Morgunblaðið - 12.02.2005, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÚR VERINU
SKINNEY-ÞINGANES hefur gert
samning við Nýherja um innleiðingu
á SAP-Sjávarútvegslausn. Um er að
ræða uppsetningu á upplýsingakerfi
sem heldur utan um alla meginferla
fyrirtækisins, svo sem fjárhag, inn-
kaup, birgðahald, sölu og dreifingu,
laun og mannauð.
,,Við völdum SAP þar sem um er að
ræða heildarlausn sem veitir okkur
betri aðgang að upplýsingum og get-
ur aðstoðað við að auka hagræði með
skilvirkum hætti,“ segir Aðalsteinn
Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinn-
eyjar-Þinganess.
Skinney-Þinganes hefur nú þegar
tekið í notkun fjárhagshluta lausnar-
innar en innleiðingartíminn var ein-
ungis tvær vikur. Stefnt er að gang-
setningu mannauðs- og launahluta í
lok febrúar og vörustjórnunar í mars.
Skinney-Þinganes er með höfuð-
stöðvar á Höfn í Hornafirði, gerir út
sjö fiskiskip og er með bolfiskfryst-
ingu á Reyðarfirði en alls starfaum
200 starfsmenn hjá fyrirtækinu, bæði
til sjós og lands.
Miklar væntingar
SAP-Sjávarútvegslausn hentar
fyrir allar stærðir fyrirtækja og segir
Aðalsteinn að miklar væntingar séu
gerðar til hennar. ,,Þannig mun fjár-
málahlutinn samhæfa allar fjárhags-
og viðskiptaupplýsingar og stjórnun-
arferla sem styður mun betur við alla
ákvörðunartöku. Vörustjórnunin tek-
ur á innkaupum, birgðahaldi, sölu- og
dreifingu. Á einum stað verða upplýs-
ingar aðgengilegar um allar vöru-
hreyfingar, sölu, dreifingu og inn-
kaup. Launahlutinn heldur til að
mynda vel utan um veiðiferðir skipa,
hvaða skipaflokk sem um er að ræða.“
Uppfyllir þarfirnar
SAP-Sjávarútvegslausn hefur ver-
ið í notkun hjá Samherja frá árinu
2002 en lausnin var þróuð af Nýherja í
samstarfi við Samherja. SAP-Sjávar-
útvegslausn er byggð á grunni
mySAP Business Suite frá SAP en
kerfið hefur verið þróað og stillt sér-
staklega með tilliti til þarfa íslenskra
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækja.
Skinney-Þinganes velur
SAP-Sjávarútvegslausn
„Heildarlausn sem
gefur betri sýn yfir
reksturinn“
FRYSTITOGARINN Venus HF
519 kom til hafnar í Reykjavík
upp úr hádeginu í gær með góðan
afla, rúm 750 tonn af þorski upp
úr sjó og er aflaverðmætið í þess-
ari veiðiferð rúmar 140 milljónir
kr. Skipið var við veiðar í Bar-
entshafi og tók veiðiferðin 40
daga.
Frystiskipin hafa verið að koma
hvert af öðru inn til löndunar og
hefur mikið verið að gera við
landanir úr skipunum og koma af-
urðunum til afskipunar.
Helga María AK 16 kom til
hafnar á Akranesi 2. febrúar og
var aflaverðmætið um 61 millj.
kr. Aflinn var um 519 tonn upp úr
sjó og var uppistaðan í afla skips-
ins þorskur, ufsi og karfi. Örfiris-
ey RE 4 kom til hafnar í Reykja-
vík 2. febrúar og var aflaverð-
mætið um 67 milljónir kr.
Aflamagnið var um 548 tonn upp
úr sjó af blönduðum afla. Höfr-
ungur III AK 250 kom til hafnar
á Akranesi í byrjun vikunnar og
er aflaverðmætið um 70 milljónir
kr. Aflinn er um 575 tonn upp úr
sjó af blönduðum afla.
Þerney RE 101 kom til hafnar í
Reykjavík einnig í byrjun vik-
unnar og er aflaverðmæti skipsins
75 milljónir kr. Aflinn er um 548
tonn upp úr sjó og uppistaðan í
aflanum er ýsa, ufsi og karfi.
Venus
með 140
milljónir úr
Barentshafi
ÞESSI mynd indverska ljósmyndarans Arko
Datta, er sýnir indverska konu í Cuddalore á
Indlandi syrgja ættingja sinn sem lést í flóðbylgj-
unni annan dag jóla, hefur verið valin Frétta-
mynd ársins 2004 (World Press Photo 2004), að
því er tilkynnt var í gær. Datta starfar hjá frétta-
stofu Reuters og tók myndina 28. desember.
Hún var valin úr tæplega 70.000 myndum sem
4.266 ljósmyndarar frá 123 löndum sendu í
keppnina sem haldin er árlega. Eru veitt verð-
laun í ýmsum flokkum, en fréttamyndirnar
hljóta jafnan mesta umfjöllun. Hlutu ljósmynd-
arar Reuters tvenn verðlaun af þrennum í þeim
flokki, auk þess að fá önnur verðlaun í flokk-
unum náttúrumyndir og fólk í fréttum.
Reuters
Mynd ársins sýnir sorg eftir hamfarirnar
KARLMAÐUR var handtekinn í
íbúð í miðborg Gautaborgar í gær-
morgun grunaður um ránið á
sænska auðmanninum Fabian
Bengtsson.
Maðurinn er rúmlega fertugur og
á vef Svenska Dagbladet kemur m.a.
fram að hann hafi játað við yfir-
heyrslur að hafa átt þátt í ráninu á
Bengtsson. „Ég er búinn að bíða eft-
ir ykkur,“ á maðurinn að hafa sagt
þegar lögreglan kom og handtók
hann, að því er Aftonbladet greinir
frá.
Talið er að Bengtsson, erfingja að
verslanakeðjunni Siba, hafi verið
rænt 17. janúar sl. en hann fannst
aftur 3. febrúar á bekk í Slottsskog-
en í miðborg
Gautaborgar.
Lögregla hefur
rannsakað málið
allan tímann og
hefur fengið nýj-
ar vísbendingar
eftir að Bengts-
son fannst, sem
m.a. hafa leitt til
handtöku manns í
Austurríki og nú annars í Gauta-
borg.
Sönnunargögn fundust í íbúðinni í
Gautaborg, m.a. sérsmíðaður hljóð-
einangraður kassi eða klefi sem
Bengtsson á að hafa verið haldið í.
Að sögn Aftonbladet fundust einnig
fleiri vísbendingar um að Bengtsson
hefði einmitt verið haldið í þessari
íbúð í þá 17 sólarhringa sem hans var
saknað.
Aftonbladet hefur einnig heimildir
fyrir því að Fabian Bengtsson hafi í
yfirheyrslum greint frá því að hann
hafi allan tímann haft koddaver yfir
höfðinu og nær ekkert séð af íbúð-
inni, nema gólf og þröskulda sem
hann gat lýst. Hann taldi einnig
þrepin upp þegar farið var með hann
í íbúðina og reyndi að gera sér grein
fyrir hve löng bílferðin væri þaðan
og út í Slottsskogen þar sem honum
var sleppt. Á þessu byggði lögreglan
m.a. það mat sitt að íbúðin væri mið-
svæðis í Gautaborg.
Handtekinn fyrir
ránið á Bengtsson
Gautaborg. Morgunblaðið.
Fabian Bengtsson
Játaði við yfirheyrslur að hafa tekið þátt í mannráninu ÞRJÁTÍU læknar og hjúkrunar-
fræðingar í Svíþjóð eiga yfir höfði
sér málshöfðun vegna ferðar til
Prag í boði lyfjafyrirtækisins Astra
Zeneca. Frumrannsókn er einnig
hafin á þætti Astra Zeneca í málinu
og grunur leikur á að um mútur
hafi verið að ræða, að sögn sænska
dagblaðsins Dagens Nyheter.
Sænski yfirsaksóknarinn Nils-
Erik Schultz hefur hafið rannsókn
á málinu en hún er á frumstigi.
Enginn hefur verið ákærður fyrir
lögbrot.
Boðsferðin var farin í september
í fyrra og dvöldu læknarnir og
hjúkrunarfræðingarnir í fimm
daga í Prag. Lyfjafyrirtækið segir
að tilgangur ferðarinnar hafi verið
að kynna rannsókn á lyfi en sak-
sóknarinn segir að grunur leiki á
að þetta hafi frekar verið skemmti-
ferð.
„Samkvæmt þeim upplýsingum
sem við höfum var dagskráin ekki
mjög efnismikil,“ sagði Schultz.
Dagens Nyheter segir að sam-
band sænskra sveitarfélaga og
samtök lyfjafyrirtækja hafi náð
samkomulagi um hvernig reglur
eigi að gilda um slíkar boðsferðir.
Blaðið segir að ákæruvaldið
rannsaki önnur mál sem kunni að
verða til þess að læknar og hjúkr-
unarfræðingar verði sóttir til saka
fyrir spillingu. M.a. sé verið að
rannsaka ferð lækna til Rómar í
boði lyfjafyrirtækisins Pfizer.
Boðsferð
sænskra lækna
rannsökuð
RÚMLEGA 20 manns voru drepnir í
þremur sprengjutilræðum í Írak í
gær.
Bílsprengja sprakk fyrir utan
mosku sjíta í bænum Balad Ruz,
norðaustur af höfuðborginni, Bagd-
ad. 14 fórust og minnst 22 særðust.
Níu þeirra sem týndu lífi voru
óbreyttir borgarar, þrír voru lög-
reglumenn en eitt líkið tókst ekki að
bera kennsl á. Í hópi fórnarlamba
morðingjanna voru þrjú börn.
Fyrr um daginn höfðu vígamenn
myrt níu manns í bakaríi í höfuð-
borginni. Árásin var gerð í Amin-
hverfinu þar sem sjítar eru í meiri-
hluta en þar búa einnig súnnítar.
Þótti líklegt að árásin tengdist átök-
um þessara trúarhópa því beint á
móti bakaríinu er lögreglustöð sem
ekki var ráðist gegn.
Þá beið bandarískur hermaður
bana í þriðju sprengjuárásinni í
Bagdad.
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, var í Írak í
gær og sótti heim borgina Mosul í
norðurhlutanum auk Bagdad. Sagði
Rumsfeld að bandaríska herliðið
gæti farið heim „og borið höfuðið
hátt“ þegar þjálfun íraskra örygg-
issveita væri lokið þannig að þær
gætu brotið á bak aftur vígahópa og
hryðjuverkamenn.
Yfir 20
vegnir
í Írak
Bagdad, Balad Ruz. AFP.