Morgunblaðið - 03.03.2005, Side 1

Morgunblaðið - 03.03.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 60. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Vissir þú að ... öflug íslensk framleiðsla skapar fleiri störf og stuðlar að atvinnuöryggi í landinu. Nú standa yfir Íslenskir gæðadagar í verslunum Nóatúns þar sem íslensk framleiðsla er í öndvegi. Persónulegt Hótel Tónlistarmaðurinn Toby ræðir um nýjustu plötu sína | Menning 47 Viðskipti | Flugfélag flugfélaganna Fjöltyngdur sjávarútvegsforstjóri Úr verinu | Bjartsýni í botnfiskiðnaði Virðist vera fiskur um allan sjó Íþróttir |Hlúa verður að dómurum Hörð barátta um úrslitasæti Viðskipti, Úr verinu og Íþróttir BANDARÍKIN, Evrópuríki og Alþjóða- kjarnorkumálastofnunin (IAEA) gagn- rýndu í gær ráðamenn í Íran fyrir að standa ekki við loforð um að hætta að auðga úran og kröfðust þess að þeir sýndu fram á að þeir væru ekki að reyna að koma sér upp kjarna- vopnum. Jackie Sanders, sendi- herra Bandaríkjanna, sagði að „skelfilega mörgum“ spurningum væri enn ósvarað varð- andi kjarnorkuáform Írana. Alþjóðakjarn- orkumálastofnunin gæti ekki frestað því „endalaust“ að vísa málinu til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna sem myndi þá ræða hugsanlegar refsiaðgerðir gegn Íran. Sand- ers áréttaði þá ásökun Bandaríkjastjórnar að Íranar væru að þróa kjarnavopn. IAEA birti í fyrradag skýrslu þar sem fram kemur að Íranar hafa meinað eftirlits- mönnum stofnunarinnar að skoða mann- virki sem talin eru tengjast kjarnorku- áformunum. Fulltrúi Írana á fundi IAEA í Vín í gær sagði að þeir hefðu ákveðið að heimila ekki eftirlitið vegna þess að hætta væri á því að upplýsingar um mannvirkin bærust til ríkja sem kynnu að vera að und- irbúa árás á þau. Bandaríkjastjórn hefur ekki útilokað slíka árás. Íran sætir miklum þrýstingi Vín. AFP, AP. Segjast hafa áhyggjur af hugsanlegri árás Jackie Sanders SVISSNESK tónlistarkona sér liti þegar hún heyrir tónlist og finnur einnig bragð af henni, að sögn vísindamanna við Zurich- háskóla. Konan, sem er 27 ára, hefur svokallað fylgiskyn sem lýsir sér í því að tónlist kallar á viðbrögð annarra skynfæra en eyrans. Vakti þetta forvitni vísindamannanna og þeir fengu hana til að taka þátt í rannsókn sem stóð í eitt ár. Tónlistarkonan, sem var ekki nafngreind, sér liti þegar hún heyrir ákveðna tóna. Hún sér til að mynda fjólublátt þegar hún heyrir F en C fær hana til að sjá rautt. Hún finnur einnig bragð af tónlistinni, eftir því hvernig tón- bilið er. Lítil tvíund fær hana til að finna súrt bragð, stór tví- und beiskt, lítil þríund saltbragð og stór þríund sætt. Finnur bragð af tónlist París. AFP. CESAR Arnar Sanchez, tvítugur undirliðþjálfi í bandaríska fótgönguliðinu, sem slasaðist lífs- hættulega í sprengjuárás í Írak í síðasta mánuði, er kominn til Íslands í mánaðar leyfi. Sprengja sprakk um tvo metra frá honum, með þeim afleiðingum að hann fékk sprengjubrot í höfuðið, vinstra auga, alla vinstri hlið líkamans, annan fótinn og hendur. Cesar ber sig vel þrátt fyrir það sem á undan er gengið og segir hermennskuna höfða til sín þrátt fyrir allt. Hér er hann ásamt fjölskyldu sinni í Grafarvog- inum. Frá hægri: Arna Bára Arnarsdóttir, móðir Cesars, og bræður, sinn til hvorrar handar, Richard Örnuson og Björn Árni Jóhannsson./24 Morgunblaðið/Golli Í faðmi fjölskyldunnar ERNINUM sem sleppt var um miðjan síðasta mánuð eft- ir rúmlega fjörutíu daga end- urhæfingu í Húsdýragarð- inum heils- ast vel. Þeir Kristinn Haukur Skarphéð- insson og Ólafur K. Nielsson fuglafræð- ingar lögðu í gær leið sína austur að Sogi í því skyni að fylgjast með erninum. Að sögn Kristins hafði ver- ið fest við örninn lítið sendi- tæki áður en honum var sleppt sem gerir að verkum að hægt er að miða hann út. Að sögn Kristins heyrðist strax í sendinum þegar komið var austur að ármótum Sogs og Hvítár. „Í ljós kom að örn- inn sat með þanda vængi til þerris á hraundrýli gegnt Al- viðru. Af því mátti ráða að hann hefði nýverið blotnað við veiðar í ánni. Stuttu síðar sáum við hann síðan fljúga með kröftugum vængjatök- um.“ Búist er við að örninn fari á hefðbundnar arn- arslóðir við Breiðafjörð eða Faxaflóa með vorinu. Örninn hraustur TEKJUSTOFNANEFND sveit- arfélaganna og ríkisins kom saman til fundar í gær og að sögn Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar, for- manns Sambands íslenskra sveit- arfélaga, liggja drög að samkomulagi fyrir. Eftir er að leggja lokahönd á nokkur atriði, m.a. varðandi undanþágur ríkis- eigna frá fasteignaskatti, lóðar- leigu og gatnagerðargjöldum. Eru það einkum sjúkra- og mennta- stofnanir. Vilhjálmur telur að ef allt gangi eftir, sem ríkið hafi lofað í starfi nefndarinnar, þá muni tekjur sveitarfélaganna aukast um 4,2 milljarða króna á næstu þremur árum. Inni í þeirri upphæð eru aukin framlög í jöfnunarsjóð sveit- arfélaga og aukin framlög vegna félagslega íbúðakerfisins, m.a. vegna úreldingar slíkra íbúða. Sveitarfélögin gerðu kröfu um að ríkiseignir, að frátöldum kirkjum og safnaðarheimilum, yrðu ekki undanþegnar fasteigna- skatti og öðrum tengdum gjöldum. Verði þessar eignir skattlagðar þýðir það um 1.200 milljóna króna tekjuauka fyrir sveitarfélögin næstu þrjú árin en síðan varanleg- ar tekjur sem taka munu mið af fleiri eignum og hærra fasteigna- mati. Til viðbótar þessum 4,2 millj- örðum króna er framlag ríkisins til fráveituframkvæmda sveitarfélaga framlengt til loka árs 2008, með um 200 milljónum króna á ári. Þá hefur samkomulag tekist um að veita 2 til 2,4 milljarða króna til stuðnings við sameiningu sveitarfélaga. Einnig stendur til að endur- skoða lög um skráningu fasteigna og tekjustofna sveitarfélaga, þann- ig að greiðsla fasteignaskatts hefj- ist frá næstu mánaðamótum frá því að nýbygging er fyrst metin, í stað árs í mörgum tilvikum til þessa. Þá á að endurskoða reglugerð um jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Vilhjálmur segir að ekki hafi tekist að ná öllum þeim markmið- um sem sveitarfélögin hafi sett sér. Eflaust hefði mátt ná meiri ár- angri, einkum við að fá fleiri var- anlega tekjustofna, en fulltrúar í nefndinni hafi reynt að gera sitt besta. Umræðan um þessi mál sé þó ekki búin. Minnir Vilhjálmur á að upphaflegt tilboð ríkisins innan tekjustofnanefndar hafi aðeins verið um 1,5 milljarðar króna. Því hafi verið staðfastlega hafnað. Drög að samkomulagi í tekjustofnanefnd ríkis og sveitarfélaga 4,2 milljarða tekjuauki ALAN Greenspan, seðlabankastjóri Banda- ríkjanna, hvatti í gær til ráðstafana til að minnka bandaríska fjárlagahallann og sagði hann vandamál sem brýnt væri að leysa. „Ólíklegt er að staðan í ríkisfjármálum batni verulega á næstu árum nema gripið verði til meiriháttar aðgerða til að minnka hallann,“ sagði Greenspan á fundi með fjárlaganefnd full- trúadeildar Bandaríkja- þings. Greenspan sagði að skammtímahorfurn- ar í efnahagsmálum væru góðar en fjárlaga- hallinn gæti stefnt efnahagsbatanum í hættu yrði ekki gripið til viðeigandi ráðstaf- ana. Ólíkt því sem repúblikanar hafa sagt kvaðst Greenspan ekki telja að aukinn hag- vöxtur nægði til að eyða hallanum. Fjárlagahallinn hefur aldrei verið jafn- mikill, mældur í dollurum, og gert er ráð fyrir því að hann aukist á fjárhagsárinu sem lýkur 30. september. Aukinn hagvöxtur nægir ekki Greenspan vill aðgerðir gegn fjárlagahallanum Alan Greenspan Washington. AFP. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.