Morgunblaðið - 12.02.2005, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2005 23
DAGLEGT LÍF
Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
Granít borðplötur og flísar
Opið: Mán - fös. 11-18 • Laugard. 12-16 • Síðumúla 31 • 108 RVK • Sími: 553 1020
TILBOÐ TIL
15 FEB
TILBOÐ TIL
15 FEB
Anna Þóra Gylfadóttir við-urkennir fúslega að húnsé rómantísk og því skalengan undra að hún
stofnaði nýlega fyrirtæki sem held-
ur utan um framleiðslu og sölu á
vöru sem tengist ástinni. Fyr-
irtækið heitir Punkturinn yfir i-ið.
Anna Þóra framleiðir vörur sem
sýna ást í verki. Fyrir jólin gaf hún
út Ástarávísanahefti sem hefur að
geyma ávísanir sem ýmist eru óút-
fylltar eða útfylltar loforðum um
samveru, umhyggju og hjálpsemi.
Hægt er að gefa ástvini heftið í
heild eða koma einni og einni ávís-
un fyrir á stöðum þar sem líklegt
er að ástin eina rekist á þær, eins
og til dæmis undir koddanum, í
veskinu eða í jakkavasanum.
„Þetta kom þannig til að ég út-
skrifaðist í október sl. með BS-
gráðu í viðskiptafræði og hef verið
að leita mér að vinnu síðan. At-
vinnuleitin hefur enn ekki skilað ár-
angri og ég ákvað því að gera eitt-
hvað sjálf og kynnti mér hvað það
kostaði að hanna og
prenta ástarávísanahefti.
Fljótlega var ég komin
með samning við prent-
smiðju og innkaupastjóra
verslana og heftin voru
komin í búðir viku fyrir jól. Þetta
gekk allt vonum framar og það
seldust tvö þúsund hefti fyrir jólin.
Í byrjun árs fór ég út í það að end-
urhanna og bæta heftin og gera
þau veglegri fyrir bóndadaginn,
Valentínusardag og konudaginn.“
Gefa sér tíma
frekar en dýra bíla
Anna Þóra er dugleg við að koma
kærastanum sínum á óvart, eldar
góðan mat og skipuleggur óvissu-
ferðir til að viðhalda ástinni. „Mér
finnst mjög áríðandi að fólk átti sig
á að það þarf að hlúa að ástinni á
hverjum degi. Hugmyndin að ást-
arávísunum kviknaði meðal annars
út frá því að á haustmánuðum
fylgdist ég með fréttum um hvernig
allt fór á fullt í húsnæðismálunum
með tilkomu lægri vaxta og hærra
lánshlutfalli. Fólk fór að kaupa sér
dýrari húseignir og dýrari bíla. Það
er mikið álag sem fylgir svona
neysluþenslu, fólk hættir til að
gleyma því hver aðalatriðin eru.
Mér finnst full ástæða til að minna
fólk á að samvera skiptir miklu
máli til að færast ekki frá hvort
öðru. Ástarávísanirnar eru hann-
aðar með það í huga að sýna ástina
í verki, án þess að það kosti mikla
peninga eða mikla fyrirhöfn. Að
koma af og til á óvart, hjálpar mik-
ið til við að tendra neistann og við-
halda ástinni.“
Anna Þóra ætlar að halda áfram
að framkvæma hugmyndir sínar og
fyrir páska kemur á markað sæl-
gæti með yfirskriftinni „Ást í verki
á páskum“. Fljótlega
koma einnig á markað
gjafakort með svipuðu
sniði, ást í verki á afmæl-
isdaginn, fyrir mömmu,
fyrir pabba og fleira í
þeim dúr. Fyrir vorið stefnir hún
að því að gefa út Ástarávísanahefti
fyrir brúðhjón. „Þau verða með há-
tíðlegu sniði, prentuð á fallegan
pappír og mikið lagt í þau. Gull-
kornin sem þar verður að finna eru
samin í samvinnu við prest. Þetta
verður vísdómur um fyrstu skrefin
í hjónabandinu, um það að gleyma
ekki hvort öðru í hversdagsam-
strinu, því þó hringarnir séu komn-
ir á sinn stað þá kemur hjóna-
bandshamingjan ekki af sjálfu sér.“
Heyri ekki úrtöluraddirnar
„Ég hvet alla hiklaust til að fram-
kvæma þær hugmyndir sem koma
upp í kollinum og alls ekki hlusta á
úrtölur annarra, heldur aðeins á
sjálfan sig. Nokkrir í kringum mig
ráðlögðu mér frá því að fara út í
þetta, en ég er eins og heyrnarlausi
froskurinn sem komst upp á fjallið,
einmitt vegna þess að hann heyrði
ekki úrtöluraddirnar sem urðu til
þess að allir hinir froskarnir sem
höfðu heyrn, komust ekki upp á
fjallið. Og það er svo gott fyrir
sjálfsmyndina að virkja sjálfan sig
til framkvæmda. Ég vona að þessi
frásögn hvetji aðra til að láta
drauma sína rætast,“ segir Anna
Þóra hin framtakssama og róm-
antíska.
Ástarávísanirnar fást í verslunum
Pennans, Blómavali og Hagkaupum
og á femin.is.
SAMBÖND|Ást í verki
Nauðsynlegt að við-
halda neistanum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Anna Þóra er stolt af framtakinu
Ást í verki fyrir hann og hana.
Það þarf að
hlúa að ást-
inni á hverj-
um degi
ERLA H. Helgadóttir og gönguhóp-
ur sem hún er félagi í og stofnaður
var árið 1996, fóru til Þýskalands og
Ítalíu sumarið 2003 og gengu um
Alpana. Hópurinn gisti hjá vinkonu
Erlu, Helgu Þóru Eder, sem rekur
gistiheimili í Þýsku ölpunum.
„Það má segja að við höfum farið
nánast hvert sumar í nokkurra daga
gönguferðir með ferðafélögum um
landið. Þar sem við vorum búnar að
vera misheppnar með veður í þess-
um ferðum og lentum meira að
segja einu sinni í snjókomu, þá
kviknaði þessi hugmynd eitt sum-
arið að við ættum kannski að prófa
að fara eitthvað suður á bóginn, seg-
ir Erla.
Berchtesgaden varð fyrir valinu
en þar rekur Helga gistiheimilið.
Erla og Guðrún Antonsdóttir, sem
einnig er í gönguhópnum, vissu að
hinar í hópnum yrðu ekki
fyrir vonbrigðum með það
ferðalag. Hópurinn, sem
samanstendur af fimm
mömmum og fimm börnum,
flaug með LTU til München
og leigði bíla á flugvellinum.
Þaðan er tveggja klukku-
stunda akstur til Berchtes-
gaden. Vikudvöl í Berchtes-
gaden var notuð í göngu-
ferðir og til að heimsækja
helstu ferðamannastaði í ná-
grenninu og fundu allir eitt-
hvað við sitt hæfi.
Saltnámur og rennibrautir
Í 1.839 metra hæð yfir sjáv-
armáli er Kehlsteinhaus
sem þekkt er sem Arn-
arhreiður Hitlers. „Þarna er
stórkostlegt útsýni. Það er
mjög sérstakt að fara þarna
upp og ótrúlegt þrekvirki
sem unnið var við byggingu
hússins og vegarins sem
lagður er upp fjallið,“ segir
Erla. Hópurinn fór einnig í
gamlar saltnámur í nágrenninu þar
sem unnið hefur verið salt allt frá
árinu 1193. „Þetta var mjög
skemmtilegt. Allir þurfa að fara í
gamla saltnámubúninga og síðan er
farið með lest lengst inn í fjallið. Til
að fara neðar inn í fjallinu þarf mað-
ur svo að renna sér niður tvær risa-
stórar rennibrautir sem vakti mikla
lukku, sérstaklega hjá yngri kyn-
slóðinni.“
Königssee er 8 km langt vatn sem
er innst í dalnum í Berchtesgaden
og er umlukið klettum. „Þar er of-
boðslega fallegt og gaman að sigla á
vatninu, en þar er eingöngu leyft að
sigla á sérstökum rafmagnsbátum
og hefur verið þannig frá 1909. Uppi
á fjallinu Jenner (1.860 m hátt)
eyddi hópurinn einum degi í stór-
kostlegu umhverfi. „Við tókum kláf
langleiðina upp og löbbuðum þar um
og meðal annars yfir til Austurríkis.
Það er mjög þægilegt að geta haft
þetta val að fara með kláfum eða
skíðalyftum upp á fjöllin, sér-
staklega ef maður er ekki
mikill göngugarpur eða er
með litla krakka.“
„Við fórum síðan í hinar
ýmsu gönguferðir þarna í
kring og það þægilega við að
ganga þarna er að maður
þarf ekkert að huga að því
að hafa nesti með sér því alls
staðar eru fjallahús eða sel
sem selja veitingar, jafnvel
heimatilbúnar afurðir. Svo
er náttúrlega frábært að
hafa hana Helgu því hún
þekkir hvern krók og kima
og veit nákvæmlega um allar
skemmtilegar gönguleiðir.“
Eftir vikuna í Þýskalandi
var stefnan svo tekin á Ítal-
íu. „Við gistum í bænum
Garda við Gardavatnið, nán-
ar tiltekið í Villa Rosa. Þessa
gistingu fundum við á Net-
inu og vorum við fyrstu Ís-
lendingarnir sem gistu
þarna. Þar var yndislegt að
vera, allt afskaplega heim-
ilislegt og þjónustan eftir því. Sem
dæmi um það þá hafði fólkið pantað
borð fyrir okkur eitt kvöldið í Bar-
dolino sem er næsti bær við Garda
og gerði sonurinn sér lítið fyrir og
kom hjólandi þangað þegar við vor-
um að borða til að athuga hvort við
værum nú ekki örugglega ánægð
með staðinn.“
Gengu um Alpana og gistu
á íslensku gistiheimili
ÞÝSKALAND
Íslenska gistiheimilið í Berchtesgaden.
Gönguklúbburinn. Talið frá vinstri:
Ragna Fanney Óskarsdóttir, Unnur
Margrét Unnarsdóttir, Ingveldur
Ingvarsdóttir. Fyrir framan hana
er Helga Benediktsdóttir og við
hlið hennar Þórey Jónsdóttir og
fyrir aftan hana Erla Helgadóttir.
Við hlið Þóreyjar er Atli Bárð-
arson, svo Ívar Örn Smárason,
Guðrún Antonsdóttir og Daði
Rúnar Jónsson. Gistiheimili Helgu Þóru Eder
www.friedwiese.de/isl.htm
Símanúmerin eru: 0049-8652-
4123 og 0049-0160-96077432
Tölvupóstfang:
eder@friedwiese.de
Villa Rosa,
Garda
www.gardalake.it/villarosa
Ljósmynd/Erla H. Helgadóttir
FERÐALÖG