Morgunblaðið - 03.03.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
4,2 MILLJARÐAR Í TEKJUR
Tekjur sveitarfélagana munu
aukast um 4,2 milljarða á næstu
þremur árum gangi allt eftir sem rík-
ið hefur lofað í starfi tekjustofna-
nefndar, segir Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga. Drög að sam-
komulagi nefndarinnar liggja fyrir.
Vígamenn felldir í Kongó
Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóð-
anna í Lýðveldinu Kongó felldu næst-
um 60 vopnaða menn í umfangs-
miklum aðgerðum í Ituri-héraði í
norðaustanverðu landinu í gær. Hinir
föllnu voru sagðir hafa verið í vopn-
uðum sérsveitum sem drápu níu frið-
argæsluliða frá Bangladesh í vikunni
sem leið.
Þjarmað að Íran
Bandaríkin, Evrópuríki og Al-
þjóðakjarnorkumálastofnunin (IA-
EA) gagnrýndu í gær stjórnvöld í Ír-
an fyrir að standa ekki við loforð um
að hætta að auðga úran. Evrópuríkin
og IAEA tóku undir kröfu Banda-
ríkjamanna um að Íranar gerðu
hreint fyrir sínum dyrum og sýndu
fram á að þeir væru ekki að þróa
kjarnavopn.
Kominn heim í frí
Íslenski hermaðurinn, sem slas-
aðist í sprengjuárás í Írak er kominn
heim til Íslands í mánaðarleyfi. Cecar
Arnar Sanchez hlaut m.a. augnskaða.
Hermennskan freistar hans þó enn.
Fólskuleg árás
Ungur drengur varð fyrir árás á
heimili sínu er tveir jafnaldrar hans
sprautuðu úða framan í hann. Hlaut
hann augnskaða af, hugsanlega var-
anlegan. Móðir drengsins segist ekki
skilja hvernig börn geti gert annað
eins. Hún hefur kært árásina.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 24
Fréttaskýring 8 Viðhorf 26
Erlent 14/15 Minningar 28/32
Minn staður 16 Hestar 33
Höfuðborgin 17 Brids 33
Akureyri 17 Dagbók 36/39
Suðurnes 18 Staður og stund 38
Austurland 18 Kirkjustarf 39
Daglegt líf 19 Bíó 42/45
Neytendur 20/21 Ljósvakamiðlar 46
Menning 22,39/40 Veður 47
Umræðan 23/27 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
DAVÍÐ Oddsson utanríkisráðherra
ræddi við Condoleezzu Rice, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrir
þremur dögum, um fyrirkomulag
viðræðnanna um málefni varnar-
stöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli.
„Ég átti stutt símtal við hana fyrir
tveimur dögum og var þar að fara yf-
ir það hvenær við gætum komið á
þessum viðræðum, sem að hefur ver-
ið stefnt í viðræðum mínum við
Bandaríkjaforseta og Colin Powell,“
sagði Davíð í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann sagði að Rice ætl-
aði að fara yfir þessi mál, þegar hún
kæmi til baka frá London. Stefnt er
að því að þau ræði aftur saman í
næstu eða þarnæstu viku um fyrir-
komulag viðræðnanna.
Á fundi Davíðs og Colins Powell,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, í Washington í nóv-
ember á síðasta ári var komist að
samkomulagi um að áframhaldandi
viðræður um málefni varnarstöðvar-
innar í Keflavík yrðu í höndum emb-
ættismanna utanríkisráðuneyta
landanna. Í þeim viðræðum átti m.a.
að fjalla um kostnaðarskiptingu milli
landanna vegna Keflavíkurflugvall-
arins. Upphaflega var stefnt að
fyrsta fundi í janúar en af þeim fundi
hefur enn ekki orðið.
Davíð Oddsson utanríkisráðherra um stöðu varnarmála
Ræddi við Rice um fyr-
irkomulag viðræðna
ELDUR varð laus í þriggja hæða
íbúðarhúsinu á Kirkjubóli við
Steingrímsfjörð skömmu fyrir
kvöldmatarleytið í gær.
Að sögn Jóns Jónssonar, ábú-
anda á Kirkjubóli, var verið að
vinna að endurbótum hússins þeg-
ar glóð komst í einangrun á milli
þilja.
„Við vorum hérna tveir bræð-
urnir viðstaddir þegar kviknaði í
og tókum sem betur fer strax eftir
þessu. Við börðumst ansi hreint
rösklega þangað til slökkvilið kom.
Brutum nokkur göt á vegginn og
sprautuðum þar inn vatni og náð-
um eiginlega að kæfa eldinn í fæð-
ingu. Svo þegar slökkviliðið kom á
staðinn þá var klárað að brjóta frá
einangruninni sem eldurinn logaði
í og henni mokað út. Þannig að
þetta fór í raun mun betur en á
horfðist.“
Aðspurður segir Jón nokkrar
skemmdir á húsinu, þannig sé einn
veggur ónýtur auk gólfefna sem
skemmdust af vatni. Að sögn Jóns
mun fjölskyldan flytja sig yfir í
gistihúsið sem hún rekur og stend-
ur við hlið gamla íbúðarhússins og
vera þar um sinn. Jón kveðst vera
tryggður fyrir tjóninu.
Eldur varð laus í íbúðarhúsi í gær
Glóð milli þilja
Ljósmynd/Jón Jónsson
Slökkviliðið þurfti að brjóta frá einangrun sem eldurinn logaði í.
SAMKVÆMT ósonlagsmælingum
bandarísku geimvísindastofnunarinn-
ar, NASA, hefur ósonlagið yfir Ís-
landi og hafinu í kring þynnst veru-
lega undanfarnar vikur, en slík
þynning er jafnan tímabundin og get-
ur staðið í 2–10 daga í senn. Sam-
kvæmt mælingum NASA er nú um
verulega ósonþynningu að ræða, seg-
ir Heiðrún Guðmundsdóttir, sérfræð-
ingur við Umhverfisstofnun.
Hún segist því vera undrandi á
þeirri fullyrðingu sænska vísinda-
mannsins Donal Murtagh að hættan á
víðtækri ósoneyðingu yfir norður-
hveli hafi verið ofmetin. Ennfremur
bendir Heiðrún á, að óvenju mikið
hafi sést af glitskýjum yfir öllu Íslandi
í vetur, og þau séu beinlínis til marks
um að ósonþynning eigi sér stað.
Þykkt ósonlagsins er mæld í svo-
nefndum Dobson-einingum á kvarða
frá 500 til 100, og á myndum frá
NASA má sjá að undanfarið hefur
þykkt lagsins yfir Íslandi, suðurhluta
Grænlands, Bretlandseyjum norðan-
verðum og Skandinavíu sunnanverðri
verið á bilinu 300–225 einingar.
Heiðrún segir, að þegar lagið
mælist um eða undir 275 einingum sé
um verulega ósoneyðingu að ræða.
Hún tekur fram að þessi eyðing, eins
og öll ósoneyðing, sé tímabundin, en á
meðan hún vari sé ráðlegt fyrir þá
sem eru mikið úti við, einkum jökla-
fara, skíðafólk og aðra á snæviþöktum
svæðum, að nota sólgleraugu og sól-
arvörn. Þetta eigi einnig við þótt ekki
sé heiðskírt veður því að útfjólubláir
geislar frá sólinni, sem ósonlagið veiti
vernd fyrir, eigi greiða leið í gegnum
skýjahulu.
Ósonlagið yfir Ís-
landi hefur þynnst
BÍLL valt í Bitrufirði seinni partinn
í gær er ökumaður hans missti
stjórn á honum í krappri beygju á
Stikuhálsi við Þambárvelli. Að sögn
lögreglunnar á Hólmavík er talið
að bíllinn hafi farið tvær veltur og
er hann ónýtur. Þurfti að flytja
ökumann með sjúkrabíl á heilsu-
gæsluna á Hólmavík til skoðunar,
en hann var talsvert marinn. Er tal-
ið að um ölvun hafi verið að ræða.
Grunur um ölvun
er bíll valt
TILKYNNT var um þjófnað á bæ í
Hrútafirði í gær, en þar var stolið
tækjum og tólum til girðing-
arvinnu. Að sögn Hannesar Leifs-
sonar, aðalvarðstjóra lögregl-
unnar á Hólmavík, er áætlað að
ránsfengurinn hafi verið í kring-
um hundrað þúsund króna virði,
en um var að ræða m.a. staurabor,
staurastrekkjara og grindarefni.
Segir Hannes ljóst að um fag-
menn hafi verið að ræða því þurft
hefur vörubíl eða traktor með
stóran vagn til að nálgast ráns-
fenginn, en lengstu bitarnir voru
4,6 metrar að lengd auk þess sem
um þungt efni hafi verið að ræða.
Hvetur Hannes alla sem orðið
hafa mannaferða varir til að hafa
samband við lögregluna. Telur
hann að þjófarnir hafi þekkt vel til
staðhátta en ekki er búið á bænum
þótt hann sé notaður til fjárbú-
skapar.
Tækjum og tólum
til girðingar-
vinnu stolið
ÖLDRUÐ kona lést eftir að bif-
reið ók á hana á Snorrabraut í
Reykjavík á tíunda tímanum í
gærmorgun.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var hún á leið yfir
Snorrabraut á móts við Grett-
isgötu klukkan 9:30 er bifreið á
leið til norðurs ók á hana. Kon-
an var flutt á slysadeild Land-
spítalans í Fossvogi en úr-
skurðuð látin fljótlega eftir
komuna þangað.
Lögregla segir að ekki sé
hægt að gefa upp aldur hennar
eða nafn að svo stöddu. Málið
er í rannsókn.
Öldruð
kona lést
í umferð-
arslysi
RÆKJUTOGARINN Húsey frá
Húsavík var vélarvana um það bil
sjö sjómílur norður af Mánáreyjum
úti fyrir Tjörnesi á Norðurlandi í
gærkvöldi.
Samkvæmt upplýsingum Til-
kynningarskyldunnar barst til-
kynning um óhappið upp úr klukk-
an níu í gærkvöld og var þá strax
ákveðið að Aldey, sem er annað
rækjuskip frá sömu útgerð, drægi
skipið til hafnar á Húsavík. Var
skipið komið með taug í Húsey
seint í gærkvöldi og á leið til hafn-
ar.
Gekk ferðin að sögn hægt enda
var farið að hvessa á þessum slóð-
um og veðurspá slæm. Komust
skipin því ekki nema í kringum
þrjár sjómílur á klukkustund og
bjuggust menn því við að þau kæm-
ust ekki til hafnar fyrr en nú undir
morgun.
Aldey með
Húsey í togi á
leið til hafnar
ELDUR kom upp í bíl í þorpinu í
Mývatnssveit um miðjan dag í
gær. Að sögn lögreglunnar á
Húsavík var um yfirgefinn bíl að
ræða sem búið var að klippa núm-
erið af. Talið er að óvitaverk hafi
leitt til brunans.
Voru tildrögin þau að nokkrir
guttar voru að leika sér með eld-
spýtur í bílnum sem leiddi til þess
að það kviknaði í honum. Voru
íbúar á staðnum snöggir til og
tæmdu úr fjórum slökkvitækjum
sem dugði til að kveða eldinn nið-
ur.
Fikt með
eldspýtur leiddi
til bílbruna