Morgunblaðið - 25.02.2005, Side 12

Morgunblaðið - 25.02.2005, Side 12
12 B FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ bílar Á mánudaginn kemur, 28. febrúar, eru slétt 64 ár lið- in síðan belgíska flutn- ingaskipið Persier strand- aði í vonskuveðri á svonefndri Dynskógafjöru við ósa Blautukvíslar skammt austan við Hjörleifshöfða. Ekki varð mannskaði og strax og veðri slotaði var farið að huga að björgun verðmæta. Helstu samtímaheimildir um strand þetta eru í útskrift af sjóprófum sem haldin voru í júní þetta sama ár, svo og dómi Hæstaréttar frá árinu 1943, þar sem rakin er saga strands og björgunar eins og hún kom frá Sjó- og versl- unardómi Reykjavíkur, sem kveðinn var upp ári fyrr. Í skipinu voru 100 vörubílar ósam- settir, en að öðru leyti var farmurinn hrájárn. Í ofangreindum heimildum er lítið sagt um björgun farmsins, sem mun einkum hafa miðast við að létta skipið til að ná því á flot aftur, enda virtist þetta 8.200 tonna skip við fyrstu skoðun lítið skemmt. Það stóð rétt í sandinum og vissi stefni til lands. Skipið hafði strandað austanvert við ós Blautukvíslar. Áin breytti sér hins vegar fljótlega og færði sig aust- ur fyrir þennan aðskotahlut sem nú truflaði rennsli hennar. „Að morgni þess 12. mars var farið aftur til skips- ins, en þegar þangað kom sást að áin Blautakvísl, sem hafði áður runnið vestan við skipið, rann nú fyrir aust- an það, gerði þetta losunina all erfiða því að sandurinn var svo lágur vestan við ána og varan myndi alls ekki vera óhult þar fyrir sjógangi. Var því byrj- að á því að veita ánni vestur fyrir skipið, einnig var gengið í að byggja skýli fyrir verkamennina uppi á sand- inum til þess að búa í. Daginn eftir kom í ljós að það myndi vera árang- urslaust að reyna að breyta ánni,“ segir í sjóprófunum. Ekki var einfalt mál að bjarga úr skipinu. Öllu sem bjarga átti varð að koma yfir Blautukvísl upp á sand- kambinn þangað sem það mátti telj- ast sæmilega öruggt. Til þess þurfti að setja upp kláf yfir árósinn, um 150 metra loftlínu. Yfir þetta haf var allt dregið á vír, menn og varningur. Til þess að fá festu í gljúpum sandinum var grafin í hann djúp og mikil gryfja og þar í lögð gild keðja, vafin utan um lestarhlera. Síðan var gryfjan aftur fyllt af sandi. Giftusamleg björgun manna Sjálf losun farmsins úr skipinu virðist hafa gengið nokkuð vel. Jó- hann P. Jónsson, skipherra á Ægi, segir í framburði sínum þetta: „Slys við björgunina varð ekki annað en það að 7 menn duttu í sjóinn, er þeir voru að fara í land, en ekki varð þeim meint af því að öðru leyti en því, að það gróf í eyrum eins sjömenning- anna.“ Aðrar heimildir greina nánar frá þessu slysi. Gísli Vigfússon í Skálmarbæ, þá tæplega þrítugur að aldri, stýrði spilinu um borð í Persier meðan björgun úr því stóð yfir. Hann sagði svo frá 60 árum síðar að vír hefði slitnað með þeim afleiðingum að kláfpallur sem mennirnir voru á féll í árósinn og þeir með. Öllum hefði tek- ist að krafla sig upp heilu og höldnu nema Þorsteini Bjarnasyni í Garða- koti og Gunnari Pálssyni frá Vík. Þeir bárust aftur með skipinu með útsog- inu en landaldan flutti þá fram með því aftur. Ekki er gott að segja hvernig farið hefði ef Sigurjón Böðvarsson frá Ból- stað, karlmenni að burðum, hefði ekki brugðist við af snarræði og fífl- dirfsku. Hann hafði verið í landi vegna meiðsla á hendi, en þegar hann sá hvað verða vildi kastaði hann sér í ána og dró sig yfir hana eftir kaðli sem lá út í skipið. Þegar að sjónum kom þar sem Þorsteinn og Gunnar voru að hrekjast óð Sigurjón tafar- laust út í en aðrir viðstaddir tóku höndum saman og mynduðu keðju til að halda í hann. Með samblandi af harðfylgi og heppni tókst honum að ná taki á Þorsteini og Gunnari er þeir bárust inn með skipinu öðru sinni. Gunnar hafði þá læst sig heljartökum um herðar Þorsteins, og það svo að erfiðlega gekk að losa hann þó á land væri komið. Þorsteinn var orðinn meðvitundarlaus en með sameinuð- um lífgunartilraunum Gunnars Magnússonar í Reynisdal og ónafn- greinds stýrimanns af Persier tókst að vekja hann til lífsins á ný. Hann mun þó aldrei hafa orðið samur eftir. Dodge og GMC Samtímaheimildir eru fáar um það athyglisverða björgunarstarf sem unnið var þarna á sandinum er bíl- unum var bjargað. Engar skýrslur sýslumannsembættisins í Vík er að finna um Persier-strandið og fæstir lengur til frásagnar sem við þetta verk unnu.Enginn þeirra sem tókst að hafa samband við meðan unnið var að gerð Sögu bílsins á Íslandi hafði aðstöðu til að hafa heildaryfirsýn yfir verkið. Fram kemur af vitnisburði Gísla í Skálmarbæ og Gunnars frá Reynis- dal að þetta voru tvær gerðir af Dodge-vörubílum og ein af GMC. Auk þess má sjá staðfestingu þess á mynd sem til er af nokkrum bílanna saman. Minni Dodsarnir og allir Gemsarnir voru með drif á öllum hjólum. Fyrir liggur að bílarnir áttu að fara til Englands og voru hluti af svonefndum „ex-French Contract“. Upprunalega var þetta hergagna- samningur við Frakka, en þar sem Frakkland var fallið þegar hér var komið sögu var því sem út af stóð af samningnum beint til Englands. Sá sem gerst vissi um björgun bílanna upp úr skipinu, þeirra sem enn voru til frásagnar er þessi bók var í smíð- um, var Guðni Guðbjartsson (lést 20. október 2004). Hann var vélstjóri á varðskipinu Ægi er þessir atburðir gerðust. Svo vildi til að hann var í landi að ná sér eftir fingurbrot, en þegar ákveðið var að freista þess að bjarga skipinu var hann sendur aust- ur með dælur því skipið var fullt af sjó og gætti í því sjávarfalla. Þar sem ekki var hægt að kynda gufuvél skipsins voru þess eigin dæl- ur óvirkar. Verkefni Guðna var að dæla sjó úr skipinu og vera Guð- mundi Guðjónssyni stýrimanni af Ægi, sem stjórnaði björgunaraðgerð- um af hálfu Skipaútgerðar ríkisins, til aðstoðar við skipulagningu og stjórn á strandstað. Guðni var sleitulaust um borð upp frá því þar til skipið kom til Reykjavíkur. Guðmundur Jónasson, sem síðar varð kunnur undir viðurnefninu „fjallabílstjóri“, var fenginn til að flytja dælurnar austur. Ekki komst bíll hans nema nokkrar lengdir sínar í átt til sjávar út af alfaraleiðinni aust- ur sandinn. Þá var brugðið á það ráð að taka dælurnar sundur og flytja þær sundurteknar á klyfberum að strandstað. Þar þurfti svo að setja þær saman aftur. Erfið björgun upp í sandinn Það var ekki fyrr en 25. mars að hægt var að fara að nota spil skipsins og björgun bílanna fór í gang fyrir al- vöru. Í sjóprófunum kemur þó fram að byrjað hafi verið að bjarga þeim 14. mars, ellefu dögum áður en gufu- spilið komst í gagnið. Fyrst í stað var baslað við að skipa þeim í land með handtalíum og kraft- blökkum og má nærri geta að það hefur ekki verið aðgengilegt verk. En bílarnir voru ofan á hrájárninu og þá varð að fjarlægja áður en hægt var að koma járninu frá borði. Ljóst er að kassarnir voru of þungir til þess að hægt væri að draga þá óopnaða í land, yfir þetta breiða lón. Gísla í Skálmarbæ minnti að hásingarnar og hjólin hefðu verið sett undir um borð, áður en grindin var hífð í land. Mynd- ir sem geymdust í eigu Guðna sýna að það hefur að minnsta kosti ekki átt við um þær allar. Böðvar Jónsson frá Norðurhjáleigu, sem vann við björg- unina í landi, minnist þess hve erfitt var að bjarga dótinu þaðan sem það kom í land og lengra upp í sandinn, til dæmis að velta dekkjunum upp frá flæðarmálinu. Kjartan Sveinsson í Vík, síðar símaverkstjóri, man líka eftir bílpöllunum, sem með skjólborð- unum voru líkastir skúffum. Þá varð að taka þarna í flæðarmálinu, ýmist á hvolfi eða rétta, og bera þá með hand- afli svo langt upp í sandinn að hægt væri að koma þeim á flutningstæki. Enginn man beinlínis eftir kössunum í sandinum, en telja má víst að kass- arnir hafi verið notaðir til að koma minni hlutum í land. Allir sögumenn muna eftir miklu timbri uppi í sandi, sem að lokum var hreinsað og flokkað í stærðir og boðið upp sem strand- góss. Jafnóðum og hver grind kom á land voru settar undir hana hásingar og hjól og síðan var hún dregin lengra frá sjó. Framan af voru not- aðir hestar til þess og stjórnaði Sig- ursveinn Sveinsson frá Fossi því verki. Það var þó illt verk og mann- skapurinn þurfti að ýta til að létta undir með hestunum.Hestar voru einnig notaðir til að auðvelda drátt á ýmsum fleiri þungum hlutum upp eftir sandinum, þangað sem hægt var að lyfta þeim upp á bíl. Fenginn var hópur bifvélavirkja og aðstoðarmanna undir forystu Nikul- ásar Steingrímssonar (Bíla-Lása) til að setja bílana saman. Hans hægri hönd var Gísli Gunnar Björnsson Blöndal, en helsti aðstoðarmaður þeirra var Sighvatur Gíslason bif- vélavirki í Vík. Undir handarjaðri þeirra þremenninga réðst fjöldi manns til þessarar vinnu sem hófst um mánaðamótin mars-apríl, um mánuði eftir að skipið strandaði. Samsetningin flutt upp að Hafursey Óttalegt basl reyndist að setja bíl- ana saman á strandstað því sandur og sjór smugu alls staðar inn í, þó slegið væri upp skýli úr kassafjölum, sem nóg var til af. Auk þess kom í ljós að stærri Dodge-bílarnir voru bjarg- arlausir í sandinum, en GMC-bílarnir voru með drif á öllum hjólum og komu að góðu gagni við erfiðar að- stæður. Því var brugðið á það ráð að slá upp bílaverksmiðju fyrir ofan sand þar sem heitir Hafursey, lang- leiðina upp undir Höfðabrekkujökli, og setja saman þar megnið af bílun- um sem bjargað var. Þar er skýlla, ekkert særok og sandurinn ekki al- veg eins áleitinn. Þangað var flutt timbur úr bílakössunum og sett upp skýli eins og gert hafði verið niður frá til að setja bílana saman í, auk skála fyrir mannskapinn sem við það vann. Eftir nauðsynlegustu frumvinnu niðri á skansinum voru bílahlutarnir fluttir þangað. Grindurnar með hjól- unum voru dregnar, ein upp í fjórar í trossu, en aðrir hlutar fluttir á Gems- unum, og þar fór hin eiginlega sam- setning fram. Nærri lætur að 14–15 km loftlína sé frá strandstaðnum upp í Hafursey, en björgunarleiðin um 20–25 km. Glögga heimild um þetta starf er að finna í bókinni Áfram veginn, í við- tali Ásgeirs Sigurgestssonar við Gísla Björnsson Blöndal. Honum segist meðal annars svo frá: „Við hefðum ekki haft það upp í Hafursey nema á bílum sem voru með drif á öll- um hjólum; stóru Doddsarnir bifuð- ust ekki í sandinum, þeir spóluðu bara. Þess vegna settum við Gems- ana [GMC-bílana] saman í hvelli og notuðum þá til flutninga.“ Sandurinn var enn til óþurftar „Þetta var eins og öskubylur þegar hvessti. Til þess að tryggja að ekki leyndist sandur í eldsneytiskerfinu voru allir bensíngeymarnir sendir suður þar sem þeir voru hreinsaðir í Blikksmiðjunni Gretti en síðan fluttir austur aftur. Þegar bílunum hafði verið komið í endanlegt horf ókum við þeim til Reykjavíkur, nema fimm eða sex ósamsettum bílum sem fóru í varahluti niður í Kaldaðarnes í Flóa þar sem Bretar gerðu flugvöll. Það stóð til að selja bílana í Reykjavík og hefði munað um minna, því við sett- Brot úr sögu bílsins 100 vörubílar í strandi Bílarnir hafa verið settir saman. Nikulás Steingrímsson (Bíla-Lási) og Sigríður Magnúsdóttir, kona hans, standa lengst til hægri á myndinni. Bíllinn lengst til hægri er GMC, en síðan koma tveir Dodge-bílar af stærri gerðinni. Lengst til vinstri er Dodge af minni gerðinni, augljóslega með drif á öllum hjólum. Myndina á Magnús Nikulásson. Menn og hestar leggjast á eitt með að bjarga bílgrind upp í sandinn. Hér eru vagnhjól notuð undir hana. Mynd úr safni FIT. Ljósmynd/SHH Enginn Sandabílanna mun vera til í heilu lagi lengur. Nokkrir hlutar af Sanda- dods eru þó til í Hólmi í Landbroti, þar á meðal þessi samstæða. Hásing af GMC er varðveitt á Hóli í Hjaltastaðaþinghá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.