBÆJARBÍÓ: Juar- ez. Paul Muni, Bette Davis. K1 5, 7 og 9. HAFNARBlÓ; Síðasta orust- an. Lloyd Bridges, Marie Windsor. Kl. 5, 7 og 9. t STJÖRNUBlÓ: Smyglað guU. Cameron Mitchell, Amanda Blake. Kl. 5, 7 og 9. TRlPOLlBÍÖ: Á vígslóðum Kóreu. John Hodiak, Linda Christian. Kl. 5, 7 og 9. Klukkan í Mjólkuríélags- húsinu Efst á Mjólkurfélagshúsinu hér í bæ er skífa, sem upp- runalega hefur verið umgerð Gullfaxi yfir Reykjavík í fyrsfa sinni S.l. miðvikudag voru fimm ár lið- in frá því að „Gullfaxi“, milli- Iandaflugvél Flug- félags íslands, kom fyrst til Is- lands. Á þessum 5 árum hefur flug- vélin fluit samtals 22.558 farþega, rösklega 339 smá- lestir af vörum og um 65 smálestir af pósti. 'k .,Gullf^xi“ hefur verið víðföruil þann tíma, sem , hann hefur verið í eigu Flugfélags íslands. Hann hefur lent á 40 flugvöllum í 21 landi, allt frá Damascus 4il Caracas og Mestersvík til Bermuda. Þá hefur flugvélin farið 930 ferðir milli Islands og útíanda, en samanlagður fjöldi flugferða er orðinn 1410. Flugtímar „Gullfaxa1' nema nú 6575, en vegalengdin, sem flogin hefur verið, er 12.170- 000 km. Svarar það til, að flugvélin hafi farið 54 ferðir umhverfis hnöttinn við miðbaug.1 ‘ Flugfélag íslands keypti Gullfaxa suður í Texas á sínum tíma, og var honum .flogið þaðan um New Jersey til Reykjavíkur. Hingað til lands kom hann 8. júlí 1948 og hefur síðan gegnt miklu og góðu hlutverki íil að bæía samgöngur við útlönd. Flugstjórar GuIIfaxa eru þeir Jóhannes R. Snorrason, Þorsteinn E. Jónsson, S igurður Ólafsson og Anton Axelsson. Þessi ,,klukka“ hefur legið í dái í mörg ár, og ættu eig- endur þessa myndarlega verzlunar- og skrifstofuhúss að sjá um, að þessi áminnzta „klukka“, sem ég leyfi mér að nefna svo, verði lagfærð hið fyrsta. Ætti bæjarfélagið jafnvel að stuðla að því, að það geti orðið. Myndi slík viðgerð á klukk- I unni verða mörgum bæjarbú- | um kærkomin og þarf ekki | frekari orðum að því að eyða. Klukku-umgerðin er engum 1 að gagni eins og hún er, en j gangfær klukka yrði mörgum j til gagns og nytja, og mættu : vísarnir gjarna lýsa í myrkri. Það myndi sjást langt að og verða til heilla þeim, sem ferð ast að næturþeli. Ef eigendur Mjólkurfélags- hússins geta af einhverjum ástæðum ekki orðið við þess- ari vinsamlegu ósk, ætti bær- inn að sjá um, að klukkan verði lagfærð. Það myndi borga sig fyrir bæjarbúa og herinní heild. Ragnar Benediktsson.

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.